Morgunblaðið - 11.01.2013, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2013
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur
þessa dagana árlega Vínartónleika
sína. Fyrstu tónleikarnir voru í Eld-
borg í Hörpu í gærkvöldi, aðrir tón-
leikar verða í kvöld og loka-
tónleikarnir á morgun, laugardag
klukkan 16.
Vínartónleikarnir eru vinsælustu
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar-
innar á ári hverju en mörgum gest-
um þykir ómissandi að upplifa í
upphafi nýs árs þann glæsileika og
gleði sem einkennir Vínartónlist-
ina.
Einsöngvari á tónleikunum er
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran-
söngkona en sérstakur gestur er
Snorri Wium tenór. Hljómsveitar-
stjóri er Peter Guth. Hann er ís-
lenskum tónlistarunnendum að
góðu kunnur því hann stjórnar nú
Vínartónleikum hljómsveitarinnar í
tólfta sinn og hefur hann stjórnað
þeim mun oftar en nokkur annar
hljómsveitarstjóri. Guth hefur átt
mikilli velgengni að fagna, bæði
sem fiðluleikari og stjórnandi, en
einkum hefur hann skapað sér nafn
sem einn fremsti flytjandi samtím-
ans á tónlist Strauss-feðga.
Örfá sæti munu laus á tónleikana
í kvöld og á morgun.
Morgunblaðið/Jim Smart
Valsasveifla Stjórnandinn Guth er hylltur í lok Vínartónleika hér fyrir nokkrum árum.
Árlegir Vínartónleikar Sinfóníunnar
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Franska kvikmyndahátíðin sem
hefst í dag er sú 13. í röðinni og hald-
in í Háskólabíói að vanda. Hátíðin er
samstarfsverkefni franska sendi-
ráðsins á Íslandi, Alliance française
og Græna ljóssins
hjá Senu og
stendur hún til 24.
janúar. Níu
myndir frá
frönskumælandi
löndum verða
sýndar á hátíðinni
en opnunarmynd
hennar er De rou-
ille et d’os, eða
Ryð og bein, eftir
leikstjórann Jac-
ques Audiard, mynd sem hefur notið
mikilla vinsælda í Frakklandi og
hlotið mikið lof gagnrýnenda.
Alliance française, franska sendi-
ráðið og Sena velja myndirnar á há-
tíðina í sameiningu, að sögn Guð-
laugar M. Jakobsdóttur, forseta
Alliance française. Reynt hafi verið
að fá á hátíðina myndir sem hafi not-
ið vinsælda meðal almennings,
myndir sem hafi fengið góða dreif-
ingu á erlendum kvikmyndahátíðum
og verðlaunamyndir. Á hátíðinni
megi því finna bæði vinsælar og lof-
sungnar myndir.
Tvær aðalmyndir
Spurð að því hvort kalla megi á
einhverja kvikmyndanna aðalmynd
hátíðarinnar í ár bendir Guðlaug á
opnunarmyndina, Ryð og bein. „En
það sem er óvanalegt við hátíðina í ár
er að það eru tvær aðalmyndir,
mætti segja, tvær flottar myndir. Yf-
irleitt er það kannski ein sem er mjög
áberandi en þarna eru tvær þunga-
vigtarmyndin,“ segir Guðlaug en hin
myndin er Amour, eða Ást, eftir
Michael Haneke sem hlaut Gull-
pálmann, aðalverðlaun kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes, í fyrra.
Hvað Ryð og bein varðar segir
Guðlaug að þema hennar sé ekki
ósvipað þema Intouchables sem sló í
gegn á Íslandi í fyrra. Í henni segi af
vináttu sem þróist með tveimur ólík-
um einstaklingum, manneskjum sem
komi hvor úr sinni áttinni. Efnistökin
séu þó öllu alvarlegri í Ryð og bein en
Intouchables.
-Nú sýndi Intouchables að kvik-
myndir á frönsku geta slegið í gegn á
Íslandi. Hvað finnst þér um hlutfall
franskra kvikmynda í bíóhúsum hér
á landi? Það er ekki mjög hátt.
„Nei, það er alls ekki hátt. Frakk-
ar hafa náttúrlega verið svolítið fast-
heldnir á að halda í heiðri sinni bíó-
menningu í kvikmyndagerð sem er
kannski meira á listræna kantinum
sem er mjög gott og fínt. Ég held að
markaðurinn hafi ekki verið það stór
eða einsleitur þangað til þessar kvik-
myndahátíðir fóru að opna augu al-
mennings fyrir því að það er eitthvað
meira til en þessar amerísku. Ég
held að það þurfi að koma meira úr-
val og ég held að Bíó Paradís sé að
vinna ofsalega flott starf í þá átt,“
segir Guðlaug. Hún bendir á það að
lokum að myndirnar á hátíðinni séu
ekki allar frá Frakklandi heldur
einnig öðrum löndum þar sem töluð
sé franska. „Franska er ekki bara
Frakkland.“
Sýnishorn úr öllum myndum há-
tíðarinnar má finna á YouTube-rás
franska sendiráðsins: tinyurl.com/
franska.
Opnunarmyndin Úr kvikmyndinni Ryð og bein, opnunarmynd hátíðarinnar. Óskarsverðlaunaleikkonan Marion Co-
tillard þykir sýna mikil tilþrif í henni. Myndin er framlag Frakka til Óskarsverðlauna í ár.
Vinsælar og
lofsungnar
Guðlaug M.
Jakobsdóttir
Franska kvikmyndahátíðin hefst í
dag Níu kvikmyndir verða sýndar
Ryð og bein/De rouille et d’os
Stéphanie er farsæll háhyrn-
ingaþjálfari og á í ástarsambandi
við Alain sem er hnefaleikamaður.
Stéphanie lendir í skelfilegu slysi
sem breytir lífi þeirra til fram-
búðar. Leikstjóri er Jacques Audi-
ard og í aðalhlutverkum Marion
Cotillard og Matthias Schoenaerts.
Ást/Amour
Myndin segir af öldruðum hjónum,
George og Anne sem eru fyrrver-
andi píanókennarar. Anne fær
heilablóðfall og aðstæður þeirra
gjörbreytast. Leikstjóri er Michael
Haneke og í aðalhlutverkum Jean-
Lois Trintignant, Emmanuelle Riva
og Isabelle Huppert.
Baneitrað/Un poison violent
Í myndinni segir af stúlku á tán-
ingsaldri sem snýr aftur heim úr
kaþólskum heimavistarskóla og
kemst að því að faðir hennar hefur
yfirgefið móður hennar sem er nið-
urbrotin. Anna leitar huggunar hjá
afa sínum og kynnist frjálslyndum
pilti. Leikstjóri er Katell Quillévéré
og í aðalhlutverkum Clara Aug-
arde, Lio og Michael Galabru.
Stórlaxarnir/Les barons
Hassan, Aziz og Mounir búa í
Brussel og vilja fara sem allra
stysta leið að því að verða ríkir og
hamingjusamir. Gamanmynd eftir
leikstjórann Katell Quillévéré. Í að-
alhlutverkum eru Nader Bousss-
andel, Mourade Zeguendi og Monir
Ait Hamou.
Jarðarförin hennar ömmu/Adieu
Berthe - l’enterrement de mémé
Amma hins sjálfselska og klaufska
Armand fellur frá og fyllist hann
samviskubiti yfir því að hafa ekki
sinnt henni sem skyldi. Hann
ákveður að gera útför hennar sem
veglegasta en tekst afar illa til.
Gamanmynd eftir Bruno Podaly-
dés. Í aðalhlutverkum eru Denis
Podalydés, Valérie Lemercieer og
Isabelle Candelier.
Griðastaður/La clé des Champs
Hér segir af pilti og stúlku sem
uppgötva töfrandi veröld smádýra
og blóma við litla tjörn. Leikstjórar
eru Claude Nuridsany og Marie Pé-
rennou og í aðalhlutverkum Simon
Delagnes og Lindsey Hénocque.
Töframaðurinn/L’illusioniste
Teiknimynd eftir handriti Jacques
Tati sem segir af töframanni sem
heldur til Skotlands og kynnist þar
dóttur kráareiganda með skondn-
um afleiðingum. Leikstjóri er
Sylvain Chomet.
Wolberg-fjölskyldan/La famille
Wolberg
Bæjarstjóri í frönskum bæ er vin-
sæll meðal bæjarbúa en glímir við
illleysanlegan vanda heima fyrir.
Leikstjóri er Axelle Ropert og í að-
alhlutverkum Francois Damiens,
Valérie Benguigui og Valentin
Vigourt.
Nénette og áhorfendurnir/Nénette
Forvitnileg heimildarmynd eftir
Nicolas Philipert um fertuga ór-
angútan-apaynju í dýragarði í Par-
ís og daglegt líf hennar.
Myndirnar á Frönsku kvikmyndahátíðinni
Töfraheimur Úr kvikmyndinni Griðastaður sem ætluð er börnum jafnt sem
fullorðnum. Skyggnst er inn í veröld hins smáa í lífríkinu.
Bankastræti 2, Sími 551 4430
info@laekjarbrekka.is - www.laekjarbrekka.is
...í sögulegu umhverfi