Morgunblaðið - 11.01.2013, Síða 44
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 11. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Deilur milli nemenda í Rimaskóla
2. Stolið úr töskum ferðamanna
3. Aldrei séð jafnmikið magn klaka
4. Hvorki mannvonska né sparnaður
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Djúpið, kvikmynd Baltasars Kor-
máks, er ekki ein þeirra fimm kvik-
mynda sem tilnefndar eru til Ósk-
arsverðlauna sem besta erlenda
kvikmyndin. Tilkynnt var um tilnefn-
ingar í gær og hlaut kvikmynd Stev-
ens Spielbergs, Lincoln, flestar eða
tólf alls. »40
Djúpið ekki tilnefnd
til Óskarsverðlauna
Franska kvik-
myndahátíðin
hefst í dag og
geta bíógestir
tekið þátt í leik á
Facebook-síðu
hennar, facebook-
.com/franskabio,
sem gengur út á
að gefa álit sitt á
þeim kvikmyndum sem sýndar verða.
Leikurinn endar á miðnætti 27. jan-
úar og verður þá besta álitið valið.
Álitsgjafinn hlýtur vegleg verðlaun,
flug til Parísar og heimsókn í kvik-
myndaver og -skóla Luc Besson.
Flug til Parísar í
verðlaun í hátíðarleik
1.443.241 bíómiði var seldur á Ís-
landi í fyrra, 4,7% færri miðar en árið
á undan. Hins vegar juk-
ust miðasölutekjur um
2,3% milli ára, skv.
upplýsingum frá
Samtökum
myndrétthafa á
Íslandi. Bond-
myndin Skyfall
skilaði mestum
tekjum, rúmum 85
milljónum króna.
Seldum bíómiðum
fækkar milli ára
Á laugardag Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað með
köflum og sums staðar él. Frost 0 til 5 stig.
Á sunnudag Vestlæg átt og víða él. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning eða slydda með köflum SV- og V-
lands, skúrir SA-til en þurrt og bjart á NA-verðu landinu.
VEÐUR
Magnús Þór Gunnarsson
fann fjölina sína þegar Kefl-
víkingar heimsóttu Grind-
víkinga í Dominos-deildinni
í körfuknattleik í gærkvöldi.
Magnús hefur haft óvenju
hægt um sig í stigaskorun í
vetur en gerði í gær 27
stig þegar Keflavík vann
góðan sigur á Íslands-
meisturunum 106:98. Á
sama tíma nældi Skalla-
grímur í tvö stig á Sauð-
árkróki. » 4
Magnús hrökk í
gang í Grindavík
„Þegar kemur að leikjum í lokakeppni
stórmóta í handknattleik hafa sér-
sambönd [...] ekkert að segja um
hvar útsendingarrétturinn hafnar í
viðkomandi löndum né hvernig út-
sendingum er háttað, hvort þær eru
t.d. í opinni eða lokaðri dagskrá,“
skrifar Ívar Benediktsson meðal ann-
ars í viðhorfspistli um réttinn til að
sýna frá stórmótum í handbolta. »3
HSÍ fær ekki krónu en
situr uppi með skammir
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Það er svo mikilvægt að stofna til
tengsla með því að hittast,“ segir
Halldór Árnason, formaður Þjóð-
ræknisfélags Íslendinga, sem í sam-
vinnu við Vesturfarasetrið á Hofs-
ósi og Bændaferðir býður
almenningi á kynningarhátíð um
samskiptin við Vestur-Íslendinga á
Icelandair Hótel Reykjavík Natura
(gamla Loftleiðahótelið) á morgun.
Halldór segir að Snorraverkefnin
hafi slegið í gegn á meðal fólks af
íslenskum ættum í Norður-
Ameríku og ástæða sé til að ætla að
íslensk ungmenni hafi áhuga á að
taka við kyndlinum af sama krafti.
„Þegar hópurinn að vestan kemur
hingað í sumar er hugmyndin að
efna til fagnaðar með honum og ís-
lenskum ungmennum, sem hafa
áhuga á þessum kynnum,“ segir
Halldór. „Þannig viljum við stuðla
að því að koma á samskiptum á
milli ungra afkomenda Íslendinga í
Vesturheimi og jafnaldra þeirra á
Íslandi.“
Markvisst starf
Markvisst hefur verið unnið að
bættum samskiptum Íslendinga og
fólks af íslenskum ættum í Vestur-
heimi síðan ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar, sem tók við 1995, lét sig
málið varða. Halldór Ásgrímsson,
þáverandi utanríkisráðherra, hafði í
samráði við áhugamenn um sam-
starfið forgöngu um að Þjóðrækn-
isfélagið var endurreist 1997 og síð-
an hefur félagið starfað í anda þess
sem til var stofnað 1939 – að stofna
til og rækta menningarleg og fé-
lagsleg tengsl við fólk af íslenskum
ættum vestra. Atli Ásmundsson, að-
stoðarmaður Halldórs, hafði þessi
mál á sinni könnu í utanríkisráðu-
neytinu, en hann hefur fylgt þeim
eftir í starfi sem aðalræðismaður
Íslands í Winnipeg síðan 2004.
ÞFÍ er í góðum tengslum við
stjórn systurfélagsins í Norður-
Ameríku. Halldór bendir á að ár-
lega komi hingað fólk, sem sé virkt
í félögunum vestra, og ÞFÍ sé því
og öðrum gestum af íslenskum ætt-
um gjarnan innan handar. Á hverju
ári sæki fulltrúar ÞFÍ ársþing
Þjóðræknisfélagsins í Vesturheimi
og taki m.a. þátt í Íslendingahátíð-
um í Mountain í Norður-Dakóta og
á Gimli í Manitoba. Kynningar-
hátíðin á morgun sé til þess ætluð
að vekja athygli á þessu samstarfi.
„Þetta er ný nálgun,“ segir Halldór
og leggur áherslu á mikilvægi þess
að ungt fólk tengist jafnöldrum sín-
um af íslenskum ættum vestra. „Til
þess að Þjóðræknisfélagið deyi ekki
út með þessari kynslóð sem nú er
starfandi er endurnýjun mikilvæg,
að virkja yngri kynslóðir. Þetta er
fjárfesting til framtíðar.“
„Fjárfesting til framtíðar“
ÞFÍ vill virkja
yngri kynslóðir
í samskiptunum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hugsjónamaður Halldór Árnason, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, vill fá ungt fólk í auknum mæli í starfið.
Snorraverkefnið er samstarfsverkefni Norræna félags-
ins og ÞFÍ og hefur verið þungamiðjan í starfi ÞFÍ. Á
hverju sumri síðan 1999 hafa ungmenni af íslenskum
ættum vestra tekið þátt í skipulagðri fjögurra til sex
vikna dagskrá hér á landi. Sambærilegt verkefni fyrir
íslensk ungmenni hófst í Manitoba 2001 og síðan
2003 hefur verið boðið upp á styttra verkefni fyrir
eldri Vestur-Íslendinga. Ásta Sól Kristjánsdóttir og Gísli Rúnar Gíslason
greina frá þessum verkefnum á hátíðinni. Atli Ásmundsson ræðir um
menningararf Íslendinga í Vesturheimi, Atli Freyr Viðarsson spyr hvort
Vestur-Íslendingar skipti unga Íslendinga máli, Elín Hirst fjallar um mikil-
vægi ættartengsla og Svavar Gestsson um okkar fólk vestra. Þá segir Ey-
dís Egilsdóttir frá landnáminu í Kinmount og KK skemmtir á hátíðinni sem
stendur yfir frá kl. 14 til 16.
Tækifæri fyrir ungt fólk
SNORRAVERKEFNIN TENGJA KYNSLÓÐIR HÉR OG VESTRA
Heimsmeistaramótið í handknattleik
karla hefst í kvöld og Ísland mætir
Rússlandi í fyrsta leik á morgun. Sá
leikur er lykillinn að góðum árangri á
mótinu og getur ráðið miklu um hvort
Ísland nær öðru tveggja efstu sæt-
anna í riðlinum. Óskar Bjarni Ósk-
arsson varar við umræðum um
„þægilega“ mót-
herja í sex-
tán liða
úrslitum.
»2
Fyrsti leikur lykillinn að
góðum árangri á HM