Morgunblaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Sigurðarson og Loki frá
Selfossi sigruðu örugglega í keppni í
gæðingafimi í Meistaradeild í hesta-
íþróttum í gær. Þeir félagar unnu
nokkuð sannfærandi með ein-
kunnina 8,3. Efstu fimm riðu til úr-
slita.
Annar var Guðmundur Björg-
vinsson á Hrímni frá Ósi með ein-
kunnina 7,77, fast á hæla þeirra kom
Olil Amble og Kraflar frá Ketils-
stöðum með 7,74, fjórðu voru Þor-
valdur Árni Þorvaldsson og Stjarni
frá Stóra-Hofi með einkunnina 7,7
þá varð Sigurbjörn Bárðarson og
Jarl frá Mið-Fossum með ein-
kunnina 7,54.
Stigahæsta liðið er lið Top Reiter.
Sigurður og Loki
unnu gæðingafimi
Topp Reiter stigahæsta liðið
Ljósmynd/Óðinn Örn Jóhannesson
Sigurvegarar Sigurður Sigurð-
arson og Loki í sveiflu.
„Við vorum með dagskrá sem var blanda af skemmtidagskrá og fræðslu á
milli atriða og svo vorum við með borð á víð og dreif um Kringluna þar sem
fólk gat leitað upplýsinga og aðstoðar hjá bæði fagfólki og hjá þeim sem
standa fyrir sjúklingasamtökunum Heilaheill, Hjartaheill og Hjartavernd,“
segir Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, formaður stjórnar GoRed. Samtökin
stóðu fyrir konukvöldi GoRed í Kringlunni í gærkvöldi.
Átak Go Red nær til 40 landa. „Ástæðan var sú að fólk varð þess áskynja
að konur voru mjög lítt meðvitaðar um að þær gætu yfirleitt átt á hættu að
fá hjartasjúkdóma og heilablóðföll,“ segir Þórdís Jóna. skulih@mbl.is
Konukvöld GoRed fór fram í Kringlunni í gærkvöldi
Morgunblaðið/Golli
Blanda af skemmtun og
fræðslu um hjartasjúkdóma
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra sagði á Alþingi í gær að
hann hefði trú á því að bandaríska
alríkislögreglan (FBI) hefði ætlað
sér að nota ungan Íslending, sem
hún vildi yfirheyra hér á landi
vegna hugsanlegrar árásar á tölvu-
kerfi stjórnarráðsins, sem tálbeitu
í rannsókn sinni á málefnum upp-
ljóstrunarvefsins Wikileaks.
Ummælin féllu í umræðu um
samstarf og samskipti lögreglu og
stjórnvalda hér á landi við FBI
sumarið 2011. Málshefjandi var
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnarandstæðingar sökuðu Ög-
mund m.a. um að hafa ógnað sjálf-
stæði embætta ríkissaksóknara og
ríkislögreglustjóra með afskiptum
sínum.
Samtöl við ríkissaksóknara
Ögmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann byggði
þessa skoðun sína á samræðum
sem hann átti við þá einstaklinga
sem komu til fundar 24. og 25.
ágúst 2011. „Þeir voru frá okkar
embættum; ríkislögreglustjóra og
ríkissaksóknara og einnig var
fulltrúi okkar frá ráðuneytinu. Ég
átti síðan samtal við ríkissaksókn-
ara og ég dró mínar ályktanir af
öllum þessum samræðum,“ sagði
Ögmundur.
Hver átti að fylgja því eftir að
FBI-menn færu úr landi eftir að
upp komst að þeir hefðu verið að
sinna lögreglustörfum sem þú
taldir að þeir hefðu ekki heimild
til?
„Nú er það svo að öllum af er-
lendu þjóðerni er heimilt að vera í
landinu, jafnvel þótt þeir hafi lög-
reglustarf að viðurværi. Spurn-
ingin snýst um það eitt – eru
menn að sinna lögreglustarfi án
heimildar í landinu? Þegar við átt-
um okkur á því að svo er þá er
samstundis boðað til fundar með
ráðuneytisstjórum innanríkis- og
utanríkisráðuneytis og í kjölfarið
er fulltrúi bandaríska sendiráðsins
kallaður í utanríkisráðuneytið og
honum gerð
grein fyrir stöð-
unni; að það sé í
okkar óþökk að
fulltrúar banda-
rísku alríkislög-
reglunnar séu að
störfum án laga-
legra skilyrða. Í
kjölfarið eru þeir
horfnir af landi
brott,“ sagði Ög-
mundur og áréttaði að þeim hefði
ekki verið vísað úr landi.
Hvernig komuð þið þeim skila-
boðum til FBI-manna að rétt-
arheimildin væri ekki fullnægj-
andi?
„Því var komið til skila við þá
aðila sem eru tengiliðir við Banda-
ríkjamenn á sviði lögreglumála,
ríkislögreglustjóra, ríkissaksókn-
ara og síðan við utanríkisráðherra
og utanríkisráðuneytið. Þetta var
gert á fundi í hádeginu 25. ágúst.
Þá átti ég fund með ráðuneytis-
fólki og ríkissaksóknara og síðan
áttum við fund með ríkissaksókn-
ara og síðar með embætti ríkislög-
reglustjóra.“
Hlaut að vera ljóst
Þú sem innanríkisráðherra,
komst þú því til skila að rétt-
arheimildin var ekki fullnægjandi?
„Stóra málið var að íslenska lög-
regla tæki ekki þátt í aðgerð sem
ekki var heimild fyrir. Þetta er
það sem mestu máli skiptir,“ sagði
Ögmundur. Hann lítur svo á að
það hafi verið hlutverk þeirra aðila
sem hann átti fund með að koma
því til skila til FBI-mannanna að
réttarheimildin væri ekki nægileg.
„Eftir að íslenskir lögreglumenn
sem voru að ganga til samstarfs
við FBI-menn greindu þeim frá
því að ekki væri heimild til slíks
samstarfs af hálfu innanríkisráðu-
neytisins þá hlýtur þeim að hafa
verið ljóst hver afstaða íslenskra
yfirvalda var,“ segir Ögmundur.
En var þeim gert það ljóst með
skýrum hætti?
„Mér finnst þetta eins skýrt og
hægt er að vera. Bandarískum lög-
reglumönnum hlýtur að hafa verið
það ljóst.“
Ögmundur
taldi Íslending-
inn tálbeitu FBI
Byggt á samtölum við íslenska
embættismenn Dró sínar ályktanir
Ögmundur
Jónasson
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðherra, gang-
setti fyrstu tvær vindmyllur Lands-
virkjunar í gær við hátíðlega athöfn
skammt frá Búrfelli. Það gerði hann
með því að hringja í höfuðstöðvar
Enercon í Þýskalandi sem framleiðir
myllurnar og gaf heimild til að setja
þær í gang.
Hvínandi rok var á staðnum þegar
athöfnin fór fram og samkvæmt
upplýsingum frá Landsvirkjun er
vindhraði í 55 metra hæð að jafnaði
10-12 metrar á sekúndu.
Vindmyllurnar eru hluti af rann-
sóknar- og þróunarverkefni Lands-
virkjunar um hagkvæmni vindorku.
Á næstu misserum munu rannsóknir
snúast um rekstur við séríslenskar
aðstæður, þ. á m. áhrif af ísingu,
skafrenningi, ösku og sandfoki.
Orkuframleiðsla þeirra samsvarar
orkuþörf um 1.200 heimila.
Fyrstu
myllurnar
gangsettar
Athöfn Bryndís Hlöðversdóttir,
Hörður Arnarson, Steingrímur J.
Sigfússon og Margrét Arnardóttir.
Alþjóðlega matsfyr-
irtækið Fitch Rat-
ings hefur hækkað
lánshæfismat Ís-
lands fyrir lang-
tímaskuldbindingar
í erlendri mynt úr
flokknum BBB- í
flokkinn BBB. Þá
hefur Fitch Ratings staðfest lánshæf-
ismatið BBB+ fyrir langtímaskuld-
bindingar í innlendri mynt. Í tilkynn-
ingu sem Fitch sendi frá sér í gær
segir að hækkunin endurspegli þær
mikilfenglegu framfarir sem Ísland
heldur áfram að sýna fram á í efna-
hagsbata sínum í kjölfar hrunsins.
Loks hefur matsfyrirtækið staðfest
lánshæfismatið F3 fyrir skammtíma-
skuldbindingar í erlendri mynt og
jafnframt hækkað landseinkunnina í
BBB en hún var áður í BBB-. Horfur
fyrir lánshæfismat á langtímaskuld-
bindingum eru stöðugar.
Fitch hækkar
lánshæfi Íslands
Borgarlögmaður
hefur ákveðið að
krefja Ólaf F.
Magnússon, fyrr-
verandi borgar-
stjóra, um að
endurgreiða
styrk sem Ólafur
fékk greiddan
inn á reikning
Borgarmála-
félags F-listans
árið 2008.
Styrkurinn hljóðaði upp á 3,4
milljónir króna. Hæstiréttur komst
að þeirri niðurstöðu í desember á
síðasta ári að Reykjavíkurborg
hefði átt að greiða féð til Frjáls-
lynda flokksins.
Flokkurinn hafði áður fengið 2,8
milljónir frá borginni og því hafði
borgin tvisvar greitt styrkinn en
hefði átt að gera það einu sinni.
Borgin sendir bak-
reikning á fyrrver-
andi borgarstjóra
Ólafur F.
Magnússon