Morgunblaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 » Venjuleg ársfundarstörf » Önnur mál Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 24. janúar 2013 Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn mánudaginn 18. mars kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík. Ársfundur 2013 DAGSKRÁ FUNDARINS live.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er langtímaverkefni. Mark- aðssetning á lúxusvöru tekur tíma, sérstaklega þegar maður hefur ekki endalausa peninga til að setja í mark- aðsstarf,“ segir Steinþór Skúlason, forstjóri SS, um markaðssetningu á sérunnum lambakjötsafurðum til há- gæða veitingastaða í Moskvu og ná- grenni og St. Pétursborgar. SS og kjötafurðastöð KS taka þátt í einni af stærstu matvælasýningum Rúss- lands og héldu áfram markaðsstarfi sínu. Þar eru einnig fyrirtæki sem flytja út íslenskar fiskafurðir og vatn. Þetta er í þriðja skiptið sem SS og kjötafurðastöð KS taka þátt í Pro- dExpo-sýningunni. Unnið hefur ver- ið að lambakjötssölunni með dreif- ingarfyrirtækinu Marr og eru afurðirnar komnar í um þrjátíu veit- ingastaði í Moskvu. Verkefnið hefur gengið ágætlega, að sögn Steinþórs, en hann tekur fram að búast megi við því að það taki mörg ár að ná veru- legri sölu. Salan nú hleypur á nokkr- um tugum tonna á ári en markmiðið er að auka söluna í 200-300 tonn. Til mikils er að vinna því fyrir bestu bita lambsins fæst gott verð á þessum markaði, þegar þeir hafa verið unnir samkvæmt óskum kröfu- harðra viðskiptavina. Steinþór nefnir að verðið sé sambærilegt og jafnvel ívið hærra en fæst á innanlands- markaði hér heima. Huga að St. Pétursborg Samhliða er unnið að sölu á ódýr- ara kjöti, ærkjöti og úrbeinuðu hrossakjöti. Segir Steinþór að árang- ur á því sviði skipti einnig máli. Til dæmis hafi verið unnið að fækkun hrossa í landinu og hafi Rússlands- markaður tekið við hluta þeirra af- urða og greitt fyrir hærra verð en aðrir markaðir. Kjötútflutningur til Rússlands hef- ur margfaldast á milli ára, úr um 200 tonnum 2011 í um 700 tonn í fyrra. Fulltrúar íslensku fyrirtækjanna eru í St. Pétursborg í dag til að ræða við dreifingarfyrirtæki. Tilgang- urinn er að komast með íslenska lambið inn á hágæða veitingastaði, á svipaðan hátt og í Moskvu, og einnig inn í betri matvöruverslanir. „Ice- landair er að hefja beint flug til St. Pétursborgar og opnar það mögu- leika á að senda þangað ferskar af- urðir í haust,“ segir Steinþór. Ráðast inn í keisaradæmið „Við settumst niður nokkrir áhugamenn til að reyna að finna leiðir til að breikka kaupendahópinn og ákváðum að ráðast inn í sjálft keisaradæmið,“ segir Einar Garðar Hjaltason. Hann er að athuga mögu- leika á sölu grásleppuhrogna til Rússlands í samvinnu við G. Ingason sem tekur þátt í ProdExpo. Við þetta verk nýtur hann stuðnings Landssambands smábátaeigenda. Rússland er langstærsti styrju- hrognaframleiðandi heims og þar er kavíarinn upprunninn. Einar er ekki síst að vísa til þess þegar hann ræðir um keisaradæmið. Erfiðleikar eru á hefðbundnum mörkuðum grásleppuhrogna. Einar Garðar segir að athugun á Rúss- landsmarkaði sé enn á frumstigi. Verið sé safna upplýsingum um tolla og vörugjöld og vinna að lækkun þeirra. Hann nefnir að há gjöld hafi verið lögð á söltuð grásleppuhrogn eins og Íslendingar framleiða en mun lægri á frosin. Fjölbreytt úrval hrogna og kavíars er á sýningunni í Moskvu en Einar segir að menn hafi tekið kynningu Íslendinga vel. Bestu bitarnir á borð Rússa  Sérunnið íslenskt lambakjöt er á matseðlum hágæða veitingastaða í Moskvu og fer væntanlega einnig til St. Pétursborgar  Grásleppuhrognaframleiðendur ráðast inn í „keisaradæmi“ kavíarsins Kynning Guðmundur Ingason kynnti íslenskar sjávarafurðir á sýningunni í Moskvu, meðal annars niðursoðna lifur. Á hans bási var einnig verið að kynna íslensk grásleppuhrogn og var þeim að sögn ekki illa tekið. Kjötsalar Fulltrúar SS og KS með íslenska sendiherranum, fv. Erlendur Á. Garðarsson, Steinþór Skúlason, Ágúst Andrésson og Albert Jónsson. „Við erum að ljúka ákveðnum kafla, verkefni sem verið hefur í vinnslu í tæplega fjögur ár og við köllum hrunrannsóknir,“ sagði Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármála- eftirlitisins, á fundi með fjölmiðlum í gær. Þar sagði hún sérverkefni FME tengt föllnum fjármálastofn- unum lokið. „Það var að skoða kerf- isbundið hvort það hefði verið hluti af orsökum kerfisáfallsins, hrunsins, sem við urðum fyrir að það hefði ver- ið brotið [gegn lögum] með refsi- verðum hætti í starfsemi þeirra.“ Þegar mest var störfuðu fimmtán manns að þessu verkefni í tveimur teymum. Í heildina voru 205 mál til rannsóknar en upphaf þeirra mátti rekja til skýrslu endurskoðendafyr- irtækis um föllnu fjármálastofnan- irnar sem FME kallaði eftir, rann- sóknarskýrslu Alþingis og ábendinga frá einstaklingum, sér- stökum saksóknara og Kauphöllinni. Þá var einnig um frumkvæðisvinnu FME að ræða. Af þeim 205 málum sem voru til rannsóknar var rúmlega helmingur, eða 103 mál, send lögreglu, fjórum málum lauk með stjórnvaldssekt og 98 málum var lokið án frekari að- gerða. Fjöldi meintra brota er töluvert meiri en þeirra mála sem send voru lögreglu og helgast af því að nánast undantekning var að eitt mál jafn- gilti einu broti. Flest brotin varða umboðssvik, innherjaviðskipti og markaðsmisnotkun. Ekki var gefið upp hversu margir einstaklingar koma við sögu í mál- unum 205 eða hvernig þau skiptast niður á fjármálastofnanir. Þá var boðuð svonefnd lærdóms- skýrsla um verkefni Fjármálaeftir- litsins sem hugsanlega verður þýdd á erlend tungumál og kynnt eftirlits- stofnunum í nágrannaríkjunum. andri@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Forstjóri Unnur Gunnarsdóttir kynnti málið fjölmiðlum í gær. Meira en hundrað brot til lögreglu  Kafla lokið hjá Fjármálaeftirlitinu „Við höfum notið góðs liðsinnis sendiráðs Íslands í Moskvu, Al- berts Jónssonar og hans sam- starfsfólks. Hann hefur meðal annars aðstoðað okkur með því að hafa boð í sendiráðinu fyrir lykil viðskiptavini og líklega við- skiptavini. Það hefur mikla þýð- ingu fyrir okkur,“ segir Steinþór Skúlason. Auk Sláturfélags Suðurlands og kjötafurðastöðvar Kaup- félags Skagfirðinga voru fisk- útflytjandinn G. Ingason og vatnsframleiðandinn Icelandic Glacial á sameiginlega íslenska kynningarbásnum á ProdExpo. G. Ingason kynnir meðal annars niðursoðna lifur og humar. Matvælasýningin ProdExpo er nú haldin í tuttugasta sinn. Á síðasta ári voru tæplega 2.200 sýnendur, þar af nærri 800 er- lendir. Sýninguna sóttu um 95 þúsund gestir. Sendiráðið aðstoðar KYNNING Á PRODEXPO

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.