Morgunblaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.02.2013, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 13 -0 19 8 Kia cee’d EX 1,6 Árg. 2008, ekinn 113 þús. km, bensín, 125 hö., sjálfsk. Verð 2.090.000 kr. Tilboðsverð 1.890.000 kr. Kia Rio EX 1,4 Árg. 2012, ekinn 14 þús. km, dísil, 90 hö., 6 gírar, eyðsla: 3,8 l/100 km*. Verð 2.890.000 kr. Kia Sportage EX 4wd Árg. 2012, ekinn 28 þús. km, dísil, 136 hö., sjálfsk., eyðsla 5,7 l/100km*. Verð 5.690.000 kr. Kia Sorento EX classic 2,2 Árg. 2012, ekinn 2 þús. km, 7 manna, 18” felgur, dísil, sjálfsk., 198 hö., eyðsla: 6,7 l/100km*. Verð 7.490.000 kr. Kia cee’d ex 1,6 Árg. 2012, ekinn 2 þús. km, dísel, 116 hö., sjálfsk., eyðsla: 5,6 l/100km*. Verð 3.790.000 kr. Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 Kia Sportage EX 4wd Árg. 2011, ekinn 36 þús. km, 136 hö dísil, 6 gírar, eyðsla 5,7 l/100km*. Verð 4.990.000 kr. Kia Sorento EX 4wd 3,5 Árg. 2006, ekinn 77 þús. km, bensín, 195 hö., sjálfsk. Verð 2.390.000 kr. Tilboðsverð 1.790.000 kr. Frábær fjármögnun í boði * Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda. KIA GÆÐABÍLAR Á GÓÐU VERÐI 5 ár eftir af ábyrgð 2 ár eftir af ábyrgð 6 ár eftir af ábyrgð 6 áreftir afábyrgð 6 ár eftir af ábyrgð Greiðsla á mánuði 17.777 kr. M.v. 50% innborgun og 6 ára óverðtryggt lán á 9,4% vöxtum. Árleg hlutfallstala kostnaðar: 10,85%. 6 ár eftir af ábyrgð Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Verði að veruleika hugsanleg kaup hóps fjárfesta á hlut kröfuhafa í ann- aðhvort Arion eða Íslandsbanka, yrði það stærsta einstaka fjárfesting Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) frá stofnun hans. Fram kom í Morgun- blaðinu í gær að gert er ráð fyrir því að FSÍ verði stærsti einstaki fjárfest- irinn, með um þriðjungshlut. Skv. yfirliti FSÍ hefur hann alls fjárfest í átta fyrirtækjum fyrir um 32 milljarða kr. Hægt er að verðmeta t.d. 95% eignarhlut kröfuhafa í Ís- landsbanka á 133 milljarða miðað við bókfært eigið fé bankans í dag. Ef fjárfestahópurinn nær fram 40% af- slætti á þeim gjaldeyri sem rætt er um að greiða fyrir hlut í bankanum, má ætla að þriðjungshlutur FSÍ geti numið um 25 milljörðum kr. 16 lífeyrissjóðir stóðu að stofnun Framtakssjóðs árið 2009. Síðar bætt- ust Landsbankinn og VÍS í hóp eig- enda en stofnendur sjóðsins ráða yfir um 64% af heildareignum lífeyris- sjóða á Íslandi. Hvort sem um mjög álitlegan fjár- festingarkost er að ræða eða ekki eru forystumenn innan stéttarfélaga sem eiga fulltrúa í stjórnum lífeyrissjóða tvístígandi yfir þessum fréttum af mögulegum kaupum lífeyrissjóða í bönkunum, sem eru auk þess óskráð félög, minnugir afleiðinga fjármála- hrunsins, sem lék íslenska lífeyris- sjóði grátt. Úttektarnefnd lífeyrissjóðanna sem skilaði í fyrra viðamiklum skýrslum um fjárfestingar lífeyris- sjóðanna í aðdraganda hrunsins og af- leiðingar þess, komst að þeirri niður- stöðu að heildartap lífeyrissjóðanna á árunum 2008-2010 hefði numið tæp- um 480 milljörðum króna. Lífeyris- sjóðirnir töpuðu tæplega 199 milljörð- um kr. af innlendri hlutabréfaeign þeirra í hruninu skv. úttekt nefndar- innar. Um 90% af þessu tapi sjóðanna eða um 178 milljarðar kr. voru vegna hlutabréfa í sex hlutafélögum. Þar af voru fjögur fjármálafyrirtæki, Kaup- þing, Landsbankinn, Glitnir og Straumur-Burðarás, en tap í þessum fyrirtækjum var um 128 milljarðar. Þó að lífeyrissjóðir standi að stærstum hluta að FSÍ hefur Fjár- málaeftirlitið sett ströng skilyrði um aðskilnað á milli ákvarðana FSÍ og sjóðanna. Þannig má ekki bera ein- stakar fjárfestingarákvarðanir FSÍ undir stjórnir lífeyrissjóða. Fjárfesta og endurskipuleggja og fara svo út úr félögunum „Ég frétti af þessu í fjölmiðlum,“ segir Þorbjörn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar en hann er stjórnarformaður Sameinaða lífeyris- sjóðsins. „Ég þekki ekki þetta mál, það hefur ekkert komið inn á borð til okkar,“ segir hann. ,,Hlutverk Framtakssjóðsins er fyrst og fremst að fara inn í fyrirtæki, fjárfesta í þeim, fara í gegnum end- urskipulagningu þeirra og fara svo út úr þeim aftur,“ segir Þorbjörn og bætir við að í þessu tilviki myndi FSÍ því væntanlega fara út úr fyrirtækinu fljótlega aftur. ,,Það er meginreglan og henni hefur ekkert verið breytt hvað það varðar.“ Þorbjörn segir að engin umræða um hugsanlega þátttöku FSÍ í kaup- um á Íslandsbanka eða Kaupþingi hafi átt sér stað hjá Sameinaða lífeyr- issjóðnum. Framtakssjóðurinn starfi sjálfstætt og fari ekki eftir neinu sér- stöku áliti lífeyrissjóðanna á ein- stökum fjárfestingum. FSÍ beri alfar- ið ábyrgð á einstökum fjárfestingum sjóðsins. Hann leggur þó áherslu á að FSÍ ræðst ekki í einstakar fjárfest- ingar sem langtímafjárfestir heldur eingöngu til að taka þátt í endur- skipulagningu félaga sem hann kaupi í og dragi sig svo út úr því síðar eins og áður segir. Þorbjörn segir mjög strangar regl- ur um aðskilnað á milli FSÍ og lífeyr- issjóðanna og allt samráð varðandi einstakar fjárfestingar sé bannað. „Þess vegna má Framtakssjóðurinn ekki varpa spurningum inn til sjóðs- stjórna um þau verkefni sem hann er að vinna að,“ segir hann. ,,Ég er hins vegar alveg sannfærður um að ef menn stíga þessi skref, þá munu menn fara í gegnum þá ferla sem menn lentu í í hruninu og munu örugglega draga af því lærdóm.“ Sigurður Bessason, formaður Efl- ingar stéttarfélags, er stjórnarmaður í Landssamtökum lífeyrissjóða. Sig- urður segist líkt og Þorbjörn ein- göngu hafa heyrt fréttir á síðustu dögum af hugsanlegum bankakaup- um FSÍ. ,,Ég væri töluvert hikandi og held að menn yrðu að skoða svona hluti mjög vel ofan í kjölinn áður en ákvarðanir yrðu teknar,“ segir Sig- urður og vísar til reynslunnar af hruni bankakerfisins, sem hafi ekki reynst vera sú örugga og góða fjárfesting sem haldið var fram á þeim tíma þeg- ar bankarnir voru seldir. ,,Ég hvet menn til að fara varlega og gaumgæfa þessa hluti mjög vel áð- ur en teknar yrðu slíkar ákvarðanir.“ „Hvet menn til að fara varlega“  Fjárfestingarákvarðanir FSÍ ekki bornar undir stjórnir lífeyrissjóðanna Morgunblaðið/Kristinn Úttekt Frá því að skýrslan um lífeyrissjóðina og afleiðingar hrunsins var birt hafa þeir unnið að endurbótum og sett stífari reglur um fjárfestingar. 479.685 Heildartap lífeyrissjóða í milljónum á árunum 2008-2010 skv. úttekt. 198.764 Tap sjóðanna af innlendum hlutabréf- um eftir hrunið í milljónum. 127.788 Tap í milljónum vegna Kaupþings, Landsbanka, Glitnis og Straums- Burðaráss. 100.111 Tap sjóðanna í milljónum vegna skuldabréfa banka og sparisjóða. 46.656 Tap sjóðanna í milljónum af inn- lendum hlutabréfa- og verðbréfasjóðum. ‹ TAP LÍFEYRISSJÓÐA › »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.