Morgunblaðið - 15.02.2013, Síða 17
12%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
-2%
-4%
Víðir
Vörukarfa ASÍ
September 2012 - janúar/febrúar 2013
+4,2%
+9,1%
+10,1%
+5,6%
+2,7%
+3,2%
+6,4%
+2,0%
+1,0%
-2,8%
Bónus Krónan Nettó Iceland Hagkaup Nóatún
Samkaup-
Úrval Tíu-ellefu
Samkaup-
Strax
Heimild: ASÍ
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Verð á vörukörfu ASÍ hefur hækk-
að umtalsvert frá því í september í
nær öllum verslunarkeðjum en
mest er hækkunin hjá Iceland, eða
um 10%. Flestir vöruflokkar
hækkuðu um 2-5% milli verðmæl-
inga en hækkun á grænmeti og
ávöxtum nam víða um 9-20%.
„Það hafa greinilega orðið mikl-
ar almennar hækkanir á matvöru á
þessu tímabili sem við erum að
skoða,“ segir Henný Hinz, hag-
fræðingur hjá ASÍ. Hún bendir á
að ekki sé um langt tímabil að
ræða; fimm mánuði frá september
til mánaðamóta janúar/febrúar, en
niðurstöðurnar endurspegli þann
raunveruleika sem blasi við neyt-
endum í verslununum.
Líkt og áður segir var hækkunin
mest í verslun Iceland, um 10%, en
í Krónunni nam hún 9,1% og 6,4%
í Tíu-ellefu. Í Hagkaup hafði karf-
an hækkað um 5,6%, í Bónus um
4,2% og í Nóatúni og Samkaups-
verslununum um 2-3%. Í Víði nam
hækkunin 1% en í Nettó lækkaði
verðið á vörukörfunni um 2,8%.
Tilboð skýri hækkanir
Sá fyrirvari er gerður við könn-
unina að það verð sé skoðuð sem
er í gildi í verslunum á hverjum
tíma og þannig geti tilboð á ein-
staka vöruliðum haft áhrif á nið-
urstöðurnar. Í verðmælingunni
reyndist verð á kjötvörum hafa
hækkað um 17,9% í Krónunni og
verð á grænmeti og ávöxtum um
21,3%, en Kristinn Skúlason,
rekstrarstjóri Krónunnar, segir til-
boð skýra sveiflurnar.
„Það hefur ekki átt sér stað nein
afgerandi hækkun þannig á vöru-
flokkum milli tímabila nema á
vörum sem hafa þá kannski lent
inni í þessari könnun á tilboði og
eru ekki á tilboði núna á þessu
nýja tímabili,“ segir Kristinn.
Hann segir kjötvörurnar helst
hafa hækkað í verði á tímabilinu
og nefnir kjúklinga og svínakjöt
sem dæmi en þá hafi sykurvörur
einnig hækkað nokkuð. Versl-
anirnar geri hins vegar það sem
þær geti til að sporna við hækk-
unum. „Það eru allir að reyna að
halda öllum verðhækkunum í lág-
marki.“
Umtalsverðar sveiflur í verði
kjötvara mældust víðar en í Krón-
unni. Þær hækkuðu um 15,2% hjá
Iceland á tímabilinu en lækkuðu
um 9,2% hjá Víði og um 19,6% í
Nettó. Samkvæmt tilkynningu frá
ASÍ hafa þessar sveiflur töluverð
áhrif á heildarverð vörukörfunnar
þar sem vöruflokkurinn vegur
þungt. Séu kjötvörurnar und-
anskildar hækkaði verð körfunnar
í Nettó t.d. um 2,3%.
Vörukarfa ASÍ inniheldur allar
almennar mat- og drykkjavörur,
s.s. brauðmeti, morgunkorn, pasta,
kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakka-
vörur, kaffi, gos og safa og hrein-
lætis- og snyrtivörur.
Vöruverð hækkað um allt að 10%
Verð á vörukörfu ASÍ talsvert hærra nú en í haust Hækkunin mest í Iceland Mikil almenn
hækkun á stuttu tímabili, segir hagfræðingur ASÍ Umtalsverðar sveiflur í verði kjötvara
Morgunblaðið/Kristinn
Matur Neytendur fara ekki var-
hluta af matvöruverðshækkunum.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmur
Súgandisey setur mikinn svip á
höfnina í Stykkishólmi og veitir
henni gott skjól. Hún á örugglega
einn stærsta þáttinn í því að þétt-
býli myndaðist í Stykkishólmi á
sinni tíð. Fyrir meira en 20 árum
var gerð ferjubryggja út í Súgand-
isey og eyjan tengd landi. Þá varð
aðgengilegt fyrir mannfólkið að
ganga upp á eyjuna og njóta fagurs
útsýnis. Eyjan hefur því mikið að-
dráttarafl og alltaf fjölgar þeim
sem gera sér leið upp í eyjuna. Að-
sóknin er það mikil að grípa þarf til
aðgerða til að taka eyjan hljóti ekki
skemmdir af. Stykkishólmsbær
hefur sótt um styrki til Fram-
kvæmdasjóðs ferðamannastaða til
að skipuleggja göngustíga og án-
ingarstaði. Í fyrra kom styrkur að
upphæð 2 milljónir til hönnunar og
skipulagsvinnu.
Að sögn Gyðu Steinsdóttur bæj-
arstjóra liggur fyrir áætlun um lag-
lagfæringar sem bæta til mikilla
muna aðkomu íbúa og gesta
Stykkishólms að eyjunni og auð-
velda að ganga á hana. Skipulagið
hefur fengið jákvæða umsögn bæj-
aryfirvalda. Nú á dögunum veitti
áðurnefndur sjóður aftur styrk að
upphæð 5,7 milljónir króna til
framkvæmda. Styrkurinn ásamt
mótframlagi Stykkishólmsbæjar
gerir það að verkum að ekkert er í
vegi að hefja framkvæmdir fyrir
sumarið.
Útsýnisstöðum fjölgað
Göngustígar verða endurgerðir
og þeim fjölgað og eins verður að-
staða á góðum útsýnisstöðum
bætt. Stykkishólmur er ört vax-
andi ferðamannabær og því þurfa
bæjaryfirvöld og bæjarbúar að
vera vakandi yfir því sem betur má
fara til að geta þjónustað ferða-
menn á sem bestan hátt. Að sögn
Gyðu Steindóttur eru væntanlegar
framkvæmdir í Súgandisey liður í
því.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Súgandisey Öll aðstaða verður bætt fyrir ferðamenn á næstunni.
Aðgengi að Súg-
andisey bætt í vor
Eyjan hefur mikið aðdráttarafl
ÚTSALA
Allt að 40% afsláttur !
Heilir sturtuklefar
Sturtuhorn m/botni
Sturtuveggir 6-10mm
Verð frá kr.10.900
Verð frá kr.21.900
Verð frá kr.16.900
Verð frá kr.21.900
Verð frá kr.38.900
Sturtuhurðar
Baðkarshlífar
* Ármúli 31 * 108 Reykjavík * Sími: 588-7332 *
* Opið virka daga frá kl. 9-18 * laugardaga kl. 11 - 15 *
www.i-t.is
Baðinnréttingar
allt að 70% afsláttur
innréttingar í sýningarsal
Verð frá kr.12.900
Speglar með ljósum
allt að 50% afsláttur