Morgunblaðið - 15.02.2013, Page 40

Morgunblaðið - 15.02.2013, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013 Smáauglýsingar Garðar Trjáklippingar trjáfellingar og grisjun sumar- húsalóða. Hellulagnir og almenn garðvinna. Tilboð eða tímavinna. Jónas F. Harðarson, garðyrkjumaður, sími 6978588. Gisting Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að- staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að hafa hund í Skógarhlíð. Er með fleiri orlofshús við Akureyri og öll með heitum potti. orlofshus.is Leó 897 5300 Húsgögn HÓTELHÚSGÖGN www.nyvaki.is Atvinnuhúsnæði Til leigu nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Rvk. Securitas- öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð samnýting. Uppl. í síma 896 9629. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bílaþjónusta Húsviðhald Sími 555-1947 Gsm 894-0217 Húsaviðgerðir www.husco.is Byssur Tactical.is - Skotveiðivörur - Ný sending. Byssuólar, heyrnarhlífar, vindmælar, plastbox o.m.fl. Erum einnig með skotfæri í riffla í ýmsum caliberum. Tactical.is, verslunar- miðstöðinni Glæsibæ, sími 517 8878. ✝ Pálína Að-alsteinsdóttir var fædd 25. ágúst 1925 í Reykjavík. Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 4. febrúar sl. Eiginmaður Pálínu var Val- berg Gíslason, f. í Hafnarfirði 14. júní 1918, d. 8. júní 2012. Foreldrar Pálínu voru Að- alsteinn Guðmundsson, f. í Reykjavík 8. ágúst 1903, d. 13. júní 1994, og Vilborg Jóns- dóttir, f. á Bíldudal 24. febr- úar 1908, d. 27. nóvember 1997. Pálína bjó alla sína ævi í Reykjavík. Systkini Pálínu eru: Halldóra, f. 16. júní 1927, eiginmaður Magnús Þor- björnsson prent- ari, f. 17. febr. 1924, d. 12. ágúst 1996. Agnes, f. 16. mars 1935, eig- inmaður Brynj- ólfur Sandholt, fv. yfirdýralæknir, f. 18. september 1929. Guðmundur, f. 30. mars 1942, eiginkona Stein- unn Aðalsteins- dóttir, f. 9. maí 1941. Börn Valbergs, eiginmanns Pálínu, frá fyrra hjónabandi eru Pét- ur, f. 1942, flugstjóri í Lúx- emborg, eiginkona Bjargey Eyjólfsdóttir, og Sigrún, f. 1948, leikstjóri og leið- sögumaður í Reykjavík, eig- inmaður Gísli Már Gíslason. Útför Pálínu hefur farið fram í kyrrþey. Palla, eins og hún var alltaf kölluð, var fædd við Lindargöt- una í Reykjavík árið 1925. Fað- ir hennar Aðalsteinn Guð- mundsson var einnig fæddur í þessu sama húsi í Skuggahverf- inu. Palla var frumburður for- eldra sinna, móðir hennar að- eins 17 ára gömul. Önnur dóttir fæddist 2 árum síðar, eða 16. júní 1927, og var skírð Halldóra eftir móðurömmu sinni, en Pál- ína var skírð eftir föðurömmu sinni Pálínu Magnúsdóttur. Systurnar ólust upp í Skugga- hverfinu í húsi föðurfjölskyld- unnar. Í húsinu ólust upp á sama tíma sex börn afa þeirra Guðmundar Matthíassonar og seinni konu hans Sigurrósar Þorsteinsdóttur. Árið 1935 fæddist þriðja dóttirin sem skírð var Agnes. Um 1937 fluttu foreldrar systr- anna með þær vestur á Hofs- vallagötu 15 sem var eftir það framtíðarheimili fjölskyldunnar. Árið 1942 fæddist síðan sonur í fjölskylduna sem skírður var Guðmundur. Fjölskyldan hóf nú nýtt skeið á nýju heimili sem ekki var nú alltof rúmt fyrir sex manna fjölskyldu en litla íbúðin í Verkamannabústöðunum var aðeins 49 fermetrar. Árið 1941 hóf Palla vinnu hjá Morgunblaðinu og starfaði þar samfellt til ársins 1981. Hún var gjaldkeri til margra ára og var nafn hennar á mánaðar- kvittunum blaðsins eins og vörumerki þess, eins og margir sögðu í gríni við hana. Er fjöl- skyldan rifjar upp minningar frá ungdómsárum systkinanna á Hofsvallagötunni er oft talað um þegar Palla systir var að segja frá sínum líflega og er- ilsama vinnustað, Mogganum. Sérstaklega er okkur minnis- stætt er hún lýsti atburðum á Austurvelli 30. mars árið 1949 er óeirðirnar miklu urðu þar vegna inngöngu Íslands í Nató en starfsfólk bókhaldsdeildar- innar sá atburðina út um gluggana er sneru að Austur- velli. Árið 1955 giftist Palla honum Valla sínum en Valli lést í júní á sl. ári tæplega 94 ára gamall. Valberg Gíslason var fæddur í Hafnarfirði árið 1918 þar sem hann ólst upp í stórum systkinahópi. Hann fór mjög ungur að vinna hin ýmsu störf og snemma gerðist hann mat- sveinn á íslenska kaupskipaflot- anum. Er hann hafði verið til sjós í nokkur ár samfellt breytti hann um vettvang og fór að starfa við matreiðslu, bæði á hótelum og í mötuneytum fyr- irtækja. Hann skrapp þó til sjós öðru hvoru enda var oft leitað til hans að leysa af brytana eða matsveinana hjá bæði Jöklum hf. og Eimskipafélaginu, en hann þótti mjög fær og góður matsveinn. Er Pálína var rúm- lega sjötug var komið að kafla- skiptum í lífi þeirra Pöllu og Valla. Hún greindist þá með Alzheimersjúkdóminn sem svo ágerðist með aldri hennar og gerði þeim ókleift að reka heim- ili sitt eins og áður. Við systkini Pöllu erum Valla óskaplega þakklát fyrir nærgætni hans og umönnun gagnvart systur okk- ar allan þennan tíma sem þau voru saman á Hrafnistu í Hafn- arfirði. Einnig viljum við systk- inin þakka starfsfólki Hrafnistu á 4b í Hafnarfirði, þar sem Palla dvaldi síðustu árin, fyrir einstaka umönnun og hlýlegt viðmót við okkur ættingjana. Þegar komið er að leiðarlokum er okkur sem eftir lifum efst í huga þakklæti til Pöllu sem ætíð hafði velferð okkar í for- gangi. Guð blessi minningu elskulegrar systur minnar. Guðmundur Aðalsteinsson. Nú hefur hún Palla systir mín kvatt eftir löng og ströng veikindi. Minningarnar hrann- ast upp og tár falla. Við andlát þess sem manni er kær stöðv- ast tíminn um stund og end- urminningarnar birtast hver af annarri úr leikþáttum lífsins. Palla hafði næma kímnigáfu og frásagnargáfu og var einkar vel máli farin. En umfram allt var hún hlý, kærleiksrík og gefandi. Allra þessara kosta fengum við samferðafólk hennar að njóta í ríkum mæli og þeirra söknum við sárt nú þegar hún er öll. Þegar árin færðust yfir þótti mér oft afar erfitt að horfa upp á veikindi Pöllu og því er það ákveðinn léttir að hún sé laus undan þeim. Það gerir missinn léttbærari að hún sé komin til Valla síns og þau hafi sameinast á ný. Við leiðarlok er mér efst í huga óendanlegt þakklæti fyrir góðar og glaðar stundir. Þær stundir heyra nú sögunni til og aðeins minningarnar eftir. Þeim fylgir vissulega söknuður og kannski ekki langt í tárin, en það er líka stutt í brosið, því það var ætíð glatt og hlýtt og bjart í kringum Pöllu. Vil ég færa þakklæti öllu því frábæra fólki, sem hefur annast systir mína í veikindum hennar á und- anförnum árum og öllum þeim sem standa með okkur og senda hlýja strauma og kveðjur á þessum erfiðu tímum. Framundan er framtíðin með öllu því sem hún kann að færa okkur, gleði og sorgum, en eitt er víst, Palla verður með okkur, hvert sem við förum og hvað sem við gerum. Dauðinn er okkur áminning um lífið, áminning um að ekkert er gefið og allt getur horfið. Minning- arnar eru eftirlifendum vega- nesti inn í framtíðina. Elsku Palla mín, ég er viss um að þér líður betur núna og ætla ég með virðingu og þakklæti að kveðja þig, blessuð sé minning þín. Gott er ein með guði að vaka, gráta hljótt og minnast þín, þegar annar ylur dvín, – seiða liðið líf til baka, og láta huggast, systir mín! Þögul bæn í brjósti falin biður guð að hlusta á sig. Komdu sæl, – nú sé ég þig! Við skulum halda heim í dalinn hjartans systir, – leiddu mig! Ennþá blærinn ástarþýði andar sálu þinni frá, ennþá heyri’ ég hjartað slá; – enn mig styrkja í innra stríði augu djúp og göfug brá. (Jóhannes úr Kötlum) Halldóra. Það var gæfuspor í lífi föður okkar Péturs þegar hann bauð ungri konu upp í dans á Hótel Borg árið 1954. Danssporin á Borginni mörkuðu upphaf að samveru ævina á enda. Hún vann þá á skrifstofu Morgun- blaðsins og gerði það reyndar í samfleytt 40 ár, lengst af sem gjaldkeri. Um hver mánaðamót í marga áratugi bankaði blað- burðarfólk upp á hjá áskrifend- um um kvöldmatarleytið og rukkaði fyrir blaðið og blá kvittunin bar nostursamlega undirskrift Pálínu Aðalsteins- dóttur. Okkar elskulega Palla sem verið hefur hluti af lífi fjöl- skyldunnar í nærfellt sex ára- tugi hefur nú kvatt. Þegar þau pabbi létu pússa sig saman árið 1956 pöntuðu þau sér borð á Naustinu. Eins og yfir öllum borðum á þessum fornfræga veitingastað hékk út- skorin fjöl með bátsheiti. Á hana var letrað Farsæll. Þetta litu þau á sem leiðarljós og ákveðið teikn og oft héldu þau upp á brúðkaupsafmælið á Naustinu og alltaf við þetta sama borð. Þau áttu langt líf saman og voru alla tíð ákaflega samrýnd og samhent hjón. Um miðja síðustu öld voru börn fráskilinna eða einstæðra foreldra næsta fátítt fyrirbæri og pabbahelgar ekki orðnar hluti af íslenskum veruleika. En þá bankaði maður bara upp á og fór í heimsókn þegar svo bar undir. Við vorum svo heppin að fyrsta heimili þeirra pabba og Pöllu var beint á móti Mela- skólanum og stutt að fara í mjólk og kökur og það gerði maður óspart. Okkur var líka alltaf fagnað. Palla var sérstaklega barn- góð og án þess að hún ræddi það nokkuð hafa það eflaust verið henni stór vonbrigði að eignast ekki börn sjálf. Hún átti hins vegar verðmætan fjár- sjóð þar sem voru börn systk- ina hennar og síðar börnin okk- ar Péturs bróður og þeirra börn. Þar eignaðist hún sín ömmu- og langömmubörn. Með öllum þessum skara fylgdist hún vel, allir afmælisdagar voru á sínum stað og alltaf kom glaðningur og kort með ham- ingjuóskum. Í marga áratugi þóttist pabbi ekki þurfa að muna nokkurn skapaðan hlut, því Palla hefði þetta allt á hreinu. Pabbi var lengi framan af matsveinn á millilandaskipum og oft gat Palla farið með í eft- irminnilegar siglingar, en um miðjan sjöunda áratuginn ákvað hann að hætta sjómennsku og koma í land og var það Pöllu mikið gleðiefni. Þau voru vin- mörg og dugleg að halda boð og heimsækja vini og voru í miklu sambandi við fjölskyldur sínar. Eftir að þau hættu að vinna leið ekki sá dagur að þau færu ekki í heimsókn til „gamla fólksins“ í fjölskyldunni eins og þau orð- uðu það á einhverju dvalar- heimilanna í bænum. Palla las mikið, var ættfróð og ræðin og kunni vel skil á mönnum og málefnum. Meðan ég og fjölskylda mín bjó árum saman erlendis fannst Pöllu það ómögulegt að við fylgdumst ekki með því sem gerðist á Ís- landi og sendi okkur Morgun- blaðið daglega allan þann tíma. Ævikvöldinu eyddu þau pabbi á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún hvarf síðustu tíu árin hægt og rólega inn í lokaðan heim Alzheimers, en pabbi sat hjá henni hvern dag og rabbaði við hana og hélt í höndina á henni. Þegar hann lést í júní sl. var nokkuð ljóst að hún léti hann ekki bíða lengi eftir sér. Fjölskylda mín þakkar Pöllu alla hlýju og elskulegheit í okk- ar garð á langri samleið. Sigrún Valbergsdóttir. Ég minnist hennar Pöllu frænku minnar með miklum hlýhug. Palla frænka var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér og frá því ég man fyrst eftir mér voru Palla og Valli stór hluti tilver- unnar. Það liðu sjaldan margir dagar sem þær systur, mamma og Palla, töluðu ekki saman í síma eða hittust. Á meðan við fjölskyldan bjuggum í Safamýr- inni og Palla og Valli í næsta nágrenni var gaman að geta skottast og kíkt á eldhúsglugg- ann hjá þeim og athugað hvort ekki væri eitthvað gott að fá í gogginn. Það brást aldrei að alltaf var vel tekið á móti mér og öllu sem ég þurfti að segja frá eða gera var sýndur mikill áhugi. Palla frænka hafði mikinn áhuga á handavinnu, þó að ekki vildi hún gera mikið úr eigin hæfileikum. Oft sátum við frænkurnar saman og prjónuð- um eða saumuðum, en kannski spjölluðum við allra mest. Einn- ig var það alveg fastur liður að fá að koma fyrir jólin og föndra, þá var Palla frænka búin að safna saman skemmtilegu föndri úr dönsku blöðunum og síðan var klippt og límt og búin til kramarhús, músastigar og margt fleira. Stundum vorum við að bræða kertaafganga og steypa ný kerti, allt þetta var mikið ævintýri fyrir litla frænku. Oft fórum við frænkur saman í sund og stundum var farið í Vesturbæjarlaugina og þá kom- ið við hjá ömmu og afa á Hofsó. Alltaf fórum við gangandi eða í strætó og mikið var spjallað því að þarna voru æskuslóðir Pöllu og Vesturbærinn henni alltaf kær. Þær voru líka ófáir bílferð- irnar í nágrenni Reykjavíkur sem þau Palla og Valli buðu mér í og oft voru heimsóttir einhverjir vinir þeirra í leiðinni, því að þau hjónin voru einstak- lega ræktarleg við vini og ætt- ingja, en bara það að fá að fara með í ferðirnar var einstaklega skemmtilegt. Þegar ég eltist fylgdist Palla frænka vel með öllu sem ég tók mér fyrir hendur, og það sama má segja um hin systkinabörn hennar sem öll voru í miklu uppáhaldi. Síðustu æviárin voru Pöllu frænku erfið en það var ynd- islegt að sjá kærleikann og ást- ina sem alltaf geislaði á milli þeirra hjóna, og nú er Palla komin til Valla síns, sem kvaddi þessa jarðvist í júní sl. Palla var traustvekjandi kona og heilsteypt að allri gerð og nú að leiðarlokum vil ég þakka henni samfylgdina. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Unnur Sandholt. Pálína Aðalsteinsdóttir ✝ GuðlaugBjarnadóttir Bernard fæddist 24. september 1925. Hún lést 1. febrúar 2013 í Del- tona, Flórída. Guðlaug var dóttir hjónanna Matthíasar Jóhann- essonar og Stefaníu Sigríðar Magn- úsdóttur úr Hafn- arfirði. Guðlaug var gift Harry E. Bernard og eiga þau soninn Georg Bjarna Bernard. Börn hans eru 1) Mataya Joy Conroy, gift Ryan Conroy og börn þeirra eru Fionn og Tait. 2) Daytoni Autumn Hisel- Bernard. 3) Chan- tal Ruth Hise- Bernard. Útför Guðlaugar fór fram hinn 7. febrúar í Baldauff Family Fune- ral Home & Crematory, Orange City, Flórída, Bandaríkjunum. Ástkær fjölskylda og vinir. Það er með þunga sorg í hjarta sem ég tilkynni andlát móður minnar, eiginkonu Harrys E. Bernards (látinn 2006), Guðlaug- ar Bjarnadóttur Bernard. Hún hélt til ríkis andans mikla (Guðs guða) hinn 1. febrúar 2013. Hún tókst á við þessa erfiðu tíma af hugrekki og með þeirri vissu að trúin komi frá hjartanu en hélt jafnframt fast við lífsspeki sína byggða á kurteisi, tillitssemi og virðingu fyrir öðrum. Skrifa mætti langt mál um þessa fallegu og yndislegu konu en þið eigið hvert og eitt eigin minningar um þau áhrif sem hún hafði á líf ykk- ar. Hún var fögur og yndisleg kona sem mun dvelja okkur í minni um aldur og eilífð. Við njót- um blessunar hvert og eitt að hafa þekkt hana og kynnst lífinu með henni – hennar verður sárt saknað – hún er móðir mín af Guðs náð og ég er ævinlega þakklátur fyrir að hafa notið ást- úðar hennar, nærgætinnar leið- sagnar og óbilandi trausts henn- ar á mér. Ég mælist til að í stað blóma og annars virðingarvotts gerið þið óvænt góðverk, borgið vega- tollinn fyrir bílinn á eftir ykkur, vinnið sjálfboðastarf fyrir þá sem minna mega sín, greiðið reikning á veitingastað fyrir fjölskyldu með börn, eitthvað í þessa veru. Ykkur er einnig velkomið að láta af hendi framlag í nafni hennar til björgunarsjóðs sjómanna í Hafnarfirði. Að lokum vil ég þakka ykkur hverju og einu fyrir ást, vinskap og samneyti sem þið sýnduð henni þau 87 ár sem hún átti. Megi minningar ykkar um hana vera ykkur leiðarljós og megi hún vera verndarengill okk- ar allra. Guð blessi ykkur og inni- legar þakkir. Með ástar- og frið- arkveðju, ástríkur sonur hennar Georg Bjarni og stórfjölskylda. Guðlaug Bjarnadóttir Bernard

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.