Morgunblaðið - 15.02.2013, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2013
enda mikið spilað
í útvarpi. Í því
nýtur samsöngur
þeirra Guðnýjar
og Bjarteyjar sín
vel, þær syngja
sem ein kona og með allsérstökum
áherslum sem minna á köflum á ýlf-
ur. Þriðji maðurinn í hljómsveitinni,
Smári Tarfur, gerir mikið fyrir tón-
listina en hann leikur á slide-gítar á
plötunni en þær Guðný og Bjartey á
kassagítara. Tónlist Ylju er líklega
best lýst sem angurværri og þjóð-
lagaskotinni, blágresiskeimur
bandarískur er sterkur og tónlistn
er slakandi, yljar jafnvel.
Þær stöllur syngja á íslensku og
eiga heiðurinn af meirihluta laga og
Hljómsveitin Ylja sendi ífyrra frá sér plötu meðnafni hljómsveitarinnarog var hún sú fyrsta frá
sveitinni. Fyrsta lag plötunnar,
„Út“, naut mikilla vinsælda fyrir jól
texta á plötunni. Yrkisefnin eru
draumkennd, náttúrustemningar
víða og textarnir eru ágætlega ortir,
að maður tali nú ekki um ljóð Davíðs
Stefánssonar, „Konan með sjalið“.
Lagið við það er vel samið og smell-
passar við ljóðið.
Platan var tekin upp „live“, s.s.
ekki hver tónlistarmaður fyrir sig og
lagið svo sett saman. Ekki verður
betur heyrt en það hafi heppnast vel,
tríóið er vel samstillt og flutning-
urinn ágætur. Samsöngur Guðnýjar
og Bjarteyjar er góður en gallinn á
plötunni er sá að hún er of einsleit,
lagasmíðar eru ekki nægilega fjöl-
breyttar. Þetta er engu að síður fim-
lega flutt blágresi og ágætisbyrjun
hjá Ylju.
Ljósmynd/Marínó Thorlacius
Yljandi Guðný Gígja, Smári Tarfur og Bjartey Sveinsdóttir skipa Ylju. Lagasmíðar eru ekki nægilega fjölbreyttar á fyrstu plötu Ylju.
Fimlega flutt blágresi
Ylja – Ylja bbbnn
Fyrsta breiðskífa tríósins Ylju. Meðlimir
Ylju eru Guðný Gígja Skjaldardóttir,
Bjartey Sveinsdóttir og Smári Tarfur
Jósepsson. Upptökustjórn var í höndum
Jóhanns Rúnars Þorgeirssonar og Ylju.
Record Records dreifir. 2012.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
TÓNLIST
Tónlistarkonan og Íslandsvinurinn
Lady Gaga þjáist af verkjum og lið-
bólgum vegna brjóskskaða í hægri
mjöðm og þarf að fara í speglunar-
aðgerð á mjöðm. Af þeim sökum
hefur hún aflýst öllum þeim tón-
leikum sem eftir voru í tónleikaferð
hennar Born This Way Ball, að því
er fram kemur í frétt á vef Reuters.
Gaga greindi frá veikindum sínum
þriðjudaginn sl. og í kjölfarið barst
tilkynning frá skipuleggjanda tón-
leikaferðarinnar, Live Nation, þess
efnis að Gaga væri verr haldin en
hún hefði sjálf talið.
Gaga hefur verið á nær stans-
lausu ferðalagi um tveggja ára
skeið og komið við í sex heims-
álfum. Til stóð að hún héldi 20 tón-
leika í Bandaríkjunum á næstu vik-
um en þeim hefur nú verið aflýst,
sem fyrr segir. Live Nation hefur
heitið því að endurgreiða miða sem
keyptir hafa verið á þá tónleika.
Aflýsir Lady Gaga með Jóni Gnarr
borgarstjóra í október í fyrra.
Gaga þarf að fara
í speglunaraðgerð
Morgunblaðið/Einar Falur
Hin víðfræga hljómsveit Radiohead
mun hefja tökur á nýrri breiðskífu
undir lok sumars og verður hún ní-
unda hljóðversskífa sveitarinnar.
Bassaleikari Radiohead, Colin
Greenwood, greindi frá þessu í við-
tali á útvarpsstöðinni BBC 6 Music í
vikunni. Síðasta plata hljómsveit-
arinnar, King of Limbs, kom út fyr-
ir tveimur árum og eru aðdáendur
væntanlega farnir að iða í skinninu
eftir nýrri.
Iðinn Thom Yorke, forsprakki Radiohead, er önnum kafinn þessa dagana með súper-
grúppunni Atoms for Peace. Í henni er m.a. bassaleikarinn góðkunni Flea.
Radiohead leggur í nýja plötu í sumar
Tónlistarmaðurinn Jón Þór og
hljómsveitirnar Boogie Trouble og
Just Another Snake halda í kvöld
tónleika á skemmtistaðnum Volta,
Tryggvagötu 22, sem opnaður var
8. febrúar síðastliðinn. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 22.
Á sunnudaginn verður einnig
mikið um að vera á Volta því þá fer
fram lokahóf tónlistarhátíðarinnar
Sónar sem hefst í kvöld í Hörpu.
Hófið er einn af s.k. „off-venue“-
viðburðum hátíðarinnar og munu
leyniplötusnúðar frá hátíðinni
þeyta skífum fyrir dansglaða. Frítt
verður inn fyrir þá sem eru með
Sónar-armbönd. Hófið hefst kl. 21.
Spilar Jón Þór kemur fram á
skemmtistaðnum Volta í kvöld.
Tónleikar og loka-
hóf Sónar á Volta
A GOOD DAY TO DIE HARD Sýndkl.5:50-8-10:10(Power)
ZERO DARK TIRTY Sýndkl.6-9
VESALINGARNIR Sýndkl.7-10
HÁKARLABEITA 2 Sýndkl.4
THE HOBBIT 3D Sýndkl.4
HVÍTI KÓALABJÖRNINN Sýndkl.4
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
12
16
16
L
L
L
3 óskarstilnefningar
“Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.”
-Séð & Heyrt/Vikan
“Magnþrungin og
eftirminnileg”
T.V. - Bíóvefurinn
H.S.S
-MBL
Frábær spennumynd byggð á
leitinni af Osama Bin Laden.
5 óskarstilnefningar
H.S.S
- MBL
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:10
BESTI LEIKAR ÁRSINS - BESTI LEIKSTJÓRI ÁRSINS - BESTA MYND ÁRSINS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
” - Þ. Þ., FRÉTTATÍMINN
- S.S., LISTAPÓSTURINN
” - G.F.V., VIÐSKIPTABLAÐIÐ
-H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
DIE HARD 5 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
KON-TIKI KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
LINCOLN KL. 5.50 - 9 14
VESALINGARNIR KL. 5.50 - 9 12
-EMPIRE
“MÖGNUÐ MYND Í
ALLA STAÐI”
-V.J.V., SVARTHÖFÐI
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
Yippie-Ki-Yay!
DIE HARD 5 KL. 5.50 - 8 - 10 16
ZERO DARK THIRTY KL. 10 16
HVELLUR KL. 5.50 L
THE LAST STAND KL. 8 16
DIE HARD 5 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
DIE HARD LÚXUS KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
ZERO DARK THIRTY KL. 8 16
DJANGO KL. 8 16
HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 3.30 L
LINCOLN KL. 5 14
LAST STAND KL. 8 - 10.20 16
HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 L
THE HOBBIT 3D KL. 4.30 12
LIFE OF PI 3D KL. 5.20 10