Morgunblaðið - 28.02.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013
Hinn 22. desember í fyrra vorusamþykkt lög um breytingu á
lögum um vörugjöld og tolla sem
höfðu annars vegar þann tilgang að
stýra neyslu almennings og hins
vegar að hækka álögur á almenning.
Lögin voru þar að
auki afar flókin
þannig að þetta var í
alla staði drauma-
lagasetning vinstri
stjórnar.
En það er meðþennan draum
vinstri stjórnarinnar
eins og hina að hann
varð martröð ann-
arra. Til að mynda
er þegar komið í ljós
að lögin gengu alls
ekki upp.
Við því var varað íumræðum um málið í desember
að lögin hefðu verið illa undirbúin,
en þeim var samt þrýst í gegnum
þingið eins og ýmsu öðru. Og nú hef-
ur Katrín Júlíusdóttir fjár-
málaráðherra lagt fram nýtt frum-
varp um breytingar á lögum um
vörugjöld og tolla til að lappa upp á
fyrri lagasetningu.
Sérstaka athygli vekur að þráttfyrir fyrra klúður hefur
fjármálaráðherra ekki séð ástæðu til
að undirbúa þessa breytingu vel eða
gefa þinginu tíma til að ræða hana.
Katrín gat í það minnsta ekkisvarað einföldum spurningum
um frumvarpið, svo sem þeirri ein-
földu spurningu Birgis Ármanns-
sonar hvort verið væri að hækka
gjöld á einstakar vörur og lækka á
aðrar.
Katrín sýndi þó í „svari“ sínu viðspurningunni að hún er þokka-
lega læs á texta sem aðrir skrifa, en
betur hefði farið á því ef sá texti
hefði snúið að efni spurningarinnar.
Katrín
Júlíusdóttir
Fúskað við löggjöf
STAKSTEINAR
Birgir
Ármannsson
Veður víða um heim 27.2., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 5 súld
Kirkjubæjarkl. 6 léttskýjað
Vestmannaeyjar 5 skýjað
Nuuk -6 skýjað
Þórshöfn 8 léttskýjað
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 heiðskírt
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 5 heiðskírt
Lúxemborg 0 skýjað
Brussel 1 skýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 10 heiðskírt
London 6 léttskýjað
París 2 þoka
Amsterdam 2 heiðskírt
Hamborg 6 heiðskírt
Berlín 2 skýjað
Vín 3 alskýjað
Moskva 0 skýjað
Algarve 12 léttskýjað
Madríd 6 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -5 skýjað
Montreal 1 snjókoma
New York 5 alskýjað
Chicago 0 snjókoma
Orlando 18 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:38 18:44
ÍSAFJÖRÐUR 8:48 18:43
SIGLUFJÖRÐUR 8:32 18:26
DJÚPIVOGUR 8:09 18:11
Ekkert kjöt reyndist vera í nauta-
böku frá Gæðakokkum í Borgarnesi
sem sögð var innihalda 30% nauta-
hakk í fyllingu, sem átti að vera
helmingur af þyngd vörunnar.
Þá voru lambahakksbollur fram-
leiddar af sama fyrirtæki fyrir mat-
vöruverslunina Kost sagðar inni-
halda lamba- og nautakjöt en
innihéldu eingöngu lambakjöt.
Þetta kom fram í rannsókn Mat-
vælastofnunar á kjötinnihaldi 16 ís-
lenskra matvara. Engin vara sem
skoðuð var í rannsókninni uppfyllti
allar kröfur um merkingar.
Í frétt á vef Matvælastofnunar
kemur fram að stofnunin og heil-
brigðiseftirlit sveitarfélaga muni
fylgja eftir málum vegna vanmerk-
inga sem í ljós komu við skoðun um-
búða hlutaðeigandi vörutegunda.
Rétt er að taka fram að í sumum til-
vikum var aðeins um minniháttar at-
hugasemdir að ræða.
Magnús Nielsson, eigandi Gæða-
kokka, viðurkenndi mistök vegna
lambahakksbollanna en segist ekki
átti sig á kjötleysinu í bökunum. „Ég
stend bara hér og klóra mér í hausn-
um því þetta á ekki að geta komið
fyrir að það fari út á markaðinn vara
sem inniheldur ekki það sem er í
uppskriftinni,“ sagði Magnús í sam-
tali í gær.
Hann segist sjálfur bera ábyrgð á
rangri innihaldslýsingu í lamba-
hakksbollum. „Aftur á móti er annað
varðandi lambahakksbollurnar. Það
er bara handvömm hjá mér,“ segir
Magnús. guna@mbl.is
Ekkert kjöt
reyndist í
nautaböku
Kjötlaus Nautahakk átti að vera
helmingur af þyngd vörunnar.
Engin vara uppfyllti
kröfur um merkingar