Morgunblaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013 ✝ Egill Gr.Thorarensen fæddist á Sel- fossi 17.11. 1944. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Mörk 18. febrúar sl. For- eldrar hans voru Grímur E. Thor- arensen, f. 6.6. 1920, d. 3.8. 1991, og Bryndís G. Thorarensen, f. 22.9. 1918, d. 12.10. 2008. Systkini hans eru: Kristín, f. 1942, Guðríður Margrét, f. 1943, Grímur Þorsteinn, f. 1943, d. 1975, Guðlaugur, f. 1946, Bergljót, f. 1950, d. 15.5. 1967, Daníel, f. 1955, og Sigurður, f. 1958. Egill kvæntist Guðrúnu Tryggvadóttur 7.3. 1970, son- ur þeirra er Grímur E. Thor- hann til Braunschweig þar sem hann sérhæfði sig í nið- urlagningu matvæla. Eftir heimkomuna frá Þýskalandi hóf hann störf sem fram- leiðslustjóri við Norðurstjörn- una í Hafnarfirði og starfaði þar uns hann fluttist til Siglu- fjarðar. Þar tók hann við starfi framkvæmdastjóra Siglósíldar hf. Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur gerðist hann meðeigandi og tók við rekstri Síldarrétta hf. sem hann rak næstu 11 árin. Eftir að hann hætti eigin rekstri vann hann við hin ýmsu störf. Hin síðari ár átti Egill við vanheilsu að stríða. Egill gekk í Lionsklúbb Siglufjarðar og stóð sá klúbb- ur fyrir stofnun fyrsta lio- nessuklúbbs landsins 1979. Hann varð fyrsti formaður Lionsklúbbsins Víðarrs í Reykjavík 1983, en í hans for- mannstíð stofnuðu þeir fé- lagar Lionessuklúbbinn Eir. Útför Egils fer fram frá Háteigskirkju í dag, 28. febr- úar 2013, og hefst athöfnin kl. 11. arensen, f. 18.5. 1970, hann á syn- ina Egil og Darra Má. Egill og Guð- rún skildu. Egill var í sam- búð um tíma með Þórunni Gests- dóttur. Núverandi kona Egils er Ás- dís Matthíasdóttir frá Siglufirði, for- eldrar hennar voru Katrín Júlíusdóttir frá Siglufirði og Matthías Helgason frá Hnífsdal. Dætur Ásdísar eru Katrín, f. 1972, og Agnes, f. 1974. Á náms- árunum í Þýskalandi eign- aðist Egill dótturina Jeanine með Sybille Saul. Egill fór sem ungur maður til Hamborgar og lauk þar þriggja ára námi sem mat- vælafræðingur, þaðan fór Margt kemur upp í hugann þegar komið er að kveðjustund Egils. Kynni okkar hófust fyrir bráðum 17 árum, þegar Egill hóf sambúð með móður okkar Ásdísi. Við vorum svo glaðar fyrir hennar hönd þar sem við fluttumst báðar til Noregs um þetta leyti og höfum búið þar síðan. Egill var okkur mjög kær og eigum við margar ljúfar minning- ar um góðan mann sem við mun- um varðveita í hjörtum okkar um ókomin ár með þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Okkur finnst það svo skrýtið að hann skuli vera farinn frá okkur. Sorgin er mikil, en við vonum að þér líði betur á nýjum stað, laus undan þjáningum þessa hræði- lega sjúkdóms sem heilabilun er. Hann var einstaklega notaleg- ur maður með þægilega nærveru og manni leið alltaf svo vel í návist hans. Undir rólegu yfirborði hans leyndist þó skemmtilegur húmor og stutt var í stríðnispúkann sem skemmti okkur margoft. Við eig- um eftir að sakna þíns stríðnislega og fallega bross. Eftirminnilegur er tíminn þeg- ar þú komst til Noregs og dvaldir hjá okkur í nokkra mánuði, þar sem þú hjálpaðir okkur við ým- isleg verk. Á þessum tíma fengum við ennþá frekari staðfestingu á því hversu indæll maður þú varst, þægilegur, rólegur og kurteis í alla staði. Síðastliðin ár hrakaði þér mikið út af veikindum þínum. Þó svo að sjúkdómurinn hafi tekið yfirhönd- ina hin síðari ár, þá erum við vissar um að þú þekktir okkur þegar við komum í heimsókn til þín. Það sáum við á þínu einlæga og glettn- islega brosi sem við munum alltaf minnast. Við kveðjum þig nú með þakk- læti og söknuði fyrir allar skemmtilegu stundirnar með þér, elsku Egill. Katrín og Agnes. Í dag er kvaddur hinstu kveðju mágur minn, Egill Gr. Thoraren- sen, sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 18. febrúar eftir erfið veik- indi. Egill var ljúfur maður og hæg- látur, en þó fjarri því að vera skap- laus og átti það jafnvel til að vera þrjóskur, sem oft getur verið já- kvæður eiginleiki. Hann var bros- mildur, léttur í skapi og þægilegur mjög í allri umgengni. Hláturmild- ur á góðum stundum og skemmti sér jafnan vel í góðra vina hópi. Þannig man ég hann best, enda hittumst við oftast á slíkum stund- um og þær voru margar. Gamlárs- kvöld, þorrablót og helgarferðir út á land, sem Grímur og Bryndís, foreldrar hans, stóðu fyrir og skipulögðu fyrir sinn stóra barna- hóp, tengdabörnin og barnabörn. Egill lagði jafnan sitt af mörkum til að gera þessar ferðir að fjör- ugum og skemmtilegum ættar- mótum. Margar fleiri góðar minn- ingar á ég um samskipti við Egil. Frá Siglufirði, þar sem hann starf- aði sem framkvæmdastjóri Sigló- síldar, og frá Síldarréttum hf. sem Egill stofnaði og rak um árabil í Kópavogi og Reykjavík, en Egill var sérfræðingur í verkun og nið- urlagningu á silfri hafsins – síld- inni, og hafði lært þá iðn í Þýska- landi. Ég minnist Egils á golfvellinum og sérstaklega er minnisstæð myndin af honum og Guðlaugi, bróður hans, þegar þeir tóku land í Þorlákshöfn eftir að hafa siglt á lítilli skútu yfir hafið alla leið frá Noregi. Slíkt er ekki á allra færi og krefst krafta, áræðis og nokkurrar þrjósku, einkum ef menn fá vond veður og þjást af sjó- veiki í upphafi ferðar. Allt þetta hafði Egill til að bera og að auki var hann glæsilegur á velli þannig að eftir var tekið. Það var því erfitt og átakanlegt að fylgjast með alvarlegum heila- sjúkdómi grafa um sig og ná tök- um á þessum hrausta og myndar- lega manni á besta aldri og leggja hann að lokum að velli 68 ára að aldri. En þótt líkaminn gæfi sig smátt og smátt í veikindunum og Egill hætti að geta tjáð sig með orðum, var fallega brosið hans til staðar fram á síðustu stund og mun lifa í minningunni. Ásdís, kona Egils, reyndist hon- um einstaklega vel í veikindunum, og hjá henni fór allt saman, fórn- fýsi, næmur skilningur, umburð- arlyndi og ástúð. Aðrir ástvinir Egils fá henni seint fullþakkað og við Systa vottum henni okkar dýpstu samúð. Einnig ber að þakka starfsfólkinu á Mörk fyrir frábæra umönnun og hlýju sem það sýnir sjúklingum sínum og að- standendum þeirra. Þórður Ásgeirsson. Kveðja frá félögum í Lionsklúbbnum Víðarri Fyrir rúmlega 30 árum komu nokkrir ungir menn saman að frumkvæði Lionsklúbbsins Týs. Tilgangurinn var að stofna nýjan lionsklúbb, sem skyldi myndaður af félögum úr lionsklúbbum af landsbyggðinni, sem flutt höfðu til höfuðborgarsvæðisins annars veg- ar, og hins vegar af félögum úr JC hreyfingunni, sem höfðu þurft að ganga úr henni vegna aldurs. Einn af þessum mönnum var Egill Thorarensen, sem þá var ný- fluttur til Reykjavíkur eftir að hafa búið á Siglufirði um nokkurt skeið. Þar hafði hann verið félagi í Lionsklúbbi Siglufjarðar og tekið virkan þátt í starfi þess klúbbs. Niðurstaðan varð að stofnaður var lionsklúbbur, sem ákveðið var að kenna við ásinn Víðarr. Skemmst er frá því að segja að Egill var kjörinn til þess að vera fyrsti formaður Lionsklúbbsins Víðarrs. Tókst Agli og samstjórn- endum hans þegar á fyrsta starfs- árinu að skapa góðan og skemmti- legan lionsklúbb, og kom reynsla hans frá starfi í Lionsklúbbi Siglu- fjarðar þar að góðum notum. Þannig átti Egill drjúgan þátt í að móta starf Víðarrs til frambúð- ar. Tók hann ávallt góðan þátt í öllu félagsstarfi klúbbsins. Eitt af sérstökum áhugamálum hans í lionsstarfinu var að fá konur til liðs við lionshreyfinguna. Átti hann m.a. hlut að því að stofnaður var lionessuklúbbur á Siglufirði. Fljót- lega eftir stofnun Víðarrs beittu Víðarrsfélagar sér fyrir stofnun kvennaklúbbs sem hlaut nafnið Lionsessuklúbburinn Eir. Á þess- um tíma höfðu konur ekki full rétt- indi í lionshreyfingunni, og var Agli mikið áhugamál að konur fengju full réttindi innan hreyfing- arinnar. Ekki liðu mörg ár þar til fengu konur síðan full réttindi sem lionsmenn. Fyrir allt hans starf í þágu klúbbsins veittum við félagar hans honum æðstu viðurkenningu sem lionsklúbbur getur veitt, er hann var gerður að Melvin Jones félaga árið 1994. Nú að Agli látnum viljum við vinir hans og félagar í Lions- klúbbnum Víðarri þakka honum fyrir allar ánægjulegar samveru- stundir og allt hans starf í þágu klúbbsins. Aðstandendum vottum innilega samúð. Félagar í Lionsklúbbnum Víð- arri, Pétur Már Jónsson og Helgi Gunnarsson. Egill Gr. Thorarensen Elsku amma. Minningar mín- ar um þig streyma fram og ylja um hjartarætur. Þín er svo sárt saknað. Þú varst svo sterk. Við höfð- um svo mikla trú á þér og þú á sjálfri þér um að komast af spítalanum og heim í kotið og fá þér þorramat og sel, okkar upplifun var að þinn tími væri ekki kominn elsku amma. Þú stefndir að því að verða 110 ára. En nú ertu komin upp til Ottós afa og afa Guðlaugs að Ingibjörg Valdimarsdóttir ✝ IngibjörgValdimars- dóttir fæddist í Svefneyjum á Breiðafirði 29.6. 1925. Hún andaðist á sjúkrahúsi Sel- foss 26. janúar 2013. Jarðarför henn- ar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. sjá um þá eins og þú gerðir best. Þú talaðir alltaf um að þú hefðir viljað verða hjúkrunar- fræðingur/ljósmóð- ir og þar sem þú hafðir ekki tök á því óskaðirðu þess að eitthvert barna- barnanna færi í þetta og myndi hjúkra þér þegar að því kæmi, enda varstu rosa- lega stolt af Guðrúnu hans Gumma því hún er hjúkrunar- fræðingur. Þú varst svo ánægð þegar ég tjáði þér að ég væri farin að læra hjúkrun, varst svo himinglöð að allir læknar og hjúkrunarfræðingar sem sáu um þig fengu sko að heyra þessar æðislegu fréttir. Amma Ingibjörg var sko ekta amma. Pönnukökurnar hennar ömmu voru bestu pönnsur í heimi, ömmupönnsur, hún var alltaf til í að henda í þær þegar við krakkarnir kom- um í heimsókn og fannst það bara minnsta mál, enda eld- snögg að þessu. Hún var og er alltaf kölluð prjónaamman, hún dáði að prjóna. Prjónaði á allt og alla og einnig til að selja, fá smáaukapening. Elskaði sel, skötu, sveskjur, döðlur og fleira skrítið, þetta var hún bara alin upp við. Held ég hafi borðað lífsbirgðir mínar af sveskjum hjá henni þegar ég var yngri. Um daginn sagðir þú mér sögu af því að þegar ég var yngri hafðir þú alltaf áhyggjur af því að ég borðaði ekki neitt svo þú þurftir að plata mig smá og bjóst til kleinur til að fara með til Ottós afa á Landakot svo ég myndi borða á leiðinni og með honum. Þú stakkst upp á því að gefa öndunum líka smá en ég vildi bara drífa mig til Ottós afa og sýna honum Andr- ésblaðið mitt, þá var hann orð- inn rosalega veikur og ég skildi ekkert í því. Þú hafðir alltaf nóg um að tala og segja okkur sögur. Allt- af þegar einhver var búinn að vera rosalega lengi í símanum vissi maður alveg hver var á línunni, hún amma. Hafðir allt- af nóg að segja. Þú talaðir alltaf mikið um Flatey og mig langaði alltaf að fara með þér. Þegar þú sagðir mér að þar væri engin sturta var ég ekki alveg eins ánægð en þú sagðir að það væri nú samt hægt að þrífa sig. Ég ætlaði til Flateyjar í sumar með þér, en nú förum við systkinin bara og þú með okkur í anda. Við systur vorum mikið hjá þér þennan lokamánuð, þetta var eiginlega bara annað lög- heimilið okkar og eitt kvöldið sem við sátum hjá þér talaðir þú mikið við okkur systur og varst rosalega skýr. Þú sagðir alltaf „elskurnar mínar“ þegar þú sást okkur systur sitja hjá þér og við sögðum að við elsk- uðum þig, þá sagðir þú „æ það er nú gott“. Ég keypti lítinn lambab- angsa sem var hjá þér svo þú yrðir ekki ein, bangsinn fékk nafnið Bogga kibbakibb, enda varstu kölluð Bogga. Hún minnir mig núna alltaf á þig og þessa tíma. Elsku amma, þín er sárt saknað og minningar mínar um þig gleymast ei. Ég sakna þín! Hvíldu í friði elsku amma mín. Ólína Kristjana Arnfjörð Kristjánsdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR LÁRUSSON frá Grundarfirði, Álfhólsvegi 99, Kópavogi, lést sunnudaginn 24. febrúar á Landspítalanum í Fossvogi. Útför hans fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi þriðjudaginn 5. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Parkinsonssamtökin á Íslandi. Elín Dagmar Valdimarsdóttir, Ragnheiður K. Sigurðarsóttir, Jón Erlendsson, Helga Gróa Sigurðardóttir, Jan E. Bjerkli, Halldóra Dröfn Sigurðardóttir, Einar Vilhjálmsson, Guðrún M. Sigurðardóttir, Valdimar Sigurðsson, Halla Norland, Elínborg Sigurðardóttir, Arnar Geir Nikulásson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ODDFRÍÐUR LILJA HARÐARDÓTTIR hjúkrunarkona, Hörðalandi 16, lést á líknardeild Landspítalans aðfaranótt 16. febrúar. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju á morgun, föstudaginn 1. mars, kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Karitas, hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu. Þórður Guðmannsson, Hörður J. Oddfríðarson, Guðrún Björk Birgisdóttir, Arnar Oddfríðarson, Berglind Rós Davíðsdóttir, barnabörn og bræður hinnar látnu. Það var ekki fyrr en í dag, fimmtudaginn 21. febrúar, sem mér bárust fregnir af að látinn væri vestur á Ísafirði Páll Sig- urðsson, gamall vinur minn og samherji. Páll og eiginkona hans, Palli og Fríða, eru meðal þeirra Ísfirðinga sem ég minnist allt frá barnæsku. Þau voru bæði ákafir stuðningsmenn Alþýðu- flokksins, bæði voru þau fylgin sér, dugleg og ósérhlífin og með- al bestu vina foreldra minna. Þegar ég kom svo aftur heim til þess að hefja minn þingmanns- feril, sem stóð nær óslitið í hátt í þrjá áratugi, voru þau hjónin í hópi traustustu fylgismanna. Mátti ávallt reiða sig á þau jafnt í sókn sem í vörn. Páll var þá og lengi síðan mjólkurbússtjóri á Ísafirði og konan hans, hún Fríða, vann í mjólkurbúðinni meðan sú búð var rekin sem sérstök verslun eins og gert var á þeim árum. Þau hjón eru mér mjög minn- isstæð. Páll meðalmaður á vöxt, grannur, snarplegur og léttur á fæti. Vel að manni. Kjarnakarl. Páll missti hana Fríðu sína þegar þau voru komin á efri ár Páll Sigurðsson ✝ Benjamín PállSigurðsson fæddist 15. maí 1917 í Hnífsdal. Hann lést 15. febr- úar sl. á Fjórðungs- sjúkrahúsi Ísafjarð- ar. Útförin fór fram frá Ísafjarð- arkirkju föstudag- inn 22. febrúar 2013. en lifði lengi eftir lát konu sinnar. Síð- ast lágu leiðir okkar Páls saman fyrir tveimur sumrum þegar ég heimsótti dóttur hans, Kar- ítas, og Baldur, eig- inmann hennar. Páll var þá heima hjá þeim þegar ég kom og þótt aldur- inn væri hár var hann enn kátur og glaður, hafði ekki mikils misst í líkamlegum þrótti og einskis í andlegum þrátt fyrir háan aldur. Mynd var tekin af okkur Páli þar sem við sátum saman úti fyrir íbúðarhúsi þeirra hjóna, Karítasar og Bald- urs. Þá mynd á ég og varðveiti. Dóttir þeirra hjónanna, Palla og Fríðu, er Karítas, gömul skólasystir mín og góður félagi og vinur. Hún var eins og for- eldrar hennar sannur jafnaðar- maður og vann öll sín verk hvort heldur var fyrir jafnaðarstefn- una ellegar verkalýðshreyf- inguna á Vestfjörðum af mikilli elju og einstakri trúmennsku. Hún fékk að njóta samvista við föður sinn allt til hans hinstu stundar. Var mjög kært með þeim og milli þeirra ríkti gagn- kvæmt traust og trúnaður. Þótt seint sé – útförinni lokið – vil ég kveðja þennan gamla vin minn, Pál Sigurðsson, með síð- búnum orðum. Gömlum vinum og samherjum mínum á Vest- fjörðum fækkar nú óðum enda færast árin yfir. Með Páli er genginn einn sannasti og traust- asti meðal margra. Sighvatur Björgvinsson. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Lengd | Hámarkslengd minn- ingargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær út- förin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um for- eldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.