Morgunblaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta er einhver fallegasta óhugn-
anlega draugasaga Íslendinga. Og
það að leika hana á staðnum þar sem
hún gerist, gefur uppfærslunni enn
meiri dýpt og trúverðugleika,“ segir
Jón Gunnar Th.,
höfundur og leik-
stjóri Djáknans,
nýs leikverks sem
Leikfélag Hörg-
dæla frumsýnir í
kvöld, fimmtudag,
í félagsheimilinu á
Melum í Hörg-
árdal. Verkið er
byggt á þjóðsög-
unni um djáknann
á Myrká og hefur Skúli Gautason
samið tónlist fyrir sýninguna.
Eins og lesendur væntanlega
þekkja gerist þessi fræga ástar- og
draugasaga í Hörgárdal og segir frá
djákna sem býr á Myrká og býður
Guðrúnu, sem er vinnukona á Bæg-
isá, til jólagleði. Sautján leikarar auk
hljóðfæraleikara stíga á svið en alls
koma um fjörutíu manns að uppsetn-
ingunni. Leikritið verður sýnt á
föstudags- og laugardagskvöldum.
Barátta góðs og ills
„Að setja draugasöguna á svið mitt
á milli Bægisár og Myrkár er mjög
spennandi; áhorfendur koma sömu
leið og djákninn reið og sjá tungls-
ljósið lýsa upp dalinn. Leikmyndin er
í náttúrunni og upplifunin af sögunni
byrjar á leiðinni, hvernig sem veðrið
er,“ segir Jón Gunnar.
„Þetta er nokkuð epísk sýning.
Djákninn deyr en snýr aftur og svo
veltum því fyrir okkur hvers vegna.
Það verður barátta góðs og ills, átök
himnaríks, helvítis og jarðlífsins. Við
erum í þremur víddum.“ Jón Gunnar
segir til að mynda byggt á Háva-
málum og Völuspá, auk verka skálda
sem hafa búið í dalnum og ort þar.
„Þau eru engin önnur en Davíð Stef-
ánsson, Kristján frá Djúpalæk, Ólöf
frá Hlöðum, Vatnsenda-Rósa og svo
var Jónas Hallgrímsson í Öxnadal.
Ég trúi því að saga djáknans hafi
veitt þeim einhvern innblástur, og ég
notast aðeins við ljóðagerð þeirra.“
Djákninn á Myrká hét Böðvar
Jón Gunnar og Skúli fengu styrk
frá Eyþingi, menningarráði Eyja-
fjarðar og Þingeyjasýslu, til að vinna
að verkinu og gat Skúli þá farið í að
semja tónlistina og Jón Gunnar hellt
sér út í rannsóknir. Hann telur sig
hafa komist að því hver djákninn var
og hvenær sagan gerðist.
„Djákninn á Myrká hét Böðvar Ög-
mundsson og var frá Kristnesi. Pétur
Nikulásson Hólabiskup sendi hann
árið 1394 í Hörgárdal, að Bægisá, til
að setja prestinn, séra Guðbjart
Flóka, úr embætti. Hann hafði gert
vinnukonu barn. Á þessum tíma voru
þar tvær vinnukonur og önnur þeirra
hét Guðrún.
Böðvar var sæmdur djáknatitli áð-
ur en hann kom í Hörgárdal. Hann
gisti líklega á Myrká, þar sem prest-
urinn þar var nýlátinn, og hann hvarf
stuttu síðar. Ekki er vitað um dauð-
daga hans. Vetrardansleikir voru
haldnir á Myrká á þessum tíma og
það er líklega dansleikurinn sem þau
Guðrún voru að fara á,“ segir Jón
Gunnar og bætir við að sagan gerist
13. til 27. desember þetta ár, 1394, og
vísbendingar um allt það sem hann
hafi fundið út sé í raun að finna í þjóð-
sögunni. „Þetta er allt þarna. Í leik-
myndinni er til að mynda sjálf klukk-
an úr sáluhliðinu sem Guðrún hringir.
Hún er frá 14. öld og hefur verið
geymd uppi á lofti á Bægisá,“ segir
hann og ber lof á leikhópinn, fyrir
áhuga og hæfileika.
Sagan um djáknann
leikin þar sem hún gerist
Leikfélag Hörg-
dæla sýnir verk
Jóns Gunnars Th.
Jón Gunnar Th.
Hringt Ída Irene
Oddsdóttir í hlutverki
Guðrúnar í leikritinu
um Djáknann. Hún
hringir klukkunni sem
hékk í sáluhliðinu á
Bægisá á 14. öld þegar
sagan á að hafa gerst.
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Úrval - gæði - þjónusta
Allt fyrir
gluggana
á einum
stað
Mælum,
sérsmíðum
og setjum upp
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Lau 2/3 kl. 19:00 aukas Fim 11/4 kl. 19:00 10.k Fös 10/5 kl. 19:00
Sun 3/3 kl. 19:00 3.k Lau 13/4 kl. 19:00 aukas Lau 11/5 kl. 19:00
Þri 5/3 kl. 19:00 4.k Sun 14/4 kl. 19:00 11.k Sun 12/5 kl. 13:00
Mið 6/3 kl. 19:00 5.k Fös 19/4 kl. 19:00 aukas Mið 15/5 kl. 19:00 aukas
Fim 7/3 kl. 19:00 aukas Lau 20/4 kl. 19:00 aukas Fim 16/5 kl. 19:00
Lau 9/3 kl. 19:00 6.k Sun 21/4 kl. 19:00 12.k Fös 17/5 kl. 19:00
Sun 10/3 kl. 13:00 aukas Mið 24/4 kl. 19:00 Lau 18/5 kl. 19:00
Þri 12/3 kl. 19:00 aukas Fös 26/4 kl. 19:00 aukas Mán 20/5 kl. 13:00 aukas
Mið 13/3 kl. 19:00 7.k Lau 27/4 kl. 19:00 Fim 23/5 kl. 19:00
Fim 14/3 kl. 19:00 aukas Sun 28/4 kl. 13:00 Sun 26/5 kl. 13:00
Lau 16/3 kl. 19:00 8.k Þri 30/4 kl. 19:00 aukas Fös 31/5 kl. 19:00
Sun 17/3 kl. 13:00 aukas Fim 2/5 kl. 19:00 aukas Lau 1/6 kl. 13:00
Mið 20/3 kl. 19:00 aukas Fös 3/5 kl. 19:00 Sun 2/6 kl. 13:00 aukas
Fös 22/3 kl. 19:00 9.k Lau 4/5 kl. 19:00 Mið 5/6 kl. 19:00 aukas
Lau 23/3 kl. 19:00 aukas Sun 5/5 kl. 13:00 Fim 6/6 kl. 19:00
Sun 24/3 kl. 19:00 aukas Mið 8/5 kl. 19:00 aukas Fös 7/6 kl. 19:00
Þri 26/3 kl. 19:00 aukas Fim 9/5 kl. 14:00 Lau 8/6 kl. 19:00
Einn vinsælasti söngleikur heims, nú loks á Íslandi. Forsala í fullum gangi.
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Fim 28/2 kl. 20:00 Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas
Fös 1/3 kl. 20:00 Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas
Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar komnar í sölu.
Gullregn (Stóra sviðið)
Fös 8/3 kl. 20:00 Sun 17/3 kl. 20:00 Mið 12/6 kl. 20:00
Sun 10/3 kl. 20:00 Þri 19/3 kl. 20:00 Fim 13/6 kl. 20:00
Fös 15/3 kl. 20:00 Fim 21/3 kl. 20:00
Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré.
Tengdó (Litla sviðið)
Fim 28/2 kl. 20:00 aukas Lau 23/3 kl. 20:00 aukas Sun 21/4 kl. 20:00 21.k
Fös 1/3 kl. 20:00 7.k Sun 24/3 kl. 20:00 15.k Mið 24/4 kl. 20:00 22.k
Mið 6/3 kl. 20:00 8.k Fös 5/4 kl. 20:00 16.k Fim 25/4 kl. 20:00 aukas
Lau 9/3 kl. 20:00 9.k Lau 6/4 kl. 20:00 17.k Lau 27/4 kl. 20:00 23.k
Fim 14/3 kl. 20:00 10.k Sun 7/4 kl. 20:00 aukas Fös 3/5 kl. 20:00 24.k
Fös 15/3 kl. 20:00 aukas Lau 13/4 kl. 20:00 18.k Lau 4/5 kl. 20:00 25.k
Lau 16/3 kl. 20:00 11.k Sun 14/4 kl. 20:00 19.k Sun 5/5 kl. 20:00
Sun 17/3 kl. 20:00 12.k Fim 18/4 kl. 20:00 aukas Fös 10/5 kl. 20:00
Fim 21/3 kl. 20:00 13.k Fös 19/4 kl. 20:00 aukas Lau 11/5 kl. 20:00
Fös 22/3 kl. 20:00 14.k Lau 20/4 kl. 20:00 20.k
Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur!
Saga þjóðar (Litla sviðið)
Fim 7/3 kl. 20:00 Fös 8/3 kl. 20:00
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. síðustu sýningar.
Ormstunga (Nýja sviðið)
Fim 28/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Fös 1/3 kl. 20:00 Fim 7/3 kl. 20:00 Fim 14/3 kl. 20:00
Lau 2/3 kl. 20:00 Lau 9/3 kl. 20:00
Tungan rekin framan í þjóðararfinn á ný
Nóttin nærist á deginum (Litla sviðið)
Lau 2/3 kl. 20:00 Sun 3/3 kl. 20:00 Sun 10/3 kl. 20:00
Nýtt, íslenskt verk eftir Jón Atla Jónasson
Skoppa og Skrítla í leikhúsinu (Litla sviðið)
Sun 3/3 kl. 13:00 Lau 9/3 kl. 13:00
Leikhús með söng og dansi fyrir börn frá níu mánaða aldri
MARY POPPINS – Nýjar aukasýningar!
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Fyrirheitna landið (Stóra sviðið)
Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 14/3 kl. 19:30 8.sýn
Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 9.sýn
Lau 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið nýtt verðlaunaverk!
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 3/3 kl. 13:00 Sun 10/3 kl. 16:00 Sun 24/3 kl. 13:00
Sun 3/3 kl. 16:00 Sun 17/3 kl. 13:00 Sun 24/3 kl. 16:00
Sun 10/3 kl. 13:00 Sun 17/3 kl. 16:00
Eitt ástsælasta barnaleikrit á Íslandi!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið )
Sun 3/3 kl. 20:30 Sun 10/3 kl. 20:30 Sun 17/3 kl. 20:30
Nýtt sýningatímabil! Miðasala í fullum gangi!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 2/3 kl. 13:30 Sun 3/3 kl. 15:00 Lau 9/3 kl. 16:30
Lau 2/3 kl. 15:00 Sun 3/3 kl. 16:30 Sun 10/3 kl. 13:00
Lau 2/3 kl. 16:30 Lau 9/3 kl. 13:30 Sun 10/3 kl. 15:00
Sun 3/3 kl. 13:30 Lau 9/3 kl. 15:00 Sun 10/3 kl. 16:30
Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka!
Karma fyrir fugla (Kassinn)
Fös 1/3 kl. 19:30
Frumsýning
Sun 3/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 5.sýn
Lau 2/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 10/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyrsta leikrit Kristínar Eiríksdóttur og Karí Óskar Grétudóttur
Uppistand - Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 28/2 kl. 20:00 Fös 1/3 kl. 20:00 Fös 1/3 kl. 23:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Segðu mér satt (Kúlan)
Mið 6/3 kl. 19:30 Fim 7/3 kl. 19:30
Leikfélagið Geirfugl sýnir
Homo Erectus - pörupiltar standa upp (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 2/3 kl. 21:00 Lau 16/3 kl. 21:00 Lau 23/3 kl. 21:00
Pörupiltar eru mættir aftur!