Morgunblaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013 Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar 100% made in Italy www.natuzzi.com Við bjóðum velkomna ítalska hönnun Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar. Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi. Staður þar sem fólki líður vel. Félagar 17 afganskra lögreglu- manna í Ghazni-héraði, sunnan við Kabúl, laumuðust snemma í gær- morgun til að gefa þeim svefnlyf í mat og myrtu þá síðan, að sögn New York Times. Síðar í gær gerði sjálfsvígsmaður talibana árás á kyrrstæða rútu hermanna í Kabúl, særði sex hermenn og einn óbreytt- an borgara en féll sjálfur. Meðal hinna myrtu í Ghazni voru 10 úr lögregluliði héraðsins en sjö voru nýliðar í þjálfun. Fram kom að tveir lögreglumenn hefðu þegar verið handteknir vegna málsins og voru þeir sagðir útsendarar talib- ana; hinir morðingjarnir flúðu eftir að hafa stolið vopnum og kveikt í lögreglubíl. Talsmaður talibana sagði þá gangast við morðunum sem hefðu verið hefnd fyrir ýmis illvirki lögreglumanna. Liðsmönnum hers og lögreglu Afgana hefur fjölgað hratt síðustu árin en deilt er um það hve vel þjálfaðir þeir séu. Ráðgert er að síðustu erlendu hermennirnir yfir- gefi landið í árslok 2014. Nýr ráð- herra varnarmála, Chuck Hagel, tók í gær við embætti í Bandaríkj- unum. Fær hann það hlutverk að stjórna fyrirhugaðri brottför nær 100 þúsund manna, bandarísks her- liðs frá Afganistan. kjon@mbl.is AFP Tilræði Liðsmaður alþjóðaherliðsins á verði við staðinn þar sem sjálfsvígsárásin var gerð í Kabúl í gær. Byrlað svefnlyf í mat og síðan skotnir Svissneska lög- reglan segir að 42 ára gamall maður sem skaut tvo til bana í trjá- verksmiðju Kro- nospan í Menz- nau, skammt frá Luzern, í gær- morgun og særði sjö að auki hafi verið starfs- maður verksmiðjunnar. Maðurinn, sem féll sjálfur, hafi ekki fyrr verið staðinn að árásum af þessu tagi. Byssueign er algengari í Sviss en flestum ríkjum en skotárásir eru fremur fátíðar. kjon@mbl.is Mannskæð árás byssumanns í Sviss kostaði þrjá lífið Lögreglumenn við verksmiðjuna í gær. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Sjávarútvegsráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins staðfestu í gær eftir 20 klukkustunda fund bann við brottkasti á fiski sem ákveðið var á ESB-þinginu í júní í fyrra og á nú ávallt að sigla með aflann í land. En Spánverjar og Frakkar fengu því framgengt að sjómenn mega veiða níu og síðar sjö prósent aflans utan kvóta og geta því áfram fleygt þús- undum tonna á ári, að sögn umhverf- issinna. Þessi tilslökun merki að bannið verði ekki algert og auk þess verði erfiðara að framfylgja því. Málið fer nú aftur til ESB-þings- ins. Talið er að nær fjórðungi sam- anlagðs afla skipa ESB sé fleygt aft- ur í hafið þar sem megnið af þeim fiski drepst. Eini ráðherrann sem var andvígur umræddum tilslökun- um var Svíinn Eskil Erlandsson. „Sjómenn fá að fleygja 500 þúsund tonnum í hafið ár hvert!“ sagði hann vonsvikinn eftir fundinn. Fram kem- ur í Dagens Nyheter að hann voni að ESB-þingið taki af skarið og stað- festi upprunalegu tillöguna um al- gert bann sem naut stuðnings fram- kvæmdastjórnarinnar í Brussel. Bannið er hluti af heildarendur- skoðun á stefnu ESB í sjávarútvegs- málum og á að taka gildi í janúar og næstu ár. Flestir stofnar á veiði- svæðum sambandsins eru ofveiddir. Andstæðingar tillagnanna hafa full- yrt að afar erfitt sé að hindra brott- kast, auðvelt að fara í kringum bann. Aðrir benda á að bann við brottkasti hafi borið góðan árangur í Skotlandi. Útvatna brottkastsbannið  Ráðherrar ESB gagnrýndir fyrir tilslakanir á tillögum um algert bann  Fulltrúi Svía segir að áfram verði fleygt hálfri milljón tonna af fiski í hafið á ári Umdeildar tillögur » Andstæðingar bentu á að tæknilega væri vart hægt að hindra að tegundir sem menn vildu ekki slæddust með. » Maria Damanaki sjávar- útvegsstjóri virtist sátt og sagði tillögur ráðherranna þýða grundvallarbreytingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.