Morgunblaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013 Nú um þessar mund- ir eru félög eldri borg- ara að halda aðalfundi sína. Kjör eldri borgara eða þeirra sem komnir eru á eftirlaun eru afar misjöfn. Við vitum að hin svokallaða elíta eft- irlaunaþega þarf ekki að kvarta og allir skilja við hvað er átt. En hinn almenni lífeyrisþegi lepur dauðann úr skel, svo vægt sé til orða tekið. Það eru sjálfsagt markmið að standa vörð um kjör eldri borgara, kjör sem hafa farið versnandi síðustu misseri svo óviðunandi er. Það þarf ekki að fjasa um það að við lifum á undarlegum tímum, svo ekki sé meira sagt. En nú fara breytingar í hönd, eða við vonum það þó að oftast fari allt í sama farið. Þarna á ég við alþingiskosningar sem framundan eru 27. apríl næstkomandi. Þá er um að gera að vekja þá fulltrúa sem lúrt hafa síðustu fjögur ár, nefni þetta því reynslan er hjá allflestum sú að það er ekki tekið í hönd þér eða vinkað á götu úti nema á fjögurra ára fresti. Eins má minna á að doði borgaranna er í takt við áður nefnt, þeir rumska rétt fyrir kosningar. Ég vil nefna hér atriði sem leggja þarf áherslu á. Það er að eldri borg- urum verði gert mögulegt að búa sem lengst í húsum og íbúðum sínum, sem þeir hafa stritað fyrir alla sína ævi á heiðarlegan hátt og hvergi komið nálægt fjármálasukki. Þarna er ég með í huga hin mjög svo háu fasteignagjöld. Þau eru að mínu mati ekki sanngjörn gagnvart láglauna- hópum, hvað svo sem má segja um þá sem eru með ofurlaun án þess að ég skilgreini það nánar. Það er óþolandi fyrir þá sem með eljusemi og dugn- aði hafa komið sér þaki yfir höfuðið með ævilöngu striti að þurfa að skipta um húsnæði vegna skattp- íningar og stökkbreyttra lána, því að margir svokallaðir eldri borgarar eru líka skuldsettir. Nú skulum við að fylgjast með hverjar áherslur flokkanna verða fyrir næsta kjörtímabil og eru mér þá skiljanlega ofarlega í huga málefni eldra fólks, því nú er ég flokkaður meðal þeirra og verð að lifa af skammtinum eins og ég kalla það. Ég nefndi hér áður undarlega tíma. Þegar lífskjörin hafa versnað sem aldrei fyrr þá gengur það auðvit- að ekki hjá stjórnvöldum að seilast sýknt og heilagt í vasa þeirra sem eru nánast tómir, því þannig hefur það verið. Það er ekki hygginna manna háttur að róa á mið þar sem lítið eða ekkert er að hafa. Hvorki ég né nokkur getur kennt þeim sem völdin hafa, því þeir virðast lítið heyra, eða sjá það réttlæti sem felst í því að borgarar þessa lands þurfi ekki að kvíða ellinni eða ævi- kvöldi, sem á að vera hverjum manni nota- legt miðað við að heilsan sé í lagi, og skilað hefur góðu ævistarfi af þraut- seigju og samvisku. En oftar en ekki kemur það fram bæði í ræðu og riti, hver á að borga. Þó að kakan sé ekki stór á að vera hægt að skipta henni á réttlátari hátt en nú er gert. En það hefur því miður ekki tekist ennþá svo viðunandi sé. Aldrei fyrr hafa kjósendur haft eins mikla flóru flokka til að velja úr fyrir atkvæði sitt. Já, hvar finnst flokkur? Ekki furða þótt upp í huga komi hvar í allri þess- ari flokkaflóru er að finna flokk sem okkur hugnast og hefur skilning á líf- inu eins og það er. En líf í henni efn- islegu veröld á jafnt við alla, þ.a.e.s. hvernig farið er með almannafé og hvernig fjár er aflað í sameiginlegan sjóð landsmanna. En er hægt að treysta flokkaskokkurum núna í allri loforðaflórunni um að orðaflaumur um allt og ekkert komi okkur sökkv- andi þjóð upp á yfirborðið. Hvar finnst flokkur sem ekki notar frasann: Stefnt skal að? Hvar finnst flokkur sem ekki letur til öflunar tekna vegna óhóflegra skatta? Hvar finnst flokkur sem ekki skattleggur tekjur sem þarf til lámarks- framfærslu? Hvar finnst flokkur sem ekki gerir öldruðum ævikvöldið óþarflega dapurlegt? Þannig mætti lengi telja. En til þess að eitthvað breytist til batnaðar verða viðkomandi að láta heyra í sér og rökstyðja sitt mál og hamra á því endalaust. Þeir fiska sem róa, þannig hefur það verið og mun alltaf verða. Hvet alla þá sem lifa þurfa af skammtinum ömurlega að berjast. Ömurleg skömmtun Eftir Ingibjart Guðjón Þórjónsson »Kjör eldri borgara eða þeirra sem komnir eru á eftirlaun eru afar misjöfn. Ingibjartur Guðjón Þórjónsson Höfundur er húsasmíðameistari og verkmenntakennari. Getur verið, að eitt af meginskilyrðum þess að þykja áhugavert skáld, sé að vera fjölskyldu- maður? Nú, þegar ég er að fara með elleftu frumsömdu ljóðabók mína til prentara, dettur mér þetta enn í hug; með því að Kiljan Egils í Ríkissjónvarpinu afþakkaði að fjalla um þá tíundu. Það gæti verið gott verkefni fyrir bókmenntafræðinga að athuga hvort söluhæstu skáldin væru ekki jafnframt fjölskyldufólk undan- tekningarlítið, og hvort bækur þeirra fjölluðu ekki einmitt mikið um slík fjöl- skylduvandamál. Og hvort slíkt vægi ekki þyngra en að þau hrærðust á venjulegum vinnumörkuðum; sem mun öllu fátíðara. Og þá einnig hvort dæmigerði lesandinn væri ekki fremur heimavinnandi húsmóðir en einhleyp- ur karlmaður? Allavega þykir mér að Kiljan Egils snúist æ meira um viðtöl við kvenkyns rithöfunda sem eru að bera brjóst sín í fjölskyldumálum, en um verkin sjálf að öðru leyti. Þannig er nú sjaldan lesið upp úr verkunum orðrétt þar á bæ. Þó er það svo að okkur einhleypu skáldunum er ekki alls varnað í fjöl- skyldumálum. Þannig hef ég kapp- kostað að teljast einnig sem ástarljóða- skáld í gegnum tíðina, og stuðst þá þess heldur við einhleypingsleg ástar- ævintýri mín forðum. Og öll höfum við frá áleitnum fjölskylduminningum að segja úr okkar eigin uppeldi. Og svo verða vinnustaðir fólks oft að einhvers konar uppbótarfjölskyldu. Um allt þetta fjalla ég í nýju ljóðabók minni, Lífljóðum. En með því ljóðabókaum- fjallanir eru nú orðnar sjaldséðar í blöðum, vil ég hér tíunda slíka ljóða- titla úr bók minni: Af ástarljóðum get ég nefnt titlana: Lýkea svarar Hórasi; Eykonan Saffó; Náttfiðrildi; Nálægðarhringir; Í ferm- ingarveislum; Tunglið taktu mig; Augnaráðið glettna. Af súrsætum vinnustaðaljóðum get ég nefnt: Hofgyðjur og ellikvef; Ösku- dagshattaball; Dordingull nú dauðinn er; Söngkonan svarar manni sínum; og: Hvaða fólk var þetta eiginlega? Af æskuminningaljóðum eru: Ævi mín; Seinheppni strákurinn; Sverða- dansarinn; Ljúflingurinn ég; Sumarið var að kveðja; og: Þetta með eplatréð. Svo eru ljóð sem fjalla um venjulegri viðfangsefni fjölmiðla, svo sem stríð og óeirðir: Fífldjarfasti Rómverjinn; Þeir kunna að reiðast; Fáfengilegur mót- mælandi; Hlutskipti mannsins; Sjúk- leg hringrás; og: 1970, 1940 og 2012. Þá eru það ljóð sem fjalla um líf rit- höfunda fyrst og fremst. Þau heita: Fólk hefur ekki áhuga; Attískar næt- ur; Ég hef áður ort; Nú er skáldskap- urinn; Anýta hin spartverska; Súlpikía hin rómverska; Þið vesælu blekberar Alexandríu; og: Úr ferðabókum Ro- berts Graves. Að lokum er ljóð sem fjallar einkum um heiðin trúmál, en það heitir: Mnemosyne og Hera. Eru þá upptaldir titlarnir í þessari bók. (En þess má geta að Morgun- blaðið hefur birt eftir mig ígildi tveggja ljóðabóka í gegnum tíðina og fjallað um átta þeirra). Menn hafa sýnt háttbundnum ljóð- um mínum óvæntan áhuga. Því vil ég nú sýna lesendum hið eina slíka sem er að finna í ljóðabók minni nýju; en það heitir: Dordingull nú dauðinn er: „Giska illskar taldi þá / glyrnur grænar köngulóar / er eg forðum inn í sá. / Smásjá lýsti stjörnur fjórar. / Virtist viðbúin að grípa / mig með loðnum víga-töngum; / væri ég sem ve- sæl títla / föst í slímnets-vefi löngum. / Þeirri sýn eg þegi vildi / mjúklimaðri þöll með deila / þeirri’ er með mér skoða skyldi / skrípi þetta; miður heil- agt. / Núna nándin önnur er: / starfs- systkin í neti stóru / bíða þess er vera ber: / bara gamla fólkið tóri. / Dording- ull nú dauðinn er, / dandalast sem hjartans móri.“ TRYGGVI V. LÍNDAL, skáld og menningar- mannfræðingur Viðfangsefni einhleypra skálda Frá Tryggva V. Líndal Tryggvi V. Líndal ...alveg með’etta Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga • Góðir tekjumöguleikar • Þekkt vörumerki • Sveigjanlegur vinnutími Allar nánari upplýsingar á www.avon.is og í síma 577 2150 Við leitum af sölufulltrúum um land allt Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla A81 Hönnuðir: Atli Jensen og Kristinn Guðmundsson Verð frá: 27.800,- www.facebook.com/solohusgogn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.