Morgunblaðið - 28.02.2013, Side 18
VIÐTAL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við höfum fengið mjög góð viðbrögð
um allt land, menn eru almennt
áhugasamir um að varðveita þessa
sögu og fræða nemendur, ferðamenn
og allan almenning um stórmerkilega
sögu slökkviliða á Íslandi og hvernig
þau tengjast þróun þjóðfélagsins með
einum eða öðrum hætti í meira en 100
ár,“ segir Sigurður Lárus Sigurðs-
son, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðins, en hann er
forsprakki samtakanna ÁSSÍ, sem
stendur fyrir Áhugamenn um varð-
veislu á munum og sögu slökkviliða á
Íslandi. Samtökin ætla að sjá um og
reka slökkviliðssafnasetur í samráði
við Byggðasafn Reykjanesbæjar og
fleiri aðila. Til stendur að vígja safna-
setrið 13. apríl nk. í tilefni þess að 100
ár eru liðin frá stofnun Brunavarna
Suðurnesja, eins samstarfsaðilans.
Sigurður segist einnig hafa fengið
góðan stuðning frá Slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins, Landssambandi
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna, Reykjanesbæ, Þjóðminja-
safninu og fleirum. Allir eigi þessir
aðilar miklar þakkir skildar.
Geymdir við slæmar aðstæður
Hugmyndin kviknaði í ferð Sig-
urðar um landið, þar sem hann hafði
verið beðinn um að finna og mynda
ameríska slökkvibíla vegna bókar
sem danskur bókaútgefandi er að
gefa út um slíka bíla á Norðurlöndum
frá árunum 1940-1980. Eyddi Sig-
urður einu og hálfu ári í þetta verk-
efni og Ísland er með einar 45 myndir
í bókinni. Á ferð sinni segist hann
hafa komist að því að víða um land
væri gamall búnaður slökkviliða
geymdur við slæmar aðstæður.
„Mér fannst nöturlegt að sjá í
hvers konar ástandi bílarnir voru og
oft og tíðum voru þeir geymdir utan-
dyra. Ég fór þá að velta fyrir mér
hvort ekki ætti að varðveita og sýna
þennan búnað, þetta er saga sem
spannar yfir 100 ár og hefur verið æði
kaflaskipt,“ segir Sigurður sem fór
fljótlega að hafa orð á hugmyndinni
við ýmsa aðila. Fékk hann Ingvar
Georgsson hjá Brunavörnum Suð-
urnesja í lið með sér og saman fóru
þeir á fund Árna Sigfússonar, bæjar-
stjóra í Reykjanesbæ, eftir að hafa
fengið augastað á húsnæði við
byggðasafnið í bænum. Viðtökurnar
voru góðar og einnig kynntu þeir
hugmyndina fyrir Jóni Viðari Matt-
híassyni, slökkviliðsstjóra SHS, og
Birgi Finnssyni, aðstoðarslökkvi-
liðsstjóra SHS, og Jóni Guðlaugssyni
og Sigurði Skarphéðinssyni hjá
Brunavörnum Suðurnesja. Allir
sýndu þeir þessu mikinn stuðning og
hvatningu. „Mörgum fannst þetta of
stór biti til að byrja á en eftir við-
ræður fram og til baka ákváðum við
að fara af stað með stuðningi okkar
samstarfsaðila,“ segir Sigurður en
þeir Ingvar hafa einnig farið og
kynnt sér sambærileg söfn annnars
staðar á Norðurlöndum og á Bret-
landseyjum. Byggðasafn Reykjanes-
bæjar leggur til 650 fermetra hús-
næði og verður safnstjórinn þar
tengiliður við önnur söfn á Íslandi
með möguleika á öflun fleiri gripa.
Þannig koma tveir bílar frá Þjóð-
minjasafninu, sem hafa verið í
geymslu, Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins leggur til bíla og þá eru
Brunavarnir Suðurnesja að gera upp
gamlan bíl sem til stendur að sýna á
safnasetrinu. Einnig hafa komið góð
viðbrögð frá slökkviliðum víða um
land. „Slökkvibílar hafa víða verið
varðveittir og sýndir, eins og á sam-
gönguminjasöfnunum á Ystafelli í
Þingeyjarsveit og í Stóragerði í
Skagafirði. Einnig er slökkvibíll á
Byggðasafninu í Skógum og allt er
þetta hið besta mál. Við ætlum ein-
göngu að einbeita okkur að búnaði og
sögu slökkviliðanna frá fyrsta degi,
höfum heldur ekki endalaust hús-
pláss og fyllum það fljótt.“
Saga slökkviliðanna í rúm 100 ár
Slökkviliðsmenn vígja safnasetur á Byggðasafni Reykjanesbæjar í vor Vilja varðveita sögu
slökkviliðanna á Íslandi og sýna eldri búnað Hugmyndin kviknaði í ljósmyndaferð um landið
Morgunblaðið/Golli
Safnasetur Sigurður Lárus Sigurðsson slökkviliðsmaður er forvígismaður verkefnsins. Hér er hann við tvo gamla
Ford-bíla á slökkvistöðinni í Hafnarfirði sem fara á safnasetrið við Byggðasafn Reykjanesbæjar í vor.
Slökkvibílar Gamall slökkvibíll á Hornafirði sem Sigurður kom auga á.
Heimamenn hafa tekið vel í að gera bílinn upp og senda hann á safnið.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013
Aðildarfélög ASÍ hófu í vikunni
átak gegn verðhækkunum undir yf-
irskriftinni – Vertu á verði. Al-
menningur og atvinnulífið eru
hvött til að taka höndum saman og
rjúfa vítahring verðbólgunnar, seg-
ir í frétt frá ASÍ. Átakinu er ætlað
að veita fyrirtækjum og stofnunum
aðhald í verðlagsmálum og vekja
neytendur til aukinnar vitundar.
Á heimasíðu átaksins www.ver-
tuaverdi.is geta allir sent inn
ábendingar um verðhækkanir á
fljótlegan og einfaldan hátt. „Þann-
ig getum við sameiginlega skapað
mikilvægt aðhald, meðvitund og
umræðu um verðlagsmál.
Það er hagsmunamál okkar allra
að vera á verði og láta vita,“ segir í
fréttinni frá ASÍ.
Við endurskoðun kjarasamninga
nú í janúar lögðu fulltrúar launa-
fólks mikla áherslu á að samstaða
yrði meðal fyrirtækja og opinberra
aðila um að sýna aðhald í verð-
hækkunum svo nýtilkomnar launa-
hækkanir skili sér í auknum kaup-
mætti launafólks.
Hefja átak gegn
verðhækkunum
Félagsfræðingafélag Íslands og
Miðstöð margbreytileika- og kynja-
rannsókna standa fyrir málþingi
föstudaginn 28. febrúar að Grand
Hótel í Reykjavík kl. 8. Heiti mál-
þingsins er: Unga fólkið og klám-
menningin: kynfrelsi eða kyn-
fjötrar? Fyrirlesarar verða
Þorbjörn Broddason, prófessor í fé-
lagsfræði, dr. Gyða Margrét Pét-
ursdóttir, aðjunkt í kynjafræði, og
Bára Jóhannesdóttir félagsfræð-
ingur. Pallborðsumræður verða að
loknum fyrirlestrum. Fundarstjóri
verður Stefán Hrafn Jónsson, for-
maður Félagsfræðingafélags Ís-
lands. Skráning fer fram á heima-
síðu Félagsfræðingafélagsins:
www.felagsfraedingar.is.
Rætt um unga fólkið
og klámmenningu
Siðfræðistofnun efnir til málstofu í
samvinnu við læknadeild HÍ um líf-
færaflutninga og ætlað samþykki.
Hún verður haldin í Lögbergi föstu-
daginn 1. mars milli kl. 12.00 og
13.30. Málstofan er sú fyrsta í röð
málstofa undir yfirskriftinni Sið-
fræði og samfélag: álitaefni í heil-
brigðisþjónustu. Erindi flytja Run-
ólfur Pálsson læknir, Salvör
Nordal, forstöðumaður Sið-
fræðistofnunar, og Héðinn Árna-
son, MA.
Málstofa um
líffæraflutninga
STUTT
Sigurður Lárus sendi í vetur
bréf til allra slökkviliðsstjóra á
landinu með ósk um liðsinni við
verkefnið. Viðtökur hafa verið
góðar og er safnasetrið þegar
komið með nokkra slökkviliðs-
bíla til sýnis og ýmsa aðra gripi,
s.s. reykköfunartæki og hlífðar-
búninga. Einnig fyrstu klippurn-
ar sem komu til landsins til að
geta bjargað fólki úr bílflökum.
„Meginmarkmiðið með safna-
setrinu er að gefa gestum góða
mynd af þróun slökkviliða á Ís-
landi og halda um leið til haga
eldri búnaði og þeirri sögu sem
starf slökkviliðsmanna hefur að
geyma. Okkur slökkviliðsmönn-
um finnst þetta stórmerkileg
saga og við viljum endilega sýna
hana,“ segir Sigurður Lárus.
Merkileg
saga sýnd
SLÖKKVILIÐSSAFNIÐ
ÓDÝRU BÍLALEIGUBÍLARNIR
VORU AÐ KOMA!
Vertu fyrstur, fáðu þann besta!
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Eigum allskonar bíla,
langar þig í einn?
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Ertu með kaupanda?
Skjalafrágangur frá 14.990 kr.
Löggildir bílasalar tryggja öryggi beggja aðila
Fylgstu með okkur á facebook
Sölulaun
frá 39.900 kr.