Morgunblaðið - 28.02.2013, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2013
Kunnur ítalskur ljósmyndari fræga
fólksins, Willy Rizzo, lést í París á
mánudaginn var, 84 ára að aldri.
Hann kom víða við á löngum og litrík-
um ferli og myndaði fyrir útbreidd
tímarit fólk á borð við Marilyn
Monroe, Winston Churchill, Salvador
Dalí, Brigitte Bardot, Maríu Callas
og Marlene Dietrich. Hergé, höf-
undur Tinnabókanna, byggði persónu
ljósmyndara tímaritsins Múla og Pét-
urs, í sögunni Vandræði ungfrú Vailu
Veinólínó, á Rizzo. Í flestum útgáfum
sögunnar nefnist ljósmyndarinn Wal-
ter Rizotto en Loftur Guðmundsson
blaðamaður, sem þýddi bækurnar um
Tinna snilldarvel, nefndi persónuna
Flassmus.
Rizzo var víðfrægur fyrir skrán-
ingu sína á lífi fræga fólksins á Ítalíu
eftir síðari heimsstyrjöld en ljós-
myndaði einnig alvarlegri viðfangs-
efni, svo sem stríðsglæparéttarhöldin
í Nürnberg. Hann kvæntist kvik-
myndastjörnunni Elsu Martinelli og
fékk sköpunarkraftur hans víðar út-
rás en í ljósmynduninni; hann hann-
aði meðal annars húsgagnalínu í anda
verka Mies van der Rohe og Le
Corbusier.
Kvikmyndaunnendur minnast
Rizzo úr kvikmyndinni Hoffa, þar
sem hann lék mafíuforingja. Aðalleik-
arinn, Jack Nicholson, hvatti leik-
stjórann Danny de Vito til að ráða
Rizzo vin sinn í hlutverkið.
„Ég ferðaðist sem stjarna til Holly-
wood, flaug á fyrsta farrými, var ekið
um í limósínu og fékk hjólhýsi með
nafnið mitt á dyrunum. Það var stór-
skemmtilegt,“ var haft eftir Rizzo.
AFP
Stjörnuljósmyndari Willy Rizzo
við opnun einnar sýningar sinnar.
Flassmus Rizzo var fyrirmynd
Hergé að ljósmyndaranum.
Fyrirmynd ljósmyndara
í Tinnabók deyr í París
Fiskar á þurru landi nefnist kvik-
mynd í tveimur hlutum sem tökur
eru hafnar á í myndveri Sagafilm.
Myndin verður sýnd á RÚV um
páskana. Sögusvið myndarinnar er
gistiheimili í litlu þorpi úti á landi
og er handritið byggt á leikriti eft-
ir Árna Ibsen, að því er fram kem-
ur í tilkynningu en handritshöf-
undar eru Óskar Jónasson og Sjón.
Óskar leikstýrir jafnframt mynd-
inni. Leikmynd í líki gistiheimilis
hefur verið byggð í myndveri
Sagafilm og liggur þar mikil vinna
að baki. Tökur á myndinni eru í
styttra lagi, aðeins átta dagar.
Leikarar í myndinni eru fjórir,
þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Hilmar Guðjónsson, Sara Margrét
Nordahl og Davíð Guðbrandsson.
Fiskar á þurru landi er framleidd
af Sagafilm sem framleitt hefur
margar farsælar sjónvarpsþátt-
araðir, m.a. Vakta-þættina (Næt-
urvaktin, Dagvaktin og Fanga-
vaktin), Pressu, Rétt, Ástríði og
Svarta engla og einnig kvikmyndir
á borð við Bjarnfreðarson og Köld
slóð.
Kvikmynd
tekin á átta
dögum
Morgunblaðið/Kristinn
Handritshöfundar Óskar Jónasson og Sjón eru höfundar handrits Fiska á
þurru landi og Óskar leikstýrir einnig myndinni sem sýnd verður á RÚV.
Morgunblaðið/Ernir
Víkingarokksveitin Skálmöld legg-
ur af stað í dag í tíu daga tónleika-
ferð um Ísland, eða víking öllu
heldur, og verða fyrstu tónleikarn-
ir haldnir í kvöld í félagsheimilinu í
Hnífsdal kl. 21. Tónleikaferðin ber
yfirskriftina Myrkur, kuldi, ís og
snjór 2013. Af öðrum tónleikastöð-
um má nefna Litla-Hraun en
Skálmöld leikur þar 7. mars. Einnig
verður leikið í Hvíta húsinu á Sel-
fossi, Mælifelli á Sauðárkróki, Val-
höll á Eskifirði og Höllinni í Vest-
mannaeyjum.
Morgunblaðið/Eggert
Víkingar Liðsmenn Skálmaldar fara víða um land og leika víkingarokk.
Myrkur, kuldi, ís og snjór Skálmaldar
Hverfisgötu 52 • 101 Reykjavík • Sími 561 0075 • sjadu@sjadu.is
Horni Hverfisgötu og Vatnsstígs
Bara flott gleraugu
100/100
R.Ebert
100/100
Entertainment Weekly
DENZEL WASHINGTON
Frá Óskarsverðlauna-
leikstjóranum sem
færði okkur Forrest
Gump og Cast Away
– Robert Zemeckis
2 ÓSKARSTILNEFNINGAR
3 óskarstilnefningar
“Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.”
-Séð & Heyrt/Vikan
SÝND Í
3D(48 ramma)
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
FLIGHT Sýndkl.6-9
ZERO DARK TIRTY Sýndkl.9
VESALINGARNIR Sýndkl.6-9
THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
“Magnþrungin og
eftirminnileg”
T.V. - Bíóvefurinn
H.S.S
-MBL
Frábær spennumynd byggð á
leitinni af Osama Bin Laden.
5 óskarstilnefningar
m.a. Besta
leikkona
í aukahlutverki
12
12
12
16
ÓSKARSVERÐLAUN
M.A. BESTI LEIKARI ÁRSINS
DANIEL DAY-LEWIS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
-EMPIRE
THIS IS 40 KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
DIE HARD 5 KL. 8 - 10 16
HVELLUR KL. 5.40 L
NITRO CIRCUS 3D KL. 8 L
THIS IS 40 KL. 5 - 8 - 10 12
DIE HARD 5 KL. 8 - 10.20 16
DIE HARD LÚXUS KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
LAST STAND KL. 10.45 16
HÁKARLABEITA 2 KL. 3.30 L
THE HOBBIT 3D KL. 4.30 12
LIFE OF PI 3D KL. 5.20 10
“MÖGNUÐ MYND Í
ALLA STAÐI”
-V.J.V., SVARTHÖFÐI
“FRÁBÆR!”
- H.S.S., MBL
9/10
“SKYLDUÁHORF!”
- T.V., BÍÓVEFURINN.IS
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
AÐEINS EIN SÝNING! FÁIR MIÐAR EFTIR! MIÐASALA Á MIÐI.IS
Yippie-Ki-Yay!
JAGTEN (THE HUNT) KL. 6 - 8 - 10.30 12
THIS IS 40 KL. 9 12
DIE HARD 5 KL. 10.30 16
KON-TIKI KL. 5.30 - 8 12
LINCOLN KL. 9 14
VESALINGARNIR KL. 5.50 12