Morgunblaðið - 28.02.2013, Page 48
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 59. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. „Ég bara skil þetta ekki“
2. Sagði Leno frá íslenska rokinu
3. Strákar voru líka í „ástandinu“
4. Draugaskip rekur í átt til Íslands
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Dagblaðið Boston Globe mælti í
byrjun viku með sýningu leikhópsins
Vesturports og breska leikhússins
Lyric Hammersmith á Hamskiptunum
sem sýnd er á aðalsviði Paramount
Center í Boston til 3. mars. Dagblaðið
fjallaði ítarlega um sýninguna 21.
febrúar sl. en verkið var einnig sýnt á
norrænu menningarhátíðinni Nordic
Cool í Washington 20.-22. febrúar og
hlaut uppsetningin m.a. jákvæða um-
fjöllun í Washington Post.
Ljósmynd/Eddi
Boston Globe mælir
með Hamskiptunum
Fyrsta Desibel-
kvöld skemmtistað-
arins Dillon verður
haldið í kvöld og
hefst kl. 22. Fram
koma tónlistarmenn-
irnir AMFJ og Jóhann
Eiríksson. Desibel-
kvöld verða fram-
vegis haldin síðasta
fimmtudag hvers mánaðar á Dillon,
helguð listamönnum sem sérhæfa sig
í noise, drone, industrial, crust, har-
dcore punk eða dark ambient tónlist.
AMFJ og Jóhann á
Desibel-kvöldi Dillon
Rokkhátíðin Aldrei fór ég suður
verður haldin 29. og 30.
mars á Ísafirði og hafa fyrstu
tónlistarmenn hennar
verið kynntir til leiks.
Þeir eru Borko,
hljómsveitin Duro,
Futuregrapher, Jónas
Sigurðsson, Langi
Seli og Skuggarnir,
Oyama, Prinspóló
og Ylja.
Fyrstu listamenn
Aldrei fór ég suður
Á föstudag Vestlæg átt, 8-15 m/s. Rigning og síðar skúrir eða él,
en úrkomulítið austantil. Kólnandi veður.
Á laugardag SV 5-10 m/s og víða bjartviðri. Hiti 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðaustlæg átt og þurrt að
kalla. Gengur í SA 8-15 m/s með rigningu eða slyddu um vestan-
vert landið síðdegis en lengst af þurrt A-til í kvöld. Hiti 0 til 5 stig.
VEÐUR
Aníta Hinriksdóttir og Kol-
beinn Höður Gunnarsson
eru aðeins 17 og 18 ára göm-
ul en þau eru samt fulltrúar
Íslands á Evrópumeist-
aramóti fullorðinna í frjáls-
íþróttum í Gautaborg. Bæði
keppa þau á morgun og Þrá-
inn Hafsteinsson frjáls-
íþróttaþjálfari kveðst von-
ast eftir því að þeim
takist báðum að
hlaupa nálægt sínum
bestu tímum. »2
Kornungir fulltrú-
ar Íslands á EM
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur ekki
látið þrálát meiðsli um árabil hindra
sig í að leika stórt hlutverk með
landsliði Íslands og vera í atvinnu-
mennsku í fótbolta. Nú er hún að
jafna sig eftir mikla að-
gerð sem gerð var á
henni í vetur. „Það var
rosalegur léttir fyrir
mig að leggj-
ast
á þetta blessaða
skurðarborð og fá
það svar að ég væri
ekki bara eitthvað
klikkuð,“ segir
Margrét Lára. »1
Rosalegur léttir að
leggjast á skurðarborð
Arnar Grétarsson er ánægður
með fyrstu vikurnar í starfi yf-
irmanns knattspyrnumála hjá
Club Brugge í Belgíu. Hann segir
að umhverfið sé allt öðruvísi en
hjá AEK í Aþenu þar sem hann
gegndi áður sama hlutverki í tvö
ár. „Það er nóg að gera hjá mér í
þessu starfi en ég kvarta ekkert
yfir því,“ segir Arnar. »4
Allt annað umhverfi í
Brugge en Aþenu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Námskeið samkvæmt Coerver-
æfingaáætluninni í knattspyrnu
verða haldin í Hafnarfirði og á Ak-
ureyri í lok mars og verður þetta í
fyrsta sinn sem boðið er upp á slík
námskeið hérlendis, en æfingaáætl-
unin hefur verið kynnt víða um heim
síðan 1984.
Ísfirðingurinn Heiðar Torleifsson
er stjórnandi og yfirþjálfari Coerver-
æfingaáætlunarinnar á Íslandi. Hann
og Brad Douglass, fræðslustjóri Co-
erver-fyrirtækisins í Hollandi,
kynntu efnið á þjálfaranámskeiði
Knattspyrnusambands Íslands í liðn-
um mánuði, og halda samstarfinu
áfram á næstunni auk þess sem þeir
fá aðstoð hjá fleiri þjálfurum. „Það
mættu 62 þjálfarar á KSÍ-námskeiðið
og þeir voru gríðarlega ánægðir,“
segir Heiðar.
Heiðar hefur tæplega tveggja ára-
tuga reynslu sem barna- og unglinga-
þjálfari í knattspyrnu. Hann hefur
meðal annars verið yfirþjálfari yngri
flokka hjá KR og Þrótti Reykjavík en
býr nú á Dalvík og er yfirþjálfari á
Tröllaskaga (á Dalvík, Siglufirði og í
Ólafsfirði). Hann segist alla tíð hafa
verið aðdáandi Coerver-kerfisins og
hafi legið yfir efninu þegar það hafi
verið fyrst gefið út og eins þegar
hann hafi byrjað að þjálfa.
Eitt leiddi af öðru
„Fyrir um ári fór ég að huga að
þessu kerfi á ný, fór á námskeið hjá
Coerver í Hollandi, eitt leiddi af öðru
og úr varð að ákveðið var að ég í sam-
starfi við Coerver-fyrirtækið færi af
stað með kynningar á áætluninni hér-
lendis.“
Hugmyndafræði Coerver-kerfisins
byggist á því að hægt sé að kenna
mikilvægustu þættina í knattspyrn-
unni og þjálfa þá í öllum aldurshópum
og ekki síst hjá börnum og ungling-
um. „Við teljum þetta vera bestu æf-
ingaáætlunina sem völ er á,“ segir
Heiðar og bendir á að margir af virt-
ustu knattspyrnuþjálfurum heims
gefi áætluninni sín bestu meðmæli.
Heiðar segir að því miður sé upp-
bygging æfinga oft tilviljanakennd en
Coerver-áætlunin sé skipulögð út í
æsar með áherslu á knatt-
stjórnun, móttöku sendinga,
keppni eins á móti einum í
vörn og sókn, hraða, sóknarlok
og spil og æfingar í fámennum
hópum. „Við æfum þessi atriði á
hverri einustu æfingu,“ segir
hann og bendir sérstaklega á að
allir geti lært að auka hraða og
stjórna honum. „Hraði er ekki
bara að hlaupa hratt heldur að
taka ákvörðunina, viðbragðið,
spretturinn og fleira, en flestir
sprettirnir í leiknum eru um fimm
metra langir.“
Æfingaáætlun fyrir alla
Leggja áherslu
á að allir geti
aukið færnina
Kennsla Heiðar Torleifsson býr að tæplega 20 ára reynslu sem barna- og unglingaþjálfari í knattspyrnu.
Hollendingurinn Wiel Coerver, sem leiddi Feyenoord til
sigurs í Evrópukeppninni 1974, kynnti Coerver-
áætlunina 1984 (http://coerver.is/). Mörg knatt-
spyrnusambönd hafa mælt með henni og þekkt félög
nota hana. Heiðar bendir til dæmis á félög eins og Man-
chester United, Liverpool, Arsenal, Newcastle, Stoke,
Reading, PSV, AC Milan og Real Madrid. „Aðstoð-
arþjálfari Real Madrid var á námskeiði hjá Coerver
þremur mánuðum á undan mér og síðan hefur áætl-
unin verið notuð hjá aðalliði Real Madrid,“ segir
Heiðar. „Fyrsta námskeiðið okkar verður í Risanum í
Hafnarfirði 23.-25. mars og svo í Boganum á Ak-
ureyri 26.-28. mars en hugmyndin er síðan að kynna
áætlunina sem víðast á landinu,“ segir Heiðar.
Fyrsta námskeiðið í Hafnarfirði
COERVER-ÆFINGAÁÆTLUNIN NOTUÐ VÍÐA UM HEIM
Ljósmynd/Haukur Snorrason