Morgunblaðið - 18.04.2013, Side 12
gengt væri að þegar upp kæmi röng
tenging væri orsökin sú að menn hafi
sjálfir verið að breyta heima fyrir og
tengt beint út úr húsinu og í næstu
lögn á sinni lóð án þess að átta sig á
því að um ranga lögn væri að ræða,
en einnig gerist það nokkuð oft að
rangt sé tengt í upphafi. Það væri
skylda byggingarfulltrúa að fylgjast
með að réttar tengingar færu fram
þegar ný hús væru reist. Kostnaður-
inn virðist í flestum tilvikum lenda á
bæjarfélögunum.
„Við viljum gera þetta í sátt við
íbúana og umhverfið. Við viljum hafa
þetta í lagi,“ segir Erla en það er heil-
brigðiseftirlit svæðisins sem annast
mælingar í lækjum og með strand-
lengjunni.
Samskonar átak er nú í gangi í
Kópavogi og Morgunblaðið birti í
gær mynd úr Elliðavatni þar sem
fundist hafði röng tenging með þeim
afleiðingum að skólp fór út í vatnið.
„Tímafrekt og pirrandi“
„Þetta er verulegt vandamál. Við
erum að eyða tugum milljóna í þetta.
Þetta er ekkert gamanmál hjá okk-
ur,“ segir Steingrímur Hauksson,
sviðsstjóri umhverfissviðs í Kópa-
vogi, og að óheimilt sé að gera breyt-
ingar án þess að sækja um leyfi.
„Það dugar stundum ekki að fara í
eitt klósett í húsinu. Stundum þurf-
um við að fara í öll klósett. Við vitum
ekki hvar feillinn er. Það er ekki bara
stúturinn úti í götu – það geta verið
rangtengingar í húsinu sjálfu. Þetta
er mjög tímafrekt og pirrandi fyrir
alla,“ segir Steingrímur.
„Við erum ekki í neinu sérstöku
átaki. Þetta er eitthvað sem við lög-
um þegar það kemur upp en erum
ekki sérstaklega að leita uppi
rangtengingar,“ segir Dagur Jóns-
son, veitustjóri hjá Hafnarfjarðarbæ.
Samkvæmt mælingum sem heil-
brigðiseftirlitið framkvæmdi í maí,
ágúst og nóvember í fyrra voru kólí-
gerlar í Ástjörn í Hafnarfirði töluvert
yfir viðmiðunarmörkum sem eru 14
kólí- eða saurgerlar í hverjum 100 ml.
Í Ástjörn voru þeir 110/100ml í maí
og ágúst en 220/100 ml í nóvember
2012. Ekki fengust svör við því hvort
leitað hafi verið lausna á því, en
næsta mæling verður framkvæmd í
maí samkvæmt upplýsingum frá heil-
brigðiseftirliti.
Kólímengun viðvarandi vandamál
Algengt að tengt sé inn á ranga lögn við breytingar í húsum Átak í gangi í Garðabæ og Kópavogi
Kostnaður lendir oftast á sveitarfélögum Byggingarfulltrúi hefur eftirlit með tengingum í upphafi
Morgunblaðið/Ómar
Ár og lækir Átak er í gangi í Garðabæ og Kópavogi gegn röngum tengingum skólplagna í yfirborðsvatnslagnir.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013
„En svo er eitt vandamál sem
hefur aldrei verið rætt. Þú ert
með húsbíl með klósetti. Þú átt
í rauninni að fara inn á ákveðinn
stað við Klettagarða og losa en
það er ekkert sem bannar þér
að fara í næsta niðurfall,“ sagði
viðmælandi blaðsins í gær um
vandamál með skolpmengun í
yfirborðsvatni í ám og vötnum á
höfuðborgarsvæðinu. Víða um
land eru til þess bærir staðir til
að losa slíkt, en viðmælandinn
vildi meina að of oft kæmi fyrir
að menn settu í niðurföllin.
Menn losa í
niðurföllin
SKÓLP ÚR HÚSBÍLUM
Kosning um nýjan formann Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga verð-
ur endurtekin dagana 19. – 29.
apríl næstkomandi. Kjörgögn
vegna kosningarinnar verða póst-
lögð í dag og verður hún bæði raf-
ræn og skrifleg. Kosið var um
embættið fyrr á þessu ári en nið-
urstaða þeirra kosninga var dæmd
ógild.
Sömu einstaklingar bjóða sig
fram til formanns en það eru þau
Elín Hanna Jónsdóttir, Herdís
Gunnarsdóttir, Margrét Guðjóns-
dóttir, Ólafur G. Skúlason, Ragn-
heiður Gunnarsdóttir og Vigdís
Hallgrímsdóttir. Kynning á fram-
bjóðendum hefur farið fram og er
kynningarefnið aðgengilegt á vef
félagsins.
Ágalli fyrri kosninga sneri að
skriflegu atkvæðunum en ekki var
hægt að útiloka að við talningu at-
kvæða í formannskjörinu hefðu
verið talin með atkvæði sem
greidd voru með skriflegum hætti
eftir lok kjörfundar. Talið var að
þetta gæti hafa haft áhrif á nið-
urstöðuna enda munaði aðeins einu
atkvæði á þeim tveimur frambjóð-
endum sem flest atkvæði fengu.
Kosningin verður bæði rafræn
og skrifleg en Ásta Möller, for-
maður nýrrar kjörstjórnar, segir
að um 90% þeirra sem kusu í síð-
ustu kosningu hafi nýtt sér raf-
ræna möguleikann. „Fyrirkomu-
lagið verður óbreytt en við tökum
tillit til þeirra ágalla sem voru á
síðustu kosningu,“ segir Ásta.
Kjörskrá er sú sama og við fyrri
kosningu og þurfa kjörseðlar að
berast fyrir kl. 17 mánudaginn 29.
apríl nk. larahalla@mbl.is
Kosning um for-
mann endurtekin
Sömu frambjóðendur og í fyrri kosningu
Morgunblaðið/Golli
Gengið að kjörborðinu Dagana 19. – 29. apríl nk. verður kosning um for-
mann Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga endurtekin.
Faxafeni 5, Reykjavík | Sími 588 8477
Skeiði 1, Ísafirði | Sími 456 4566
Opi› virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-16
betrabak@betrabak.isLeggur grunn að góðum degiwww.betrabak.is
ÞÍN STUND – ÞINN STAÐUR
PRIME
Hægindastóll fullt verð 299.990
Skemill fullt verð 79.990
Til í mörgum útfærslum
F
Y
R
IR
ÞÍ
NA
R BESTU STU
N
D
IR
10%
KYNNINGAR
AFSLÁTTUR
SVIÐSLJÓS
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Það hefur verið alveg sérstök að-
gerð í gangi síðan í haust með tækni-
legum aðgerðum. Fyrst þessar
gömlu aðgerðir en nú er veriðað
mynda lagnirnar. Þá er ekki verið að
mynda skólplagnirnar heldur dren-
lagnirnar sem eiga að taka við yfir-
borðsvatninu af götunum og þak-
rennum húsa. Það hafa fundist
rangar tengingar,“ segir Erla Bil
Bjarnardóttir, umhverfisstjóri
Garðabæjar, um skólpmengun í lækj-
um og vötnum sem kemur til vegna
rangra tenginga þar sem skólplagnir
eru tengdar við rör sem ætluð eru
yfirborðsvatni. Í Garðabæ er slíku
vatni veitt beint út í læki.
„Þetta er eilífðarmál“
„Við höldum að við séum orðin á
fríum sjó. En maður er aldrei örugg-
ur og fyrir utan það að það getur ein-
hver á morgun tengt vitlaust hjá sér
af því að hann er að breyta hjá sér í
bílskúrnum og kjallaranum á sinni
lóð. Þetta er eilífðarmál en það þarf
að fylgja þessu eftir og fylgjast með,“
segir hún.
Erla segir þessi tilvik ekki algeng-
ari í nýjum hverfum en rótgrónum.
Morgunblaðið hafði samband við full-
trúa flestra sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu og leitaði svara við
því hvernig staðið væri að málum og
hvort tilvik sem þessi væru tíð.
Öllum bar saman um að mjög al-