Morgunblaðið - 10.05.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013
Vinsælasti bíll heims á enn betra verði
TREND EDITION
Ford Focus, söluhæsti bíll í heimi árið 2012, er nú fáanlegur í nýrri útfærslu.
16“ álfelgur eru undir bílnum og sérstakt Trend Edition áklæði á sætum.
Loftkæling, öflug aksturstölva, regnskynjari í framrúðu og blátannarbúnaður
eru einnig til staðar. Til viðbótar hefur verið hugað að fjölmörgum praktískum
atriðum, svo sem sjálfvirkri dimmingu á baksýnisspegli og sniðugri hurðavörn.
Komdu í Brimborg í dag og kynntu þér vinsælasta bíl heims árið 2012.
FORD FOCUS TREND EDITION 5 DYRA FRÁ 3.390.000 KR.
FORD FOCUS TREND EDITION STATION FRÁ 3.540.000 KR.
FOCUS
TREND EDITION
KR./MÁN
Ford Focus Trend Edition 5 dyra, 1,0 EcoBoost bensín 125 hö. 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,0 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 114 g/km., fær frítt í stæði í Reykjavík í 90
mín. í senn. Miðað er við grænan óverðtryggðan bílasamning til 7 ára og uppítökubíl / útborgun að verðmæti 1.750.000 kr. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Hlutfallstala kostnaðar 10,60%.
Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
ford.is
FORD FOCUS
FRÁ
27.447
Atli Vigfússon
laxam@simnet.is
„Voða væri gaman að geta spilað
á þetta því það er svo mikið af
tökkum og svo góður hljómur.
Þetta er bara eitt hljóðfæri sem
maður heldur á og það eru engar
leiðslur og vesen.“ Þetta segist
Hermann Hólmgeirsson á
Staðarhrauni í Aðaldal hafa hugs-
að fyrst þegar hann sá harm-
oniku.
„Svo er hægt að spila nánast
allt og það er skemmtilegast að
spila eftir eyranu, en grunnurinn
er auðvitað að læra nótur og
fylgja þeim,“ segir Hermann, sem
var einn þeirra harmoniku-
nemenda sem spiluðu á degi
harmonikunnar á Breiðumýri í
Þingeyjarsveit um seinustu helgi.
Mikill áhugi á harmoniku-
tónlist í fjölskyldunni
Hermann stundar harmoniku-
nám við tónlistardeild Hafralækj-
arskóla í Aðaldal og hann segir að
það hafi alltaf verið mikill áhugi
fyrir þessu hjóðfæri í sinni fjöl-
skyldu.
Afi hans, Ívar Haukur Stef-
ánsson sem bjó í Haganesi í
Mývatnssveit, var mikill
harmonikumaður og langafi hans,
Hólmgeir Stefánsson í Hellulandi
í Aðaldal, spilaði líka á harm-
oniku. Þá hefur amma hans,
María Gerður Hannesdóttir, mik-
inn áhuga á hljóðfærinu og Her-
mann heimsækir hana stundum til
þess að spila og leyfa henni að
hlusta.
„Það er skemmtilegt að vera
aðeins öðruvísi en aðrir,“ segir
Hermann og segir að flestir nem-
endur tónlistardeildarinnar séu að
læra á eitthvað annað en hann,
t.d. gítar, trommur o.fl.
Hann segist hafa mikinn áhuga
á að spila danslög eins og valsa,
en íslensk þjóðlög séu líka í uppá-
haldi. Reyndar hafi hann gaman
af öllu og æfi sig oft, en auðvitað
er það fyrirhöfn að fara með
þungt hljóðfæri eins og harm-
oniku í skólabílinn. Það er samt
þess virði og gott að Harmoniku-
félag Þingeyinga skuli hafa gefið
skólanum harmoniku sem nem-
endur fá afnot af.
Hlakkar til að
spila á böllum
Hermann stefnir að grunnprófi
í harmonikuleik, en hann er búinn
að læra í þrjú ár á hljóðfærið og
er núna kominn í 7. bekk Hafra-
lækjarskóla. Hann hefur gott tón-
eyra og á gott og skemmtilegt
samstarf við kennara sinn, Knút
Emil Jónasson sem er alvanur
harmonikuleikari. Hann ætlar að
gerast félagi í Harmonikufélagi
Þingeyinga og hlakkar til að spila
á böllum í framtíðinni.
Allt hægt með harmonikunni
Hermann Hólmgeirsson á Staðarhrauni í Aðaldal er ungur harmonikuleikari sem finnst gaman að
spila valsa og íslensk þjóðlög „Það er skemmtilegt að vera aðeins öðruvísi en aðrir,“ segir hann
Glöð Ungir harmonikuleikarar léku nýverið fyrir gesti á Breiðumýri í Þingeyjarsveit. F.v. Kristinn Ás-
björnsson, Hermann, Anna Eir Pálsdóttir, Margrét Eva Artúrs- og Helgudóttir, Jón A. H. Artúrsson.
Tóneyra Hermann er búinn að læra í þrjú ár
á harmoniku og líkar það vel.
Harmonikufélag Þingeyinga var stofnað 4. maí 1978 og hefur um langt
árabil staðið fyrir danskvöldum, tónleikahaldi og fleiru sem tengist
harmonikuleik í Þingeyjarsýslu.
Félagið hefur hvatt ungt fólk í harmonikunámi til dáða og á degi harm-
onikunnar um helgina spiluðu nemendur frá Hafralækjarskóla í Aðaldal,
Tónlistarskóla Húsavíkur og Öxarfjarðarskóla fyrir gesti.
Uppskáru nemendurnir mikið klapp gesta fyrir frábæran tónlistarflutn-
ing.
Hvetja ungt fólk til dáða
DAGUR HARMONIKUNNAR