Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013 Fæst einnig í veFverslun stoðar 31ár 1982-2013 Trönuhrauni 8 | 220Hafnarfirði | Sími 565 2885 Opið kl. 8 - 17 virka daga | stod@stod.is | www.stod.is Þar sem sérFræðingar aðstoðaÞig viðvalá hlíFum Við styðjum þig STOÐ P O R T hö nn un Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Ariel Castro kom fyrir dómara í Cleveland í Ohio í gær, en hann hef- ur verið ákærður fyrir mannrán og nauðgun. Hann er sakaður um að hafa svipt fjórar manneskjur frelsi og nauðgað margsinnis þremur kon- um. Konurnar þrjár, Amanda Berry, Gina DeJesus og Michelle Knight, voru í haldi Castros í um 10 ár. Jos- lyn, 6 ára dóttir Berry, var einnig lokuð inni í húsinu. Lögreglan í Cleveland segir að konurnar hafi verið bundnar með böndum og keðj- um meðan þær voru í húsinu. Bræður hans tveir, Onil og Pedro Castro, eru ekki taldir tengjast mál- inu. Þeir verða þó kærðir fyrir minniháttar brot, m.a. fyrir vörslu fíkniefna. Castro var niðurlútur í réttarsaln- um og leit ekki upp þegar ákæran var lesin. Lögreglan segir að hann sé samvinnuþýður. Hann er vaktaður sérstaklega þar sem miklar líkur eru taldar á að hann fremji sjálfsmorð. Konurnar yfirgáfu aldrei húseign- ina eftir að þeim var rænt. Þær hafi tvisvar fengið að fara í stuttan tíma út í garðinn við húsið, en þær voru þá dulbúnar. Nágrannar hafa komið fram í fjöl- miðlum og fullyrt að þeir hafi sett sig í samband við lögreglu og tilkynnt grunsamlegt athæfi Castros. Fram kom á blaðamannafundi að lögreglan ætlaði að fara yfir skrán- ingu allra kvartana sem hafa borist í gegnum tíðina sem tengjast Castro og húsi hans við Seymour-götu nr. 2207 í Cleveland Ohio. „Ég er kynferðis- afbrotamaður“ „Ég er kynferðisafbrotamaður. Ég þarf hjálp.“ Þetta er sagt standa í bréfi sem fannst í fórum Ariels Cast- ros, að því er AFP-fréttastofa grein- ir frá og hefur eftir fréttamanninum Scott Taylor á sjónvarpsstöðinni WOIO í Cleveland Ohio. „Þær eru hér gegn vilja sínum en gerðu þau mistök að stíga upp í bíl hjá ókunnugum,“ er ennfremur sagt að standi í bréfum hans og „ég veit ekki af hverju ég hélt áfram að leita að annarri þegar ég hafði þegar tvær í haldi“. Fréttamaðurinn Scott Taylor seg- ir einnig að sjálfsmorðsbréf hafi fundist, þar sem maðurinn lýsir því yfir að hann vilji að allir peningar sínir muni renna til fórnarlamba sinna eftir lát sitt. Lögreglumaðurinn Ed Tomba, sem fer með aðalrannsókn málsins, neitaði því ekki að sjálfsmorðsbréf hefði fundist, þegar hann var spurð- ur. Hann sagðist þó ekki geta tjáð sig frekar að svo stöddu. Í rannsókn málsins var hald lagt á um 200 muni í fórum Ariels Castros, þar á meðal umrædd bréf. Castro leiddur fyrir dómara  Ariel Castro ákærður fyrir mannrán og nauðgun  „Ég er kynferðisafbrotamaður. Ég þarf hjálp“ er sagt standa í bréfi í hans fórum  Bræður hans ekki ákærðir  Samstarfsfús við lögreglu AFP Ákærður Bræðurnir Onil Castro til vinstri og Ariel Castro til hægri þegar þeir voru leiddir fyrir dómara. Michelle Knight, sem Castro hélt fanginni í rúman áratug, sagði í við- tali við lögreglu að hún hefði orðið að minnsta kosti fimm sinnum ólétt á tímabilinu og misst fóstur, sam- kvæmt fréttastofu CNN. Þegar Castro hefði komist að því að hún væri barnshafandi hefði hann svelt hana í tvær vikur og barið hana ítrekað í kviðinn þar til hún missti fóstur. Voru hlekkjaðar í kjallaranum Knight var kölluð til þegar Berry ól dóttur sína Joslyn, sem nú er sex ára. Þá var Knight neydd til að taka á móti barninu sem kom í heiminn í baðkari. Þegar barnið kom í heiminn greip um sig ofsahræðsla hjá Castro því um stund hætti barnið að anda. Á þessum tímapunkti hefði Castro hót- að Knight lífláti ef barnið myndi ekki lifa af. Allar þrjár stúlkurnar voru hlekkjaðar í kjallaranum en þegar á leið prísundina leyfði hann þeim að dvelja á annarri hæð hússins. Þær voru þó mun oftar hver í sínu lagi og samneyti þeirra var takmarkað. Þegar Castro hélt þeim föngnum gekk hann reglulega úr skugga um að þær hreyfðu sig ekki nema með hans samþykki. Hann þóttist fara sjálfur út en sneri jafnharðan við aft- ur. Þegar hann sá minnstu ummerki um að þær hefðu hreyft sig refsaði hann þeim harkalega. Of hræddar til að flýja Knight og DeJesus hlupu ekki út úr húsinu eftir að Berry hafði náð að komast út í frelsið, þrátt fyrir að þær hefðu getað það. Lögreglumaður sagði að þær hefðu verið of lamaðar af hræðslu til að geta gert slíkt. Ekki hafa birst myndir af Knight eftir að stúlkurnar voru frelsaðar en hún er enn á spítala. Knight tók á móti barninu  Michelle Knight missti a.m.k. fimm sinnum fóstur  Castro olli fósturláti með barsmíðum í kvið og svelti Michelle Knight Svona leit hún út þegar hún hvarf árið 2002, þá 17 ára. Leitað Þessar myndir birtust af Berry (t.v.) og DeJesus þegar lýst var eftir þeim. Grimilda Figueroa, fyrrverandi eigin- kona Ariels Castros, flutti frá honum árið 1996 eftir áralangt ofbeldi sem hún og börn þeirra, sonur og tvær dætur, sættu af hans hans hálfu. Árið 2005 fullyrti hún fyrir fjöl- skyldudómstól að Castro hefði oft haldið dætrum þeirra tveimur föngn- um og komið í veg fyrir að hún sæi þær í einhvern tíma. Einnig sagði hún Castro m.a. tvisvar hafa nefbrotið sig, brákað og brotið í sér rifbein, brotið tönn, veitt sér áverka á öxl og höfði. Hún fór fram á að dómarinn héldi honum frá henni þar sem hann hótaði henni lífláti, samkvæmt AFP- frétta- stofunni. Grimilda Figueroa lést í fyrra. Anthony, sonur þeirra, hefur komið fram í fjölmiðlum og sagt frá ofbeldinu og hann segir ennfremur að aldrei hafi verið talað um það. Beitti konu og börn sín ofbeldi  Castro sagður hafa haldið dætrum sínum föngnum  Flúðu ofbeldið AFP Húsið Kona Castros og börnin þrjú flúðu ofbeldið árið 1996.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.