Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013 Sumarið er komið í Álafoss ÁLAFOSS Álafossvegur 23, Mosfellsbær Opið: Mánud. - Föstud. 09:00 - 18:00 Laugard. 09:00 - 16:00 www.alafoss.is Minni grindin tekur allt að 10 kg. Verð kr. 5.100. Stærri grindin tekur allt að 20 kg. Verð kr. 9.440. Bæði úti og inni 2 stærðir ÞURRKGRINDUR Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16 Laugavegi 29 - sími 552 4320 www.brynja.is - brynja@brynja.is Lykilverslun við Laugaveginn frá 1919 Áratuga þekking og reynsla Dansarar sýndu listir sínar á menningarviku í Bagdad, höfuðborg Íraks. Stiginn var þjóðlegur palestínskur dans í þjóðleikhúsinu. Bagdad var valin af UNESCO sem höfuðstaður arabískrar menningar fyrir árið 2013. Fjölbreyttir listviðburðir voru í boði en dansinn var þar fyrirferðarmestur. AFP Dansað á menningarviku í Bagdad Átta manns eru ákærðir í New York fyrir að hafa stolið 45 milljón doll- urum, eða um 5,3 milljörðum ís- lenskra króna. Ránið fór fram með þeim hætti að tölvuþrjótar hökkuðu sig inn í greiðslukortafyrirtæki og úttektarheimildin á greiðslukortum var hækkuð, í kjölfarið voru pening- arnir teknir út úr hraðbönkum. „Sakborningarnir og samstarfs- menn þeirra eiga þá sök að hafa tek- ið þátt í stærsta bankráni 21. ald- arinnar, sem teygir anga sína í gegnum internetið og er á alþjóða- vísu,“ segir lögfræðingurinn Loretta Lynch sem birti kæruna á hendur þeim. AFP-fréttastofa greinir frá. Þjófnaðurinn teygir anga sína til 26 landa. Sjö af áttmenningunum hafa verið handteknir, sá áttundi, Al- berto Yusi Lajud-Pena, sem kallaður hefur verið höfuðpaurinn, er sagður hafa verið myrtur 27. apríl sl. Í upphafi hökkuðu þjófarnir sig inn í tölvukerfi alþjóðlegra fyrir- tækja og þaðan til Manhattan þar sem hundruðum milljóna dollara var stolið úr hraðbönkum á nokkrum klukkutímum. Morgunblaðið/ÞÖK Þjófnaður Tölvuþrjótar brutust inn í greiðslukortafyrirtæki. Stærsta bankarán 21. aldarinnar án vopna  Notuðust við tölvur og netið Búið er að bera lík Tamerlans Tsarnaevs til grafar á ótil- greindum stað, að sögn lögreglu- yfirvalda í Massachusetts í Bandaríkjunum. Tsarnaev er grunaður um að hafa staðið á bak við sprengjuárásina í Boston í síðsta mánuði, sem varð þremur að bana og 260 slösuðust. Í yfirlýsingu sem lögreglan sendi frá sér segir að lík Tsarnaevs sé ekki lengur í Wor- cester og að búið sé að grafa það. Þetta kom fram á APF-fréttastofu. Tsarnaev lést þegar skotbardagi braust út á milli hans og lögreglu- manna í kjölfar sprengjuárás- arinnar. Yfirvöld í Massachusetts áttu í erfiðleikum með að finna sveitarfé- lag sem væri reiðbúið að greftra líkið. Tsarnaev jarðaður á ótilgeindum stað Tamerlan Tsarnaev Fjöldi flóttamanna frá Sýrlandi sem fengið hafa skjól í Jórdaníu gæti orðið 40% af fólksfjöldanum þar um mitt árið 2014. Nasser Judeh, utan- ríkisráðherra Jórdaníu, greindi John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, frá þessu við upphaf fundar þeirra í Róm í gær. Þetta kemur fram í frétt AFP-fréttastof- unnar. Judeh segir að sýrlenskir flótta- menn í Jórdaníu séu nú 10% lands- manna og sé tekið mið af þróuninni að undanförnu megi áætla að hlut- fallið fari upp í 20-25% fyrir árslok. Varar við að selja flugskeyti Kerry varar Rússa við að selja Sý- lendingum flugskeyti, slíkt sé ekki vænlegt til friðarumleitana sem Bandaríkjamenn hafa verið að stuðla að. Þetta kom m.a. fram á fundi sem Kerry átti við Emmu Bon- ino, utanríkisráðherra Ítala, í Róm. AFP Fundur Nasser Judeh, utanríkisráðherra Jórdaníu, og John Kerry, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, hittust í Róm og ræddu um vandann í Sýrlandi. Ekkert lát á fólks- flótta frá Sýrlandi  Varar við að selja Sýrlendingum flugskeyti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.