Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013 ✝ Anna Kristjáns-dóttir fæddist á Flateyri við Önund- arfjörð 12. sept- ember 1925. Hún lést 29. apríl 2013. Foreldrar hennar voru Kristján Jónas Kristjánsson stýri- maður, f. 8. apríl 1900 á Flateyri, d. 6. júlí 1979, og kona hans Margrét Sig- urlína Bjarnadóttir húsmóðir, f. 26. október 1902 í Kötluholti í Fróðárhreppi, d. 10. apríl 1993. Systkini Önnu eru Sigurður Ás- geir skipstjóri, f. 15. ágúst 1928, d. 23. september 2012, Inga Mar- grét, f. 7. desember 1934, Guð- mundur Kristján skipstjóri, f. 4. ágúst 1944, og uppeldissystirin Sigríður Jónsdóttir, f. 2. október 1928, d. 16. nóvember 2012. Anna giftist 23. september 1950 Vilhelm Þorsteinssyni, skip- stjóra og framkvæmdastjóra, f. 4. september 1928 í Hléskógum í Grýtubakkahreppi, d. 22. desem- ber 1993. Foreldrar hans voru hjónin Þorsteinn Vilhjálmsson, fiskmatsmaður, f. 9. nóvember 1894 í Nesi í Grýtubakkahreppi, d. 23. júlí 1959, og Margrét Bald- 16.4. 1956, maki Wolfgang Bür- kert, f. 1954, börn þeirra eru: Max- imilian, f. 1984, kærasta Sara Ellen Picard. Anna Kristín, f. 1987, kær- asti Christian Weisbecher. Konst- antin, f. 1995. 4) Sigurlaug, f. 29.10. 1960, maki Guðjón Jónsson, f. 1957, börn þeirra eru: Vilhelm, f. 1978, maki Helga Finnsdóttir, þau eiga eina dóttur. Kristján, Þór og Jón Friðrik fæddir 6. janúar 1998. 5) Valgerður Anna, f. 25.7. 1964, maki Ormarr Örlygsson, f. 1962, börn þeirra eru: Erla, f. 1983, maki Andri Hjörvar Albertsson, þau eiga tvö börn. Almarr, f. 1988, maki Ásgerður Stefanía Bald- ursdóttir. Vala, f. 1996, og Arna, f. 1998. Anna ólst upp í foreldrahúsum, gekk í skóla á Flateyri og vann þar við sveitastörf og fiskvinnslu, var liðtæk í íþróttum og stundaði m.a. handbolta og fimleika. Hún fór í Héraðsskólann á Laugarvatni og lauk gagnfræðaprófi, eftir það nam hún við Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði í tvo vetur. Anna starfaði á símstöðinni á Ak- ureyri þar til hún gifti sig og stofn- aði heimili. Anna og Villi byggðu sér heimili í Ránargötu 23 á Ak- ureyri, ásamt tengdaforeldrum Önnu. Anna sinnti húsmóður- hlutverki sínu af mikilli natni og þurfti sem sjómannskona oft að sinna flestum verkum á stóru heimili. Útför Önnu fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag, 10. maí 2013, kl. 13.30. vinsdóttir, ljósmóðir, f. 25. október 1891 á Stóru-Hámund- arstöðum á Árskógs- strönd, d. 6. október 1963. Börn Önnu og Vilhelms eru: 1) Þor- steinn, f. 3.5. 1952, maki Þóra Hildur Jónsdóttir, f. 1950, börn þeirra eru: Laufey Björk, f. 1969, maki Vignir Rafn Gíslason, þau eiga sex börn. Vilhelm Már, f. 1971, maki Anna Rósa Heiðarsdóttir, þau eiga fjög- ur börn. Hildur Ösp, f. 1975, maki Magnús Jónsson, þau eiga þrjú börn. Brynja Hrönn, f. 1977, maki Sveinn Biering Jónsson, þau eiga einn son. Jón Víðir, f. 1983, maki Salóme Tara Guðjónsdóttir, þau eiga eina dóttur. Stefán Ernir, f. 1995, kærasta Alexía Rut Guð- laugsdóttir. 2) Kristján, f. 13.8. 1954, maki Kolbrún Ingólfsdóttir, f. 1954, börn þeirra eru: Halldór Örn, f. 1974, maki Sigurbjörg Jónsdóttir, þau eiga þrjár dætur. Anna, f. 1979. Dagný Linda, f. 1980, maki Valur Ásmundsson þau eiga tvö börn. Katrín, f. 1991, kærasti Aron Ottósson. Kristján Bjarni, f. 1993. 3) Margrét Jóna, f. Kveðjuorð til móður minnar, Önnu Kristjánsdóttur. Hún komst oftast þangað sem hún ætlaði, með hægðinni, dugnaði og þrautseigju. Mamma ætlaði aldrei að verða gömul og varð það heldur ekki í þeim skilningi því hún bjó ein í sinni íbúð og hugsaði um sig sjálf. Gráu hárin voru aðeins ör- fá komin í vanga, samt var hún var fædd árið 1925. Minni hennar var ótrúlega gott alla tíð og hún hafði einstaka hæfi- leika til að muna nöfn á fólki. Það var sama hverjir áttu í hlut og hvaðan þeir voru. Þetta var engin venjuleg kona. Á einstaklega já- kvæðan hátt voru allir sem hún kynntist einstakir og allir voru þeir „frá einhverjum stað“. Þar byrjaði rannsóknin og strax fundust tengsl. Aldrei nokkrum hallmælt, aldrei talað niður til nokkurs, þvert á móti, allir forvitnilegir, allir virtir. Um uppruna, ætt og starf var það sem mömmu varðaði. Það var henni eðlislægt að finna uppruna fólks í gegnum útlit, nafn eða með nokkrum spurningum, þá voru tengslin komin. Seinna var eftir- fylgni hennar við börn og tengda- börn, ömmu- og langömmubörnin, vinahóp barnanna og þeirra börn aðdáunarverð og allir afmælisdag- ar voru á tæru. Hvernig kunni þessi kona uppeldisformúluna? Hvílík forrétt- indi að fá hennar uppeldi. Allt frá bernsku gekk uppeldið út á traust. Skoðanir og ákvarðanir einstak- lingsins voru virtar en góður agi kenndur. Undirritaður var eitt sinn sendur á leikskóla, sennilega fjög- urra eða fimm ára gamall, að Pálm- holti. Guttanum þótti sér ekki henta þessi leikskóli meira en einn dag og það var virt. Kannski þótti mömmunni sárara að senda gutt- ann frá sér en guttanum að fara? Af hverju fengum við bræðurnir að fara út á fjörð á trillunni, ég 11 ára og Steini 13? Jú, traustið var til staðar. Þessi hægláta, glaða kona var sí- vinnandi. Á börnin sín fimm setti hún aldrei óstraujaða bleyju, þau hin sömu börn fóru aldrei á skíða- æfingu nema með gott nesti og súkkulaðistykki. Það var nauðsyn- legt að við færum vel nestuð því vel gat verið að einhver væri nestislaus og þá var gott að geta gefið. Þegar vinahópurinn í götunni hafði ekki tíma til að koma inn í kaffi þá bar mamma mjólkina og brauðið niður og gaf hópnum þar. Ekki mátti fara tími til spillis frá leikjunum en hún átti alltaf nægan tíma fyrir aðra. Mamma hlýtur að hafa haft gaman af tónlist því annars gæti þetta varla hafa getað gerst: Ég lasinn og inni í rúmi. Mamma setti Beatles á fóninn, nógu hátt til að vel heyrðist inn í herbergi, gott fyr- ir mig. Þessi strákur hennar gat heldur ekki reiknað stærðfræði- dæmi nema hafa hátt spilaða tón- list, þá var í lagi að spila Kinks, Rollings Stones eða Beatles í botni. Mamman var sátt svo lengi sem strákurinn lærði… Þegar mamma fagnaði áttatíu ára afmæli sínu, skipulagði hún ferðir allra til og frá. En þegar við spurðum: „En mamma, hvernig ætlar þú að fara?“ var svarið: „Ja, svo er nú það…“ Lýsandi fyrir mömmu að hugsa fyrst um aðra, svo um sjálfa sig. Þannig fór hún í gegnum lífið. Ég kveð móður mína með þakk- læti fyrir langa og góða samferð og þá umhyggju sem hún bar fyrir fjölskyldunni og öllum vinunum. Kristján Vilhelmsson. Elskuleg tengdamóðir mín lést á sjúkrahúsinu á Akureyri mánudag- inn 29. apríl sl. Hún kvaddi hægt og hljótt, eins og allt hennar líf var í raun og veru. Hún hafði alltaf verið hraust fram á síðustu vikur, fannst hún hafa verið heppin, átti góðan mann sem hún missti allt of snemma, eða fyrir tuttugu árum. Átti stóran hóp afkomenda sem hún lét sér afar annt um. Anna amma langa í Ránó hringdi í alla á afmælum og sendi glaðning á jólum, en það var líf hennar og yndi og ekki að tala um að hætta því. Önnu þótti gaman að ferðast og fór hún í margar ferðir með okkur til Spánar og New York, þar sem hún stikaði Manhattan upp og nið- ur, síðast orðin áttræð. Einnig var hún í Berlín með Vilhelm syni mín- um til að sjá hann og nokkra vini hans hlaupa maraþon. Þar hlupum við hönd í hönd fram og aftur um götur til að sjá þá oftar en einu sinni í brautinni. Hún blés ekki úr nös þá 82 ára gömul og búin að lær- brotna ári áður. Við sögðum eftir þetta að við hefðum að minnsta kosti hlaupið hálft maraþon til að sjá hópinn fara framhjá. Anna fæddist á Flateyri og ólst þar upp. Hún hugsaði alltaf hlýlega til æskustöðvanna og sagði okkur margar sögur af fólkinu þar og staðháttum. Hún spurði gjarnan fólk sem hún hitti: „Ertu nokkuð að vestan?“ og ef svo reyndist vera var nokkuð víst að hún þekkti til ættingjanna. Anna var vandvirk við það sem hún tók sér fyrir hendur. Hún hafði gaman af handavinnu og eiga börn og barnabörn ýmis stykki frá henni, hekluð og saumuð, þau síð- ustu gerð undir stækkunargleri, en sjón hennar var ekki góð síðustu árin. Besti steikti fiskurinn var hjá henni og fiskbollurnar voru þær bestu í heimi og svo mætti lengi telja. Til þín elsku Anna, við vorum alltaf góðar vinkonur og börnunum mínum varstu góð amma og langamma. Við munum sakna þín í Ísalind. Við munum sakna þín á Spáni. Við munum sakna þín í New York, þegar þú ert ekki með í för. En svo kannski verður þú bara með okkur og sólar þig við sund- laugina og gengur Manhattan upp og niður. Guð varðveiti þig kæra tengda- móðir, samúðarkveðjur til stórfjöl- skyldunnar. Þín Þóra Hildur. Það var fyrir nærri 36 árum sem ég hitti Önnu fyrst, en þá var ég að ljúka námi mínu í MA og hafði um nokkurra vikna skeið verið í til- hugalífinu við Silló dóttur hennar. Þetta var fallegt júníkvöld og Anna vildi sjá þennan pilt sem dóttir hennar var að mynda samband við. Móttökur Önnu í Ránargötunni voru bæði notalegar og látlausar. Hún kom fram við mig af mikilli hlýju og sýndi mikinn vinarhug, sem ég fann alla tíð síðan. Hjá henni var eitt af barnabörnunum hennar og Anna lagði á borð í borð- stofunni og bauð upp á ís, sem hún hafði mikið dálæti á. Anna var fjölskyldukona. Hún hugsaði fyrst og fremst um að öll- um öðrum liði vel en setti sjálfa sig aldrei í fyrsta sætið. Þannig var hún ávallt vakandi yfir því hvernig öðrum í fjölskyldunni liði. Hún gætti þess líka að engum væri mis- munað og allir fengju jafnt og fengju að njóta þess sem hún hafði að bjóða. Hún hélt stöðugu sam- bandi við alla og þannig stuðlaði hún að sterkum og ríkum tengslum fjölskyldunnar sem enn eru til staðar. Anna átti viðburðaríka ævi. Þeir sem út af henni koma geta verið stoltir og þakklátir fyrir hennar framlag. Hún eignaðist fimm börn sem hún ól upp og kenndi lífsregl- urnar, hún var ávallt til staðar ef á þurfti að halda, og oftar en ekki var heimilið við Ránargötuna fullt af fólki og börnum. Anna var sívinn- andi, hún var komin fyrst á fætur á morgnana og fór síðust til náða. Hún naut þess þegar börnin henn- ar komu saman og fjölskyldurnar hittust og henni var mjög umhugað að halda stórfjölskyldunni saman. Anna naut þess að vera í Bárðardalnum, þar stóð tíminn í stað, þar var hægt að njóta um- hverfis og náttúru án nokkurs áreitis. Þar gat Anna farið upp í hlíðina ofan við bústaðinn og reytt illgresið frá plöntunum og trjánum sem hún hafði gróðursett. Þar gat Anna glaðst með barnabörnunum sem veiddu urriða í Kálfborgará. Þar gat Anna notið góðrar máltíðar með fjölskyldunni sinni. Þar gat Anna hvílst og notið náttúrufeg- urðarinnar. Þar leið Önnu vel. Anna var stórmerkileg og ein- stök kona. Hún hafði sterkar skoð- anir á málefnum líðandi stundar og stóð föst á skoðunum sínum. Hún hafði mikinn áhuga á fólki, á sam- tíða Íslendingum, þeim sem hún hafði hitt á lífsleiðinni, þeim sem skáru sig úr af einhverri ástæðu. Hún hafði sérstaka gáfu þegar kom að ættfræði. Það var nánast sama hvaða fólk bar á góma, hún gat rak- ið ættir þess og tengsl, en auk þess vissi hún ýmis deili á því og gat jafnvel rakið lífshlaup þess. Með þessum fáu orðum vil ég minnast tengdamóður minnar, ömmu barnanna okkar, merkis- konunnar sem við öll söknum svo sárt. Við munum öll bera í minn- ingu okkar þær stundir sem við átt- um með Önnu, þegar hún kom í heimsókn til okkar, þegar við sótt- um hana heim, þegar við áttum samverustundir í sveitinni. Ég vil þakka Önnu fyrir allt sem hún hef- ur gefið okkur af sjálfri sér. Guð blessi minningu hennar. Guðjón. Anna tengdamóðir mín er látin. Hún var orðin fullorðin kona en samt reiknaði maður ekki með því að hennar tími væri kominn, eins og einhver sagði „ég hélt að Anna yrði alltaf til“. Anna og Villi tóku vel á móti mér þegar við Kristján fórum að vera saman, þá á 17. ald- ursári og þó hún segði mér það seinna að henni hafi ekkert litist á þetta þá lét hún mig aldrei finna það. Þau hjón voru boðin og búin að rétta okkur hjálparhönd þegar við fórum að búa og alltaf til í að passa eitthvert barnið og fyrir það vil ég þakka í dag. Við Anna áttum mikil samskipti, sérstaklega núna seinni árin eftir að börnin hennar öll nema Kristján voru flutt frá Ak- ureyri. Það var gaman að vera með Önnu, hlusta á frásagnir hennar af mönnum og málefnum. Tíminn sem hún var í skóla á Laugarvatni var henni minnisstæður svo og skólavistin á Laugalandi. Anna var hæglát kona, átti fallegt heimili og marga vini innanlands og utan sem hún hélt tryggð við og skrifaðist á eða hringdi í til að viðhalda vinátt- unni. Hún var og frændrækin og vissi allt um frændfólk sitt og Villa, unga jafnt sem aldna. Það átti ekki við Önnu að þurfa að leita til lækna og nú í veikindum hennar fannst henni læknarnir gefa sér alltof mikinn tíma, þeir ættu frekar að sinna fólki sem þyrfti á þeim að halda. Ég vil þakka öllum sem að- stoðuðu okkur Önnu þessa síðustu mánuði, alls staðar fengum við glaðlegt og þægilegt viðmót og fundum vel að allir vildu hjálpa okkur að leysa mál sem upp komu og það er aðstandendum nauðsyn- legt þegar eitthvað bjátar á. Að lok- um vil ég þakka Önnu samfylgdina þessi 42 ár, hvíli hún í friði. Kolbrún Ingólfsdóttir. Með örfáum orðum langar mig að minnast tengdamóður minnar, Önnu Kristjánsdóttur, sem borin verður til hinstu hvílu í dag. Mér reiknast til að það séu að verða 32 ár síðan okkar kynni hófust. Ég lít svo á að formlegu kynnin hafi orðið morgun einn þegar ókunnir skór fundust í vaskahúsinu í Ránargötu 23. Yngsta dóttirin var þá orðin eina barnið sem eftir var á heim- ilinu og böndin berast fljótt að gesti í herbergi hennar. Var blásið til fundar í eldhúsinu og vildi Anna ræða hvað skyldi gera. Villi, síðar tengdafaðir minn, leysti úr þessu af rósemi og taldi best að byrja á því að bjóða unga manninum góðan daginn. Við það róaðist allt, þó að ekki fylgi með hversu burðugar undirtektir unga mannsins voru. Hafragrauturinn sem fylgdi boðinu var aftur á móti ekki þeginn þenn- an morguninn. Frá þeim degi má segja að drengstaulinn hafi verið tekinn inn í fjölskylduna. Anna var örugglega í margra huga konan á bak við manninn í brúnni. Auðvitað var hún það en hún var meira en bara Anna hans Villa. Hann átti að sjálfsögðu stuðning hennar allan og ekki síst í veikindum hans þar sem hún stóð vaktina óþreytandi. En óþreytandi er kannski orðið sem kemur fyrst upp í hugann, ásamt ósérhlífni, þegar kemur að því að lýsa henni. Hún var alltaf að, hún sá um rekst- ur heimilisins, uppeldið, seinna passaði hún barnabörnin og ef ann- að lagðist ekki til, þá saumaði hún utan um allt útilegudótið. Önnu leið best með sitt fólk í kringum sig og raunar allt sem því fylgdi. Sambúð hennar og Villa var í upphafi með tengdaforeldrum hennar og svo hafa börn hennar með sínum fjöl- skyldum átt innhlaup þar þegar þau hafa þurft og viljað. Svo helguð var hún sínum að hún taldi það ekki eftir sér að skreppa til Reykjavíkur og létta undir með pössun á barna- barnabörnum svo dæmi séu tekin. Einhver hefði kannski haldið að á einhverjum tímapunkti vildi hún njóta daga með meiri ró eða t.d. einveru með Villa í sumarbústað þeirra en það heyrðist aldrei. Alltaf voru allir velkomnir þangað og ekki síst barnabörnin sem nutu sín frá- bærlega í sveitinni. Þannig hefur Anna alla tíð gefið mikið og ekki síst af sjálfri sér. Þegar maður gefur svona mikið er eðlilegt að smám saman verði ekki af meiru að taka. Hún var ekki al- veg óþreytandi eftir allt saman. Það var aftur á móti hennar mesta ánægja að gefa og vitandi það get- ur maður ekki annað en þegið með þökkum. Það eru forréttindi að hafa fengið að vera með Önnu og vita að börnin manns og barnabörn hafi fengið sinn skerf af því upp- leggi sem í Önnu var svo ekki sé minnst á að hafa fengið að njóta ómældra stunda með henni. Elsku Anna, hafðu þakkir fyrir allt og allt. Ormarr Örlygsson. Amma mín yndisleg er látin eftir stutt veikindi. Minningarnar eru margar og allar fallegar. Man jólin í Ránó, allir fínir og prúðir, ísinn og möndlugrauturinn sem hvergi var betri. Amma með svuntuna, settist til borðs síðust, sá til þess að allir fengju sitt. Amma drottning, að klæða sig upp fyrir ball. Síðkjóll, pinnahælar, óaðfinnanlega flott. Man ferðalögin í Mývatnssveit og berjaferðirnar á Illugastaði með ömmu og afa. Ég að vinna tvö sumur hjá ÚA, fór í hádeginu í Ránó að borða, oft- ar en ekki fiskur, gufan á, ekkert skvaldur og amma með svuntuna. Fékk mér hádegisblund og amma sá til þess að unglingurinn kæmi ekki seint í vinnu eftir matinn. Amma heimsborgari. Ferðirnar til Spánar þar sem henni leið vel í hitanum, eða í New York þar sem hún labbaði Manhattan þvera og endilanga. Við amma í búðum, að skoða fal- lega hluti eða flott föt. Hún var fag- urkeri, enda bar heimili hennar þess merki, bæði í Ránó og í Víði- lundinum. Amma pössunarpía. Börnin mín nutu góðs af því og kom hún stund- um til okkar að passa þegar við hjónin brugðum okkur af bæ, síð- ast áttræð að aldri. Ég þroskaðist, færðist nær ömmu í aldri, hún var aldrei gömul. Hún hafði fullan skilning á því hvernig er að ala upp fimm börn og álagið sem því fylgir. Skildi mig betur en flestir aðrir. Áttum mörg góð símtöl sem ég þakka fyrir. Hún vildi fá fréttir af öllum, fylgdist vel með sínu fólki. Amma dugnaðarforkur. Náði sér á strik eftir tvær mjaðmaað- gerðir, heilsuhraust nær til enda. Amma í fermingarveislu sonar míns í mars á þessu ári, mér fannst hún vera orðin þreytt. Hún lifði fal- legu lífi, skildi eftir fallegar minn- ingar. Ég græt en þakka fyrir allt sem við áttum saman. Elska þig amma mín, og bið að heilsa afa. Þín Laufey (Lauja). Elsku amma, það er svo sárt að þurfa að kveðja þig og erfitt að sætta sig við að fá ekki að hitta þig aftur. Þú varst svo ljúf og yndisleg og helgaðir líf þitt fjölskyldunni. Þú fylgdist með okkur öllum, vildir vita hvernig allir hefðu það og um- fram allt vildir þú reyna að hjálpa okkur öllum. Okkur er mjög minn- isstætt þegar þú komst í heimsókn til okkar þegar við bjuggum í Sviss og straujaðir fjall af þvotti, eldaðir mjólkurgraut fyrir okkur og bak- aðir pönnukökur og kanilsnúða. Þú hreinlega varðst að hafa eitthvað fyrir stafni til þess að létta undir með fjölskyldunni. Hjá okkur eldri systkinunum eru minningarnar um sumóferðirn- ar með ykkur afa ofarlega í huga. Nes er paradís fjölskyldunnar þar sem ófá lambalærin hafa verið grilluð og pönnukökum sporð- rennt. Við fengum oft að skreppa með ykkur austur, kíktum þá í sund á Stórutjörnum, gripum í spil og fórum í göngutúra. Eins eru nestistímarnir í Hlíðarfjalli eftir- minnilegir. Þú sást um samlokurn- ar og afi um kakóið fyrir alla fjöl- skylduna. Möndlugrauturinn í Ránó, síðar í Einilundinum og Víði- lundinum, var líka ómissandi við- burður í hádeginu á aðfangadag. Alltaf duttu aðeins fleiri möndlur en gengur og gerist í pottinn og þar af leiðandi fengu öll börnin möndlu- gjöf. Það var nú líka eitt af því sem þú vildir helst alltaf gera, að gefa okkur gjafir. Þú varst líka svo dugleg að segja okkur frá gamla tímanum á Flat- eyri og Laugarvatni. Til dæmis frá þeirri kvöl að þú varst skikkuð til að skrifa með hægri hendi, skauta- ferðum á Laugarvatninu og þegar þú gættir kúnna fyrir þorpsbúa. Elsku amma Anna, takk fyrir allt. Erla, Almarr, Vala og Arna. Það er með miklum söknuði sem ég kveð hana ömmu mína, Önnu ömmu í Ránó eins og við börnin kölluðum hana alltaf þó svo að liðin séu næstum því 20 ár síðan hún flutti þaðan. Langömmubörnin sem aldrei komu í Ránargötuna kölluðu hana Önnu ömmu löngu í Ránó. Ég held að henni hafi þótt vænt um það. Ég á svo margar góðar minningar um stundirnar sem ég átti í Ránó hjá ömmu og afa. Leikirnir í litlu geymslunni inn af hitakompunni, stóra skápnum undir stiganum úr eldhúsinu, gamla anddyrinu sem búið var að breyta í fatageymslu og í búrinu. Klárlega flottasta búr landsins eða það þótti mér í það minnsta. Það þótti ekki alltaf vinsælt þegar við settum allt á annan endann í þess- um leikjum okkar, enda vorum við, ég og Brynja systir, frægir drasl- arar. Dúkkuleikirnir í stiganum þótti okkur systrum mjög skemmtilegir en þar var hægt að búa til heimili á mörgum hæðum og lögðum við oft allan stigann undir okkur. Amma lánaði okkur oft streds-dúkkur sem Magga, Silló og Vallý áttu sem litlar stelpur og sagði okkur að fara í streds-leik. Okkur þótti það alltaf svolítið fynd- ið af því við kölluðum það að fara í barbieleik. Ég man svo vel eftir og ég get jafnvel fundið lyktina af leð- urbuddunni sem amma lét okkur hafa þegar við skruppum fyrir hana í kjörbúðina í Ránargötunni. Okkur fannst gaman að fá svona ábyrgðarfullt hlutverk eins og okk- ur þóttu búðarferðir vera. Mér er mjög minnisstætt sumarið sem ég vann á frystihúsinu og borðaði fisk Anna Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.