Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fréttir afstjórnar-mynd- unarviðræðunum eru ósköp yfir- borðslegar enn sem komið er. Mest er rætt um einstaka fundarstaði í sumar- bústöðum hér og þar, þá um kruðirí, pönnukökur og vöffl- ur. Það er ekkert að þess kon- ar fréttum. Þær birta þá mynd að andrúmsloftið á efsta lofti nýrra leiðtoga sé hvorki þrúg- að né þreytulegt. Hvort sem þau merki eru meðvituð eða óviljandi send þá eru þau dá- lítil vísbending um skil, nota- lega nálgun og nýja tíma. Forystumenn fráfarandi stjórnarflokka töluðu ótt og títt um hvað þau ynnu miklu meira en allir aðrir og væru svo ógurlega þreytt á öllu þessu streði fyrir fólkið og verkefnið sem þeim hefði ver- ið fengið minnti helst á hinar ofurmannlegu þrautir Her- aklesar. Þetta upplit og talið sem því fylgdi hlaut fyrr en síðar að leiða til þreytumerkja hjá þjóðinni sjálfri. Hin sérkennilega pólitíska síþreyta sem þjakaði ríkis- stjórnina var ekki aðeins nið- urdrepandi sjúkdómur heldur var hann líka smitandi, öfugt við þá síþreytu sem læknis- fræðin hafði fengist við fram að þessu. En þótt væntanlegir forystumenn nýrrar ríkis- stjórnar gangi hressir og glað- beittir að sínum undirbún- ingsstörfum þýðir það ekki að verkefnið sem bíður þeirra sé einfalt eða smátt í sniðum. Á daginn hefur komið að all- ar spár um framvindu efna- hagslífsins eftir fall bankanna voru ekki aðeins í efri mörkum heldur beinlínis meingallaðar. Eins og Óli Björn Kárason benti á í grein í Morgun- blaðinu nýverið spáði Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn því í árs- lok 2008 að árið 2013 yrði hagvöxtur á Íslandi 4,5%. Raunveruleikinn er fjarri því marki. Þremur árum síðar spáði Seðlabanki Íslands því enn að hagvöxturinn á nefndu ári yrði 3,4%. Sú spá var í mun betra samhengi við spá AGS frá 2008 en raunveruleikann eins og hann birtist mönnum nú. Auðvitað er vont að spár þýðingarmikilla stofnana eins og þessara séu svona fjar- stæðukenndar. En annað er verra. Ákvarðanir sem stofn- un eins og SÍ tekur og skipta miklu fyrir efnahagslegt um- hverfi einstaklinga og fyr- irtækja eru reistar á þessum stórgöll- uðu spám. Það getur reynst mörgum dýr- keypt. Hagvöxtur sem byggist m.a. á því, að ýtt sé undir með lagasetn- ingu að einstaklingar grípi fyrr en skyldi til úttektar á viðbótarsparnaði lífeyris til að fleyta sér yfir erfið ár, er ekki sjálfbær hagvöxtur. Og af- koma ríkissjóðs, sem nær að skattleggja úttektina alla með hæsta skattþrepi sínu, er líka fölsuð og ekki sjálfbær. Og einstaklingurinn sem „greip tækifærið“ og nýtti sér þá glufu sem ríkið opnaði er einn- ig miklu verr settur eftir en áður. Ef úttekt viðbótarsparn- aðarins hefði orðið með þeim hætti sem að var stefnt hefði hann lent í miklu mildara skattþrepi og því miklu meira komið í hlut lífeyrisþegans en nú gerðist. En ríkisstjórn sem lagðist gegn fjárfestingu af sérhverju tagi öll sín fjögur ár stóðst ekki freistinguna. Hún kom aftan að lífeyrisþegum um leið og hún þóttist vera að gera þeim greiða. Og hún bjó einnig við þann kost að geta fjármagnað ríkis- sjóð við kjör sem eru ekki heldur sjálfbær. Á meðan gjaldeyrishöft gilda og ís- lenski seðlabankinn er hafður þeirra vegna í lögguleik, sem hann hlýtur að tapa, eiga þeir sem verja þurfa fjármuni sína eða annarra fárra kosta völ. Í þeim gerviheimi sem gjald- eyrishöft skapa getur ríkis- sjóður fengið kjör sem hann skammtar sér sjálfur að geð- þótta. Það er sovéskt ástand, í senn óhollt og hættulegt. Nýrrar ríkisstjórnar bíður því ekki síst að ráðast að heimatilbúnum vanda fráfar- andi ríkisstjórnar. Braut hennar gæti virst illfær og brött. En sú þarf ekki að vera raunin. Hennar mesta hætta er hins vegar að hún verði á þeirri vegferð fangi þeirrar þröngsýni og þráhyggju sem umlykur það stjórnkerfi sem hin ráðvillta ríkisstjórn reiddi sig á. Fari svo illa skiptir engu máli hversu galvaskir og vel- viljaðir menn ganga til þeirra miklu verkefna sem þeirra bíða. Margt bendir til að væntan- legum leiðtogum landsins og helstu samverkamönnum þeirra sé þessi veruleiki full- ljós. Sé það mat rétt þá er ástæðulaust að kvíða miklu. Góðir skipstjórn- endur geta lent í erfiðleikum sitji þeir uppi með villta lóðsa} Hætt að senda þreytumerkin S tjórnarmyndunarviðræður standa nú yfir á milli Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins eins og varla hefur farið framhjá mörgum. Meira hefur þó borið á fréttum af því hvað formenn flokkanna, þeir Bjarni Bene- diktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hafa fengið sér í svanginn á meðan viðræð- urnar hafa farið fram en nákvæmlega hvað rætt hefur verið um í viðræðunum sjálfum. Eitt af því sem óhjákvæmilega þarf að ræða í stjórnarmyndunarviðræðunum er það hvernig ráðuneytunum verður skipt á milli flokkanna. Formennirnir hafa sagt við fjölmiðla að viðræð- urnar hafi ekki snúist um það enn sem komið er. Fyrst sé að ræða málefnin og komast að nið- urstöðu um þau. Ýmsir hafa þó leikið sér að því að raða upp hugsanlegri ríkisstjórn flokkanna tveggja og var það jafnvel gert nokkru áður en þingkosningarnar á dögunum fóru fram. Eðli málsins samkvæmt er ekkert hægt að fullyrða um það hverjir kunna að verma ráðherrasæti í nýrri rík- isstjórn enda hefur væntanlega ekkert verið ákveðið í þeim efnum þó vafalaust hafi þeir sem þar munu ráða ferð- inni velt því eitthvað fyrir sér. Mestar vangaveltur hafa hins vegar verið um það hvor formannanna verði forsætisráð- herra í mögulegri nýrri ríkisstjórn, Bjarni eða Sigmundur Davíð. Flestir virðast reikna með að Sigmundur taki við lykla- völdum í Stjórnarráðshúsinu þó vitanlega sé ekkert gefið í þeim efnum. Fréttir hafa til að mynda borizt af því að leggja eigi tillögur Framsóknarflokksins varðandi skuldavanda heimilanna til grundvall- ar stefnu mögulegrar ríkisstjórnar í þeim efn- um. Verði sú raunin hlýtur Sjálfstæðisflokk- urinn að gera kröfu um eitthvað bitastætt í staðinn. Kannski forsætisráðherrastólinn? Eins hefur verið mikið rætt um það hvaða ráðuneyti sá flokksformaður taki við sem ekki verður forsætisráðherra. Sögulega hefur það verið utanríkisráðuneytið en það hefur líklega breytzt í það minnsta um fyrirsjáanlega framtíð eftir bankahrunið. Kannski varanlega. Það sem mestu skiptir í kjölfar þess er að byggja aftur upp þjóðfélagið og efnahagslífið þó hags- munagæzla landsins út á við sé alltaf gríðarlega mikilvæg. Fjármálaráðuneytið hlýtur að koma þar einna helzt til greina. Hvað sem gert verður í málefnum heimilanna verður það væntanlega einkum það ráðuneyti sem hafa mun það verkefni með höndum að framkvæma það. Það er því kannski ekki óeðlilegt að það komi í hlut Framsókn- arflokksins. Flestum þætti vafalaust eðlilegast að fram- sóknarmenn héldu fyrst og fremst utan um þau mál. For- sætisráðuneytið hlyti þá að koma í hlut Sjálfstæðisflokksins. En þetta kemur vitanlega allt saman í ljós. Vonandi sem fyrst. Hvort sem forsætisráðuneytið fellur Bjarna eða Sig- mundi í skaut verður það vafalaust í góðum höndum. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Vafalaust í góðum höndum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is H eildarendurskoðun á lögum um fólks- og farmflutninga er nær lokið í innanríkisráðu- neytinu, að sögn Ög- mundar Jónassonar ráðherra, sem segir það væntanlega verkefni nýs ráðherra og þings að klára málið. Þegar lögum um þessa flutninga var síðast breytt, í lok árs 2011, kom það fram í áliti meirihuta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis að brýnt væri að hraða þessari heildar- endurskoðun. Sú vinna hefur staðið yfir í nokkurn tíma en þar er m.a. horft til reglugerðar Evrópuþingsins. Þingnefndin áréttaði mikilvægi þess að hlutverk almenningssamgangna yrði skilgreint betur og sett skilyrði um lágmarksþjónustu og hlutverk með skilmerkilegum hætti og í sam- ráði við hagsmunaaðila yrði skilið milli almenningssamgangna og ferða- þjónustu. Að sögn Ögmundar hefur verið tekið á þessum þáttum í heildar- endurskoðuninni. Héraðsdómur Austurlands hafn- aði í vikunni kröfu Sambands sveitar- félaga á Austurlandi (SSA) um að staðfesta lögbann sýslumanns við reglubundnum fólksflutningum rútu- fyrirtækisins Sterna á milli Hafnar í Hornafirði og Egilsstaða. Komst hér- aðsdómari að þeirri niðurstöðu að Sterna hefði ekki brotið gegn einka- leyfi SSA sem það fékk á fólksflutn- ingum samkvæmt samningi við Vega- gerðina. Í dómnum segir að hugtakið „almenningssamgöngur“ sé ekki skil- greint í lögum um fólksflutninga, nr.73/2001. Var lögunum breytt 2011 til að gefa Vegagerðinni heimild til samninga við sveitarfélög, byggða- samlög og landshlutasamtök. Gerðu Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og fleiri aðilar athugasemdir við þessa breytingu í sínum umsögnum. Samningar endurskoðaðir? Ferðaþjónustan hefur gagnrýnt þessa samninga harðlega og nú heyr- ast háværar raddir um að þá beri að endurskoða í ljósi niðurstöðu Héraðs- dóms Austurlands. Samkeppniseftirlitið hefur sem kunnugt er skoðað samning sveitar- félaga á Suðurnesjum við SBK um einkaleyfi á akstri milli Leifsstöðvar og Reykjavíkur, samkvæmt samningi við Vegagerðina. Telur eftirlitið einkaleyfið raska samkeppni á þess- ari leið og óskaði eftir að útboðið yrði dregið til baka. Ekki hefur verið orðið við því og er Samkeppniseftirlitið að skoða málið nánar. Einn nefndarmanna í umhverfis- og samgöngunefnd, Ásmundur Einar Daðason, sem stóð að fyrrnefndu áliti, segist ekki hafa kynnt sér dóminn sérstaklega en ljóst sé að það bíði næsta þings að skoða þessi mál betur. Sér vitanlega sé þó reynslan almennt mjög góð af þeim fólksflutningum sem komust á vegna samninga sveit- arfélaganna við Vegagerðina. Sé um einhvern árekstur við ferðaþjón- ustuna að ræða, þá þurfi að skoða það. Óskar Stefánsson, framkvæmda- stjóri Bíla og fólks, sem sér um sér- leyfisakstur Sterna víða um land, tel- ur að vegna dómsins beri að taka upp og endurskoða samninga Vegagerð- arinnar og sveitarfélaganna. „Það er ekki rétt stefna að vera með þetta á þessum grunni. Við höfum ekkert á móti því að bæta almennings- samgöngur en okkur finnst skrítið að sveitarfélögin séu að ganga hart gegn okkur sem erum bara að markaðs- setja okkur erlendis. Síðan koma sveitarfélögin og greiða niður farmiða hjá sér um allt að 70%,“ segir Óskar en Sterna flytur ferðamenn um landið á svonefndum hringmiðum, þ.e. ferða- menn hafa þá keypt sér rútumiða hringinn í kringum landið. Að sögn Óskars stendur ekki til að breyta þessu fyrirkomulagi í sumar. Fólksflutningar í heildarendurskoðun Ljósmynd/Kristján Dan Rútuferðir Kynnisferðir hafa m.a. rekið Flugrútuna sem gengur á milli Leifsstöðvar og Reykjavíkur. Löggjöf hefur verið til endurskoðunar. Ögmundur Jónasson innanrík- isráðherra segir niðurstöðu Hér- aðsdóms Austurlands hafa kom- ið sér verulega á óvart, þar sem í lögunum séu skýrar skilgrein- ingar á reglubundnum fólks- flutningum og hver það er sem hafi leyfi til að annast þá. „Lög- unum var breytt í árslok 2011 til að styrkja réttarstöðu lands- hlutasamtaka sveitarfélaga til að fara með einkarétt á almenn- ingssamgöngum. Hitt er svo aft- ur rétt að við höfum tekið undir það, eins og kom fram í meiri- hlutaálitinu, að mikilvægt er að hafa þessa þætti betur njörvaða niður og hafa úrræði til að fylgja lögunum betur eftir. Það hefur verið tekið á því í heildarend- urskoðun á lögunum,“ segir Ög- mundur en telur ekki efni til að endurskoða samn- inga sem sveitarfélögin hafa gert við Vegagerð- ina um fólksflutninga. „Þeir sem þurfa að end- urskoða afstöðu sína eru þá dóm- stólar.“ Undrandi á héraðsdómi INNANRÍKISRÁÐHERRA Ögmundur Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.