Morgunblaðið - 10.05.2013, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarmaðurinn Snævar Njáll Al-
bertsson tróð upp með hljómsveit
sinni Dad Rocks! á Spot-tónlistarhá-
tíðinni í Árósum um síðustu helgi og
var það mikið stuð. Dad Rocks! hófst
sem sólóverkefni Snævars en fljótlega
fór hann að safna í kringum sig hópi
tónlistarmanna sem hefur verið
breytilegur að stærð, allt eftir því
hversu margir eru lausir til að leika á
tónleikum hverju sinni. Fyrsta sóló-
plata Dad Rocks!, Mount Modern,
kom út síðla árs 2011 og önnur er
væntanleg á árinu. Verður sú full-
kláruð hér á landi.
Dad Rocks! lék á Iceland Airwaves
árið 2011 en Snævar hefur leikið
margsinnis hér á landi einn síns liðs og
þá m.a. á Blönduósi þar sem hann ólst
upp. Hann flutti til Árósa árið 2006,
hefur búið þar síðan og á þar fjöl-
skyldu. Blaðamaður hitti Snævar og
annan liðsmann Dad Rocks!, Nikolaj
Skjold, í Árósum laugardaginn sl.
Samvinnuhópur
„Ég myndi segja að Dad Rocks! hafi
orðið til eftir að ég varð faðir í lok árs
2009. Þá fór ég að semja lög fyrir þetta
verkefni og hljómsveitin varð til árið
2010, þá fórum við að halda tónleika,“
segir Snævar. Lögin sem hljómsveitin
flytur eru öll eftir hann en hann segir
meðlimi sveitarinnar þó hafa sitt að
segja um flutning og útsetningar.
„Þetta er miklu frekar eins og sam-
vinnuhópur heldur en hljómsveit,“
segir Snævar til frekari útskýringar á
því hvernig Dad Rocks! virkar. Þegar
leggja þurfi í plötu eða spila á tón-
leikum sé hópnum smalað saman.
„Mér líkar við þá nálgun, það heldur
tónlistarferlinu lifandi og gerir það
áhugaverðara. Það er líka áhugavert
að spila í hljómsveit en maður fær inn-
blástur með öðrum hætti þegar fólk
slæst í hópinn af og til.“
-Nafnið, Dad Rocks!, hvaðan kom
það?
„Ég held að það sé kaldhæðnisleg
nálgun í þessu. Ákveðin tegund tón-
listar hefur verið kölluð pabbarokk,
t.d. tónlist hljómsveita á borð við Led
Zeppelin og tónlistin okkar á lítið
skylt við hana,“ segir Snævar. En lík-
lega hafi hann valið nafnið í von um
að börnin hans myndu kunna að meta
tónlistina hans þegar þau yrðu eldri.
Skjold bendir þá á að lögin höfði
mörg hver til feðra og Snævar tekur
undir þær vangaveltur og bætir við
að lagatextarnir fjalli margir hverjir
um föðurhlutverkið.
-Og miðaldra menn geta dansað við
tónlistina, hún er nógu hæg til þess?
„Já, einmitt og engin slysahætta,“
segir Snævar og hlær.
Alþýðurokk með meiru
-Tónlistin sem þið spilið er ein-
hvers konar alþýðurokk, minnir t.d. á
Benna Hemm Hemm…
„Já, ég get alveg tekið undir það,
sérstaklega af því að við erum með
marga blásturshljóðfæraleikara. Ég
myndi segja að hún væri samin með
stóra hljómsveit í huga en söngurinn
er líka innblásinn af hipphoppi, meðal
annars. Þannig að þetta er blanda af
hinu og þessu,“ segir Snævar.
Berst þá talið að næstu plötu. „Við
erum næstum búin að taka allt efni
upp fyrir plötuna en vantar örlítið af
söng og strengjaleik. Við ætlum að
hljóðblanda hana á Íslandi og hún
verður gefin út seint á þessu ári,“
segir Snævar, stefnt sé að útgáfu í
október. Addi 800 sér um hljóðblönd-
unina líkt og á fyrstu plötu Dad
Rocks! og ber Snævar honum vel
söguna. „Hann er einn af þægileg-
ustu mönnunum að vinna með í tón-
listargeiranum,“ segir hann. Spurðir
út í muninn á nýju plötunni og þeirri
síðustu segir Skjold að raftónlist
verði meiri áberandi á þeirri nýju og
útsetningar flóknari. Snævar bætir
því við að miklu fleiri tónlistarmenn
komi að plötunni, m.a. 20 manna
stúlknakór og 30 manna brass-
hljómsveit.
-Hvernig hefur Dad Rocks! verið
tekið í Danmörku?
„Vel. Við höfum ekki slegið í gegn
eða neitt svoleiðis en eigum okkur
dyggan hóp aðdáenda sem fer stækk-
andi,“ segir Snævar. Skjold segir tón-
leikaferðir Dad Rocks! hafa verið
nokkuð tíðar. „Við höfum ferðast
mikið, í síðustu viku vorum við í
Þýskalandi og Sviss,“ segir hann.
Snævar bætir því við að frá árinu
2010 hafi hópurinn haldið um 150 tón-
leika, flesta í Þýskalandi og Bretlandi
og nokkra í Bandaríkjunum. Næst á
dagskrá sé að koma plötunni út og
halda í frekari tónleikaferðir með
haustinu til að kynna hana.
Eyja á plötusamningi
-Hvernig finnst ykkur tónlist-
arsenan vera núna í Danmörku?
„Ég held að hún sé eins og best
verður á kosið. Það eru margar góðar
hljómsveitir að koma fram á sjón-
arsviðið, sérstaklega frá Kaup-
mannahöfn. Efterklang er að mínu
mati ein besta hljómsveitin í dag og
Sleep Party People er líka frábær og
Broken Twin,“ segir Snævar. Líkt og
á Íslandi sé mikið um gæðatónlist í
Danmörku en þó sé gróskan öllu
meiri og villtari á Íslandi. „Það mætti
halda að öll eyjan væri á plötusamn-
ingi,“ segir Snævar að lokum og
hlær.
Pabbarokk án slysahættu
Dad Rocks! hélt vel heppnaða tónleika á Spot-hátíðinni í Árósum Á sér dyggan aðdáendahóp í
Danmörku Leggur lokahönd á næstu plötu sína á Íslandi og koma tugir tónlistarmanna að henni
Ljósmynd/Thomas Sørensen
Fjörugt Skjold og
Snævar á tónleikum
Dad Rocks! á Spot-
hátíðinni í Árósum
föstudaginn sl.
Sinfóníuhljómsveit Íslands og úr-
valslið íslenskra söngvara munu
flytja mörg af þekktustu lög ís-
lenskar tónlistarsögu á tónleikum
sem haldnir verða í Hörpu 30. maí
nk. Af lögum sem flutt verða má
nefna „Stingum af“, „Horfðu til
himins“, „Tvær stjörnur“, „Don’t
try to fool me“ og „Vetrarsól“.
Söngvararnir eru Ragnar Bjarna-
son, Lay Low, Eyþór Ingi, Arnór
Dan, Birgitta Haukdal, Jónas Sig-
urðsson, Sigríður Thorlacius, Páll
Óskar, Mugison, Magga Stína,
Helgi Björnsson, Egill Ólafsson,
Björgvin Halldórsson, Jóhann
Helgason, Jón Jónsson, Svavar
Knútur, Ellen Kristjánsdóttir,
Daníel Ágúst, Björn Jörundur,
Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson, Ragnheiður
Gröndal, Valdimar Guðmundsson
og Dísella Lárusdóttir. Tónleikarn-
ir eru haldnir í samvinnu við Félag
tónskálda og textahöfunda, FTT,
sem fagnar 30 ára afmæli í ár. Flest
laganna sem flutt verða hafa verið
útsett fyrir sinfóníuhljómsveit.
Af öðrum lögum sem flutt verða
á tónleikunum má nefna „Pöddu-
lagið“, „When I Think of Angels“,
„Samferða“, „Söknuð“, „Skýið“,
„Hringur og Bítlagæslumennirnir“,
„Þú komst við hjartað í mér“,
„Feels Like Sugar“ og „Hafið er
svart“. Af þessum lista má sjá að
efnisskráin verður fjölbreytt.
Morgunblaðið/Golli
Söngfugl Sigríður Thorlacius mun
syngja á tónleikunum með SÍ.
Söngvarar syngja
með Sinfó í Hörpu
Dægurlagaperlur útsettar fyrir SÍ
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957