Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
„Áætlað er að hver ráðstefnugest-
ur muni eyða fjórum sinnum
meira en meðalferðamaður, eða
um 100 þúsund krónum á dag,“
segir Árni Þórðarson, forseti Evr-
ópusamtaka tannréttingasérfræð-
inga, en ráðstefna samtakanna
verður haldin í Hörpu og hefst
hún miðvikudaginn 26. júní og
stendur til laugardags. Sam-
kvæmt útreikningum fagaðila
munu gestir ráðstefnunnar sem
eru 2.300 skilja eftir sig á annan
milljarð í tekjum fyrir Ísland á
þeim fimm dögum sem ráðstefnan
stendur yfir.
„Síðan eru mjög margir ráð-
stefnugestir sem eru komnir til
landsins og hafa
verið að ferðast
hér um og síðan
aðrir sem ætla
að vera hérna
lengur eftir ráð-
stefnuna,“ segir
Árni en þátttak-
endur koma frá
yfir 70 löndum.
„Þá hefur ráð-
stefnuþjónustan okkar nú þegar
selt um 930 skipulagðar ferðir um
landið til ráðstefnugesta.“ Ráð-
stefna Evrópusamtaka tannrétt-
ingasérfræðinga – European
Orthodontic Society – er haldin í
fyrsta sinn á Íslandi um helgina
og er hún sú stærsta sem haldin
hefur verið í Hörpu frá opnun.
„Þetta er stærra en EVE online-
viðburðurinn sem haldinn var um
daginn og örugglega ein stærsta
ráðstefna sem haldin hefur verið
á Íslandi, ég veit aðeins um eina
sem hefur verið stærri,“ segir
Árni sem var beðinn um að taka
þetta verkefni að sér fyrir fimm
árum og hefur verið að undirbúa
þetta síðan með samstarfsfólki
sínu.
„Við áttum aldrei von á því að
svona margir myndu koma, við
erum rosalega ánægð með það. Ís-
land er greinilega svona vinsælt
og síðan tókst okkur einnig að ná
mjög flottum fyrirlesurum.“ En á
ráðstefnunni verður úrval heims-
frægra og eftirsóttra fyrirlesara í
faginu, 64 stutt erindi verða flutt
og 13 aðalfyrirlesarar koma fram.
„Ráðstefnan er góð vítamín-
sprauta fyrir landið,“ segir Árni
en markmiðið er að gestirnir fái
að njóta bæði hins faglega þáttar
og einnig þess sem stendur til
boða utan eiginlegrar dagskrár.
Sérfræðingar í tannréttingum góðir gestir
Gera ráð fyrir að hver ráðstefnu-
gestur eyði 100.000 krónum á dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Harpa Sérfræðingar fjölmenna á
ráðstefnu og eyða grimmt.
Árni Þórðarson
Mikil orrusta var háð í Hljómskálagarðinum í gær þegar stríðsmenn, ber-
serkir, galdrakarlar og aðrar hetjur mættust á vígvellinum. Allar sluppu
þær ómeiddar, þökk sé deigum vopnum, og álfar, orkar, dýramenn og hálf-
drekar hurfu sáttir til síns heima eftir hraustleg átök.
Hetjurnar eru sköpunarverk 10-12 ára pilta á ævintýranámskeiði sem
Benedikt Aron Guðnason stendur fyrir í samstarfi við frístundamiðstöðina
Frostaskjól en það byggist á því sem Benedikt kallar „rauntímahlutverkal-
eik“.
Morgunblaðið/Ómar
Ævintýri og hetjudáðir í höfuðborginni
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR)
hefur ákveðið, með fyrirvara um sam-
þykki Póst- og fjarskiptastofnunar,
að breyta allt að fjórum milljörðum af
átta milljarða láni til Gagnaveitu
Reykjavíkur (GR) í hlutafé. Það er
gert gegn því að eftirstöðvar lánsins
verði greiddar.
OR ákvað í október 2012 að selja
49% hlut í GR en OR á GR að fullu.
Endurfjármögnun GR er hluti af und-
irbúningi sölu 49% hlutarins. OR
lagði GR til eignir og hlutdeild í skuld-
um OR við stofnun GR árið 2007.
Lánasamningurinn var í erlendri
mynt og stökkbreyttist árið 2008.
Heildarskuldir GR um síðustu ára-
mót námu rúmum átta milljörðum
króna sem gjaldfalla á þessu ári.
Heildareignir GR, sem eru að mestu
ljósleiðarakerfi, eru rúmlega 11 millj-
arða virði og tekjur GR í fyrra námu
1,4 milljörðum.
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórn-
arformaður OR, var spurður hvort
breyting helmings láns OR í hlutafé
væri viðurkenning á því að þetta væri
tapað fé. „Nei, það er von til þess að
hlutaféð seljist. Vissulega varð Gagna-
veitan fyrir höggi, gengistapi og öðru.
Þetta endurspeglar það. Nú er unnið
að breytingu á fjármagnsskipan fyr-
irtækisins og að færa það úr fangi
Orkuveitunnar til að gera það seljan-
legra,“ sagði Haraldur Flosi. Hann
sagði ætlunina að Gagnaveitan fjár-
magnaði hinn helming lánsins, sem
ekki er breytt í hlutafé, með lántöku á
almennum markaði. Væntanlegir
kaupendur Gagnaveitunnar taka því
við skuldsettu fyrirtæki.
Haraldur sagði að auk skuldarinn-
ar við OR skuldaði Gagnaveitan um
1,5 milljarða og er ætlunin að endur-
fjármagna þá skuld með langtímaláni.
„Gagnaveitan hefur verið í fram-
kvæmdafasa og verið framkvæmda-
fjármögnun á þessu. Nú er kominn
tími til að langtímafjármagna þetta,“
sagði Haraldur Flosi.
„Ég er mjög sáttur við að selja
hluta af Gagnaveitunni,“ sagði Kjart-
an Magnússon, stjórnarmaður í OR.
„Það er ljóst að skattgreiðendur í
Reykjavík hafa þurft að borga vel á
annan tug milljarða króna í þetta fjar-
skiptaævintýri Orkuveitunnar.“
Hann kvaðst telja að breyting á helm-
ingi skulda GR við OR í hlutafé sýndi
svart á hvítu að sennilega hefði þetta
verið tapað fé fyrir Orkuveituna.
OR breytir skuld GR í hlutafé
Helmingi skuldar Gagnaveitunnar við OR, fjórum milljörðum, breytt í hlutafé
Stjórnarmaður í OR telur þetta sýna að sennilega hafi lán OR verið tapað fé
Haraldur Flosi
Tryggvason
Kjartan
Magnússon
2.300
gestir verða á ráðstefnu Evrópu-
samtaka tannréttingasérfræðinga
5
daga ráðstefna með 77 fyrirlestrum
og erindum
930
skipulagðar ferðir hafa þegar verið
seldar ráðstefnugestum
‹ VÍTAMÍN ›
»
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það er smekkfullt með Herjólfi í
mörgum ferðum. Ef maður hefur
ekki planað svo og svo langt fram í
tímann þá getur verið erfitt að kom-
ast á milli lands og Eyja,“ sagði
Kristín Jóhannsdóttir, ferða- og
menningarmálafulltrúi Vestmanna-
eyja, um ferðir með Herjólfi. Morg-
unblaðinu barst til eyrna að nokkuð
væri um fullbókaðar ferðir með skip-
inu í sumar og leitaði álits hjá Krist-
ínu. Hún sagði þetta einkum eiga við
þær helgar þegar haldin eru stórmót
og hátíðir í Eyjum.
Í dag flykkjast gestir á Shellmótið,
fjölsótt knattspyrnumót yngri flokka
drengja. Í byrjun júlí er goslokahá-
tíðin og verður mikið um dýrðir enda
40 ár frá goslokum. Þjóðhátíð Vest-
mannaeyja er svo um versl-
unarmannahelgina.
Gunnlaugur Grettisson, rekstrar-
stjóri Herjólfs, sagði skipið geta flutt
390 farþega og 50-55 bíla í hverri ferð
eftir stærð bílanna. Fyrst yrði því
fullbókað fyrir bíla þegar margir
vildu fá far. Skipið siglir fimm ferðir
flesta daga vikunnar.
„Þetta er ekki ný saga. Það verður
alltaf þannig á meðan skip er notað til
samgangna milli lands og Eyja að
framboð fyrir bíla og fólk verður tak-
markað,“ sagði Gunnlaugur. Hann
sagði að t.d. í kringum goslokahátíð-
ina væri farið að þrengjast um pláss
fyrir bíla og uppbókað suma dagana
en nóg framboð af sætum fyrir far-
þega. En kemur til greina að fjölga
ferðum?
„Já, við gerum það. Aðfaranótt
næsta sunnudags verðum við til
dæmis með tvær aukaferðir,“ sagði
Gunnlaugur.
Morgunblaðið/RAX
Herjólfur Pláss fyrir fólk en ekki
bíla í kringum vinsælar hátíðir.
Plássin
fyrir bílana
fara fyrst
Mikið bókað
með Herjólfi