Morgunblaðið - 25.06.2013, Side 6

Morgunblaðið - 25.06.2013, Side 6
BAKSVIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is Framsóknarmenn töldu að leiðin þeirra væri alveg skýr um hvernig ætti að fara að því að koma til móts við skuldug heimili. Þetta segir Vig- dís Hauksdóttir, formaður fjárlaga- nefndar Alþingis, spurð út í nei- kvæða umsögn Seðlabanka Íslands um tíu þrepa aðgerðaáætlun ríkis- stjórnarinnar vegna skuldavanda heimilanna. Þá segist Vigdís vera undrandi yfir umsögn Seðlabankans. „Stjórnvöld, fyrir utan ríkisstjórn- ina, eru enn að viðhalda þeim spuna í samfélaginu að þetta eigi að lenda á ríkissjóði sem leiðir hugann að því hvort seðlabankastjóri hafi yfirhöfuð lesið tillögur okkur framsóknar- manna. Því þetta gengur fyrst og fremst út á það að semja við kröfu- hafa föllnu bankanna, þeir hafa farið sjálfir fram á nauðasamninga, til að geta náð út einhverjum af þessum erlendu eigum hér á landi,“ segir Vigdís í samtali við Morgunblaðið. Kemur niðurfellingu ekki við Þá bendir hún á að sér þyki um- sögn Alþýðusambands Íslands um aðgerðaáætlunina jafnframt vera af- ar einkennileg. Í umsögn sinni lagði ASÍ áherslu á að óhjákvæmilegt væri að fela sérfræðingahópi að koma með tillögur um hvernig hægt væri að koma til móts við leigjendur sem búið hafa við leigusamninga sem bundnir eru vísitölu neysluverðs. Þar kemur fram að frá hruni hafi verið gripið til margvíslegra sér- tækra aðgerða til að koma til móts við þá sem skulda húsnæðislán en ekki hafi verið gripið til slíkra að- gerða gagnvart leigjendum. „Al- mennt má gera ráð fyrir að hærra hlutfall af ungu fólki og þeim sem eru tekjulágir séu á leigumarkaði en í eigin húsnæði. Það skipti því miklu að koma til móts við þennan hóp, ekki síst þar sem skv. þingsályktun- artillögunni er lögð áhersla á að ,,[u]m almennar aðgerðir verði að ræða með áherslu á jafnræði...“ segir í umsögn ASÍ. „Raunverulega erum við ekkert, og það kom fram skýrt í kosninga- baráttunni, að blanda þessum tveim- ur hópum saman. Þetta snýst um forsendubrest þeirra sem hafa keypt sér húsnæði og standa frammi fyrir miklum eignabruna. Leigjendahliðin er allt önnur hlið á þeim málum sem þarf að leysa til framtíðar og það kemur ekki við þessari skuldaniður- fellingu,“ segir Vigdís. Spurð út í gagnrýni Seðlabanka Íslands þess efnis að almenn skulda- niðurfelling geri lítið fyrir þau heim- ili sem verst standa segir Vigdís að plástrahagfræði síðustu ríkisstjórn- ar hafi öll gengið út á að hjálpa þeim sem standi verst. „Það var farin 110% leið og fundin upp ýmis úrræði sem áttu að verða til þess að þessi mest skuldsettu heimili myndu ná að fóta sig á ný, það hefur ekki gerst. Við höfum alla tíð talað um að það þurfi að taka til almennra aðgerða og taka á þessum stóra hópi fólks sem hefur staðið í skilum allt þetta tíma- bil og ekki fengið neinar úrbætur,“ segir Vigdís. Vara við banni á verðtryggingu Í umsögn sinni um aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar varar Íbúðalána- sjóður við því að afnumin verði verð- trygging á húsnæðislánum. Þannig bendir sjóðurinn á að ef litið sé til neyslukönnunar Hagstofunnar sem og reglna um greiðslumat þá hafi ákveðinn hluti heimila landsins ekki efni á því að kaupa sér þak yfir höf- uðið og líklega ekki heldur efni á því að taka húsnæði á leigu. Þessi hópur muni stækka umtalsvert ef eingöngu verður boðið upp á óverðtryggð hús- næðislán enda sé greiðslubyrði þeirra hærri. „Tilgangur þess að bjóða verð- tryggð jafngreiðslulán til húsnæðis- kaupa var einmitt sá að lækka hús- næðiskostnað eins og kostur var til þess að sem flestir gætu komið sér þaki yfir höfuðið, m.a. með aðstoð vaxtabóta. Vissulega hefur þetta fyr- irkomulag galla, s.s. mikla skuld- setningu almennings, sem hefur leit- ast við að fá eins há lán og greiðslugeta leyfir,“ segir í umsögn Íbúðalánasjóðs. Þá bendir sjóðurinn á að verðtrygging hafi verið for- senda fyrir framboði lána til lengri tíma. Þannig hafi nær ekkert fram- boð verið af lánsfé til lengri tíma áð- ur en farið var að verðtryggja lánsfé snemma á áttunda áratugnum. „Það er verið að skoða þá mögu- leika sem gætu verið fyrir hendi og mér finnst rétt að á meðan það ligg- ur ekki ljóst fyrir þá bíðum við átekta. Hinsvegar er það alveg ljóst að báðir ríkisstjórnarflokkarnir lögðu upp með að vinna fyrir heim- ilin að niðurfærslu lána og það verð- ur að gefa okkur tíma til að vinna úr því,“ segir Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í fjárlaganefnd, spurð út í gagnrýni Seðlabankans á aðgerða- áætlun ríkisstjórnarinnar. Töldu leiðina vera alveg skýra  Formaður fjárlaganefndar Alþingis furðar sig á neikvæðri umsögn Seðlabankans um aðgerðaáætlun  Íbúðalánasjóður segir að bann við verðtryggingu gæti takmarkað framboð á húsnæðislánum Morgunblaðið/Eggert Undrandi Vigdís Hauksdóttir segist undrast neikvæða umsögn Seðlabankans um aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar vegna skuldavanda heimilanna var á dagskrá efnahags- og við- skiptanefndar í gærmorgun. Að sögn Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, þingflokksformanns Sjálfstæðis- flokksins og fulltrúa í nefndinni, voru umsagnaraðilar kallaðir fyrir fundinn, þeir hefðu farið yfir sitt og svo yrði haldið áfram á mið- vikudaginn að kalla til umsagn- araðila og fara yfir þessa þætti. „Þetta var flest allt jákvætt, myndi ég segja, um þessa að- gerðaáætlun og um það sem ligg- ur fyrir í henni en það eru engu að síður ákveðnar at- hugasemdir sem nefndin þarf að skoða betur,“ segir Ragnheiður. Þá bendir hún á að á fundinum hafi verið óskað eft- ir því að Þorvarður Tjörvi Ólafs- son, hagfræðingur hjá Seðla- banka Íslands, kæmi á fund efnahags- og viðskiptanefndar á morgun. „Þetta var flest allt jákvætt“ FUNDUÐU MEÐ UMSAGNARAÐILUM Ragnheiður Ríkharðsdóttir Stjórn Skotveiðifélags Reykjavíkur (Skotreynar) hefur falið lögmönnum sínum að áfrýja nýföllnum dómi í máli félagsins til Hæstaréttar. Starf- semi Skotreynar í Álfsnesi verður óbreytt á meðan málið er til með- ferðar fyrir Hæstarétti, að því er segir á heimasíðu félagsins. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi 18. júní s.l. í máli Skotreynar gegn Íbúasamtökum Kjalarness og tveimur íbúum á Kjalarnesi. Reykja- víkurborg og íslenska ríkinu var einnig stefnt en stefnunni gegn borginni var vísað frá dómi og fallið frá málsókn gegn ríkinu. Málið snýst um skotvöll Skotreyn- ar á Álfsnesi og starfsleyfi hans sem var gefið út 5. maí 2009 og tók við af eldra starfsleyfi frá 2004. Stefndu kærðu útgáfu seinna starfsleyfisins til umhverfisráðuneytisins 12. júní 2009. Ráðuneytið felldi hina kærðu ákvörðun úr gildi með úrskurði 15. mars 2010. Þau sem kærðu starfs- leyfið töldu að deiliskipulag vantaði á Álfsnesi til að heimilt væri að nýta svæðið undir skotvelli, en skotvöllur Skotfélags Reykjavíkur er við hlið skotvallar Skotreynar. Skotreyn höfðaði málið til að fá úr- skurð ráðuneytisins ógiltan og að viðurkennt yrði að ákvörðun um starfsleyfið hefði fullt gildi. Félagið taldi að umhverfisráðuneytið hefði farið út fyrir valdheimildir sínar í úr- skurðinum. Það hefði hvorki haft valdheimildir til að kveða á um gildi skipulagslaga né hefði það haft laga- heimildir til að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi á þeim grundvelli sem gert var með úrskurðinum. Íbúasamtökin og íbúarnir tveir voru sýknaðir af kröfum Skotreynar og var félaginu gert að greiða stefndu 750.000 kr. í málskostnað. Málið dæmdi Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari. gudni@mbl.is Áfrýjar dóms- máli um skotvöll  Deilt um völl Skotreynar á Álfsnesi Morgunblaðið/ÞÖK Álfsnes Íbúar á Kjalarnesi kvört- uðu m.a. vegna skothvellanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.