Morgunblaðið - 25.06.2013, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
utilif. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
High Peak Como
32.990 / 42.990 KR.
4 og 6 manna
Tvískipt innratjald með fortjaldi
á milli. Vatnsvörn 2.000 mm.
Yfirlímdir saumar. Hæð 190/200 cm.
High Peak ancona
56.990 KR.
5 manna
Rúmgott fjölskyldutjald. Vatnsvörn
3.000 mm. Yfirlímdir saumar. Dúkur
í fortjaldi. 2 inngangar. Hæð 200 cm.
High Peak cave
19.990 / 23.990 KR.
2 og 3 manna
Göngutjald sem er auðvelt í upp-
setningu og aðeins 2,9 kg. Vatns-
vörn 2.000 mm. Yfirlímdir saumar.
Fíbersúlur. Hæð 90 cm.
The north face tadpole
59.990 KR.
2 manna
Létt göngutjald - 2,4 kg. Vatnsvörn
1.500 mm taffeta. Botn 5.000 mm
taffeta. Álsúlur. Hæð 100 cm.
tjaldaðu
ekki til einnar nætur
Frábært úrval af tjöldum í tjalda-
landi í glæsibæ (við hliðina á tbr húsinu)
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Tveir erlendir ferðamenn fóru með kornung
börn sín í yfirborðsköfun í Silfru um helgina,
þvert á tilmæli leiðsögumanns. Annað barnið
var eins og hálfs árs en hitt fjögurra ára. Leið-
sögumaður í köfun, sem rætt var við, telur að
börnunum hafi verið stefnt í óþarfa hættu og
gagnrýnir þær öryggisráðstafanir sem gerðar
séu við Silfru. Hann segir að aðstæður í Silfru
séu þannig að aðeins ætti að vera hægt að
stunda þar köfun í fylgd með leiðsögumanni
líkt og tíðkist víðast hvar erlendis. Haft var
samband við köfunarfyrirtækið Scuba Iceland
sem segir flest köfunarfyrirtæki miða við tólf
ára aldur barna og aðstæður í Silfru séu þann-
ig að óráðlegt sé að fara með yngri börn í hana.
Sagt að málið varði við landslög
Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á
Þingvöllum, segir ekki neinar aldurstakmark-
anir vera í Silfru en að brugðist hafi verið við
af hálfu þjóðgarðsins. „Siglingastofnun gefur
út fyrirmæli um köfun en tilfelli sem þetta
ættu yfirleitt að falla undir lög um vernd barna
en umráðamenn barna eru skyldugir til að
stefna ekki börnum sínum í hættu. Einn af for-
svarsmönnum köfunarfyrirtækjanna hafði
samband við okkur og lét okkur vita af þessu
fólki. Það fór strax landvörður að Silfru og
ræddi við fólkið, sem þá var komið upp úr, og
sagði því að litið væri svo á að börnunum hefði
verið stefnt í hættu og að það varðaði við
landslög. Aðspurður hvort gjaldtakan við
Silfru eigi að gegna ákveðnu öryggishlutverki
segir Ólafur svo vera upp að vissu marki. „Það
er ekki vörður sem stendur á bakkanum en að-
gangsstýringin okkar snýr að því að það séu
ekki of margir hópar í gjánni í einu og á að
stuðla að því að leiðsögumenn hafi yfirsýn yfir
sinn hóp.“
Börnum stefnt í hættu við köfun í Silfru
Eins og hálfs árs og fjögurra ára gömul börn í yfirborðsköfun með foreldrum sínum Fóru
gegn tilmælum leiðsögumanns Engin aldurstakmörk eru í Silfru Fólk er þar á eigin ábyrgð
Silfra Yfirborðsköfun gengur út á það að synda í dún- og þurrgalla með öndunarpípu í munni.
Morgunblaðið/Ómar
Í fyrirmælum nr. 165/2003 sem liggja til
grundvallar köfun á Þingvöllum, sem gefin
voru út af Siglingastofnun í ár, kemur
fram að kafarar séu ætíð á eigin ábyrgð og
skuli kynna sér vel aðstæður og reglur
sem gilda um köfun í Silfru. Þá er þar
einnig sagt til um almennar öryggiskröfur
sem gerðar eru til ferðaþjónustufyr-
irtækja um þjálfun og búnað auk þess sem
óheimilt er að kafa dýpra en 18 metra í
Silfru.
Ekkert er minnst á aldurstakmarkanir
en ætla má að gert sé ráð fyrir að fólk
fylgi fyrirmælum leiðsögumanna og verk-
lagsreglum þeirra.
Um köfun í Silfru
á Þingvöllum
SIGLINGASTOFNUN