Morgunblaðið - 25.06.2013, Side 18

Morgunblaðið - 25.06.2013, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 Breska fjarskiptafyrirtækið Voda- fone ætlar að kaupa Kabel Deutsch- land, stærsta dreifiaðila sjónvarps og síma um breiðband í Þýskalandi. Uppgefið kaupverð er 7,7 milljarðar evra eða rúmlega 1.245 milljarðar króna. Um 8,5 milljónir heimila í Þýska- landi nýta sér þjónustu Kabel Deutschland. Vodafone sagði í yfir- lýsingu í gær að fyrirtækið muni bjóða hluthöfum Kabel Deutschland 87 evrur á hlut og greiða fyrir í reiðufé. Í frétt breska viðskiptablaðsins Financial Times (FT) í gær kemur fram að markmið Vodafone með þessum kaupum sé að breikka grunn starfsemi félagsins, þannig að það byggist ekki einungis á farsímasölu og þjónustu, heldur einnig á breið- bandsþjónustu við neytendur og sjónvarpsþjónustu. Við lokun markaða á föstudag stóð hver hlutur í Kabel Deutsc- hland í 84,10 evrum og við lokun markaða í gær hafði hluturinn hækkað um 1,9% og stóð í 85,60 evr- um. Framkvæmdastjórn Kabel Deutschland hefur fagnað fyrirhug- uðum viðskiptum og mun samkvæmt AFP mæla með því við hluthafa að þeir gangi að tilboði Vodafone. Verð á hlutabréfum í Kabel Deutschland hefur hækkað jafnt og þétt frá því í febrúarmánuði, þegar fyrst hófust umræður um mögulega yfirtöku á félaginu og samtals hefur hluturinn hækkað um 37% á nokk- urra mánaða tímabili. Kabel keypt dýru verði Yfirlýsingar Vodafone og fram- kvæmdastjórnar Kabel Deutschland í gær um samkomulagið virðast hafa bundið enda á skammvinna baráttu á milli Vodafone og bandaríska fyr- irtækisins Liberty Global, sem einn- ig hafði hug á því að bjóða í Kabel Deutschland og bauð reyndar í síð- ustu viku 85 evrur í hlutinn, eða samtals um 7,5 milljarða evra. Reuters rifjar upp í frétt á vefsíðu sinni í gær, að Vodafone sé að greiða ærið hátt verð fyrir Kabel Deutsch- land, því á árinu 2010, áður en Kabel Deutschland var skráð á markað, íhugaði stjórn Vodafone að kaupa fyrirtækið, en þá fyrir 22 evrur á hlut, eða aðeins fyrir um fjórðung af því verði sem núna verður greitt. Þá kom fram í frétt FT í gær að Vittorio Colao, forstjóri Vodafone, hefði að undanförnu kannað mögu- leika á kaupum og/eða samstarfi við breiðbandsfyrirtæki víðsvegar um Evrópu. agnes@mbl.is Vodafone kaupir Kabel Deutschland á 7,7 ma. evra  Kaupverðið er nánast fjórfalt á við það sem Vodafone vildi greiða í febrúar á þessu ári  Hyggur á fleiri yfirtökur AFP Sókn Vodafone ætlar með kaupunum á Kabel Deutschland að færa út kví- arnar og breikka rekstrargrunn fyrirtækisins. Kaupverðið þykir mjög hátt.                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-./0 +12 ++0./3 ,+.4+2 ,/.+22 +1.,-0 +-+.4, +.,55, +15.53 +4+.,0 +,-.-4 +12.34 ++0.-1 ,+.41, ,/.,51 +1.,2 +-+.22 +.,512 +14./2 +4+.0, ,+0.3,/5 +,-.45 +12.2, ++0.0, ,+.035 ,/.-+0 +1.-3- +-,.-4 +.,4,4 +14.43 +4,.+0 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Alklæddur nautsleðri! Verð áður 139.000 Þú sparar 20.000 Þú sparar 40.000 Tilboðsverð 99.000 RISAÚTSALA! Okkar besti hægindastóll á verði sem hefur ekki sést á Íslandi í mörg ár! Rubelli 9332 H með svifruggu, snúning, gormasæti og frábærum bakstuðningi 3 leðurlitir 6 taulitir FÁÐU STÓLINN SENDAN HEIM HVERT Á LAND SEM ER FYRIR AÐEINS 5.000 KR. Ármúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181www.innlit.is Þekking • ÞjónustaÍ slitsterku áklæði! Verð áður 89.000 Tilboðsverð 69.000 Innlit Húsgögn í sumarskapi ● Capacent Gallup mun birta vænt- ingavísitölu sína fyrir júnímánuð í dag. Væntingavísitala Gallup tók vel við sér í maí og fór í fyrsta sinn yfir 100 stig frá því í febrúar árið 2008. Gátu því ís- lenskir neytendur þar með talist bjart- sýnir á efnahags- og atvinnulíf þjóð- arinnar í fyrsta skiptið frá þeim tíma, en þegar vísitalan er yfir 100 stigum eru fleiri neytendur bjartsýnir en svartsýnir. Eykst bjartsýnin? Landsbankinn hefur ásamt nokkrum öðrum fyrirtækjum og stofnunum unnið að því að bæta samgöngur á Íslandi með það að meginmarkmiði að fækka einkabílum í umferð og fjölga vistvænum valkostum í sam- göngum bæði fyrir almenning og fyrirtæki, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Lands- bankanum. Í þeim tilgangi hafa Landsbank- inn og Bílaleiga Akureyrar (Höldur ehf.) gert samstarfssamning um þjónustu svokallaðra flýtibíla. Í tilkynningu kemur fram að þjón- usta flýtibíla verði framvegis hluti af samgöngusamningi Landsbankans við starfsmenn og geti þeir nýtt sér samninginn jafnt í vinnu sem í per- sónulegum erindum utan vinnutíma. Þeir starfsmenn bankans sem und- irrita samninginn skuldbinda sig til að ferðast ekki á einkabíl til vinnu, heldur með strætó, hjólandi eða á flýtibíl. Þegar hafi yfir 360 starfs- menn, eða rúmlega fjórðungur, skrifað undir samgöngusamning og fá þeir á móti fjárframlag til að standa straum af kostnaði. Semja um flýti- bílaþjónustu  Yfir fjórðungur hefur skrifað undir Morgunblaðið/Kristinn Landsbankinn Vill draga úr notkun einkabíla í umferð með flýtibílum. ● Lánasjóður sveitarfélaga (LSS) held- ur útboð í dag þar sem boðið verður upp á bréf í tveimur helstu skuldabréfa- flokkum sjóðsins, þ.e. LSS24 og LSS34, samkvæmt því sem fram kemur í Morg- unkorni Greiningar Íslandsbanka í gær. „Að vanda stefnir sjóðurinn að því að taka tilboðum fyrir 500 milljónir króna að nafnvirði, þótt sjóðurinn áskilji sér rétt til að hækka eða lækka útboðs- fjárhæðina, eða jafnvel hafna öllum til- boðum. Þetta er fimmta útboð LSS á árinu, en sjóðurinn felldi niður útboðið sem hafði verið fyrirhugað í mars sl. vegna rúmrar lausafjárstöðu,“ segir orðrétt í Morgunkorni. Útboðstvenna hjá Lána- sjóði sveitarfélaga í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.