Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 BAKSVIÐ Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Seðlabankar hafa gert nóg til að stuðla að endurreisn hagkerfa heims- ins og nú er komið að stjórnmála- mönnum að leggja grunn að sjálf- bærum vexti til framtíðar. Þetta kemur fram í ársskýrslu Alþjóða- greiðslubankans í Basel (BIS) sem kynnt var á ársfundi bankans um helgina. Bankinn, sem hefur verið kallaður seðlabanki seðlabankanna, er elsta alþjóðlega fjármálastofnun í heimi en ársskýrslu hans er ávallt beðið með mikilli eftirvæntingu. Nóg komið af afskiptum Eftir að lánsfjárkreppan skall á hafa seðlabankar reynt ýmislegt til að halda hagkerfum heimsins gang- andi, fyrst með því að lækka stýri- vexti sína og síðan með magnaðgerð- um, svo sem skuldabréfakaupum og peningaprentun. Nú, þegar hið versta er afstaðið, er það álit BIS að komið sé nóg af afskiptum seðla- banka og að þörf sé á stefnubreyt- ingu. Endurskoði hlutverk sitt Segir bankinn að tími sé kominn til að seðlabankar taki hlutverk sitt til endurskoðunar. „Geta seðlabankar náð markmiði sínu hvað sem það kostar?“ Vísar bankinn þannig til ummæla Mario Draghi, bankastjóra Evrópska seðlabankans, um að seðla- bankinn muni standa vörð um evr- ópska myntsamstarfið „hvað sem það kostar“. Í skýrslu sinni vekur BIS spurningar sem hann segir nauðsyn- legt að seðlabankar svari. „Hvernig geta seðlabankar hvatt þá, sem eru ábyrgir fyrir því að mynda stefnu um kerfislæga aðlögun, til að koma henni í framkvæmd? Hvernig geta þeir komið í veg fyrir að hagkerfið verði of háð örvunaraðgerðum sínum? Hve- nær er rétti tíminn fyrir þá til að draga sig í hlé?“ Bernanke dregur úr kaupum Ársskýrsla BIS kemur út nokkru eftir að Ben Bernanke, bankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna, gaf það í skyn að bankinn muni halda að sér höndum og draga úr skuldabréfa- kaupum sínum á markaði. Í kjölfarið hefur ávöxtunarkrafa á 10 ára banda- rísk ríkisskuldabréf hækkað um 80 punkta en í skýrslu sinni spáir BIS því að 300 punkta hækkun muni leiða til einnar trilljónar dollara taps fyrir skuldabréfaeigendur. Boltinn hjá stjórnmálamönnum BIS segir það nú vera í höndum stjórnmálamanna að koma á umbót- um á vinnumarkaði, auka framleiðni og draga úr atvinnuleysi. Lágir vext- ir og aðrar aðgerðir seðlabanka hafi tekið allt bit úr stjórnmálamönnum til að taka á þeim vandamálum sem kreppan leiddi af sér. „Ódýrir pen- ingar gera það auðveldara að taka lán en að spara, auðveldara að eyða en að skattleggja, auðveldara að hjakka í sama farinu en að breyta til.“ Er það trú BIS að seðlabankar geti ekki leyst þau kerfislægu vanda- mál sem við er að eiga. „Seðlabankar geta ekki lagfært efnahagsreikning heimila og fjár- málastofnana. Seðlabankar geta ekki tryggt sjálfbærni í ríkisfjármálum. Og, mikilvægast af öllu, seðlabankar geta ekki leitt í lög kerfislægar og fjárhagslegar endurbætur sem þörf er á til að hefja nýtt skeið hagvaxt- ar,“ segir í skýrslunni. Breyttar áherslur Jaime Caruana, aðalframkvæmda- stjóri BIS, sagði peningamálastefnu seðlabanka víðs vegar um heim hafa skilað sínu. Frekari efnahagsbati kalli á ólíka stefnu með meiri áherslu á sveigjanleika og að ná jafnvægi í ríkisfjármálum. Yfir 80 fulltrúar frá seðlabönkum um allan heim hlýddu á Caruana kynna ársskýrsluna en bankinn er í eigu fjölmargra seðla- banka, þar á meðal Seðlabanka Ís- lands. Þá var tilkynnt á fundinum að Caruana muni stýra bankanum til loka marsmánaðar árið 2017. Seðlabankar haldi að sér höndum  Alþjóðagreiðslubankinn segir seðlabanka hafa lagt sitt af mörkum til að endurreisa hagkerfi heimsins  Nú sé boltinn hjá stjórnmálamönnum  Lágir vextir hafi tekið allt bit úr stjórnmálamönnum Aðgerðir seðlabanka » Ársfundur Alþjóðagreiðslu- bankans í Basel var haldinn um seinustu helgi. » Í ársskýrslu bankans segir að nóg sé komið af afskiptum seðlabanka af hagkerfum heimsins. » Þeir geti ekki leyst þau kerf- islægu vandamál sem við er að glíma. » Stjórnmálamenn þurfi að koma á umbótum á vinnu- markaði, auka framleiðni og minnka atvinnuleysi.AFPGagnrýni BIS hefur í mörg ár gagnrýnt stjórnmálamenn en gagnrýnin er furðu hvöss þetta árið og beinist aðallega að stjórnmálamönnum í Evrópu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.