Morgunblaðið - 25.06.2013, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 25.06.2013, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 FYRIR ÓLITAÐ HÁR Hvort vantar hárið þitt raka eða prótein? FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.Dreifing: HÁR EHF s. 568 8305 | har@har.is | REDKEN Iceland á FYRIR HÁRLOSFYRIR ALDRAÐ HÁR FYRIR ÚFIÐ HÁR FYRIR LJÓST HÁR FYRIR ÞURRT HÁR FYRIR KRULLAÐ HÁR SÖLUSTAÐIR REDKEN SENTER SCALA SALON VEH SALON REYKJAVÍK PAPILLA N-HÁRSTOFA LABELLA MENSÝ MEDULLA KÚLTÚRA HÖFUÐLAUSNIR HJÁ DÚDDA FAGFÓLK BEAUTY BARFYRIR FÍNGERT HÁR FYRIR LITAÐ HÁR FYRIR SKEMMT HÁR FYRIR ÓRÓLEGT HÁRFYRIR HÁR Í SÓL OG SJÓ REDKEN hárvörurnar gera hárið heilbrigt, fallegt og fyllir það af lífi PróteinRaki Aðdáendur Nelsons Mandela, fyrr- verandi forseta Suður-Afríku, söfn- uðust saman og báðu fyrir honum í gær fyrir utan sjúkrahús í Pretoríu þar sem hann liggur, en ástand hans er alvarlegt og hann sagður eiga skammt eftir ólifað. Blóm, kort og málverk eftir leikskólabörn hafa verið lögð upp við öryggisgirðingu við sjúkrahúsið. Nelson Mandela var fluttur á sjúkrahúsið 8. júní sl. vegna sýk- ingar í lungum og heilsu hans tók að hraka verulega um helgina. Í yfirlýsingu frá Jacob Zuma, for- seta Suður-Afríku, sagði að læknar gerðu allt sem þeir gætu til að tryggja að vel væri séð um Mandela og að honum liði vel. „Hann er í góðum höndum.“ Dóttir forsetans fyrrverandi, Makaziwe Mandela, segir fjölskyld- una taka einn dag í einu og biðja til guðs. „Ég trúi því að honum líði vel. Hann hefur gefið heiminum svo mikið.“ Beðið fyrir Mandela AFP Dómstóll í Mílanó dæmdi í gær Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráð- herra Ítalíu, í sjö ára fangelsi fyrir vændiskaup og misnotkun valds. Berlusconi hyggst áfrýja dómnum. Forsætisráðherrann fyrrverandi var fundinn sekur um að hafa borgað stúlkunni Karimu El-Mahroug fyrir kynmök þegar hún var sautján ára og undir lögaldri. Hann var einnig fundinn sekur um að hafa misnotað opinbert vald sitt með því að beita sér fyrir því að lögreglan leysti El- Mahroug úr haldi eftir að hún var handtekin fyrir þjófnað. Hámarks- refsingin fyrir slíka valdamisnotkun er tólf ára fangelsi. El-Mahroug, sem hefur kallað sig „rúbínrauða hjartaþjófinn“, segir að hún hafi fengið greiddar á milli 2.000 og 3.000 evrur fyrir kvöld á sveita- setri Berlusconis. Hún og Berlusconi hafa þó bæði neitað því að hann hafi greitt henni fyrir kynmök. Veikir ítölsku samsteypustjórnina Fangelsisdómurinn var ári lengri en saksóknarar höfðu óskað eftir. Hann tekur ekki gildi þar sem Ber- lusconi hefur áfrýjað honum og talið er að langur tími líði áður en niður- staða áfrýjunarinnar liggur fyrir. Stjórnmálaskýrendur sögðu þó að dómurinn gæti haft afdrifaríkar af- leiðingar í ítölskum stjórnmálum. Dómurinn er talinn veikja sam- steypustjórn Enricos Letta for- sætisráðherra sem er háð stuðningi flokks Berlusconis. Berlusconi, sem er 76 ára, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir skattsvik í október 2012, en þeim dómi var einnig áfrýjað. Dæmdur í sjö ára fangelsi  Berlusconi hyggst áfrýja dómnum AFP Dæmdur Berlusconi hafði áður fengið fangelsisdóm fyrir skattsvik. Bandaríska leik- konan Angelina Jolie gagnrýndi öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna fyrir að hafa ekki gert nóg í baráttunni gegn nauðgunum á átakasvæðum þegar hún ávarp- aði ráðið í gær. Hún sagði að Sam- einuðu þjóðirnar þyrftu að sýna staðfestu í baráttunni gegn ofbeld- inu og sagði að hundruðum þús- unda kvenna og stúlkna hefði verið nauðgað á átakasvæðum. Hún gagnrýndi samtökin fyrir seina- gang og skírskotaði meðal annars til stríðsins í Sýrlandi. Jolie flutti ræðuna eftir að hafa skoðað flótta- mannabúðir fyrir Sýrlendinga í Jórdaníu sem sendimaður flótta- mannafulltrúa SÞ. Nauðganir á stríðssvæðum Jolie gagn- rýnir SÞ Angelina Jolie Bandarísk stjórnvöld gagn- rýndu í gær Kín- verja fyrir þá ákvörðun að hleypa Edward Snowden úr landi þrátt fyrir beiðni banda- rískra yfirvalda um að hann yrði framseldur til Bandaríkjanna þar sem hann hefur verið ákærður fyrir njósnir. Talsmaður Bandaríkjaforseta sagði að ákvörðunin myndi skaða tengsl ríkjanna. Snowden fór til Moskvu frá Hong Kong og Banda- ríkjastjórn hefur beðið Rússa um að framselja hann. Julian Assange, stofnandi Wikileaks, sem hefur að- stoðað hann við að fá hæli í Ekva- dor, sagði í gær að Snowden væri við „góða heilsu og óhultur“. Bandaríkin „Óhultur“ í Moskvu Edward Snowden

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.