Morgunblaðið - 25.06.2013, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
Gram heimilistækin eru vönduð í gegn
Nilfisk þekkja allir
Fyrsta flokks frá Fönix
Allt
á einum stað!
Lágmarks
biðtími www.bilaattan.is
Bílaverkstæði
Dekkjaverkstæði
Smurstöð
Varahlutir
Dagana 4. til 7. júlí
nk. verður 27. Lands-
mót UMFÍ haldið á
Selfossi. Í fyrrasumar
var Unglingalandsmót
UMFÍ haldið í bænum
og var það í alla staði
mjög vel heppnað.
Mótshaldarar horfa því
með björtum augum til
landsmótsins sem senn
gengur í garð og leggja
sig fram um að undirbúningur allur
verði sem bestur, þannig að allt gangi
upp þegar gestir mæta.
Íþróttaaðstaða sem byggð hefur
verið upp á Selfossi er með því besta
sem gerist á landinu. Sundlaug,
íþróttahús og íþróttavellir eru mið-
svæðis í bænum og mynda skemmti-
lega umgjörð um mót þar sem keppt
er í mörgum greinum. Stutt er í önn-
ur keppnissvæði, golfvöll, mótókross-
braut og keppnissvæði hestamanna.
Sveitarfélagið Árborg hefur lagt
verulega fjármuni í uppbyggingu
íþróttamannvirkja á liðnum árum og
hefur sannast að þeim
peningum hafi verið vel
varið. Ánægja íbúa og
gesta hefur verið mikil
með hina góðu aðstöðu
sem hefur verið sköpuð
og íþróttastarfið hefur
blómstrað.
Keppt verður í fjöl-
mörgum íþróttagrein-
um á landsmótinu. Gert
er ráð fyrir um tvö þús-
und keppendum á svæð-
ið, þar á meðal fjölda af-
reksmanna í öllum
íþróttagreinum og búist við fjörugri
og spennandi keppni. Það mun ekki
væsa um keppendur og aðstand-
endur þeirra, enda vel búið tjald-
svæði skammt frá helstu keppn-
isstöðum, auk þess sem keppendum
býðst að venju að gista í skólastofum,
óski þeir þess. Afþreying verður í
boði fyrir keppendur og aðra gesti
víðsvegar um bæinn. Á Selfossi er
fjölbreytt þjónusta í boði, hvort held-
ur er í verslunum, matsölustöðum,
gistingu eða öðru. Á Eyrarbakka og
Stokkseyri er úrval safna og afþrey-
ingar og kjörið að skreppa þangað á
Skundum á landsmót
Eftir Ástu
Stefánsdóttur
Ásta Stefánsdóttir
» Starf sjálfboðaliða að
íþróttamálum verð-
ur seint nægilega þakk-
að, en án þess væri
mótahald af þessari
stærðargráðu illgerlegt.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sveitarfélagsins Árborgar.
milli dagskrárliða eða að keppni lok-
inni.
Fjöldi sjálfboðaliða mun starfa við
mótið að venju og koma félagar í
íþróttafélögunum á Suðurlandi
myndarlega að framkvæmd og und-
irbúningi mótsins. Starf sjálfboðaliða
að íþróttamálum verður seint nægi-
lega þakkað, en án þess væri móta-
hald af þessari stærðargráðu ill-
gerlegt.
Af hálfu Sveitarfélagsins Árborgar
hvet ég íþróttafólk til að mæta til
keppni á 27. Landsmóti UMFÍ um
leið og ég býð gesti og keppendur vel-
komna og óska keppendum góðs
gengis á mótinu.
Ekki er annað að
heyra en að landsmenn
hafi fulla trú á að hin
nýja ríkisstjórn og von-
andi samstillt til verka
taki á ýmsum málum
sem bíða úrlausnar á
næstu mánuðum.
Í því sambandi má t.d.
nefna skipan ráðherra-
nefndar til að taka á
stökkbreyttum lánum
og verðtryggingunni í
núverandi mynd. Samsíða þarf að
taka á háu vaxtastigi og keyra niður
verðbólguna með samstilltu átaki og
láta leiðrétta án tafar dæmd og ólög-
leg lán. Jafnframt þarf að stöðva
uppboðsferlið sem tengist þessum
lánum.
Forsætisráðherra hefur boðað að
aukin netsamskipti verði tekin upp
hjá ríkisstjórninni í samskiptum við
fólk og fyrirtæki. Með því sé hægt að
bregðast fyrr við ábendingum um
þarfar úrbætur í kerfinu. Þótt margt
hafi verið gert eftir það mikla áfall
sem þjóðin varð fyrir við hrunið 2008,
þá eru mörg og erfið mál sem bíða
úrlausnar svo þjóðfélagið komist á
betra rekstrarskrið.
Ljóst er að það þarf kraft og þor í
pólitíkina sem og víðar í kerfinu til
þeirra verka.
Tilkall margra er að stökkbreytt
neyslulán verði leiðrétt sem fyrst hjá
þeim sem lögðu fé í eignirnar/
fyrirtækin og tóku hófleg lán 2004-
2008. Öðrum verði veitt aðstoð með
sértækum aðgerðum, t.d. barna-
fjölskyldum. Huga þarf einnig að
stökkbreyttum námslánum.
Sem fyrr er ég þeirrar skoðunar
að lánastofnanir eigi að leiðrétta
þessi lán að vissu marki og síðan eigi
það opinbera að koma þar að með
vissum aðgerðum. Slík leiðrétting er
hagur allra sem í hlut eiga í stað þús-
unda gjaldþrota og þar með miklum
afföllum á nefndum lánum og ýmsum
þjóðfélagsvanda. Skoða þarf ábend-
ingar um að mismunandi útreikn-
ingar séu viðhafðir á verðtryggðum
lánum sem og að eftirlit varðandi það
sé ábótavant. Lántakendur eru varn-
arlitlir gegn ægihrammi verðtrygg-
ingarinnar og því flókna útreikninga-
kerfi sem henni fylgir. Síðan þarf að
koma til afnám á gjaldeyrishöftum
með vissum aðgerðum, t.d. með
skattlagningu á vogunarsjóðina/
snjóhengjuna og fleiri aðgerðum.
Viss lækkun varðandi álögur gæti
komið til framkvæmda 1. júlí nk. með
því að afnema bifreiðagjaldið sem
nemur um 80-100 þúsund kr. eða
meira á meðal fjölskyldu pr. ár og
lækka álögur á eldsneyti. Bifreiða-
gjaldið er hreinn
eignaskattur því það
er lagt á þótt bifreið sé
ekki hreyfð úr hlaði.
Þessi aðgerð myndi
skila sér til baka með
ýmsu móti, en þá með
meira jafnvægi gagn-
vart greiðendum.
Lækka þarf einnig
hinar ýmsu álögur á
nauðsynjavöru og síð-
an almenna skatta eins
fljótt og hægt er með
endurskoðun á skattkerfinu/
undanskotum og taka samsíða á hinu
víðtæka kennitöluflakki sem tíðkast
hefur hér óheft í áraraðir. Þar er um
tugi milljarða að ræða eða meira pr.
ár samkvæmt upplýsingum skatt-
yfirvalda. Hugsanlega mætti breyta
auðlegðarskattinum í hóflega skatt-
lagningu af útflutningsvörum sem
tengjast auðlindum okkar. Endur-
skoða/skerpa þarf hin ýmsu reglu-
verk sem fyrst til að koma í veg fyrir
svipaðar uppákomur og gerðust hér
fyrir hrun þegar landið var því sem
næst sett í þrot með ævintýra-
mennsku og viðskiptabrellum víða í
kerfinu. Ná þarf almennri sátt í
kvótamálinu, auka þorskvótann um
35-40 þúsund tonn í samráði við Haf-
rannsóknastofnun og efla verðmæti
fiskafurða með framsæknum nýj-
ungum eins og víða er verið að vinna
að.
Efla grunnstoðir þjóðfélagsins t.d.
í heilbrigðis- og menntageiranum,
löggæslu sem víðar og gera samsíða
stórátak í að efla atvinnulífið og bæta
með því launaumhverfið hjá þeim
tekjulágu og starfskrefjandi stéttum.
Samsíða þarf að bæta eftirlaunakerf-
ið eins og ríkisstjórnin hefur boðað.
Afleggja óþarfa rekstrareiningar hjá
því opinbera og minnka/skoða sam-
einingu rekstrareininga.
Landsvirkjun, né önnur þjóðþrifa
fyrirtæki í eigu almennings, á ekki
selja. Þau tryggja landsmönnum
vissa grunnþjónustu á hóflegu verði,
t.d. rafmagn, hita, nettengingu og
fleira og skapa auk þess arðgreiðslur
í þjóðarbúið. Efla þarf útflutning/
viðskipti í hinum ýmsu greinum t.d.
varðandi fiskeldi, hjá sprotafyr-
irtækjum, í tækni- og iðngreinum,
gagnavörslu og fleiru. Þar þarf það
opinbera að koma myndarlega að
verki varðandi starfsumhverfi og
fleira.
Efla landbúnað og aðra sjálfbærni
í landbúnaðarframleiðslu. Þar eru
margir möguleikar fyrir hendi. Gæta
þarf að hóflegri í aukningu ferða-
manna, þar er að ýmsu að hyggja t.d.
varðandi ágang á náttúruperlur okk-
ar og fleira. Veita frekar toppþjón-
ustu eins og gert er víða og byggja
þannig upp ferðaþjónustuna til fram-
tíðar í stað skyndigróða og gjald-
þrota. Hafa þarf í huga/tryggja að
ekki verið gengið á gæði lands og
sjávar í boðuðum framkvæmdum.
Við þurfum á því að halda að þjóð-
félaginu verði lyft upp á hærra plan á
ýmsum sviðum eins og frægt skáld
sagði forðum. Þar þurfa sem flestir
að koma að verki bæði á hinum póli-
tíska vettvangi og víðar. Tengja þarf
launastéttirnar meira við atvinnulífið
í landinu.
Það er hægt að gera með ýmsu
móti t.d. með möguleika á eignarhlut
í góðum fyrirtækjum og fleiru. Sem
sagt, meira samstarf í pólitíkina og
við fólkið í landinu.
Með því mun traust aukast gagn-
vart kjörnum fulltrúum á Alþingi og
þjóðfélagið/atvinnulífið líta bjartari
augum á framtíðina.
Þjóðfélagið kallar
eftir aðgerðum
Eftir Ómar G.
Jónsson
Ómar G. Jónsson
»Mörg og erfið mál
bíða úrlausnar svo
þjóðfélagið komist á
betra rekstrarskrið.
Höfundur er fulltrúi og áhugamaður
um uppbyggilegra þjóðfélag á ýmsum
sviðum.