Morgunblaðið - 25.06.2013, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
Ég var með smápartí um helgina, afmælisdagurinn sjálfurverður því frekar rólegur. Ég hélt bara upp á þetta fyrir-fram,“ segir Guðmundur Þór Valsson sem á þrítugsafmæli í
dag. Guðmundur er búsettur á Reyðarfirði, en þar er hann einnig
uppalinn. Hann starfar sem vélvirki hjá Launafli, sem er fyrirtæki
sem þjónustar álverið þar í bæ.
Þar sem Guðmundur tók forskot á sæluna um helgina verður deg-
inum eytt í vinnu. Hann er trúlofaður Guðrúnu Veigu Guðmunds-
dóttur og eiga þau soninn Val Elí. Valur er sex ára og afar spenntur
fyrir að byrja í skóla í haust.
Guðmundur er sveitamaður mikill og veit fátt betra en góða úti-
veru. „Ég stunda mikið skotveiði. Almenna og alla veiði,“ segir Guð-
mundur og áréttar að það sé fátt sem hann veiði ekki. Meðal annars
hefur hann farið á gæsa- og rjúpnaveiðar auk þess sem hann fer
reglulega á hreindýraveiðar. Hann á hreindýraveiðileyfi í ágúst og
hlakkar mikið til að fara. „Þetta er svo rosalega fínt, góð og mikil
útivera og fjallganga.“
Hann kveðst ekki vita hvað leynist í afmælispakkanum en telur
líklegt að kærastan viti hvað hann helst vill fá. „Ég væri frekar mik-
ið til í reiðhjól eða veiðistöng, en veit nú ekki hvort ég á von á slíku.“
sunnasem@mbl.is
Guðmundur Þór Valsson er þrítugur
Flottir feðgar Guðmundur Þór ásamt syni sínum, Val Elí. Þeir ætla
að eiga saman rólegan afmælisdag, enda búið að halda veislu.
Væri til í veiðistöng
í afmælisgjöf
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Sigrún Alda fæddist 26.
október kl. 6.51. Hún vó 3.855 g og var
50,5 cm löng. Foreldrar hennar eru
Guðlaug Jónsdóttir og Jón Theodór
Jónsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Rósey Nótt fæddist 31.
október kl. 17.32. Hún vó 17,5 merkur
og var 52 cm löng. Foreldrar hennar
eru Elna María Tómasdóttir og Arnór
Ingi Þórsson.
J
ónas fæddist á Sauð-
árkróki 23.6. 1938 og ólst
þar upp. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1958,
prófi í efnaverkfræði frá
TH München 1965 og Dr.rer.nat.-
prófi frá sama skóla 1967. Þá
stundaði hann framhaldsnám við
University of Cambridge 1967-68
og við TU Clausthal, Zellerfeld í
Þýskalandi, 1980-81.
Jónas var sérfræðingur á Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins 1968-
83. dósent við læknadeild HÍ 1971-
74, við verkfræði- og raunvís-
indadeild HÍ 1974-81, forstjóri
Framleiðslueftirlits sjávarfurða
1983-84 og deildarstjóri og yf-
irverkfræðingur á Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins 1984-99.
Hjá Rannsóknarstofnun fiskiðn-
aðarins stundaði Jónas m.a. rann-
sóknir og þróun á þurru laxafóðri
og á togþoli þorskflaka sem breyti-
stærðir háðar næringarástandi
fisksins o.fl.
Jónas var formaður launa-
málaráðs BHM 1972-74, formaður
BHM 1974-78 og formaður Nordisk
akademikerråd 1976-77. Hann var
formaður Landsmálafélagsins
Varðar 1984-89, sat í stjórn lagmet-
isiðjunnar Sigló 1974-78, sat í Vísi-
tölunefnd 1976-77, í skólastjórn
Fiskvinnuskólans 1976-95 og var
formaður hennar 1976-80. Hann
var varamaður í stjórn Sjúkrastofn-
ana Reykjavíkur 1986-94, forseti
NLFÍ 1987-91 og á sama tíma for-
maður Heilsustofnunar í Hvera-
gerði.
Jónas ritaði bækurnar Salt-
fiskverkun og Skreiðarvinnsla, og
er höfundur að handriti fyrir bók
um Saltsíldarverkun. Þá var hann
höfundur og/eða ritstjóri fjöl-
margra pistla Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins.
Manneldi á Íslandi áður fyrr
Jónas hefur skrifað fjölmargar
dagblaðsgreinar og var fastur kjall-
arahöfundur í Dagblaðinu og DV
um langt árabil.
Jónas lenti í alvarlegu slysi árið
1988 og hlaut varanlega þverlömun.
Hann hefur verið bundinn við
hjólastól síðan. Hann hefur síðar
tvisvar sinnum þurft að fara í erf-
iða uppskurði. Hann segist hafa
áhuga á nánast öllu milli himins og
jarðar en er um þessar mundir að
kynna sér og viða að sér efni um
manneldi á Íslandi fyrr á öldum.
Þá stundar hann heimildasöfnun
um forföður sinn, Bjarna Sívertsen
riddara, sem oft er nefndur faðir
Hafnarfjarðar og var frumkvöðull í
þilskipaútgerð og verslun hér á
landi: „Ég er nokkuð viss um að Ís-
lendingar fluttu mun meira inn af
kornmat en menn hafa gert sér
Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur – 75 ára
Safnar heimildum um
Bjarna Sívertsen riddara
Hjónin Jónas og eiginkona hans, Kristín Guðrún Hjartardóttir.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Rafmagnsbílar fyrir alla notkun
Stórir rafgeymar9
Breidd aðeins 1100 mm9
Góð reynsla á Íslandi9
Vesturvör 32, 200 Kópavogur • Sími 564 1600 • islyft@islyft.is • www.islyft.is