Morgunblaðið - 25.06.2013, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
Af ástæðum ótilgreindum,
ef til vill flóknum, leyndum
féll upphafslínan í Vísnahorni
niður í gær, svohljóðandi: „Ég rakst
á þennan miða í dóti föður míns.“
Þetta var slæmt vegna þess, að með
þessari tilvísun hafði ég tekið af
skarið um það, að þessi vísa væri
ort fyrir aldamótin síðustu, – e.t.v.
fyrir aldarfjórðungi síðan eða meir!
Hótel Örk eins og Hótel Jörð hefur
almenna skírskotun og af þeim sök-
um óviðkomandi þeim sem eiga og
reka Hótel Örk í dag og hlýt ég að
biðja þá afsökunar á brottfallinu,
þar sem ég hef orðið var við, að vís-
an hefur verið misskilin.
Enn fá skúrkarnir skyldug spörk
og skuldabyrðina þyngri og þyngri;
og Hótel Örk kaupir Hótel Örk
og Hótel Örk græðir á tá og fingri.
Þegar ég ákvað að taka upp
þessa vísu var það vegna þess að
hún er lýsandi fyrir þá fjár-
glæframenn sem hér léku lausum
hala á fyrsta áratug aldarinnar,
sem að síðustu olli hruninu. Faðir
minn skrifar að þessi vísa sé móðir
vísunnar „margan rakst hann á ref-
ilstíg....“ og kann ég ekki frekari
skil á henni.
Þessa vísu fann ég á miða:
Ef þú ætlar að reikna rétt
reyndu þetta að muna:
tölur geta tekið sprett,
torkennt útkomuna.
Og í Íslendingi 14. september
1928, sagan endurtekur sig::
Fjórir bolsaforingjar
feitar gæsir steikja
en innanmagrir öreigar
askinn tóman sleikja.
Árni frá Múla skrifaði Kristni
Jónssyni í Reykjavíkurapóteki á
bannárunum:
Þungan geng ég þrautastig,
þorstinn brennir kokið,
svo er ekki meir um mig,
mér er öllum lokið.
En .þarflegt væri, það ég finn,
þó að önd mín visni,
að hella í mig í hinsta sinn
hundaskammt frá Kristni.
Sigurður Þórarinsson orti:
Hæruskotin Herðubreið,
hrikalega ferleg;
einhvern tíma alla leið
upp á hana fer ég.
Jakob Böðvarsson brúarsmiður
orti (sléttubönd):
Þokan liðugt, fagurt fer
flughratt skarðið austur,
pokann sniðugt bleikur ber
burðarjálkur traustur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ekki verður við öllu séð
Hvort sem ekið er til borgarinnareftir Vesturlands- eða Suður-
landsvegi blasa við ökumönnum
nokkur hringtorg, meira að segja
svo mörg að Víkverji kann varla tölu
á þeim. Eftir aksturinn um Vest-
urlandsveg liggur við að fari að bera
á sjóriðu.
x x x
Hvað um það, hringtorgin erukomin til að vera og þau virðast
hafa sannað gildi sitt sem örygg-
istæki í umferðinni. Þau eru hins
vegar engin sérstök umhverfisprýði;
moldhaugar þaktir túnþökum víðast
hvar. Kunningjakona Víkverja fékk
þá góðu hugmynd að fegra mætti
þessi hringtorg með blómum eða
öðru skrauti sem ekki hefði truflandi
áhrif á útsýni ökumanna. Var hún þá
fyrst og fremst með hringtorgin á
Suðurlandsvegi í útjaðri Reykjavík-
ur í huga. Hafði hún samband við
borgaryfirvöld með sitt erindi en þar
vísaði hver á annan. Eftir japl, jaml
og fuður fengust loks þau svör að
ekki væri hægt að fara út í neinar
fegrunaraðgerðir nema að undan-
genginni hönnunarvinnu. Það vant-
aði bara að segja að fram þyfti að
fara breyting á deiliskipulagi og
senda blómabeðin í umhverfismat!
x x x
Víkverja féllust hendur við aðheyra þessi svör borgarinnar.
Eins og að fara þurfi í flókna hönn-
unarvinnu til að skella niður nokkr-
um blómabeðum á torgin. Varla er
mikill kostnaður við þetta og ekkert
að vanbúnaði fyrir borgina eða
Vegagerðina að bretta upp ermar og
ganga í verkið með sóma og sann.
Hér er engin þörf fyrir skrif-
finnskublæti og blýantsnagara.
x x x
Víkverji hefur þvælst nokkuð ámilli landshluta undanfarnar
vikur í ýmsum erindagjörðum.
Tvennt hefur komið upp í hugann á
þessum ferðum, annars vegar hve
vegakerfið er orðið slitið og úrsér-
gengið og hins vegar að varla sést
lögregla lengur á ferli í umferðareft-
irliti. Sorgleg dæmi um áhrif hruns-
ins, sem geta haft slæmar afleið-
ingar í för með sér fyrir
umferðaröryggi landsmanna.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig
styrkan gerir.
(Filippíbréfið 4:13)
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Að reiða sig á þekktar aðferðir og
stytta sér leið gerir manni kleift að ná
skjótari árangri. Allir hlutir kosta sitt en
það er forgangsröðin sem skiptir máli.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert með óþarflega miklar
áhyggjur af fjárhagnum en hann er ekki
eins slæmur og þú heldur. Leyfðu lífs-
gleði þinni að njóta sín.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert nú að taka til í eigin
garði og sérð hvað undir býr. Gefðu þér
tíma til þess að bera dýrindismat á borð
fyrir þig, ekki borða yfir vaskinum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Eitthvað óvænt mun sennilega
koma upp í vinnunni hjá þér í dag. Leystu
því eigin vandamál áður en þú fæst við
vanda annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú veist ekki hvaðan næsta snilld-
arhugmynd þín mun koma. Aðrir hafa
tekið ákvarðanir sem þú verður að sætta
þig við í dag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Finnist þér að gengið hafi verið á
rétt þinn skaltu sýna festu og rétta þinn
hlut. Taktu á þig rögg og leystu þau mál,
sem bíða afgreiðslu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér finnast samstarfsmenn þínir
halda aftur af þér og þig langar til þess
að slíta þig lausan. Mundu að það er tví-
stefna á vinaveginum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Lífið verður meiri dans á
rósum á næstunni en verið hefur. Nú er
lag að ná jafnvægi í samskiptum og
stuðla að gagnkvæmum skilningi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú finnur hjá þér hvöt til þess
að tala opinberlega fyrir hönd annarra.
Nú þegar þú þarfnast hennar réttir eng-
inn fram hönd.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert klár í því að sjá fyrir
þér fína framtíð og lifa þig inn í hana.
Leyfðu þér líka að slaka á og sletta úr
klaufunum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Taktu það rólega í dag. Hvað
sem gerist þá munt þú beita þér af meiri
tilfinningu en gengur og gerist.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Menn bíða í röðum eftir að eign-
ast vináttu þína. Bjóddu til veislu, farðu í
frí eða gerðu eitthvað skemmtilegt með
börnunum.
Í klípu
„VIÐ ÞURFUM ÖLL AÐ GERA MEIRA
FYRIR MINNA. ÉG GÆTI JAFNVEL ÞURFT
AÐ BJÓÐA UPP STRADIVARIUS.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVOR FÓTURINN ER ÞAÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... skrifuð í sandinn en
gegnheil eins og steinn.
HELGA BAUÐ ÆTTINGJUM SÍNUM Í
JÓLAMAT OG ÞAU MÆTA ALLTAF
SNEMMA TIL AÐ NÁ GÓÐU SÆTI.
HRÓLFUR, HVAÐA FÓLK
ER ÞETTA SEM ER
KOMIÐ Í RÖÐ FYRIR
FRAMAN HÚSIÐ ÞITT?
HALLÓ? HALLÓ?! JÁ! JÁ! ÉG ÆTLA AÐ FÁ
FRANSKAR!
OH, ÞRÝST-
INGURINN.