Morgunblaðið - 25.06.2013, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 25.06.2013, Qupperneq 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Breski gítarleikarinn Jeff Beck er jafnan talinn með þeim allra fremstu í rokksögunni, kallaður snillingur og goðsögn og vissulega vel að slíkum nafngiftum kominn. Nafn hans er þó ekki eins þekkt í dag og félaga hans Eric Clapton og Jimmy Page, en líkt og þeir öðlaðist hann fyrst frægð með hljómsveitinni The Yardbirds á sjö- unda áratugnum. Beck hefur sópað að sér verðlaunum og viðurkenn- ingum á ferli sínum sem spannar nú um hálfa öld. Hann hefur tvisvar sinnum verið gerður að hirðmanni í Frægðarhöll rokksins, Rock and Roll Hall of Fame, annars vegar árið 1992 sem liðsmaður The Yardbirds og hins vegar sem sólólistamaður árið 2009 og hefur fimm sinnum hlotið Grammy-verðlaun. Auk þess að leika á plötum ýmissa sögufrægra tónlist- armanna, m.a. Mick Jagger, Tinu Turner, Kate Bush, Stevie Wonder og Cindy Lauper, hefur Beck stofnað hljómsveitir og leikið með þeim, The Jeff Beck Group og Beck, Bogert & Appice. Á löngum ferli hefur hann reynt sig í hinum ýmsu stílum, hóf ferilinn í blúsrokki og hefur leikið þungarokk, djass og þannig mætti áfram telja. Beck virðist einfaldlega geta lagað sig að hverju sem er, al- gjörlega magnaður gítarleikari og mikill fengur að fá hann til landsins. Glæný hljómsveit Blaðamaður ræddi stuttlega við Beck í liðinni viku og var hann hinn ljúfasti í viðmóti. Að sjálfsögðu sneri fyrsta spurningin að því hvort hann hlakkaði ekki örugglega til að koma til Íslands en hann hefur aldrei haldið tónleika hér á landi áður. „Algjör- lega, yfir mig spenntur,“ svarar Beck. Hann fari sjaldan til Norð- urlanda og hafi aldrei komið til Ís- lands. En ætlar hann að gera eitthvað annað en að spila hérna? „Nei, við komum degi fyrir tónleikana og verð- um að fara til Noregs eftir þá,“ svar- ar Beck, nokkuð svekktur yfir því að fá ekki að dvelja á landinu lengur. Hvað ætlið þið að spila á tónleik- unum hérna, hvað er á efnisskránni? „Ég var að vona að þú myndir ekki spyrja að því, þetta er svo að segja glæný hljómsveit. Við æfum fram til 26. júní og þá verður lagalistinn klár. En eins og staðan er núna þá spilum við bara það sem virkar með þessari liðsskipan,“ segir Beck pollrólegur en auk hans eru í hljómsveitinni Rhonda Smith, bassaleikari Prince, Jason Re- bello sem leikur á hljómborð og hefur m.a. leikið með Sting, Jonathan Jose trommuleikari en hann hefur m.a. leikið með Ricky Martin og fiðluleik- arinn Elisabeth Ball. Beck segir obbann af lögunum verða af plötum hans en hann hefur sent frá sér 16 hljóðversskífur í gegn- um tíðina. Hann segir síðustu þrjár plöturnar einkum verða áberandi og plötur sem hann gaf út á áttunda ára- tugnum. Og vissulega verði blúsinn í forgrunni, bæði þekkt blúslög og blúsáhrif í flutningnum enda eigi gít- arleikur hans rætur sínar í blám- anum. Tónleikarnir eru hluti af herferð Endgame, samtaka sem helga sig baráttunni gegn útbreiðslu HIV- veirunnar, malaríu og berkla í heim- inum. Hvað kom til að þú ákvaðst að taka þátt í þeirri herferð? „Tim Matthews, skipuleggjandi þessara tónleika, er vinur vinar míns í Devonshire og þessi vinur minn þrýsti á mig að taka þátt,“ segir Beck. Eftir að hafa verið beðinn ítrekað að spila hafi hann slegið til. Beck segist hafa verið hikandi í fyrstu af því honum hafi ekki þótt hann nægilega vel undirbúinn, hljóm- sveitin ekki tilbúin í slaginn og svo hafi hann þurft að sinna öðrum verk- efnum. „Bara óþolandi“ Einhvers staðar las ég að þú værir fullkomnunarsinni? „Nei, bara óþolandi,“ svarar Beck og hlær. Hann sé öllu heldur ákveð- inn í sinni listsköpun, viti hvað honum líkar og hvaða hljómi hann vill ná. Á lista tímaritsins Rolling Stone árið 2011 yfir bestu gítarleikara rokksögunnar hrepptir þú fimmta sæti … „Ja, það er nú bara vinsældakönn- un eða það vona ég.“ Ég efast nú ekki um að þú eigir þetta skilið … „Tja … Keith Richards var ofar en ég á listanum,“ svarar Beck, skelli- hlær og sendir kollega sínum væna sneið en Richards var í fjórða sæti listans, sæti ofar en Beck. „Mér er sama um Hendrix og svona en mér finnst svona kannanir algjörlega út í hött. Allir eru með sinn sérstaka stíl, ólíkir innbyrðis og hver getur dæmt um það hvað er best í rokki? Þetta hefur enga merkingu,“ segir Beck en Jimi Hendrix vermir toppsæti listans. Talið berst að Beck sem fyrir- mynd, að margur ungur gítarleik- arinn vildi gjarnan ná sömu hæðum og hann í túlkun sinni. „Auðvitað og vonandi eru þeir með eigin stíl. Það tók mig heillangan tíma að móta minn persónulega stíl. Ég hlustaði á afar fjölbreytta tónlist og reyndi að finna mér rödd í þeim frumskógi inn- blásturs. Ég reyndi ekki að stæla aðra og gera það að lifibrauði.“ Áttu einhver heilræði handa ung- um gítarleikurum? „Maður þarf að vera mjög hug- rakkur og ég mæli með því að þeir velji sér annað starf til vara. Ég fæ ekki séð, eins og staðan er í dag, að gítarinn verði jafnöflugur í framtíð- inni og hann hefur verið í 40-50 ár. Hann hvarf dálítið á níunda áratugn- um en sótti svo aftur í sig veðrið af því fólk dýrkar hann. En það eru svo margir þrjótar á ferðinni og ég ráð- legg mönnum að hafa varann á þegar af stað er haldið.“ Lét gítarinn æla Á fyrstu sólóplötunni þinni, Truth frá árinu 1968, má finna texta eftir þig á bakhliðinni og þar segir þú m.a. að lögin séu líklega þau dónalegustu sem tekin hafi verið upp, best sé að hlusta á þau annaðhvort reiður eða í vímu og að síðasti hljómurinn í lagi sé gítarinn þinn að kasta upp. Hvernig veiktist gítarinn? Beck hlær. „Ég gekk fram af skælifetlinum og þetta hljómaði eins og einhver væri að æla,“ segir hann. Hann hafi viljað ná fram ákveðnum ofsa og reiði í gítarleiknum. „Þar hlýtur þungarokk að eiga rætur sín- ar,“ bendir Beck á, það hafi lítið verið að gerast í slíkum gítarleik á þeim tíma. „Ég vildi gera blúsinn ágeng- ari,“ ítrekar hann. Hlaustu harða gagnrýni í breskum fjölmiðlum fyrir þessa nálgun á sín- um tíma? „Ábyggilega, það var sífellt verið að ráðast á mig, vikulega að því er virtist. Ég féll ekki í kramið hjá bresku tónlistarpressunni, fannst ég vera utangarðs og finnst það enn,“ segir Beck. Hann hafi hlotið meiri viðurkenningu utan heimalandsins. Borinn í blámanum  Gítargoðsögnin Jeff Beck heldur tónleika ásamt hljómsveit í Vodafonehöllinni á fimmtudaginn, 27. júní  Gefur lítið fyrir það að vera fimmti á lista Rolling Stone yfir bestu gítarleikara rokksögunnar AFP Fjölhæfur Gítarleikarinn Jeff Beck á tónleikum í Las Vegas, 20. apríl sl. Honum er margt til lista lagt því auk gít- arleiks stundar hann listmálun í frístundum og gerir upp gamla bíla og hús, að eigin sögn. Beck varð 69 ára í gær. Þeir sem vilja kynna sér fingrafimi Becks geta m.a. gert það á mynd- bandavefnum YouTube og ýmsan fróðleik um kappann má finna á vefsíðunni jeffbeck.com. Miðasala á tónleika Beck í Voda- fonehöllinni fer fram á midi.is. Upphafsárin Hljómsveitin The Yardbirds árið 1966, frá vinstri þeir Jeff Beck, Jimmy Page, Chris Dreja, Keith Relf og Jim McCarty.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.