Morgunblaðið - 25.06.2013, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni
og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi | Skóhöllinni Firði,
Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi
Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Mössuskór, Akureyri
Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn
í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum
Skóbúðin, Keflavík
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Góðar sögur og vel skrifaðar sögu-
persónur geta haft slíkan mátt að
þær fanga algjörlega lesandann hvort
sem það eru sögur af hetjum sem ríða
um héruð með skrautbúin skip fyrir
landi eða goðsagnakenndar ofurhetj-
ur sem þeysast um háloftin, mann-
kyninu til bjargar.
Súpermann er án vafa ein vinsæl-
asta ofurhetja síðari tíma. Saga þessa
einstaka manns sem kemur frá ann-
arri plánetu, plánetu og menningu
sem er horfin í hyldýpi tímans, hefur
fangað athygli og ímyndunarafl millj-
óna einstaklinga um allan heim frá
því fyrsta teiknimyndasagan um of-
urhetjuna kom út árið 1938.
Þrívíddarteiknarinn og einkaþjálf-
arinn Anton Eyþór Rúnarsson heill-
aðist ungur af ofurhetjunni sem hefur
verið hans fyrirmynd frá fyrstu kynn-
um. „Styrkur hans og kraftar heilla
ekki síður en einstaklingurinn sem
hann hefur að geyma. Karakterinn er
alveg einstakur og ótrúlega vel skrif-
aður. Þetta er saga einstaklings sem
þarf að kljást við uppruna sinn og of-
urkrafta en um leið er hann að móta
þau góðu gildi sem hann sýnir okkur
að allir hafa innra með sér,“ segir
Anton, sem fékk sín fyrstu Súper-
mann-náttföt sex mánaða gamall og
segir að eftir það hafi ekki orðið aftur
snúið.
Eins og Súperman í ræktinni
Ofurhetjur hafa alltaf verið fyr-
irmyndir ungra manna að einhverju
marki. Þær fljúga um loftin blá,
sveifla sér milli bygginga eða eru um-
vafðar tækjum og tólum sem hjálpa
þeim að komast úr erfiðum aðstæð-
um. Þá eru þær fórnfúsar og berjast
fyrir réttlæti og frelsi. Anton segir
Súpermann alltaf hafa verið sína fyr-
irmynd og ástæðan fyrir því að hann
fór í líkamsrækt. „Ég var aldrei í
íþróttum sem barn en um leið og ég
hafði aldur til að fara inn í lyftingasal
byrjaði ég að æfa enda vildi ég verða
eins og fyrirmynd mín, Súpermann.“
Anton segir Súpermann góða fyrir-
mynd bæði fyrir lyftingarnar og lífið
sjálft. „Súpermann endurspeglar það
góða og sýnir okkur að allir menn
hafa gott í sér. Hann er mín fyrir-
mynd bæði í lyftingasalnum og lífinu
sjálfu.“
Anton getur þó ekki neitað því að
hann lítur einnig til bróður síns,
Ingva Rúnarssonar, sem fyrir-
myndar en hann kynnti Anton fyrir
lyftingasalnum og er ekki síðri aðdá-
andi Súpermans en hann. „Ingvar
kynnti mig fyrir lyftingunum og hef-
ur hjálpað mér fyrir vaxtarrækt-
arkeppnir. Hann á líka álíka stórt
Súpermann-safn og ég og hefur látið
húðflúra Súpermann-merkið á
bringuna.“
Nýja myndin mjög góð
Það hefur reynst mörgum leik-
stjórum erfitt að endurgera sögu-
heima og persónur sem áður hafa
hlotið vinsældir á hvíta tjaldinu. Þá
eru það oft dyggustu aðdáendurnir
sem eru hörðustu gagnrýnendurnir.
Anton er þó mjög ánægður með Súp-
ermann-myndina Man of Steel. „Mér
finnst vel hafa tekist til að nútíma-
væða Súpermann. Vissulega eru
ákveðin þáttaskil í myndinni og per-
sónu Súpermanns,“ segir Anton og
vísar þá meðal annars til nærbuxna-
leysis ofurhetjunnar en rauða brókin
er horfin eða hugsanlega komin inn-
fyrir búninginn.
Antoni fannst myndin það góð að
hann fór á hana tvisvar sama kvöldið.
„Ég vann VIP-miða á forsýningu
myndarinnar hjá Sambíóunum og
bauð kærustunni með mér á hana en
síðan fórum við strax á eftir á Nexus-
forsýninguna.“
Áhugi Antons og bróður hans hef-
ur ekkert minnkað með árunum og
eiga þeir bræður báðir stór Súper-
mann-söfn þar sem má finna plaköt,
myndir, boli, styttur o.fl. sem tengist
ofurhetjunni. Nú bíða þeir spenntir
eftir næstu mynd.
Ofurhetjan sem
elskar Súpermann
Súpermann er fyrirmyndin í ræktinni og lífinu sjálfu
Súpermansafnið Einkaþjálfarinn og þrívíddarteiknarinn Anton Eyþór Rúnarsson á eitt stærsta Súpermann-safn
landsins en í því er að finna styttur af ofurhetjunni, boli með Súpermanmerkinu, teiknimyndasögur o.fl.
Spúermanbræðurnir Anton Eyþór
og Ingvar Rúnarssynir.