Morgunblaðið - 25.06.2013, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2013
SCREEN- OG
RÚLLUGARDÍNUR
Henta vel þar sem sól er mikil
en þú vilt samt geta séð út
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Meira úrval
Meiri gæði
Íslensk
framleiðsla
eftir máli
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
MANOFSTEEL3D KL.5-8-11
MANOFSTEEL2D KL.4:30-7:30-10:10-10:30
MANOFSTEELVIP KL.5-8-11
PAINANDGAIN KL.5:20-8-10:40
NOWYOUSEEME KL.8-10:30
HANGOVER-PART3 KL.5:50-8
IRONMAN3 3D KL. 5:20
KRINGLUNNI
MANOFSTEEL 3D KL. 5 - 8 - 11
MANOFSTEEL 2D KL. 5 - 10:30
PAIN ANDGAIN KL. 8 - 10:40
NOWYOUSEEME KL. 5:30 - 8
MANOF STEEL 3D KL. 5 - 8 - 11
MANOF STEEL 2D KL. 6 - 9
PAIN AND GAIN KL. 8 - 10:40
NOW YOU SEEME KL. 5:30 - 8 - 10:30
HANGOVER - PART 3 KL. 5:50
NÚMERUÐ SæTI
KEFLAVÍK
MANOFSTEEL3D KL.8-11
MANOFSTEEL2D KL.5
PAINANDGAIN KL.10:30
NOWYOUSEEME KL.8
EPIC íslTal2D KL.5:50
AKUREYRI
MANOFSTEEL 3D KL. 5 - 8 - 11
PAIN ANDGAIN KL. 8
NOWYOUSEEME KL. 10:40
HANGOVER - PART 3 KL. 5:50
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
“PURE SUMMERMAGIC”
ÓVæNTASTI SMELLUR ÁRSINS
„DREPFYNDIN GLæPAGRÍNMYND“
„FYNDNASTA MYND SEM
ÉG HEF SÉÐ Í ÁR.“
NEW YORK POST
T.V. - BÍÓVEFURINN
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ERU GRJÓTHARÐIR Í ÞESSARI FRÁBæRUMYND
OG VINSæLASTI GRÍNÞRÍLEIKUR ALLRA TÍMA!
FRÁBæR GRÍNMYND
NEW YORK DAILY NEWS
FRÁ CHRISTOPHER NOLAN ÁSAMT Z. SNYDER KEMUR STæRSTA MYND ÁRSINS
MAGNAÐASTA BÍÓUPPLIFUN ÞESSA ÁRS!
“SPECTACULAR”
EMPIRE
“GLæSILEG
OFURHETJUMYND”
H.S.S. - MBL
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
ÞRI
ÐJU
DAG
STI
LBO
Ð
Tveir miðaldra sölumenn(Vince Vaughn og OwenWilson) komast að því áneyðarlegan hátt að þeir
eru atvinnulausir. Nú eru góð ráð
dýr, því sölumennirnir eru of gamlir
til þess að „meika það“ á hörðum
vinnumarkaði. Þeir deyja þó ekki
ráðalausir og ná að kjafta sig inn á
starfsþjálfun hjá ekki minna fyrir-
tæki en Google. Þar kemur í ljós að
þeir þurfa að keppa í liðakeppni við
um 200 krakka, nýskriðna úr há-
skóla sem kunna allt í forritun en
ekkert um lífið. Þeir aftur á móti vita
allt um lífið en ekki neitt um neitt
sem tengist því sem Google gerir.
Sölumennirnir þurfa því að taka á
honum stóra sínum, ásamt liðs-
félögum sínum, fjórum nördum sem
enginn annar vill vera með í liði, ef
þeir ætla sér að fá fast starf hjá
Google.
Grunnhugmyndin er góð og þeir
Vaughn og Wilson hafa áður sýnt að
þeir mynda skrambi gott gríntví-
eyki. Ekkert er heldur klassískara
en að setja slíka menn í aðstæður
þar sem þeir eru fiskar á þurru
landi. Myndin er raunar nánast gerð
eftir formúlunni og fátt sem kemur á
óvart í framvindu sögunnar.
Þrátt fyrir að myndin eigi góða
spretti hefði hún mátt vera fyndnari
á köflum og eyða minna púðri í mis-
„hugljúf“ augnablik milli liðsfélag-
anna. Google er gert fullhátt undir
höfði en myndin er gerð í náinni
samvinnu við fyrirtækið og kemur
því stundum út eins og auglýsing í
fullri lengd. Þá örlar á kvenfyrirlitn-
ingu en myndin kolfellur á öllum
Bechdel-prófum. Konurnar í mynd-
inni eiga tilvist sína því að þakka að
einhverjum í handritsteyminu
fannst vanta ástarsögu í myndina.
Það var hins vegar rangt og í staðinn
fyrir þær sterku, gáfuðu kvenhetjur
sem myndin hefði getað boðið upp á
fáum við konur með frábæra mennt-
un en innantómt karlmannslaust líf.
John Goodman lífgar upp á mynd-
ina í þeim tveimur atriðum sem hann
birtist í og Will Ferrell á skemmti-
lega innkomu. Max Minghella leikur
„vonda gæjann með breska hreim-
inn“ af stakri list. Það eru einna
helst liðsfélagar þeirra Vaughns og
Wilsons sem valda vonbrigðum.
Enginn af karakterunum er nægi-
lega vel skrifaður til þess að skara
fram úr og það er líkt og myndin geti
ekki ákveðið sig hvort við eigum að
hlæja að þeim eða með þeim.
Þrátt fyrir þá galla sem hér hafa
verið taldir upp var The Internship
nokkuð fín afþreying. Myndina
skortir hins vegar herslumuninn til
þess að geta talist virkilega eftir-
minnileg gamanmynd.
Tvíeyki „Grunnhugmyndin er góð og þeir Vaughn og Wilson hafa áður sýnt
að þeir mynda skrambi gott gríntvíeyki,“ segir m.a. um The Internship.
Misfyndin auglýsing
í fullri lengd
Laugarásbíó
The Internship bbmnn
Leikstjóri: Shawn Levy. Aðalleikarar:
Vince Vaughn, Owen Wilson, Rose
Byrne, Aasif Mandvi, Max Minghella,
Josh Brener, Dylan O’Brien, Tiya Sircar
og Tobit Raphael. Handrit: Vince
Vaughn og Jared Stern. Bandaríkin
2013. 119 mínútur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Alex Winehouse,
bróðir söngkon-
unnar Amy
Winehouse, sem
lést árið 2011 að-
eins 27 ára göm-
ul, kennir lotu-
græðgi um
dauða hennar.
Óhófleg áfeng-
isneysla og lyfja-
fíkn hafði vissu-
lega sín áhrif og átti þátt í
ótímabærum dauða hennar, segir
hann í samtali við Observer-
tímaritin, en langvarandi lotugræði
hafi rænt hana öllu mótstöðuafli.
„Það hvernig hún lifði lífinu
hefði að lokum rænt hana lífinu, en
í raun var það lotugræðgin sem
drap hana,“ segir hann.
Alex Winehouse var fjórum árum
eldri en Amy og stýrir nú, ásamt
föður þeirra, stofnun í nafni söng-
konunnar sem styrkir forvarna-
starf meðal ungmenna.
Um helgina var opnuð sýning um
Amy Winehouse í Jewis Museum í
London. Henni skaut hratt upp á
stjörnuhimininn, hún vann til fimm
Grammy-verðlauna og plötur henn-
ar seldust í bílförmum. En að sögn
Alex var sjálfseyðingarhvöt hennar
sterk og hafði sigur.
Bróðir Amy Winehouse segir lotugræðgi
hafa í raun dregið hana til dauða
Amy Winehouse
Ástralska poppstjarnan Kylie Mi-
nogue mun að öllum líkindum fá
bandaríska rapparann Jay-Z til
samstarfs við sig á næstu plötu
sinni, skv. frétt á vef NME. Minogue
gerði nýverið útgáfusamning við
fyrirtæki Jay-Z, Roc Nation, og
segir í fréttinni að Jay-Z verði gest-
ur í einu laga plötunnar væntan-
legu. Haft er eftir ónefndum heim-
ildarmanni að Jay-Z sé mikill
aðdáandi Minogue. Þá hafa einnig
borist fréttir af því að Pharrell
Williams komi að plötusmíðinni.
Liðstyrkur Minogue fær öfluga
menn til liðs við sig á næstu plötu.
Jay-Z og Pharrell á
plötu Minogue
Hljómsveitin Mezzoforte leikur á
undan Jeff Beck og hljómsveit á
tónleikum Becks í Vodafonehöllinni
27. júní nk. Um tónleika Mezzoforte
segir í tilkynningu að um einstakan
viðburð sé að ræða því hljómsveitin
verði skipuð upprunalegum með-
limum, þeim Eyþóri Gunnarssyni
sem leikur á hljómborð, Friðriki
Karlssyni gítarleikara, Gulla Briem
trommuleikara og Jóhanni Ás-
mundssyni bassaleikara. Aðdá-
endur Mezzoforte mega því ekki
missa af þessum tónleikum sveit-
arinnar þar sem hún kemur fram í
þetta eina skipti í sinni upp-
runalegu mynd. Ungir Mezzoforte-menn árið 1977, þeir Friðrik, Gulli, Eyþór og Jóhann.
Mezzoforte í upp-
runalegri mynd