Morgunblaðið - 06.07.2013, Síða 10

Morgunblaðið - 06.07.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2013 fi p y j g p Carpaccio með valhnetu-vinaigrette og klettasalati Grafið lam Villibráðar-paté með paprik Bruchetta með tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparrótars Bruchetta með hráskinku, balsam og grill uðu Miðjarðarhafsgrænm - salat fersku k r y d d j u r t u m í brauðbo með Miðjarða Risa-rækj með peppadew Silu með japönsku majón si sinnepsrjóma- osti á bruchet Hörpuskeljar, 3 smá Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og fersku Vanillufylltar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarb Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R sahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti m Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er alltaf það sama, glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð. Persónuleg og góð þjónusta. Sími 511 8090 • www.yndisauki.is Leikarinn Nilli bregður sér í ólík hlutverk með Vesturporti. Hér er hann ballerína í Voyzeck . Í Faust lék hann eldri mann og konu í Húsmóðurinni. Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Ég hef alltaf öðru hvorumálað blóm en aldreiverið með blómasýninguáður. Ég mála aðallega villt blóm og mig langar til að fanga fegurð blómanna, sýna að þau geta í raun verið ólíkir karakt- erar og mig langar líka til að heilla áhorfendur,“ segir listmálarinn Jó- hannes Níels Sigurðsson eða Nilli eins hann er alltaf kallaður. Nilli hefur málað olíumálverk frá því hann var aðeins fimmtán ára en myndmenntakennari hans í Haga- skóla greindi hjá honum hæfileika og hvatti hann til að leita inn á þessa listabraut. „Ég byrjaði mjög fljótt að herma eftir myndum gömlu meistaranna og ég myndi segja að það sé í raun mjög góður skóli. Ég hef líka alltaf heillast af realistum og sérstaklega þeim sem voru að mála á 19. öldinni. Það eru yfirleitt mjög vel málaðar myndir. Þá er skítugt fólk málað skítugt í framan og fátæktin sést en ekki bara fína fólkið. Tæknin á bak við málaralistina hefur líka alltaf heill- að mig á sama tíma og ímynduð til- vera truflar mig. Ég þoli til dæmis ekki illa unnin málverk og til þess að heillast af abstraktverkum þarf tæknin að vera mjög flott eða merkingin á bak við þau mjög góð. Það kemur alveg fyrir að mér finn- ist abstraktverk góð en það er afar sjaldan.“ Villt blóm römmuð inn í rekavið „Ég á oft erfitt með að skilgreina mig og veit ekki hvað ég á að kalla mig,“ segir listmálarinn, fimleikaþjálfarinn, leik- arinn og kennarinn Jóhannes Níels Sigurðs- son. Hann opnaði nýlega málverkasýningu á Café Energiu í Smáralind þar sem áherslan er lögð á villt blóm og íslenska fánann. Listamaðurinn Jóhannes Níels Sigurðsson eða Nilli eins og hann er alltaf kallaður, hrífst af villtum blómum en á erfitt með að mála þau á veturna. Ljósmynd/Eddi fyrir Vesturport Morgunblaðið/Ómar Capoeira er afró-brasilísk bardagalist með fimleikaívafi. Capoeira á uppruna sinn að rekja til Afríku þegar afrískir þrælar voru að skipuleggja uppreisn á 17. öld. Þeir máttu ekki berjast en vildu æfa bardagalist. Þeir dulbjuggu því æfingarnar sem dans og notuðust við tónlist á meðan. Ef þér leikur forvitni á að vita meira um þessa áhugaverðu íþróttagrein þá er sérstakur byrjendatími í dag klukk- an 11 með brasilísku meisturunum An- gelo Capacete og Mestre Strong þar sem þeir fara yfir undirstöðuatriðin. Æfingar Capoeira fara fram í Crossfit Krafti á Suðurlandsbraut. Í kvöld ætla síðan Capoeira-aðdáendur og iðk- endur á Íslandi að halda upp á vel heppnaða önn með gleði á Faktorý. Það verður Capoeira-sýning og Macu- lélé ásamt fjölbreyttri tónlist. Vefsíðan www.facebook.com/CapoeiraaIslandi Capoeira Áhugasamir fá tækifæri til að kynna sér bardagalist í dag. Capoeira-gleði í kvöld Ilmurinn mun að öllum líkindum fylla vit þeirra er leggja leið sína á Lækjartorg nú um helgina. Ákveðið hefur verið að halda matarmarkað á Lækjartorgi á öllum laugardögum júlímánaðar á milli 11 og 16. Viðburðirnir eru á vegum um- hverfis- og skipulagssviðs borg- arinnar og er von á miklum fjöl- breytileika fyrir bragðlaukana. Meðal þeirra sem munu taka þátt í markaðinum eru rekstraraðilarnir Sæluostar úr sveitinni, Svandís Kandís, Saltverk, Sandholt, Bergs- son mathús og Búrið. Meðal þess sem verður á boðstólum er brauð, sætabrauð, ávextir, grænmeti, ostar, ólívur, þurrkað kjöt auk tilbúins mat sem hægt er að njóta á torginu eða taka með heim í boxi. Það er Eirný hjá ostaversluninni Búrinu sem skipuleggur markaðinn en hún hefur mikla reynslu af mark- aðshaldi, jafnt hér á landi sem og erlendis. Lagt verður upp með að gera markaðinn eins skemmtilegan og lifandi og hægt er. Fengnar verða hljómsveitir til að spila fyrir gesti og gangandi en það er sveitin White Signal sem mun ríða á vaðið í dag. Endilega... ... skellið ykkur á matarmarkað Morgunblaðið/Valdís Thor Markaður Lækjartorgið mun að öllum líkindum ilma alla laugardaga í júlí. Í dag verður haldið 18 holu Texas Scramble-golfmót á Úthlíðarvelli. Glæsileg verðlaun í boði. Einnig verður haldið upp á 20 ára afmæli Golfklúbbsins og veisla verður í Rétt- inni í kvöld sem um leið er afmælis- veisla Björns bónda í Úthlíð. Dans- leikur með Siggu Beinteins og Grétari Örvarssyni verður að loknum hátíðarkvöldverði. Mótsskráning á www.golf.is. Endilega… …farið á golf- mót í Úthlíð Golf Skemmtileg íþrótt úti í náttúru. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.