Morgunblaðið - 06.07.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.07.2013, Blaðsíða 29
mér, maður sem ég leit ávallt upp til og mun alltaf gera. Þó að mér þyki það sárt að hann sé farinn þá er ég samt ánægð fyrir hans hönd að veikindi hans tók fljótt af þar sem hann hafði alltaf verið hraustur og hann kunni sko alls ekki við allt þetta til- stand í kringum sig. Ég er ánægð að hafa fengið að kynnast honum og fengið þann tíma sem ég fékk, um meira get ég ekki beðið. Kveðja, Guðbjörg. Þegar þessi orð eru skrifuð spretta fram ótal góðar og skemmtilegar minningar um kynni mín af Ragnari Guðjóns- syni, bónda í Syðri-Kvíhólma. Sumarið 1996 gerðist ég ráðs- kona í Kvíhólma og Ragnar tók mér og Illuga syni mínum, sem þá var fimm ára, afskaplega vel. Sumrin sem við dvöldum þarna urðu átta talsins og við mæðg- inin litum á Kvíhólma sem okkar annað heimili. Eftir að ég hætti að vinna hjá honum reyndi ég að heimsækja hann hvenær sem færi gafst og alltaf var jafn gott að koma í sveitina. Ragnar reyndist alls ekki vera eins fá- máll og einhverjir höfðu sagt mér að hann væri. Við sátum oft langt fram á nótt að ræða heims- ins mál og Ragnar hafði alltaf frá einhverju að segja. Hann var vel lesinn og víðsýnn, hafði mik- inn áhuga á frásögnum af fólki og las gjarnan ævisögur. Hann hlustaði mikið á útvarp og las blöðin, fylgdist vel með fréttum og hafði sínar skoðanir á þjóð- málunum. Það var oft gaman að sitja og hlusta á hann segja frá liðinni tíð og margar af þeim merkilegu sögum sem hann sagði mér koma reglulega upp í kollinn. Það þurfti ekki mikið til að gleðja Ragnar. Hann vildi engar gjafir eða fyrirhöfn, en gladdist þó yfir nýsteiktum pönnukökum, fiskibollum og öðru góðgæti. Eins gladdist hann yfir heimsóknum afa- og langafabarnanna og sýndi mér oft myndir af þeim. Hann hafði líka góða kímnigáfu og einstak- lega fallegt bros. Ragnar kenndi mér margt, bæði varðandi vinnu og einnig almenn lífsviðhorf. Ég hef aldrei kynnst manneskju sem tók því sem að höndum bar af eins miklu jafnaðargeði og æðruleysi og Ragnar gerði. Hann fann aldrei til öfundar, hreykti sér ekki af neinu og lagðist til hvílu hvert kvöld í sátt við Guð og menn. Eins var hann alltaf meðvitaður um eigin getu og minnkaði við sig vinnu eftir því hvað heilsan leyfði. Ekki gætti biturleika eða neikvæðni hjá honum þegar aldurinn færð- ist yfir, þó hann hefði æ minni getu til að sinna þeim störfum sem hann hafði gert alla tíð. Ragnar var góður bóndi og annt um að yrkja jörðina. Hann hugs- aði af alúð og vandvirkni um dýrin sín og vélarnar og lagði mikla áherslu á að borið væri á túnin og að vel væri hirt um þau. Hann hafði gott verksvit og kenndi mér margt sem nýtist í mínu starfi sem sauðfjárbóndi í dag. Það var líka fátt notalegra en morgunmjaltirnar á fallegum sumardegi í Kvíhólma og ég hugsa til þeirra sem einhverra af mínum bestu stundum. Ragnar var snyrtimenni, hélt hreinu í kringum sig og hirti sjálfur um sig að langmestu leyti þar til hann flutti á Kumbaravog síðast- liðið haust. Það væri hægt að halda lengi áfram að telja upp góða kosti Ragnars, segja af honum skemmtilegar sögur og vitna í hans frásagnir. En upp úr stendur að það að hafa kynnst og fengið að vinna með slíkum manni eru forréttindi sem ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa notið. Um leið og ég votta Rannveigu og fjölskyldu samúð mína kveð ég Ragnar í Kvíhólma með virðingu og þakklæti. Andrea Marta Vigfúsdóttir. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2013 ✝ Dóra HannaMagnúsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 27. júní 1925. Hún lést á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum 30. júní 2013. Foreldrar henn- ar voru Halldóra Valdimarsdóttir, f. í Bolungarvík 9. júlí 1903, d. 11. júní 1942, og Magnús Bergsson, bak- arameistari og útgerðarmaður, f. í Reykjavík 2. október 1898, d. 9. desember 1961. Systkini Dóru voru: Bergur, f. 1927, d. 1942, Þóra, f. 1930, Júlíus Gísli, f. 1938, d. 1968 og Halldór Sigurður, f. 1942. Dóra Hanna giftist 2. október 1947 Sigmundi Andréssyni bak- arameistara, f. á Eyrarbakka 20. ágúst 1922. Foreldrar hans voru Kristrún Ólöf Jónsdóttir, f. 22. maí 1881, d. 22. september 1934, og Andrés Jónsson, f. 18. október 1896, d. 21. nóvember 1978. Börn Dóru Hönnu og Sigmundar eru: 1) Dóra Bergs, f. 1944, gift Sig- mari Magnússyni, f. 1948, börn þeirra: a) Hlynur, f. 1969, kvænt- ur Soukaina Nigrou, f. 1990, börn hans eru Kateryna, f. 1993 og Richard Óskar, f. 2003; b) 2000; c) Agnes Sif, f. 1973, dóttir hennar er Saga Sif, f. 2013; d) Guðrún Heba, f. 1989, d. 2009; e) Ágúst Örn Gíslason, f. 1976; 4) Óskar, f. 1964, kvæntur Oddnýju Huginsdóttur, f. 1967, börn þeirra eru a) Huginn, f. 1993, b) Ástrós, f. 1997 og c) Ósk, f. 2001. Dóra Hanna ólst upp í Vest- mannaeyjum og bjó þar alla ævi. Hún stundaði nám í Versl- unarskóla Íslands en námið hlaut þó skjótan endi. Sumarið eftir fyrsta námsárið lést móðir henn- ar, Halldóra, bróðirinn Bergur og Bergur afi hennar. Faðir Dóru Hönnu stóð þá uppi einn með fjögur börn. Dóra Hanna, þá 17 ára, var elst en yngsta barnið var nýfæddur bróðir hennar, Halldór. Ákveðið var að Dóra Hanna tæki við búsforráðum en námið yrði að bíða. Dóra Hanna lærði snemma að taka ábyrgð á sjálfri sér og öðrum. Í því mik- ilvæga hlutverki stóð hún sig með mikilli prýði. Auk uppeldis- og heimilisstarfa var ævistarf Dóru Hönnu við störf í Magnúsarbakaríi sem þau hjón ráku lengi en faðir hennar stofn- aði það 23. janúar 1923. Hún tók virkan þátt í félagsmálum með kvenfélaginu Líkn og Oddfellow. Þau hjónin voru meðal þeirra fyrstu er fluttu aftur út í Eyjar eftir eldgosið 1973 og tóku virk- an þátt í uppbyggingunni í Eyj- um eftir gos. Útför Dóru Hönnu fer fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum í dag, 6. júlí 2013, kl. 14. Dóra Hanna, f. 1974, gift Sighvati Jónssyni, börn þeirra eru Gabríel, f. 1998, Elmar Elí, f. 2005 og Embla Dís, f. 2010; c) Heiðrún Björk, f. 1977, gift Vilberg Eiríkssyni, börn þeirra eru: Ar- on Ingi, f. 2007 og Arnar Gauti, f. 2009; d) Andrés Bergs, f. 1980; 2) Bergur Magn- ús, f. 1947, börn hans eru a) Magnús, f. 1967, kvæntur Unu Sigríði Gunnarsdóttur, f. 1968, dóttir þeirra er Maren Júlía, f. 2003; b) Sturla, f. 1973, börn hans Sóley María, f. 2001 og Kristján Rúnar, f. 2008; c) Ívar Örn, f. 1976, synir hans Bergur Andri, f. 2003 og Hávarður Arn- ar, f. 2005; d) Ingibjörg Reyn- isdóttir, f. 1971, í sambúð með Emil Þór Jónssyni, f. 1976, börn þeirra eru a) Kristjana Lind, f. 2005, b) Ísak Kári, f. 2010; 3) Andrés, f. 1949, börn hans eru a) Sigmundur, f. 1968, kvæntur Azadeh Andresson, f. 1980, dótt- ir þeirra er Asal, f. 2010; b) Sig- urjón, f. 1970, kvæntur Margréti Söru Guðjónsdóttur, f. 1975, dætur þeirra eru Hrafnhildur Svala, f. 1998 og Hekla Sif, f. Elsku Bíbí. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym- ist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- ast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þinn eiginmaður, Sigmundur Andrésson. Elsku hjartans mamma mín, fyrir tveimur vikum átti ég ekki von á því að þú værir að yfirgefa þetta líf. Við vorum svo samrýnd- ar og góðar vinkonur. Þú varst alltaf til staðar ef ég og mín fjöl- skylda þurftum á aðstoð þinni að halda. Takk fyrir það, elsku mama mín. Þú varst aðeins 17 ára þegar móðir þín, bróðir og afi dóu með aðeins tveggja mánaða tímabili. Þá axlaðir þú mikla ábyrgð með því að aðstoða föður þinn við upp- eldi tveggja systkina þinna sem þá voru aðeins tólf og fjögurra ára. Þú leystir þetta verkefni vel eins og allt annað sem þú tókst þér fyr- ir hendur. Þú varst kletturinn í okkar fjölskyldu. Þið pabbi voruð svo náin og samtaka um flesta hluti í þau 67 ár sem þið fenguð saman. Mamma, þú varst alltaf svo vel tilhöfð enda hafðir þú mjög gaman af því að punta þig. Takk fyrir mig elsku mamma mín, ég á eftir að sakna þín mikið. Guð veri með þér. Takk fyrir mig og mína. Þín dóttir og tengdasonur, Dóra Bergs og Sigmar. Elsku mamma, amma og tengdamamma. Þú varst besta móðir, amma og tengdamóðir sem hægt er að hugsa sér. Okkur þótti svo afskap- lega vænt um þig og við verðum þér ævinlega þakklát fyrir alla þá ást og umhyggju sem þú veittir okkur og ekki síst allt það upp- byggilega sem þú hefur gefið okk- ur í gegnum tíðina. Þú varst alltaf tilbúin að aðstoða og styðja við bakið á okkur í því sem við vorum að gera og ætlaðist aldrei til þess að fá eitthvað í staðinn. Þú hafðir tröllatrú á þínu fólki og kenndir því að trúa á það góða í lífinu. Dugnaður þinn og þrautseigja verður okkur öllum ætíð til fyr- irmyndar. Þú stóðst ætíð traust við bakið á þínu fólki og studdir það í blíðu og stríðu. Mér, Óskari, er afskaplega minnisstæð sú afdrifaríka og óeigingjarna ákvörðun þín að sparka ungum syni þínum til Þýskalands þegar ég stóð frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort ég tæki háskólaplássi sem hafði skyndilega losnað. Ég hafði tvo daga til að mæta og nýkominn af næturvakt með loðnubræðslulykt í hárinu. Þú rakst mig í sturtu og stóðst lærbrotin við að strauja og pakka niður fyrir mig. Tveimur klukkustundum síðar var ég kom- inn upp í flugvél á leið til Reykja- víkur og þaðan til Þýskalands. Ég held að hvorugt okkar hafi nokk- urn tímann séð eftir þeirri ákvörðun. Nú ert þú komin í lengra ferða- lag og við erum viss um að þér líð- ur vel þar sem þú þarft ekki á að- stoð annarra að halda og getur komist allra þinna ferða hjálpar- laust. Við munum hugsa til þín og vera hjá þér í huganum um alla eilífð. Trúðu á tvennt í heimi tign sem æðsta ber: Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér. (Steingr. Thorsteinsson) Að þú hafir yfirgefið þennan heim klukkan fjögur lýsir þér einnig vel. Það var þín tala og það að sumir þínir nánustu hafi vakn- að klukkan fjögur sömu nótt er væntanlega engin tilviljun. Senni- legast hefur þú verið að kveðja þá með kossi. Það var alltaf jafnskemmtilegt að koma í heimsókn til Vest- mannaeyja og fá að hitta ömmu Bíbí og afa Simma. Þau tóku ætíð svo vel á móti okkur og voru svo hlý og góð. Þéttingsfast handtak- ið, strokurnar og stóra faðmlagið var engu líkt. Við fundum hlýjuna og umhyggjuna svo greinilega og þér fannst erfitt að sleppa af okk- ur hendinni þegar við kvöddum. Mikið munum við sakna þess að geta hitt ykkur saman eins og við vorum vön að gera. En við vitum að þú verður áfram með okkur í huganum. Við munum sakna þín en minn- ingin um þig mun ávallt ylja okk- ur um hjartarætur. Þitt handtak var svo þétt og blítt, þitt faðmlag djúpt og afar hlýtt. Elsku besta amma mín, við sjáumst þar sem sólin skín. Þinn sonur, Óskar, Oddný, Huginn, Ástrós og Ósk. Fyrir 22 árum ég kom inn í fjöl- skylduna hjá Sigurjóni mínum. Á þeim tíma hef ég verið svo lánsöm að kynnast mikið af góðu fólki. Ein af þeim var Bíbí amma, eins og hún var kölluð á okkar heimili. Bíbí var aðdáunarverð kona. Hún var heilsteypt, greind, list- ræn og vel lesin, hreint yndisleg kona í alla staði. Mér eru minn- isstæðar heimsóknirnar á Vest- mannabraut 37 og síðar Hraun- búðir þar sem allt var rætt milli himins og jarðar, allt frá þeirri bók sem verið var að lesa, hagi fjölskyldumeðlima og pólitík. Mér er efst í huga þakklæti. Þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast og umgangast Bíbí ömmu, hversu góð hún var við okkur Sigurjón og dætur okkar sem og þá fyrirmynd sem hún og afi Simmi eru okkur. Samband þeirra hjóna er eitt það fallegasta sem ég hef kynnst á ævinni. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast og umgangast Bíbí ömmu og bið góðan Guð að styrkja afa Simma og fjölskylduna alla sem syrgir einstaka konu. Sara. Elsku amma Bíbí okkar. Við munum sakna þín meira en orð fá lýst. Allar yndislegu stundirnar með þér í gegnum tíðina munu ávallt sitja í huga okkar og hjarta. Þú tókst alltaf svo vel á móti okkur með hlýja brosinu þínu og eitt- hverju sætu. Þú varst alltaf góð, fínt klædd, skemmtileg og varst bara hreinlega fullkomin langamma. Við munum sakna þín elsku amma en þú ert ekki alveg farin því þú munt lifa í hjörtum okkar alla tíð. Við og allir í fjölskyldunni pössum afa fyrir þig. Hér er eitt lítið ljóð sem við sömdum um þig, elsku amma Bíbí. Við elskum þig. Dóra Hanna Magnúsdóttir SJÁ SÍÐU 30 VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn www.kvedja.is 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, tengdaföður, afa og langafa, THEODÓRS JÓNASSONAR skósmíðameistara, Kleppsvegi 62, Reykjavík, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á G-gangi Hrafnistu fyrir sérstaka umhyggju og hlýju. Lára Dagbjört Sigurðardóttir og fjölskylda. Einlægar þakkir til allra sem auðsýndu okkur hlýhug, vinsemd og samúð vegna andláts okkar elskaða eiginmanns og stjúpföður, EIÐS ÁGÚSTS GUNNARSSONAR óperusöngvara, sem lést laugardaginn 15. júní 2013. Lucinda Grímsdóttir, Grímur Ingi. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, stuðning og hlýhug vegna fráfalls elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR KR. ARNÓRSSONAR frá Ási, Jófríðarstaðavegi 19, Hafnarfirði, sem lést miðvikudaginn 29. maí. Friðfinnur Sigurðsson, Christina Wieselgren, Sólveig Sigurðardóttir, Jóhannes Kristjánsson, Arnór Sigurðsson, Sigríður Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÁSDÍSAR MAGNÚSDÓTTUR húsfreyju á Staðarbakka. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunarinnar á Hvammstanga fyrir frábæra umönnun hennar. Margrét Benediktsdóttir, Ólafur H. Jóhannsson, Ingimundur Benediktsson, Matthildur G. Sverrisdóttir, Jón M. Benediktsson, Þorbjörg J. Ólafsdóttir, Rafn Benediktsson, Ingibjörg Þórarinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU MARÍU HANNESDÓTTUR, fyrrum húsfreyju á Núpum. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- heimilisins Áss í Hveragerði fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót. Jóhann Valgeir Helgason, Ragnheiður Jónsdóttir, Sigurveig Helgadóttir, Gísli Rúnar Sveinsson, Gerður Helgadóttir, Jón Ingi Skúlason, Hanna María Helgadóttir, Ari Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.