Morgunblaðið - 06.07.2013, Page 21

Morgunblaðið - 06.07.2013, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2013 BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARD. 11 - 16 Originals by Sika Design Karl Blöndal kbl@mbl.is Þrír menn létu lífið í Egyptalandi gær og fjöldi manns til viðbótar særðist þegar þúsundir stuðnings- manna Mohameds Morsis, sem steypt var af stóli forseta á miðviku- dag, mótmæltu aðgerðum hersins. Heyra mátti skothríð í Kaíró þegar mótmælendur nálguðust höfuð- stöðvar hersveitar, sem nefnist varð- liðar lýðveldisins og hefur það hlut- verk að verja höfuðborgina og stjórnkerfið. Hrópuðu mótmælend- ur vígorð á borð við „svikarar“ og „Morsi er okkar forseti“. Fréttaritari fréttastofunnar AFP kvaðst hafa séð tvö lík, sem hefðu verið hulin með ábreiðu. Að auki hefði maður verið skotinn í höfuðið og hlotið bana af. Mótmælendurnir komu af fundi, sem Bræðralag múslíma, flokkur Morsis, boðaði til við mosku í Kaíró. Íslamistar saka herinn um að hafa framið grímulaust valdarán þegar hann steypti Morsi, fyrsta lýðræð- islega kjörna forseta landsins, í kjöl- far fjöldamótmæla 30. júní þegar ár var liðið frá kjöri hans. Atburðarásinni var lýst þannig að herinn hefði hafið skothríð þegar maður reyndi að hengja mynd af Morsi á gaddavír fyrir utan höfuð- stöðvar herdeildarinnar. Eftir það hefði mátt heyra skotið úr báðum áttum og skelfing hefði gripið um sig. Þá hefði herinn notað táragas til að leysa mótmælin upp. Dómarinn Adly Mansour, sem herinn skipaði forseta, gaf út fyrstu tilskipanir sínar í gær þegar hann leysti upp þingið, þar sem íslamistar eru í meirihluta, og skipaði nýjan yf- irmann leyniþjónustunnar. Áður en mótmælin hófust í gær hvatti Mansour til einingar í sjónvarpsvið- tali. „Allt sem ég get sagt er að egypska þjóðin á að vera ein heild. Við höfum fengið nóg af óeiningu,“ sagði hann í viðtali við breska rík- isútvarpið, BBC, og rétti flokki Morsis sáttahönd: „Bræðralag músl- íma er samofið egypsku samfélagi. Það er einn af flokkum landsins. Því er boðið að renna saman við þessa þjóð og vera hluti af henni.“ Moahmed ElBaradei, einn af leið- togum andstöðunnar við Morsi og fyrrverandi yfirmaður kjarnorkueft- irlits SÞ, varði valdaránið í viðtali við BBC: „Við báðum herinn um að skerast í leikinn því að öðrum kosti hefði brotist út borgarastyrjöld. Við vorum milli steins og sleggju og fólk verður að skilja það.“ „Egypski herinn er rauð lína“ Ahmed Fahmy, einn af æðstu for- ustumönnum Bræðralags múslíma, skoraði í gær á stuðningsmenn hreyfingarinnar að bjóða hernum ekki byrginn. „Egypski herinn er rauð lína og yfir hana má ekki fara,“ sagði í yfirlýsingu frá Fahmy, sem birtist í egypskum ríkisfjölmiðlum skömmu eftir að mennirnir þrír féllu. Mohammed Badie, æðsti leiðbein- andi Bræðralags múslíma, sagði hins vegar á fjöldafundi í gær að mótmæl- endur myndu ekki láta deigan síga fyrr en Morsi sneri aftur. „Milljónir manna verða áfram á torgum þar til við berum hinn kjörna forseta okkar, Mohamed Morsi, á öxlum okkar,“ sagði Badie við mikinn fögnuð. Forusta bræðralagsins saksótt? Morsi hefur verið í stofufangelsi frá því honum var steypt. Háttsettur yfirmaður í hernum sagði AFP að hann hefði verið settur í „fyrirbyggj- andi varðhald“ og gaf til kynna að hann kynni að verða dreginn fyrir dóm. Haft var eftir heimildamanni úr dómskerfinu að á mánudag myndu saksóknarar hefjast handa við að yfirheyra félaga í Bræðralag- inu, þar á meðal Morsi, fyrir að van- virða réttarkerfið. 35 forustumenn hreyfingarinnar eru í farbanni. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir áhyggjum af ástand- inu, en forðaðist að kalla inngrip hersins valdarán. Ríkisstjórnir í Mið-Austurlöndum fögnuðu aðgerð- um egypska hersins, í mismiklum mæli þó, en samtök Afríkuríkja vís- uðu Egyptalandi úr öllu starfi sam- takanna þar til reglu samkvæmt stjórnarskrá yrði komið á að nýju. Þrír féllu í blóðugum mótmælum AFP Mannfall í mótmælum Stuðningsmenn Bræðralags múslíma mótmæltu valdaráni hersins í Kaíró í gær, héldu myndum af Mohamed Morsi, fyrrverandi forseta, á lofti og kröfðust þess að hann fengi völdin að nýju. Þrír féllu í gær.  Leiðtogi Bræðralags múslíma skorar á mótmælendur að hætta ekki fyrr en þeir beri Morsi á öxlum sér  Nýskipaður forseti réttir Bræðralaginu sáttahönd  Forustumenn þess yfirheyrðir á mánudag Ólgan í Egyptalandi » Andstæðingar Mohameds Morsis, sem sigraði í forseta- kosningunum fyrir ári með 51% atkvæða, sökuðu hann um að setja öll völd í hendur Bræðralagsins og missa tökin á efnahagslífinu sem stóð veik- um fótum fyrir. » Stuðningsmenn hans segja að embættismannakerfið, sem Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti, skildi eftir sig, hafi veitt Morsi mótspyrnu við hvert tækifæri. Navi Pillay, yfirmaður mannréttindamála hjá Samein- uðu þjóðunum, lýsti í gær yfir áhyggjum út af fjölda- handtökum forustumanna Bræðralags múslíma í Egyptalandi. Öllum bæri að virða grundvallarfrelsi. „Það ætti ekki að vera meira ofbeldi, engar geð- þóttahandtökur, engar ólöglegar hefndaraðgerðir,“ sagði hún í yfirlýsingu. „Taka ætti alvarleg skref til að stöðva og rannsaka óhugnanlegar og að því er virðist á stundum skipulagt kynferðislegt ofbeldi á hendur konum í röðum mótmælenda.“ Sjö mannréttindasamtök í Egyptalandi gagnrýndu einnig herinn og for- dæmdu ritskoðun fjölmiðla. Var herinn gagnrýndur fyrir að loka gervi- hnattarsjónvarpsstöðvum íslamista og handtaka menn úr starfsliði þeirra. Herinn bar því við að kynt hefði verið undir ofbeldi í útsendingum þeirra. Samtökin svara því að réttmætt sé að láta æsingamenn sæta ábyrgð, en að loka fjölmiðlum sé brot á frelsi þeirra. Áhyggjur út af handtökum YFIRMAÐUR HJÁ SÞ GAGNRÝNIR EGYPSKA HERINN Navi Pillay Frönsk stjórnvöld neituðu því að þau stunduðu víðtækar rafrænar njósnir á frönskum borgurum, en dagblaðið Le Monde, sem birti frétt um málið á fimmtudag, kvaðst í gær standa við frétt sína. „Franski stóri bróðir fylgist með,“ sagði í blaðinu. Blaðið sagði að leyniþjónustan DGSE hleraði öll samskipti innan Frakklands sem og við umheiminn og geymdi upplýsingar um símtöl og tölvusamskipti svo árum skipti þrátt fyrir að það væri ólöglegt. „Bin Lad- en hefur nært stóra bróður,“ sagði í leiðara blaðsins. Uppljóstranir Le Monde ber upp á sama tíma og andar köldu í sam- skiptum Evrópusambandsins og Bandaríkjanna vegna uppljóstrana Edwards Snowdens um hleranir Bandaríkjamanna á rafrænum sam- skiptum, þar á meðal embættis- manna ESB og erindreka aðild- arríkja sambandsins. Embættismenn Evrópusam- bandsins, sem halda til Washington á mánudag til viðræðna um skipti á upplýsingum hótuðu því í gær að hætta gagnaskiptum vegna njósn- anna. Þar er meðal annars um að ræða upplýsingar um flugfarþega og millifærslur fjármuna. AFP Undir eftirliti Mótmælandi fyrir utan öryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, í Washington sendir skýr skilaboð: Hættið að njósna. „Franski stóri bróðir fylgist með“  ESB með hótanir vegna njósna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.