Morgunblaðið - 06.07.2013, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.07.2013, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2013 Aðeins þrjú verð: 690 kr.390 kr.290 kr. Stöku sinnum verða grundvallarbreytingar áríkjandi sjónarmiðum og viðhorfum í sam-félögum og jafnvel á ráðandi skipan mála.Stundum er það atburðarás sem enginn einn að- ili ræður sem veldur. Þannig er ekki fráleitt að segja að fyrri heimsstyrjöldin hafi verið upphafið að falli hinna gömlu evrópsku nýlenduvelda, þótt þau hafi staðið uppi í stríðslok sem sigurvegarar, að seinni heimsstyrjöldin hafi bundið enda á stöðu þeirra sem heimsvelda og Súez- deilan 1956 innsiglað þau málalok. Fall Berlínarmúrsins 1989 er tákn um hrun komm- únismans, sem gjörbreytti pólitískri stöðu í Evrópu og endalok herfarar Bandaríkjanna til Íraks og Afganistans gæti verið byrjunin á því að Bandaríkjamenn dragi sig í hlé sem eins konar alheimslögregla. Þarna hefur sýnileg atburðarás ráðið ferðinni. Grundvallarbreytingar á sjónarmiðum og viðhorfum eru ekki jafn sýnilegar. Þær byrja að gerjast í undir- djúpum samfélaga, verða síðan að straumum sem eru á ferð undir yfirborðinu og brjóta sér smátt og smátt leið upp á yf- irborðið. Fyrir fimm árum var það ríkjandi viðhorf í Evrópu að skattgreiðendur ættu að hlaupa undir bagga, þegar bankar eða önnur fjármálafyrirtæki lentu í vandræðum. Í krafti þeirra ríkjandi sjónarmiða voru Írar látnir taka á sig óbærilegar byrðar vegna falls írskra einkabanka. Fimm árum síðar hefur orðið gjörbreyting á þessum sjónarmiðum. Nú er það orðin yfirlýst stefna Evrópusambandsins að fyrst eigi hluthafar að tapa, svo eigendur skuldabréfa sem bankar hafi gefið út og þá eig- endur innistæðna sem eru umfram 100 þúsund evrur. Þessi viðhorfsbreyting varð þannig til að gremja skatt- greiðenda yfir því að þeir tækju á sig tapið en háttsettir bankamenn kæmust frá þroti banka með mikla fjármuni fór að búa um sig og brjótast fram í því að ráðandi flokk- ar misstu völdin og vegur „pópúlískra“ flokka að vaxa. Í aukakosningum í Frakklandi fyrir skömmu fékk Þjóð- fylking Marine Le Pen 46% atkvæða. Uppreisn almennings í mynd mótmæla, hvort sem er í Arabalöndum, Tyrklandi, Brasilíu, ríkjum Suður- Evrópu eða t.d. aðgerðum Occupy Wall Street- hreyfingarinnar (sem sagt er að eiginkona hins nýja Englandsbankastjóra hafi stutt opinberlega) er orðin að pólitísku fyrirbæri sem eftir er tekið. Þessi nýi pólitíski veruleiki er orðinn að þætti í stjórn- málastarfi á Íslandi, sem ekki er hægt að horfa fram hjá. Fyrir nokkrum áratugum og alveg fram undir lok þess- arar aldar stjórnuðu þeir flokkar, sem til þess fengu meirihluta á Alþingi, landinu. Það var svo undir for- ystumönnum þeirra komið hvernig þeir stjórnuðu. Sum- ir höfðu tilhneigingu til að stjórna landi með því að taka sterkt tillit til þeirra strauma sem þeir fundu að voru á ferð. Aðrir fóru sínu fram í von um að árangurinn skilaði sér fyrir næstu kosningar. Nú er svo komið að það er hæpið að hægt sé að stjórna landinu með því að ganga þvert á ríkjandi viðhorf hjá al- menningi, þótt meirihluti sé til staðar á Alþingi. Þrennt hefur skipt mestu í því sambandi. Í fyrsta lagi er þjóðin betur menntuð en áður og hver þjóðfélagsþegn þar af leiðandi betur fær um það en kannski framan af 20. öld- inni að leggja sjálfstætt mat á einstök mál. Í öðru lagi er þjóðin betur upplýst en áður. Fólk hefur nú aðgang að flestum þeim upplýsingum sem áður fyrr voru í höndum tiltölulega fámenns hóps. Og í þriðja lagi hefur ný fjar- skiptatækni gert fólki kleift að bera saman bækur sínar, skiptast á skoðunum og leita eftir samstöðu alveg burt- séð frá því hvað gerist eða gerist ekki á vettvangi stjórnmálaflokk- anna eða hinna hefðbundnu fjöl- miðla. Þessi breyting gerir það að verkum að stjórnmálaflokkarnir geta ekki lengur gengið að því vísu að þeir geti farið sínu fram í fjögur ár og vonast svo til þess að dæmið gangi upp í kosningum. Misstígi þeir sig að mati einhverra hópa í samfélaginu er hafizt handa um undirskriftasöfnun og nái hún flugi get- ur hún skipt sköpum. Þegar Ólafur Ragnar Grímsson hóf að beita málskotsrétti stjórnarskrárinnar fyrstur forseta lýðveldisins opnaði hann gáttir sem ekki er víst að hann sjálfur ráði við og út af fyrir sig spurning hvort nokkur ástæða sé til að hann reyni að ráða við. Alla vega frá sjónarhóli þeirra sem telja bezt að Íslandi verði í framtíðinni stjórnað á þann veg að þjóðin sjálf taki ákvarðanir í meginmálum og að það sé síðan hlutverk Al- þingis að útfæra þær ákvarðanir. Nú er tekin við ný ríkisstjórn og nýr meirihluti á Al- þingi. Það má sjá merki þess að hinir nýju stjórnar- herrar hafi ekki áttað sig á þessum grundvallarbreyt- ingum í samfélagsmálum. Að þeir telji að þeir geti farið sínu fram. En það er misskilningur. Þeir geta það ekki. Flokkar geta ekki lengur stjórnað landinu að sínum geð- þótta og síðan staðið eða fallið með gerðum sínum fjórum árum seinna. Þótt hér verði ekki valdaskipti eins og í Egyptalandi þessa dagana, getur fólki misboðið svo mjög að það grípi til þeirra aðgerða sem það á kost á, safni undirskriftum undir mótmæli, gangi fylktu liði til Bessastaða og krefji forseta um að hann beiti málskotsrétti og vísi málum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég veit að reyndir stjórnmálamenn segja að það sem hér er sagt sé bull. Svona sé ekki hægt að stjórna landi. Þeir sem það segja hafa orðið viðskila við megin- strauma samtímans. Að verða viðskila við meginstrauma samtímans Flokkar geta ekki lengur stjórnað landinu að sínum geðþótta – þá grípur almenn- ingur til sinna ráða Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Fyrir skömmu átti ég erindi til Ga-lapagos-eyja, og þá komst ég að því, að íslenskur einsetumaður bjó þar um 1930 til 1945. Hann kallaði sig oft- ast Walter Finsen, en enginn maður með slíku nafni er finnanlegur í ís- lenskum skjölum. Íslendingsins er getið í nokkrum bókum erlendra ferðalanga á eyjunum, en einnig í ís- lenskum heimildum. Ein slík er viðtal í Vísi 1951 við íslenskan skipstjóra, sem hafði hitt hann á stríðsárunum, þegar bandaríski herinn hafði bækistöð á eyjunum. Kvaðst hann þá vera af Thorarensen-ætt. Önnur heimild er viðtal í Morgunblaðinu 1967 við þýska konu, búsetta á Íslandi, sem hafði farið til eyjanna þá um sumarið og hitt gamla nágranna Íslendingsins. Þessi Íslendingur var sagður um sjötugt, þegar hann lést á Galapagos- eyjum 1945. Hann hafði haldið ungur til sjós, væntanlega á síðasta áratug 19. aldar. Hann var staddur í San Francisco, þegar jarðskjálftinn mikli 1906 lagði borgina í rúst, en lengst var hann í Rómönsku Ameríku, meðal annars við olíuleit í Maricaibo í Vene- súela, en hafði einnig eitthvað að segja af mexíkósku byltingunni 1910-1920. Þegar hann var á sextugsaldri bjó hann í Síle, en þá veiktist hann og læknar sögðu honum, að hann ætti ekki langt eftir. Þá ákvað hann að flytjast til Galapagos-eyja, þar sem hann átti dönsk kunningjahjón. Settist hann fyrst að hjá þeim á eynni Santa Cruz, en reisti sér síðan lítið hús þar úr svörtum hraunhellum. Vegna mála- kunnáttu sinnar var hann oft leið- sögumaður erlendra ferðamanna og kenndi einnig börnum eyjarskeggja. Sagði hann sögur af Íslandi, og ís- lenski sjómaðurinn, sem hitti hann á stríðsárunum, hafði orð á því, að heim- ili hans hefði verið með íslensku sniði. Í íslensku heimildunum er ekki nefnt, að Íslendingurinn varð vitni að undarlegu morðmáli á eyjunum. Kona birtist þar með tveimur ástmönnum sínum og kallaði sig barónessu de Wagner-Bousquet. Settist hún að á Floreana-ey. En einn góðan veðurdag árið 1934 hvarf hún ásamt öðrum ást- manninum, og hefur ekki spurst til þeirra síðan. Hinn ástmaðurinn flýtti sér að reyna að komast til meginlands- ins, en fannst nokkrum mánuðum síð- ar látinn á eyðiey þar skammt frá. En hver var Íslendingurinn, sem kallaði sig oftast Walter Finsen? Hugsanlega var hann Ágúst Bjarnason Thor- arensen, sem fæddist 1880, missti föð- ur sinn 1885 og fór í siglingar, og er ekkert meira vitað um hann. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Íslenskur huldumaður á Galapagos-eyjum Bréf til blaðsins Íslenski safnadagurinn verður hald- inn hátíðlegur á morgun, 7. júlí, en safnmenn hafa haldið upp á þennan dag árlega í 17 ár með því að bjóða til veislu á söfnum sínum í formi fjöl- breytilegrar dagskrár sem sniðin er að breiðum hópi gesta. Íslenski safn- adagurinn var fyrst haldinn árið 1997 að frumkvæði safnmanna sjálfra. Hugmyndina að baki deginum má rekja til alþjóðasafnadags ICOM sem haldinn er 18. maí ár hvert. Vegna íslenskra aðstæðna hefur ver- ið samkomulag um að færa safnadag- inn til hér á landi og halda hann í júlí ár hvert. Í stað fastrar dagsetningar er honum valinn góður sunnudagur í byrjun júlímánaðar þegar allt er í blóma og fólk á ferðalagi um landið, tilbúið að njóta þeirrar fjölbreytilegu dagskrár sem söfnin bjóða upp á. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á mikilvægi safnastarfs og draga fram á hversu fjölbreyttan og áhugaverðan hátt söfnin varðveita og miðla íslenskum menningararfi. Hlutverk safnanna er að varðveita, safna, miðla og rannsaka en tengsl safns og gesta þess er ekki síður mikilvægur þáttur í starfsemi safna. Um allt land má finna fjölmargar sýningar og setur þar sem sjónum er oft beint að afmarkaðra viðfangsefni. Þessi fjölbreytni ber vitni mikilli grósku í safnastarfi en um leið er ljóst að akurinn er ekki plægður og fjölmörg áhugaverð viðfangsefni bíða úrlausnar framtíðarinnar. Öfl- ugt safnastarf og faglegt er grund- völlur að varðveislu, rannsóknum og miðlun á menningararfi okkar Ís- lendinga, jafnt í fortíð og nútíð. Söfn eru vettvangur þar sem boðið er upp á fræðslu á óformlegan og áhugaverðan máta. Gesturinn geng- ur inn á sögusvið sem er afrakstur rannsókna, söfnunar og þróunar og miðlunin í formi sýningar, sem er af- rakstur mikils undirbúnings. Á safni skoðar fólk raunverulega hluti, heyr- ir sannar sögur og oft er það þannig að raunveruleikinn tekur öllum skáldskap fram. Nýlegar rannsóknir á því hvernig safngestir skoða og meðtaka sýna fram á að gestir í dag eru ekki hlutlausir þiggjendur menn- ingarefnis heldur eru þeir í raun menningarframleiðendur sjálfir því að þegar þeir skoða og meðtaka fer ímyndunaraflið af stað. Auk þess taka þeir með sér sinn eigin reynslu- heim og arf og þegar þetta allt er komið saman verður til eitthvað nýtt og persónulegra efni sem geymist með gestinum. Heimsókn á safn er því einstök leið til lifandi þekking- aröflunar og skemmtunar, fyrir fólk á öllum aldri og þroskastigum. Hlutverk safna er margrætt, við vísum oft til þeirra sem menning- arstofnana en um leið eru söfn virkar samfélagsstofnanir. Mikilvægi þeirra í samfélagsþróun og mótun er ótvírætt og mikilvægt að starf þeirra sé öflugt og nái að vera sá öxull milli fortíðar og framtíðar sem söfn eiga að vera. Á undanförnum árum hefur ís- lenskt safnastarf tekið miklum breytingum og um allt land hefur átt sér stað gróskumikil uppbygging. Söfnin eru oft hjarta sérhvers sveit- arfélags og dýrmætar perlur í menn- ingarlífi samfélagsins. Margvíslegar sýningar og viðburðir árið um kring eru fastur hluti af starfi íslenskra safna. Þau eru því lifandi vettvangur fræðslu, upplifunar og skemmtunar. Listasöfn, náttúrusöfn og menning- arminjasöfn draga fram sérstöðu þeirra svæða þar sem þau eru stað- sett og gegna veigamiklu hlutverki í menningarlífi sinna samfélaga. Íslenski safnadagurinn er sprott- inn upp úr grasrótinni, frá safn- mönnum sjálfum og er það FÍSOS, félag íslenskra safna og safnmanna sem hefur umsjón með þessum degi. Dagskrá safnanna er afar fjölbreytt og þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi enda eru á Íslandi rúmlega 160 söfn og setur sem hvert um sig hafa sína sérstöðu. Landsmenn allir eru hvattir til að sækja söfn og njóta skemmtunar og fræðslu. Í dagskrá kennir ýmissa grasa en upplýsingar um dagskrá safnanna má nálgast á Facebook- síðu íslenska safnadagsins, www.safnmenn.is og www.safnabok- in.is. SIGRÍÐUR ER FORMAÐUR FÍSOS, BJÖRG ER VERKEFNA- STJÓRI ÍSLENSKA SAFNADAGSINS 2013. Íslenski safnadagurinn Frá Sigríði Melrós Ólafsdóttur og Björgu Erlingsdóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.