Morgunblaðið - 06.07.2013, Side 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2013
✝ Dóra BjörkLeósdóttir
fæddist á Ytra-
Álandi í Þistilfirði
12. desember 1938.
Hún lést 21. júní
2013.
Foreldrar henn-
ar voru Steinunn
Sesselja Steinþórs-
dóttir, f. 1921, d.
2007, og Leó Jós-
epsson, f. 1913, d.
2000. Systkini Dóru Bjarkar eru
Ólína Ingibjörg, f. 1940, Jósep, f.
1944, Friðbergur Þór, f. 1946,
Svandís, f. 1948, Lára, f. 1951,
Björg, f. 1954, Hrönn, f. 1955,
Börn þeirra eru: Guðný María, f.
1980, Jón Kristbjörn, f. 1984,
Arnþór, f. 1988. 4) Aðalheiður, f.
1961, d. 1962. 5) Aðalheiður, f.
1964, maki Ragnar Indriðason.
Börn hennar eru: Gústaf Reynir,
f. 1988, Arnold, f. 1992, Jökull, f.
1995. 6) Steinunn, f. 1965, maki
Valdimar Stefánsson. Börn henn-
ar eru: Grímur Þór, f. 1989, Inga
Björk, 1995. Dóra Björk og Daní-
el eiga sex barnabarnabörn: Kor-
mák Pétur, f. 2005, Arngrím Eg-
il, f. 2006, Kolbrá Jökulrós, f.
2010, Öglu Maríu, f. 2010, og Vík-
ing Davíð, f. 2010.
Dóra Björk og Daníel bjuggu
allan sinn búskap á Þórshöfn.
Með heimilisstörfum á stóru
heimili vann Dóra Björk lengst af
hjá Kaupfélagi Langnesinga við
afgreiðslustörf.
Útför Dóru Bjarkar fer fram
frá Þórshafnarkirkju í dag, 6. júlí
2013, kl. 14.
Steinunn, f. 1958, og
Fjóla, f. 1959, d.
2005.
Eiginmaður
Dóru Bjarkar var
Daníel Jónsson, f.
24.2. 1931, d. 1.10.
1992. Börn, tengda-
börn og barnabörn
Dóru Bjarkar og
Daníels eru: 1) And-
vana fædd stúlka, f.
1956. 2) Jökull, f.
1957, maki Hildur Finnsdóttir.
Börn þeirra eru: Ásta Björk, f.
1981, Daníel Steinar, f. 1983,
Selma Brá, f. 1989. 3) Rósa, f.
1960, maki Jóhann A. Jónsson.
Með nokkrum orðum langar
mig að kveðja Dóru Björk Leós-
dóttur, tengdamömmu mína.
Ég kom í fyrsta skipti til Þórs-
hafnar í desember 1978, þá var ég
22 ára og hún fertug. Þá bjó hún
með Daníel sínum og dætrunum í
Hulduhúsi og allt lék í lyndi. Jök-
ull hafði boðið mér í heimsókn
heim til mömmu sinnar og ég blá-
ókunnug stúlkan sat allt í einu á
eldhússtól hjá þessari fallegu
ókunnu konu meðan kærastinn
þvældist um þorpið með vinum
sínum. Strax þarna fann ég hvað
það var gott að vera nálægt henni.
Þetta gerðum við oft næstu 35 ár-
in við tengdamamma – héngum
hvor yfir annarri – ég hjá henni og
hún hjá mér stundum vikum sam-
an. Þótt við byggjum hvor í sínum
landshlutanum öll þessi ár vorum
við mikið saman. Hún hringdi og
sagðist ætla að „leggjast upp á
okkur“ og mætti. Hún tengda-
mamma mín var þægilegasta kona
sem ég hef kynnst, svo róleg og
svo gersamlega laus við fordóma
og afskiptasemi. Þegar hún var
hjá okkur gekk hún í öll verk og
gerði það þannig að maður var
óendanlega þakklátur, hún bakaði
og þvoði þvotta, hengdi út á snúr-
ur, hugsaði um krakkana, og var
alltaf hress og kát og skemmtileg,
alveg yndislegt eintak af tengda-
mömmu. Hún var svo góð við
barnabörnin og þau elskuðu hana
öll. Það var alltaf pláss fyrir þau á
Þórshöfn og skipti þá engu máli
hvort þau ætluðu að stoppa í dag,
viku, mánuð, eitt sumar eða ár –
alltaf tími og pláss hjá ömmu
Dóru.
Líf tengdamömmu minnar var
ekki alltaf auðvelt og mörgum
fannst lygilegt hvað hún þurfti að
ganga í gegnum. Sorgir hennar
höfðu eðlilega áhrif á hana og líf
hennar en í gegnum allt var hún
traust, góð, skemmtileg og yndis-
leg kona. Tengdamamma kunni að
hlusta og á Þórshöfn átti hún vin-
konur á öllum aldri sem komu til
hennar til að tala og hlæja. Kon-
urnar á Þórshöfn komu líka til að
fylgjast með að allt væri í lagi hjá
henni og þær eiga þakkir skildar
fyrir tryggðina og vináttuna sem
þær sýndu henni. Það eru margir
sem eiga henni margt að þakka og
það eru margir sem eiga eftir að
sakna hennar, ungir sem aldnir.
Ég á eftir að sakna hennar og
þakka henni fyrir allt sem hún
gerði fyrir mig og kenndi mér.
Dóra greindist með krabba-
mein fyrir þremur árum og stóran
hluta þess tíma var hún hjá Rósu
dóttur sinni á Álftanesinu. Rósa
fór með henni í hverja einustu
læknisferð, sat hjá henni í hverri
lyfjagjöfinni á fætur annarri.
Hugsaði um hana eins og þaul-
reynd hjúkrunarkona og var
henni alveg einstaklega góð í alla
staði. Þegar kom að endalokunum
kom Aðalheiður suður til að hjálpa
Rósu og þær systur hjúkruðu
henni dag og nótt þar til yfir lauk.
Hún dó heima hjá Rósu í faðmi
fjölskyldunnar og við Jökull erum
svo óendanlega þakklát þeim fyrir
allt sem þær gerðu fyrir hana og
okkur.
Ég sendi Hibba og Steinu,
systkinum hennar, samúðarkveðj-
ur og þakkir fyrir allt sem þau
gerðu fyrir hana og öllum sem
syrgja hana mínar bestu kveðjur.
Hvíldu í friði elsku Dóra
tengdamamma mín.
Hildur Finnsdóttir.
Elsku amma Dóra. Það er erfitt
að kveðja þó svo að ég viti að nú
líði þér betur á nýjum stað umvaf-
in englum. Þú varst svo dugleg í
gegnum veikindi þín. Tókst þessu
eins og hverju öðru verkefni í líf-
inu, róleg og yfirveguð. Það voru
aldrei nein læti í kringum þig,
amma mín.
Ég á yndislegar minningar frá
því að dvelja hjá ykkur afa á Aust-
urveginum þegar ég var lítið skott
heima á Þórshöfn. Þú varst alltaf
tilbúin að dúlla eitthvað með okk-
ur ömmubörnunum. Hvort sem
það var að baka, sauma eitthvað
sniðugt, tína blóm og setja í vasa
eða spila á spil. Þú kenndir mér að
gæðastundir eru mun verðmætari
en allt sem hægt er að kaupa í líf-
inu.
Í mínum huga áttir þú Kaup-
félagið á Þórshöfn. Þú varst aðal-
manneskjan og mér fannst þú allt-
af geta reddað bæjarbúum með
það sem þeir óskuðu eftir. Þú
varst svo örugg í þínu umhverfi í
kaupfélaginu og kunnir svo vel til
verka. Ef úrbeina þurfti hálft naut
eða henda í slátur þá varst þú auð-
vitað mætt til að stjórna aðgerð-
um. Þú varst sjálflærður kjötiðn-
aðarmeistari, auk þess að vera
meistari í svo mörgu öðru.
Minningin um þig, amma, þar
sem þú bakaðir pönnsur á tveimur
pönnum eins og ekkert væri er
mjög sterk. Ég spurði þig oft
hvernig þú færir eiginlega að
þessu. Þú brostir bara og sagðir
að þetta væri ekkert mál. Ég mun
hugsa til þín, amma mín, þegar ég
verð búin að ná þessari tækni.
Lestrarfélagið, eins og þú kallaðir
bókasafnið heima á Þórshöfn, var
þitt annað heimili. Þú elskaðir að
lesa bækur, og sumar hverjar aft-
ur og aftur. Amma, þú varst algjör
bókaormur.
Þú upplifðir margt erfitt um
ævina, amma mín. Ég spyr sjálfa
mig oft að því hvernig þú fórst að
því að bera þetta allt á herðum þér
í gegnum lífið. Þú varst svo sterk,
en svo mjúk og blíð. Ég trúi því að
það séu engar tilviljanir í þessu lífi
og að þér hafi verið ætluð sú veg-
ferð sem þú fórst. Það hefur trú-
lega vantað sterka og hjartahlýja
manneskju meðal englanna.
Danni afi verður ánægður að sjá
þig aftur eftir allan þennan tíma.
Síðastliðin tvo ár dvaldir þú
mikið á Álftanesi hjá mömmu og
pabba. Sá tími gaf okkur margar
góðar og yndislegar stundir. Arn-
grímur Egill og Agla María hlökk-
uðu alltaf mikið til að hitta ömm-
urnar og afa Jóa eins og þau sögðu
svo oft. Og Finnur hlakkaði líka til
því að þú varst svo dugleg að
lauma til hans bita og bita. Þú
gafst frá þér einstaklega góða og
jákvæða orku, amma mín.
Þú varst yndislega falleg í fína
kjólnum þínum þegar ég kvaddi
þig í síðasta sinn. Þú varst alltaf
svo fín og vel til höfð. Elskaðir að
hafa fallega liti í kringum þig. Fal-
lega muni, falleg blóm og bara allt
sem fagurt er. Þannig mun ég
minnast þín, elsku amma mín.
Sem fagurkera, með breitt bak og
fallegt hjarta.
Þú varst tilbúin að kveðja. Um-
vafin þeim sem elskuðu þig mest
sofnaðir þú svo friðsæl og falleg.
Takk fyrir allt, elsku amma.
Guðný María.
Dóra Björk
Leósdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku amma Dóra.
Við bræður viljum þakka
þér innilega fyrir að hafa
alltaf verið indæl og góð við
okkur alveg frá því að við
munum eftir okkur. Við
hlökkuðum alltaf til að
koma til þín og bragða á
nokkrum pönnsum, en þú
bakaðir klárlega bestu
pönnukökurnar í bænum.
Við vitum að nú ert þú á
góðum stað og hefur það
notalegt með Danna afa.
Við munum ávallt minnast
þín með bros á vör elsku
amma Dóra.
Jón Kr. og Arnþór.
✝ Anna Ingibjörgfæddist í Aust-
ari-Krókum, S-
Þingeyjarsýslu 1.
ágúst 1925. Hún
lést á heimili sínu
26. júní 2013.
Foreldrar Önnu
eru Eiður Indriða-
son, f. 1888, d. 1979,
og Matthildur
Níelsdóttir, f. 1888,
d. 1974. Systkini
Önnu eru Elínrós, f. 1919, d.
1957, Anton Níels, f. 1922, d.
1996, og Helga Regína, f. 1931,
d. 1999.
Árið 1944 giftist Anna Sig-
urjóni Vilmundi Kristinssyni, f.
1.9. 1919, d. 9.9. 1968, börn
þeirra eru: 1) Matthildur, f. 7.
desember 1944, maki Jóhann
Sigurðsson, f. 1944, d. 2012, börn
þeirra eru Elfa Björk, f. 1962,
Sólveig Anna, f. 1964, Harpa, f.
Gunnhildur, f. 20. júlí 1953, maki
Heimir Sigurgeirsson, f. 1955,
börn þeirra eru Ari Már, f. 1975,
Rakel, f. 1980, og Sandra, f.
1982. 7) Víkingur Smári, f. 2.
janúar 1955, d. 15. júlí 1962. 8)
Elsa Björk, f. 23. júlí 1960, sam-
býlismaður Ingvar B. Sig-
hvatsson, f. 1948, börn þeirra
eru Anna Karitas, f. 1992, og
Birgir Þór, f. 1993, fyrir átti Elsa
Sigurjón Elí, f. 1983, barnsfaðir
Jón K Gunnarsson, f. 1956.
Afkomendur Önnu eru orðnir
78, þar af 45 langömmubörn og
fjögur langalangömmubörn.
Árið 1970 hóf Anna sambúð
með Björgvini Lindberg Páls-
syni, f. 18. janúar 1930, börn
hans eru Sigurhanna, f. 1950,
Svala, f. 1950, Anna Björg, f.
1952, Þóra, f. 1953, Sóley, f.
1954, Fjóla, f. 1956, og Páll, f.
1959.
Anna hefur búið í Hrísey frá
1944 og fyrir utan barnauppeldi
stundaði hún ýmis störf tengd
vinnslu sjávarafurða og síðar við
skrifstofustörf.
Útför Önnu fer fram frá Hrís-
eyjarkirkju í dag, 6. júlí 2013, og
hefst athöfnin kl. 14.
1968, og Svala, f.
1968. 2) Steinunn, f.
30. nóvember 1946,
maki Smári Thor-
arensen, f. 1948,
börn þeirra eru
Víkingur, f. 1966,
Harpa, f. 1969, og
Berglind, f. 1982. 3)
Helgi, f. 13. febrúar
1948, maki María
Ingimarsdóttir, f.
1951, börn þeirra
eru Ívar Sigurjón, f. 1971, Ingi-
mar, f. 1978, og Birgir, f. 1981. 4)
Páll, f. 25. júlí 1949, maki Ásta
Ananíasdóttir, f. 1955, börn
þeirra eru Linda, f. 1975, Andri,
f. 1980, og Brynjar, f. 1981. 5)
Birgir Rafn, f. 28. maí 1951,
maki Hólmfríður Jóhann-
esdóttir, f. 1953, barn þeirra er
Karen, f. 1980, fyrir átti Birgir
Birnu Maríu, f. 1969, barnsmóðir
Nanna Björnsdóttir, f. 1949. 6)
Það var mikill sorgardagur
þegar við heyrðum að amma á
Syðstabæ væri búin að kveðja
þennan heim. Minningarnar eru
margar og allar eru þær fallegar
og góðar og hjálpa til við að sefa
sorgina sem tekið hefur yfir um
stund. Amma okkar var einstak-
lega dugleg og kraftmikil kona
sem aldrei kveinkaði sér. Hún
hugsaði vel um sitt fólk og dyrn-
ar hennar stóðu alltaf opnar.
Heimabakað bakkelsið, sultu-
samlokurnar, sláturveislurnar,
jólaboðin og svo margt fleira
minnir á elsku ömmu okkar. Það
verður sárt að horfa upp á hólinn
og vita til þess að hún er ekki
lengur þar. Það er von okkar að
amma sé komin í faðm Sigurjóns
afa og Víkings Smára og eigi
með þeim góðar stundir.
Hvíldu í friði elsku amma okk-
ar, minning þín lifir áfram og
kemur til með að hlýja okkur um
hjartarætur, við erum stolt af því
að vera barnabörnin þín.
Ari, Rakel og Sandra.
Elsku amma okkar. Mikið
söknum við þín sárt, þú sem
varst svo hraust – fórst á líkams-
ræktartæki heima hjá þér í hálf-
tíma á hverjum degi. Það var
alltaf svo gott að koma í heim-
sókn til þín á Syðstabæ, móttök-
urnar svo hlýjar og ekki skorti
gestrisnina, alltaf hlaðborð af
heimabökuðu bakkelsi og þar var
setið og spjallað og borðað á sig
gat. Stórt skarð er á Syðstabæ
núna en við lofum þér að hugsa
vel um Björgvin fyrir þig. Við
elskum þig svo mikið elsku fal-
lega brosmilda og glaðlynda
kona. Hvíl í friði elsku amma
okkar, þú átt alltaf stað í hjarta
okkar.
Víkingur, Sarah,
Harpa, Guðmundur,
Berglind og Gunnar.
Amma í Hrísey var einstök
kona, harðdugleg, gestrisin,
skemmtileg og áhugasöm um
náungann. Fylgdist vel með öll-
um barnabörnunum og lang-
ömmubörnunum. Það var alltaf
svo gott og gaman að koma til
hennar og á ég margar minn-
ingar um yndislegar samveru-
stundir bæði sem barn og full-
orðin.
Minningin er ljóslifandi: Að
drífa sig út á Sand að ná ferj-
unni. Stutt sigling og Syðstibær
– húsið þitt – blasir við upp á
hæðinni. Tilhlökkunin að hitta
þig eykst. Þú beiðst alltaf í úti-
dyrunum með útbreiddan faðm-
inn og tókst svo elskulega og
glaðlega á móti okkur. Inni í eld-
húsi biðu okkar ömmu-kleinur,
pönsur, tertur, smurt brauð og
fleira.
Þannig var þetta alltaf þegar
komið var til þín. Líka fyrir
þremur vikum þegar Brynja og
Matthildur fengu að koma til þín.
„Amma var svo glöð, hún var
alltaf að hlæja“, sagði Matthildur
mín þegar ég heyrði í henni eftir
heimsóknina. Gleðin og bjartsýn-
in einkenndu þig.
Sem barn naut ég þess að fá
að fara til þín ein eða með frænk-
um mínum. Það var alltaf nóg að
hringja og alltaf var ég velkomin
þó húsið vær fullt af gestum fyr-
ir. Ég er svo lánsöm að hafa átt
þig að og fengið að vera svo oft
hjá þér. Margs er að minnast og
svo margt í þínu fari sem ég hef
og mun tileinka mér.
Þú varst einstök fyrirmynd.
Ég hlakkaði mikið til að koma
og heimsækja þig í sumar. Það
var alltaf svo gaman að spjalla
við þig. En stundum fer lífið á
annan veg en maður ætlar. Ein-
hvern veginn hafði ég reiknað
með að ná miklu lengri tíma með
þér elsku amma. En eins og
stelpurnar mínar sögðu þegar
þær voru að hughreysta mig
þegar við fengum fréttir af and-
láti þínu þá lifðir þú lengi og vel.
Hvíl í friði elsku amma.
Linda Pálsdóttir
og fjölskylda.
Elsku besta langamma okkar.
Þú varst svo yndisleg og frábær
kona í alla staði. Það var alltaf
jafngaman að koma í heimsókn
til þín, þú tókst alltaf svo vel á
móti okkur. Svona duglega og
hrausta konu eins og þig er ekki
auðvelt að finna. Öllum leið vel í
kringum þig og fannst gaman að
vera með þér. Maður gleymir
seint sendiferðunum sem við fór-
um í fyrir þig þegar við vorum
yngri og fengum svo súkku-
laðimola fyrir. Takk fyrir allt
elsku langamma, þú varst æð-
isleg.
Hinsta kveðja frá langömmu-
börnunum.
Telma Sif, Eva María,
Sonja Rún, Daníel Smári
og Alexandra Ósk.
Anna Ingibjörg
Eiðsdóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og
langafi,
HÖRÐUR JÓNSSON,
Deildarási 8,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
30. júní.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn
9. júlí kl. 15.00.
Guðríður Júlíusdóttir,
Ester Harðardóttir,
Erna Björg Sverrisdóttir,
Guðrún Erna Harðardóttir, Jan Jönsson,
Jonas Landström,
Linda Landström,
Helena Landström,
Axel og Júlía.
✝
Konan mín og móðir okkar,
FANNEY MAGNÚSDÓTTIR,
Esjuvöllum 15,
Akranesi,
lést fimmtudaginn 4. júlí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 10. júlí kl. 14.00.
Jón Frímannsson,
synir og fjölskyldur þeirra.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, amma og vinur,
INGIBJÖRG HÁKONARDÓTTIR,
til heimilis á Klapparstíg 1a,
Reykjavík,
var bráðkvödd að heimili sínu mánudaginn
1. júlí. Hún verður jarðsungin frá Kópavogs-
kirkju fimmtudaginn 11. júlí kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Jón Ævar Þorgeirsson,
Rakel Ósk Ævarsdóttir,
María Lea Ævarsdóttir,
Amelía Líf Haraldsdóttir,
Haraldur Gunnarsson
og ættingjar.