Morgunblaðið - 28.08.2013, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
„Við erum auðvitað ekki ánægð
með þetta, langt í frá,“ segir Jón-
ína Ólöf Emilsdóttir, skólastjóri
Vogaskóla, en þar kom upp lús í
gær hjá nokkrum nemendum. Þá
kom einnig upp lús í Langholts-
skóla, skólum í Kópavogi og ein-
hverjum leikskólum. Flestir
grunnskólar hófust síðastliðinn
föstudag.
„Þetta er óvenjusnemmt í ár og
skólinn er varla byrjaður,“ segir
Jónína Ólöf sem bætir við að póst-
ur hafi verið sendur á alla for-
eldra. Hún segir þetta vera orðinn
fastan lið á haustin og telur ein-
ungis tímaspursmál hvenær lúsin
kemur í enn fleiri skóla.
Lúsin smitast nær eingöngu við
beina snertingu og kemur upp á
hverjum vetri í skólum. Oft smit-
ast hún með hárburstum og höfuð-
fötum. Allir geta fengið lús og er
lúsasmit ekki merki um óþrifnað.
Foreldrum er gert að kemba börn-
in sín vel. aslaug@mbl.is
Lúsin er
snemma á
ferð í ár
Morgunblaðið/Rósa Braga
Skóli Lús fannst í nemendum í
nokkrum skólum á þriðja skóladegi.
Mikil tilhlökkun ríkir hjá Tungna-
mönnum fyrir 14. september næst-
komandi en þá verður réttað í nýjum
Tungnaréttum í Biskupstungum.
Hvorki á eftir að væsa um fé né fólk í
réttunum þegar dregið verður í dilka
því dilkarnir eru 25 talsins, hver
þeirra tekur um 400 fjár, samtals um
tíu þúsund fjár.
Félagið Vinir Tungnarétta hafa
staðið að uppbyggingu réttanna al-
farið í sjálfboðavinnu. Réttirnar eru
um 60 ára gamlar og var kominn tími
á gagngerar endurbætur. „Þetta
hefur gengið afskaplega vel. Allir
eiga þakkir skildar sem hafa komið
að verkinu sem sjálfboðaliðar eða
með beinum fjárframlögum,“ segir
Þorsteinn Þórarinsson, bygginga-
meistari sem er umsjónarmaður við
smíði réttanna.
Nýverið var haldið samkomuball
til að fjármagna verkið. Vel tókst til
og náðist að safna þónokkrum aur
fyrir síðustu framkvæmdir. Í fyrra
hófst uppbyggingin en þá var al-
menningurinn steyptur. Margar
hendur komu að byggingunni og
unnu óeigingjarnt starf. Óskar
Björnsson í Goðatúni sá alfarið um
að smíða grindurnar í réttirnar.
Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur
einnig tekið þátt í að fjármagna rétt-
irnar en fjárframlög frá Vinum
Tungnarétta vega einnig þungt.
Formleg vígsla verður á næsta ári.
Nýjar Tungnaréttir
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Smíðað Bragi Þorsteinsson, Rúnar Guðmundsson og Ólafur Jónasson.
Allt unnið í sjálfboðavinnu Tekur tíu þúsund fjár
Ball haldið til að fjármagna síðustu framkvæmdirnar
Benedikt Árna-
son hefur verið
ráðinn efna-
hagsráðgjafi
forsætisráð-
herra og ráð-
herranefnda rík-
isstjórnarinnar.
Benedikt er
47 gamall hag-
fræðingur frá
Háskóla Íslands
og með meistaragráður í hagfræði
og MBA frá University of Toronto.
Hann hefur m.a. starfað sem hag-
fræðingur á Þjóðhagsstofnun, fjár-
málastjóri Vita- og hafnamálastofn-
unar, skrifstofustjóri í iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu, aðstoðar-
framkvæmdastjóri í Norræna fjár-
festingarbankanum og forstjóri
Askar Capital. Hann hefur verið að-
alhagfræðingur Samkeppniseftir-
litsins frá 2011. Þá hefur Benedikt
sinnt stundakennslu við Háskólann
í Reykjavík, Háskóla Íslands og
Endurmenntunarstofnun HÍ.
Benedikt er kvæntur Auði Freyju
Kjartansdóttur rafmagnsverkfræð-
ingi og eiga þau þrjú börn.
Benedikt hefur störf í forsætis-
ráðuneytinu þann 30. september.
Ráðinn efna-
hagsráðgjafi
Benedikt
Árnason