Morgunblaðið - 28.08.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Enginn ágreiningur er umillsku Assad-feðganna sem
ríkt hafa sem einvaldar í Sýrlandi.
Annað gildir um hver það var sem
beitti efnavopnunum og hver muni
taka við komi menn Assad frá. Jón
Magnússon hrl. skrifar:
Ekki liggur ennfyrir hver
beitti efnavopnum í
Sýrlandi fyrir
nokkrum dögum.
Talsmenn innrás-
arveldanna í Afgan-
istan eru þó sam-
mála um að það hafi verið
stjórnarher Assads. Fróðlegt verð-
ur að fá úr því skorið hvað sé rétt í
þeim staðhæfingum. Hafi stjórnar-
herinn beitt efnavopnum nú þegar
hann er kominn með undirtökin í
baráttunni við uppreisnarmenn þá
væri það ótrúlega heimskulegt.
Í dag var sagt frá því í grein íDaily Telegraph að Bandar bin
Sultan yfirmaður leyniþjónustu
Saudi Arabíu hafi átt fund með
Putin Rússlandsforseta fyrir þrem-
ur vikum og boðið honum upp á
samvinnu um að halda uppi olíu-
verði en löndin framleiða um 45%
af heimsframleiðslunni auk þess að
stöðva hryðjuverkastarfsemi Chec-
hena ef Rússar hættu að styðja rík-
isstjórn Assads Sýrlandsforseta.
Putin mun hafa hafnað tilboði
Saudi Araba og sagt að Rússar
teldu núverandi ríkisstjórn vera
bestu talsmenn fólksins í Sýrlandi
en ekki mannæturnar í liði upp-
reisnarmanna. Bandar mun þá
hafa sagt að þá kæmi ekkert annað
til greina en hernaðaríhlutun í
Sýrlandi.
Skyldi þessi frásögn vera rétt?Sé svo þá er spurningin gerðu
Saudi Arabar, Bretum, Banda-
ríkjamönnum og Frökkum tilboð
um eitthvað til að þeir beittu hern-
aðaríhlutun í borgarastyrjöldinni í
Sýrlandi?“
Jón Magnússon
Viðsjár í Mið-
Austurlöndum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 27.8., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 9 rigning
Akureyri 14 skýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 12 þoka
Ósló 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 20 heiðskírt
Lúxemborg 20 léttskýjað
Brussel 23 heiðskírt
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 skýjað
London 22 heiðskírt
París 22 léttskýjað
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 21 skýjað
Vín 18 skýjað
Moskva 15 léttskýjað
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 31 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 31 heiðskírt
Winnipeg 25 skýjað
Montreal 22 alskýjað
New York 27 léttskýjað
Chicago 31 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:59 20:59
ÍSAFJÖRÐUR 5:56 21:13
SIGLUFJÖRÐUR 5:39 20:56
DJÚPIVOGUR 5:27 20:31
Stjórn sjálfstæðismanna í Hóla- og
Fellahverfi hefur samþykkt einróma
ályktun vegna flugvallarins í Vatns-
mýri, þar sem minnt er á ályktun
landsfundar Sjálfstæðisflokksins sl.
vor um að Reykjavíkurflugvöllur
gegni óumdeilanlegu lykilhutverki
sem miðstöð sjúkra- og innanlands-
flugs. Því skuli vellinum tryggð
áframhaldandi aðstaða í Vatnsmýr-
inni og hefjast skuli hið fyrsta handa
við byggingu nýrrar flugstöðvar.
Grunnforsenda sé að þar séu reknar
tvær flugbrautir til frambúðar.
„Stjórn Félags sjálfstæðismanna í
Hóla- og Fellahverfi styður áfram-
haldandi staðsetningu flugvallarins í
Vatnsmýrinni. Jafnframt skorar fé-
lagið á borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins að fara að samþykktum
landsfundar í störfum sínum á veg-
um Sjálfstæðisflokksins.“
Fulltrúar fari að
samþykktum lands-
fundar um flugvöll
Dómsmál
og gjaldþrot
Í frétt um umsóknir hjá umboðs-
manni skuldara í Morgunblaðinu í
gær kom ranglega fram að endur-
vekja þyrfti kröfur á þá sem hefðu
ekki verið lýstir gjaldþrota með
dómsmáli. Hið rétta er að höfða þarf
dómsmál til að endurvekja kröfur á
þá sem hafa verið lýstir gjaldþrota.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
Mikil óánægja er meðal geislafræð-
inga með að ekki sé enn búið að ráða
formann Félags geislafræðinga á rönt-
gendeild Landspítalans. Þetta kom
fram á fjölmennum fundi geislafræð-
inga í vikunni.
Katrínu Sigurðardóttur, formanni
félagsins, hefur verið boðin staða inn-
an spítalans en ekki á röntgendeild þar
sem hún starfaði áður.
„Við viljum að þeir færi rök fyrir
þessari ákvörðun sinni. Svarið sem
kemur frá þeim er á þá leið að ekki sé
nein staða laus á röntgendeild, en fólk-
ið sem vinnur þar finnur fyrir því að
vöntun er á starfsfólki. Okkur finnst
þetta veik rök fyrir því að ráða ekki
manneskju með yfir 30 ára reynslu,“
segir Harpa Dís Birgisdóttir, geisla-
fræðingur og varaformaður Félags
geislafræðinga.
Katrínu var sagt upp störfum á
röntgendeild í maí sl. þegar hluti starfs
hennar var lagður niður. Á svipuðum
tíma auglýsti Landspítalinn eftir
starfsmanni á röntgendeild og segir
Harpa Dís að henni vitandi hafi engar
umsóknir borist í þá stöðu. Margir
geislafræðingar komu sem kunnugt er
nýlega til starfa, eftir að hafa sagt upp.
Vilja fá rökstuðning frá LSH
Telja að Landspítalinn hafi brotið gróflega á formanni Félags geislafræðinga
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Geislafræðingar
segja að mannekla sé á spítalanum.