Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 13
þjóð og Talvik-göngin í Noregi, en á
síðastnefnda staðnum er Ístak sam-
starfsaðili.
Rekstur Pihl & Søn hefur verið
erfiður tvö síðustu ár og nam tap fé-
lagsins hátt í hálfum milljarði
danskra króna á síðasta ári.
Erfið erlend verkefni
Talið er að grunninn að erfiðleik-
unum megi rekja til stórra erlendra
verkefna eins og í Panama og á Srí
Lanka. Heimskreppan hafði áhrif á
verkkaupa um allan heim, fyrirtæk-
inu gekk illa að fá greitt og ágrein-
ingur var gerður um mörg mál.
Fyrirtækið þurfti að afskrifa kröfur
og halla fór undan fæti.
Fleira kom þó til. Í tilkynningu
frá stjórn móðurfélagsins á mánu-
dag segir að það sé tilneytt að „taka
þá erfiðu ákvörðun að sækjast eftir
gjaldþrotaskiptum þar sem félaginu
mistókst að finna fjárhagslega nið-
urstöðu sem gæti haldið rekstrinum
gangandi“.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að fyrr á árinu var ný stjórn skipuð,
en mikil útþenslustefna árin á und-
an hafði mistekist. Var það m.a.
vegna þess að ekki hafði verið gætt
að fjárhagsgetu undirverktaka og
verkkaupenda. Þá segir að ekki hafi
verið nægjanlega vel horft til gæða
verkefna og áhættugreiningar þeg-
ar farið var í útþensluna.
Óperan Meðal verkefna sem Pihl & Søn kom að á síðustu árum var bygging óperuhússins í Kaupmannahöfn.
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Fyrirtækið var stofnað í Kaupmannahöfn árið 1887 af Lauritz Emil Pihl
múrarameistara. Árið 1916 kom Carl sonur hans inn í reksturinn og nafn
fyrirtækisins varð E. Pihl & Søn. Árið 1947 keypti Kay Langvad verkfræð-
ingur helminginn í fyrirtækinu, en hann hafði m.a. komið að byggingu
hitaveitu í Reykjavík. Kay Langvad var kvæntur Selmu Þórðardóttur Guð-
johnsen frá Húsavík. Fjölskyldan bjó hér á landi árin 1940-45 og hefur
ávallt haft mikið samband við Íslendinga.
Sonur þeirra, Søren Langvad, hóf störf hjá fyrirtækinu árið 1950 og
starfaði þar til dauðadags í desember í fyrra, 88 ára að aldri. Árið 1971
tók hann við stöðu aðalframkvæmdastjóra af föður sínum og varð síðan
stjórnarformaður, en lét af því embætti í mars í fyrra.
Fyrirtækið hefur ávallt haft mikil tengsl við Ísland og á t.d. Ístak að
fullu, en Søren var um árabil stjórnarformaður Ístaks. Søren var sæmdur
riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, var heiðursfélagi Verkfræðinga-
félagsins og heiðursdoktor frá HÍ.
Í samtali Einars Fals Ingólfssonar við Søren Langvad í Morgunblaðinu í
febrúar 2005 kemur fram að Sören kom að öllum stórum virkjunar-
framkvæmdum á Íslandi í rúmlega hálfa öld, á vegum fjölskyldufyrirtæk-
isins Pihl & Søn og Ístaks. Kjartan Langvad, sonur Sørens, á nú sæti í
stjórn Ístaks.
Fjölskyldan hefur alla tíð haft
mikil og sterk tengsl við Ísland
KOM AÐ VIRKJUNARFRAMKVÆMDUM Í YFIR HÁLFA ÖLD
Á góðri stundu Páll Sigurjónsson, (t.h.), fyrrverandi forstjóri Ístaks, og Søren
Langvad, sem í fjölda ára var í forystu fyrir Pihl & Søn í Danmörku og einnig
stjórnarformaður Ístaks. Að baki þeim má sjá Loft Árnason, núverandi stjórnar-
formann Ístaks. Myndin var tekin 2003 er nýtt húsnæði Ístaks var tekið í notkun.
Morgunblaðið/Arnaldur
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
citroen.is
CITROËN C3
FRÁ 2.330.000 KR.
Einstaklega sparneytinn, lipur og þægilegur. Notar einungis frá 3,4 l/100 km í blönduðum akstri. Há sætisstaða,
gnótt rýmis og ríkulegur staðalbúnaður veita þér hámarks notagildi og frelsi. Auk þess fær hann frítt í stæði í Reykjavík.
C3MEÐ FRUMLEIKA KEMUR FRELSI
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu
Fáanlegur sjálfskiptur með dísilvél