Morgunblaðið - 28.08.2013, Page 16

Morgunblaðið - 28.08.2013, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 Gísli Már Gíslason, prófessor við líf- og um- hverfisvís- indadeild Há- skóla Íslands, ætlar að leiða sveppa- áhugamenn og matgæðinga um Heiðmörkina næstkomandi laugardag í leit að sveppum skv. upplýsingum Ferða- félags Íslands. Gísli mun fræða þátttakendur um það hvaða sveppi má borða, hverjir eru eitraðir og hvernig má greina muninn, hvernig á að tína sveppina, verka þá og elda. Leita að sveppum Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur í samráði við oddvita Árnes- hrepps ákveðið að fresta boðuðu Fjórðungsþingi Vestfirðinga sem halda átti í Trékyllisvík í Árnes- hreppi 30. og 31. ágúst nk. til 27. og 28. sept. Í fréttatilkynningu segir að þinginu sé frestað vegna vænt- anlegs norðan illviðris á föstudag og fram á laugardag. Fresta þingi vegna spár um illviðri Íþróttasjóður Umsóknarfrestur til 1. október Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008. Veita má framlög til eftirfarandi verkefna: l Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana l Útbreiðslu- og fræðsluverkefna l Íþróttarannsókna l Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga Rannís hefur umsjón og eftirlit með Íþróttasjóði. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is Umsóknum skal skila á rafrænu formi. Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, andres.petursson@rannis.is, sími 515-5833. H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Laugavegi 13, 101 Reykjavík, Dunhaga 5, 107 Reykjavík, sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins, menntunar og þróunar mannauðs auk menningar og skapandi greina. Rannís stuðlar að þróun þekkingarsamfélagsins í gegnum rekstur samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum auk þess að greina og kynna áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag. Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Forsvarsmenn Mýflugs hafa skrifað undir kaupsamning á nýrri flugvél í stað TF-MYX sem fórst við Akur- eyri á frídegi verslunarmanna. Nýja flugvélin er af gerðinni King Air B200 og var framleidd árið 1999. Sigurður Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Mýflugs, segir vél- ina munu getað sinnt sjúkraflugi á Íslandi um langa framtíð. Mun betur tækjum búin „Það er enn ekki alveg ljóst hve- nær vélin kemst í gagnið, skráning- arferlinu lýkur ekki fyrr en yfirvöld gefa grænt ljós,“ sagði Sigurður Bjarni. „Það verður vonandi gert eins hratt og hægt er. En við eigum auðvitað eftir að ganga frá fjármögn- un.“ Flugvélin var keypt í Flórída- ríki í Bandaríkjunum, er sömu gerð- ar og TF-MYX, en töluvert nýrri. Lykilmuninn á þessari nýju vél og þeirri eldri segir Sigurður Bjarni helst þann að þessi vél sé mun betur tækjum búin, auk þess sem hún sé mun yngri. „Þetta er í rauninni eins vél, en þar sem hún er svona ný þá er hér komin flugvél sem getur þjónað sjúkrafluginu um langa framtíð. Þessi flugvél verður ennþá fín eftir 10 ár,“ sagði Sigurður Bjarni. Hann benti jafnframt á að flugvélar eru þess eðlis að hlutar þeirra séu í reglulegri endurnýjun meðan á líf- tíma þeirra stendur. „Þessi flugvél er samt nýleg miðað við það sem gengur og gerist í þessum bransa og mjög vel búin.“ Fjármögnun ófrágengin Sigurður Bjarni ítrekar þó þann fyrirvara að enn sé ekki búið að ganga frá fjármögnun vélarinnar. „Við erum hins vegar búnir að skrifa undir kaupsamning á vél sem við er- um mjög ánægðir með.“ Starf Mýflugs hefur markast að mörgu leyti af því hræðilega flug- slysi sem varð á frídegi verslunar- manna, þar sem einn flugmanna fé- lagsins og sjúkraflutningamaður létu lífið. „Það var samt engan bilbug á mönnum að finna og allir ákveðnir í að halda áfram með það verkefni sem sjúkraflugið er.“ Sigurður Bjarni sagði frumskýrslu að vænta frá Rannsóknarnefnd samgöngu- slysa, en ekki er vitað hvenær rann- sókn málsins lýkur. Mýflug undirritar kaupsamning  Búið að undirrita samning um kaup á nýrri flugvél í stað TF-MYX  Fjármögnun vélarinnar enn ófrá- gengin  Nýja flugvélin mun geta sinnt sjúkraflugi um langan tíma  Ekki ljóst hvenær hún kemur Sjúkraflug Flugvélin sem Mýflug hefur undirritað kaupsamning um er af sömu gerð og TF-MYX. Hún mun sinna sjúkraflugi, líkt og forveri hennar. Mýflug » Ekki er enn ljóst hvenær ný flugvél Mýflugs verður tekin til notkunar við sjúkraflug. » Enn á eftir að ganga frá fjár- mögnun vélarinnar. » Flugvélin mun geta sinnt sjúkraflugi um langa framtíð. » Flugvélin er af sömu gerð og sú sem fórst á frídegi versl- unarmanna, en er talsvert yngri og betur tækjum búin. Átaki til að draga úr notkun plast- poka var ýtt úr vör í gær en með því eru Íslendingar hvattir til að hætta að kaupa plastpoka á laug- ardögum. Forsvarsmenn átaksins segja Íslendinga nota árlega um 50 milljónir burðarpoka úr plasti sem ekki brotnar niður í náttúrunni. Stór hópur fólks stendur að baki átakinu sem var kynnt frétta- mannafundi í gær en þ.á m. er Dor- rit Moussaieff, forsetafrú. Við kynningu átaksins var bent á að pokarnir væru keyptir fyrir verðmætan gjaldeyri og þó að hluti söluvirðis endaði í Pokasjóði til styrktar góðgerðamálum væri það aðeins lítill hluti. Miklu hagkvæmara væri að kaupa sérstaka plastpoka til að nota fyrir rusl. „Ríki á borð við Bangladess og Rúanda hafa þegar bannað notkun á plastpokum vegna þess skaða sem þeir valda. Íslendingar sem byggja afkomu sína á sjálfbærri nýtingu á hreinni náttúru og orku gætu orðið fyrstir Norðurlanda- þjóða til að draga verulega úr notk- un plastpoka,“ segir í fréttatilkynn- ingu. Opnuð hefur verið vefsíða plast- pokalaus.com þar sem birt er opið bréf til Íslendinga sem hvattir eru til að draga úr plastpokanotkun. Átak gegn plastpokanotkun Morgunblaðið/Eggert Kynning Átakið gegn plastpokanotkun var kynnt á fréttamannafundi í gær.  Hópur fólks tekur höndum saman og skorar á Íslendinga að taka upp plastpoka- lausa laugardaga  3,2 milljarðar af gjaldeyri í kaup á plastpakkningum á ári Plastpokanotkun » Talsmenn átaksins segja 800 þúsund lítra af olíu þurfa til að framleiða þá plastpoka sem Íslendingar nota árlega. » Hver plastpoki sé aðeins notaður í 20 mínútur að með- altali, en brotni ekki niður í náttúrunni nema á hundruðum eða þúsundum ára. » Í fyrra hafi Íslendingar eytt 3,2 milljörðum kr. af erlendum gjaldeyri í plastpakkningar. Klemenz Sæ- mundsson hyggst hjóla hringinn í kringum Ísland á níu dögum, hlaupa hálf- maraþon og fagna svo fimm- tugsafmæli að því loknu. Til- gangurinn er að safna áheitum til styrktar blóð- lækningadeild Landspítalans. Hann lagði af stað frá Sund- miðstöð Keflavíkur á níunda tím- anum í gærmorgun og var stefnan tekin á Vík í Mýrdal. Markmiðið er að loka hringnum 4. september en þá verður Klemenz fimmtugur. Sama dag ætlar hann að hlaupa 23,5 km, svokallaðan „Klemma“. Hlaupaleiðin er Reykja- nesbær-Sandgerði-Garður- Reykjanesbær. Skipuleggjendur benda á að Klemmahlaupið sé öllum opið og hvetja þeir sem flesta að taka þátt og styrkja málefnið. Hjólar hringinn og hleypur „Klemma“ Klemenz Sæmundsson STUTT Skátarnir hafa opnað nýjan kynn- ingarvef til að bæta þjónustu sína og kynna starf sitt þeim sem vilja byrja í skátunum. Þeir sem vilja taka þátt í skátastarfi fá nú góðar og gagnlegar upplýsingar um starf- ið, segir í fréttatilkynningu. „Við erum mjög ánægð með þennan áfanga og mikil gleði hjá okkur með nýja vefinn,“ segir Her- mann Sigurðsson, framkvæmda- stjóri skátamiðstöðvar. Undanfarin ár hafa skátarnir endurnýjað starfsgrunn sinn og var orðið tíma- bært að uppfæra vefinn til sam- ræmis við hann. Endurnýjun kynningarvefsins er hluti af stærra verkefni skátanna því þeir ætla að taka í gegn öll sín kynningarmál og miðlun. Kynningarvefur Starfsmenn skátamið- stöðvarinnar ásamt hönnuði nýja vefsins. Skátarnir fagna nýj- um kynningarvef

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.