Morgunblaðið - 28.08.2013, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
100% made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar
Gríðarmiklir kjarreldar í Kali-
forníuríki í Bandaríkjunum hafa
nú farið yfir um 650 ferkílómetra
svæði og ógna Yosemite-þjóðgarð-
inum og vatnsuppsprettum og
orkugjöfum San Francisco-borgar.
Um 3.600 slökkviliðsmenn berj-
ast við eldinn og hafa að ein-
hverju leyti náð að hefta út-
breiðslu hans en hann stefnir í
austurátt og mun líklega enn
aukast vegna þurrka og hita. Eld-
arnir hafa teygt sig í áttina að
Hetchy-vatnsbólinu, sem er einn
aðalvatnsforði San Francisco-
borgar, og slökkt hefur verið á
vatnsorkurafölum í nágrenninu í
varúðarskyni.
Allt að 20 þyrlur og flugvélar
hafa verið notaðar við slökkvi-
starfið en ein megináhersla að-
gerðanna hefur verið að hefta
úbreiðslu eldsins innan Yosemite-
þjóðgarðsins. Eldarnir hafa enn
ekki haft bein áhrif í Yosemite-
dal, sem er helsti áfangastaður
ferðamanna innan garðsins, en
nærri fjórar milljónir ferðalanga
heimsóttu þjóðgarðinn í fyrra.
Kjarreldarnir eru þeir þrett-
ándu stærstu í sögu ríkisins og
hafa nokkrir bæir verið rýmdir.
Um 4.500 byggingar, mest sumar-
hús, eru talin í hættu en áætlað er
að eldarnir hafi þegar valdið tjóni
að andvirði 20 milljóna Banda-
ríkjadollara, jafnvirði 2,4 millj-
arða króna.
AFP
Það brennur Ekki er vitað hvernig eldurinn kviknaði en hann braust út 17.
ágúst og hefur gleypt í sig 11 heimili, 12 útihús og tjaldsvæði í þjóðgarðinum.
Þjóðgarðurinn og
vatnsból í hættu
3.600 berjast við elda í Kaliforníu
Sviss. CNN. | Í viðleitni til að draga
úr vændi á götum borgarinnar og
auka öryggi vændiskvenna hafa
borgaryfirvöld í Zürich í Sviss opn-
að bílavændishús. Húsið er bílskýli
sem rúmar níu bíla en við aðrein að
skýlinu geta konurnar sýnt „varn-
ing“ sinn og rætt við kúnnann um
verð og þjónustu. Áætlað er að á
milli 30 og 40 konur komi til með að
nýta sér skýlið á hverri nóttu en
leigan er 5 svissneskir frankar.
Michael Herzig, starfsmaður fé-
lagsmálayfirvalda í Zürich, segir
vændi hafa aukist í borginni og fara
fram á götum úti, þar sem menn
hendi notuðum smokkum eftir að
hafa lokið sér af. „Verkefnið er afar
umdeilt. Vændi snýst um siðferði og
trú. En við ýtum þessum þáttum til
hliðar og horfum á þetta sem við-
skipti. Mannúðarþátturinn er okkur
mikilvægari,“ segir Herzig, sem fer
fyrir verkefninu.
Skýlin eru opin frá klukkan 19 á
kvöldin þar til klukkan 5 á morgn-
ana en þegar búið er að semja um
þjónustuna keyrir kúnninn inn í
skýlið, þar sem þjónustan er veitt.
Öryggisverðir gæta kvennanna og
neyðarhnappur er í hverju plássi en
í skýlinu eru einnig salerni, sturtur,
þvottavélar og eldhús sem konurnar
hafa aðganga að. Þá heimsækir
kvensjúkdómalæknir skýlið einu
sinni í viku og býður upp á lækn-
isskoðun.
Konunum standa einnig til boða
námskeið í þýsku og sjálfsvörn en
Herzig segir allt þetta munu bæta
lífsskilyrði og vinnuaðstæður þeirra.
Vændi er löglegt í Sviss, flokkast
sem sjálfstæð atvinnustarfsemi og
er skattlagt af ríkinu.
„Við erum að reyna að efla sjálf-
stæði og sjálfsákvörðunarrétt kyn-
lífsstarfsmanna,“ segir Herzig.
„Þetta er ekki einstök hugmynd.
Við fórum til Utrecht í Hollandi og
Cologne og Essen í Þýskalandi, þar
sem svipuð verkefni eru rekin, til að
tala við skipuleggjendurna. Í Ut-
recht hefur það verið rekið með
góðum árangri síðan 1986,“ segir
hann.
Borgaryfirvöld í Zürich
opna bílavændishús
Ætlað að auka öryggi og draga úr vændi á götunni
AFP
Vændi Skýlin eru lokuð á daginn en upplýst þegar opið er yfir nóttina.
Vændisskýli
» Vændi er löglegt í Sviss og
vændiskaup sömuleiðis.
» Kynlífsstarfsmenn greiða
skatt af starfsemi sinni.
» Verkefnið er umdeilt en var
samþykkt með 52% atkvæða í
þjóðaratkvæðagreiðslu í mars í
fyrra.
» Skýlin eru opin frá klukkan
19 til klukkan 5 á morgnana.