Morgunblaðið - 28.08.2013, Síða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Svanbjörn frændi, eða Lúlli
frændi eins og við kölluðum
hann, var stór hluti af lífi okkar
systra. Hann bjó fyrstu æviárin
í Ásgarði í Glerárþorpi en á
stríðsárunum byggðu afi og
amma hús í Brekkugötunni. Þar
ólst hann upp með mömmu okk-
ar sem var fjórum árum eldri og
eina systkini hans sem lifði.
Mamma rifjaði oft upp
skemmtilegar sögur af bróður
sínum, meðal annars þegar
hann, stráklingurinn, laumaðist
upp í rafveitubílinn sem afi hafði
lagt fyrir utan húsið í Brekku-
götunni og ók hring í kringum
íþróttavöllinn. Mörgum brá þeg-
ar þeir sáu bílinn, því varla sást
í bílstjórann. Síðar átti eftir að
togna úr Lúlla og bílaáhuginn
fylgdi honum alla ævi.
Lúlli lærði rafvirkjun eins og
afi og síðan rafmagnstæknifræði
í Svíþjóð. Þar kynntist hann
Margaretu sinni sem fluttist
með honum til Íslands árið 1963
og varð hluti af fjölskyldunni.
Þau bjuggu í Brekkugötunni
fyrstu hjúskaparárin, ásamt afa
og ömmu, foreldrum okkar og
okkur systrum og þar tóku
Birna og Geir fyrstu sporin. Við
vorum sem ein fjölskylda í
Brekkugötunni og fjölskyldu-
böndin voru sterk.
Samgangur milli fjölskyldn-
anna var áfram mjög mikill eftir
að Lúlli og Margareta fluttu í
eigið húsnæði í Kotárgerði. Við
vorum saman á stórhátíðum og
jólin eru okkur sérstaklega
minnisstæð. Í minningunni var
borðhaldinu á aðfangadagskvöld
alltaf frestað vegna þess að Lúlli
og afi voru kallaðir til vinnu þeg-
ar álagið á rafkerfið var sem
mest. Jólasveinn kom alltaf með
gjafirnar til okkar krakkanna en
Lúlli missti merkilega oft af
þeirri heimsókn. Hann var hins
vegar með þegar við sungum og
dönsuðum í kringum jólatréð á
jóladag.
Við fórum allar í ferðalög með
Lúlla og fjölskyldu, bæði hver í
sínu lagi og með foreldrum okk-
ar. Sérstaklega eftirminnilegar
eru ferðin í Munaðarnes 1972
þegar Guðrún var pínulítil og
svo Öskjuferð nokkrum árum
síðar. Einnig á Sigrún mjög góð-
ar minningar frá því að hitta
Lúlla og Margaretu á æsku-
heimili hennar í Gautaborg og
ferðast með þeim til Noregs og
svo heim með Norrænu.
Lúlli var einn af stofnendum
Flugsafnsins á Akureyri og var
heiðraður fyrir mikil og góð
störf í þágu safnsins í apríl síð-
astliðnum. Hann var mikill
áhugamaður um flug og lét
draum sinn rætast þegar hann
var fimmtugur. Þá lærði hann að
fljúga, keypti sér hlut í flugvél
og naut sín í háloftunum þar til
hann lenti í flugslysi fyrir
nokkrum árum. Þá héldu æðri
máttarvöld verndarhendi yfir
honum.
Lífið var ekki alltaf dans á
rósum hjá Lúlla frænda en hann
tókst á við erfiðleikana með
bjartsýni og þrautseigju að leið-
arljósi. Það kom vel í ljós í upp-
hafi árs þegar hann keypti sér,
eins og hann var vanur, árskort í
líkamsrækt þótt hann hefði verið
við dauðans dyr fáum vikum áð-
ur.
Við höfum alltaf verið stoltar
Svanbjörn
Sigurðsson
✝ Svanbjörn Sig-urðsson, kall-
aður Lúlli, fæddist í
Ásgarði í Glerár-
þorpi 1. janúar
1937. Hann lést á
heimili sínu 18.
ágúst 2013.
Útför Svan-
björns fór fram frá
Akureyrarkirkju
27. ágúst 2013.
af frænda okkar og
litið upp til hans.
Hann hefur alltaf
verið til staðar í lífi
okkar og átt þar
sérstakan sess. Við
erum þakklátar fyr-
ir allar góðu sam-
verustundirnar sem
við höfum átt með
Lúlla frænda og
fjölskyldu hans.
Góðar og fallegar
minningar munu lifa með okkur.
Sigrún, Helga og Kristín
Aðalgeirsdætur.
Svanbirni kynntist ég eftir að
hann boðaði nokkra flugsögu-
áhugamenn á fund til sín á Raf-
veituskrifstofuna við Þórsstíg í
hádeginu einn janúardag árið
1999, til þess að ræða hugmynd-
ir að stofnun Flugsafns á Ak-
ureyri. Ekki vantaði hugmyndir
eða flugvélar til að sýna, og flug-
skýli hafði Svanbjörn í sigtinu
sem væri falt fyrir sanngjarnt
verð. Þó að fjármögnunin væri
stærsti þröskuldurinn til að
þetta yrði að veruleika, fannst
honum það bara eitt af verkefn-
unum og var ekkert að láta það
stoppa sig. Safnið opnaði síðan
24. júní 2000 með sýningu og
fyrsta flugdeginum. Næstu árin
veitti Svanbjörn safninu for-
stöðu auk þess að vera stjórn-
arformaður allt til ársins 2009. Á
þessum árum vann hann það
stórvirki að breyta Flugsafninu
frá því að vera sýning í að verða
fullgilt safn að skilgreiningu
Þjóðminjaráðs. Árið 2005 var
nafni safnsins breytt í Flugsafn
Íslands og hófst á sama tíma
undirbúningur að byggingu nú-
verandi stórbygginga safnsins á
Akureyrarflugvelli. Mikið
mæddi á honum á þeim tíma er
byggingin var að rísa og við fjár-
mögnun hennar. Óhætt er að
segja að ég velti því oft fyrir
mér hvort hann væri að segja
satt, svo ótrúlega vel gekk hon-
um að fjármagna verkefnið og
að halda því gangandi. Árið 2007
var síðan opnað safnið í nýju
byggingunni. Að öðrum ólöstuð-
um átti Svanbjörn þar stærstan
hlut að máli.
Samstarf okkar var mikið all-
an þennan tíma og okkur gekk
vel að vinna saman, við vorum
ósammála um algjör smáatriði
en sammála um allt sem skipti
máli. Núna 6. apríl síðastliðinn
heiðraði Flugsafnið Svanbjörn
fyrir ómetanlegt framlag hans
til safnsins. Mín bjartasta minn-
ing frá þeim degi var að sjá hvað
hann var ánægður og glaður
þrátt fyrir að sjá mætti á honum
að drægi að leikslokum.
Svanbjörn átti líka andlega
hlið sem ég kynntist lítillega,
hún var honum dýrmæt og var
ekkert verið að fleipra með
hana.
Takk fyrir samfylgdina, kæri
vinur.
Margrete, börnum og fjöl-
skyldum þeirra færi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur og
þökk fyrir allt.
Hörður Geirsson.
Svanbirni Sigurðssyni kynnt-
ist ég fyrst þegar hann starfaði
hjá Rafveitu Akureyrar sem raf-
magnstæknifræðingur. Leiðir
okkar áttu síðan eftir að liggja
víða saman, einkum eftir að
hann tók við starfi rafveitustjóra
á Akureyri og ég starfi rafveitu-
stjóra á Akranesi.
Svanbjörn var tæknilega
mjög fær og ráðagóður. Þess
vegna var gott að leita til hans
með ýmis viðfangsefni og tækni-
leg álitamál. Samvinna okkar á
vegum Sambands íslenskra raf-
veitna og síðar Samorku var
einnig mikil og eins í Félagi raf-
veitustjóra sveitarfélaga.
Síðast lágu leiðir okkar saman
í Orkusenatinu. Það er lítið félag
fyrrverandi stjórnenda og sér-
fræðinga sem sinntu veitustörf-
um og höfðu tengsl í gegnum
Samorku eða önnur samtök
veitufyrirtækja. Svanbjörn var
einn af stofnendum þess félags
og í stjórn þess frá byrjun,
lengst af sem gjaldkeri og lagði
sitt af mörkum eins og víðar þar
sem hann kom að málum, enda
áhugasamur um félagsmál.
Alltaf var gaman að hitta
Svanbjörn, rifja upp gamla tíma
og heyra sögur úr fluginu, en
hann var mikill áhugamaður um
flug. Hann var einn af aðal-
hvatamönnum að stofnun Flug-
safns Íslands á Akureyri og
fyrsti stjórnarformaður þess.
Sumarið 2009 lögðum við í
Orkusenatinu leið okkar til Ak-
ureyrar og nutum góðrar leið-
sagnar Svanbjarnar. Sérstak-
lega er mér minnisstæð
heimsóknin í Flugsafnið, þar
sem Svanbjörn fræddi okkur um
safngripina af alúð og mikilli
þekkingu.
Við félagarnir í Orkusenatinu
minnumst Svanbjarnar með
virðingu og þökk og sendum
Reine og fjölskyldu innilegar
samúðarkveðjur.
Magnús Oddsson.
Frumkvöðull er fallinn frá.
Svanbjörn Sigurðsson, aðal-
hvatamaður að stofnun Flug-
safns Íslands, fyrsti stjórnarfor-
maður þess og
framkvæmdastjóri, er látinn eft-
ir erfið veikindi. Um ættir og
uppruna Svanbjörns verða aðrir
að skrifa því til þess skortir und-
irritaða þekkingu. Okkar góðu
kynni voru á sviði flugsins.
Svanbjörn, Lúlli eins og hann
var kallaður meðal vina, kynnt-
ist sviffluginu á Melgerðismelum
ungur að árum og var mikill
áhugamaður um flug alla tíð.
Hann tók svifflugpróf árið 1986
og vélflugpróf ári síðar.
Eins og áður sagði var Svan-
björn lykilmaður í stofnun Flug-
safnsins á Akureyri árið 1999.
Óhætt er að taka undir það sem
fram kom á samkomu honum til
heiðurs, í safninu síðastliðið vor,
að safnið hefði ekki orðið til án
hans. Þar var Lúlli sannkallaður
prímus-mótor.
Fyrir þrautseigju Svanbjörns
fékkst stuðningur við uppbygg-
ingu safnsins á ólíklegustu stöð-
um; þegar kom að því að leita
fyrirgreiðslu vegna þessa hjart-
ans máls hins dagfarsprúða og
elskulega manns, taldist nei ekki
viðunandi svar. Gilti einu hvort
það var áður en safnið varð að
veruleika, fyrstu rekstrarárin
eða þegar ráðist var í að byggja
það mikla hús sem hýsir safnið í
dag. Svo lengi sem Flugsafn Ís-
lands stendur mun Svanbjörns
verða minnst með hlýju, þakk-
læti og virðingu.
Við vottum konu Svanbjörns,
Reine Margareta, börnum
þeirra og fjölskyldum innilega
samúð okkar. Blessuð sé minn-
ing Svanbjörns Sigurðssonar.
Arngrímur Jóhannsson,
Húnn Snædal,
Pétur P. Johnson.
✝
ÁSVALDUR BJARNASON
frá Hvammstanga
verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju
föstudaginn 30. ágúst kl. 15.00.
Gunnar Richardsson,
Þór Magnússon.
✝
Elskuleg eiginkona, stjúpmóðir, tengdamóðir,
amma, systir, mágkona og frænka,
ÁSDÍS KJARTANSDÓTTIR
frá Bakka á Seltjarnarnesi,
Suðurgötu 56,
Siglufirði,
lést mánudaginn 12. ágúst á Sjúkrahúsi
Siglufjarðar.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 31. ágúst
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á styrktarfélagið Göngum saman, sem
styrkir brjóstakrabbameinsrannsóknir, www.gongumsaman.is,
eða í síma Krabbameinsfélagsins, 540 1990.
Björn Jónasson,
Rakel Björnsdóttir, Thomas Fleckenstein,
María Lísa Thomasdóttir, Björn Thomasson
og aðstandendur hinnar látnu.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR Þ. ÞÓRHALLSSON
frá Ánastöðum,
Neshaga 14,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn
30. ágúst kl. 15.00.
Þorbjörg Ólafsdóttir, Jón M. Benediktsson,
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir, Necmi Ergün,
Júlíus Heimir Ólafsson, Vigdís Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN ALDA HARÐARDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju
föstudaginn 30. ágúst kl. 14.00.
Helgi Ívarsson, Ingibjörg H.W. Guðmundsdóttir,
Kjartan Þór Helgason,
Gunnar Örn Helgason,
Ómar Vignir Helgason, Edda Linn Rise,
Guðrún Alda Helgadóttir, Lúðvík Kristjánsson,
langömmubörn og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG LOVÍSA SÆMUNDSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 1a,
Kópavogi,
lést mánudaginn 19. ágúst á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn
5. september kl. 15.00.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar fyrir einstaka
umönnun og hlýju.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Halldór Thorberg Lárusson, Kristjana Jónsdóttir,
Sæmundur Guðni Lárusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Faðir okkar og tengdafaðir,
GUÐNI ÞÓRÐARSON,
andaðist á Landspítalanum sunnudaginn
25. ágúst.
Jón Snævarr Guðnason, Þórdís Unndórsdóttir,
Sigrún Halla Guðnadóttir, Ólafur Ólafsson
og aðrir aðstandendur.
✝
HELGI JAKOBSSON,
fyrrverandi skipstjóri og útgerðarmaður,
til heimilis á Kirkjuvegi 15,
Dalvík,
sem lést sunnudaginn 4. ágúst, verður
jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju laugardaginn
31. ágúst kl. 13.30.
Birna Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför bróður
okkar, mágs og föðurbróður,
SIGURBJÖRNS BENEDIKTSSONAR,
Bjössa,
Stigahlíð 54,
Reykjavík.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki á sambýlinu í Stigahlíð 54
og Heimahlynningu fyrir mjög góða umönnun og nærgætni í
veikindum hans. Einnig þakkir til starfsfólks Lækjaráss fyrir
umhyggju og stuðning.
Bergur Benediktsson, Ragnhildur Þórarinsdóttir,
Helgi Benediktsson, Kristín Helgadóttir
og bræðrabörn.
✝
Elskuleg systir okkar og mágkona,
MARGOT THORLÁKSSON
Åflojen 20,
2700 Brönshöj,
Kaupmannahöfn,
lést miðvikudaginn 21. ágúst á Bispebjerg-
sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn.
Útförin hefur farið fram.
Nanna Pétursdóttir, Hörður Pétursson,
Gunnar Þorláksson og fjölskyldur.