Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 10
Gullið Fljótandi íslenskt hunang á stökku mjólkurkexi. Það gerist varla mikið betra.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Fyrst þegar ég kom hingaðvoru aðeins sjö bý-flugnabændur á landinuog voru þeir með um
þrjátíu bú. Býflugurnar þeirra voru
alltaf að drepast og fólk skildi ekki
af hverju. Hingað komu bandarískir
sérfræðingar sem reyndu að finna
út ástæðuna, hvort það væri sökum
raka eða langra vetra. Ég mætti
hingað til lands fyrst árið 2007 og
lagði til að byggja skúr í kringum
búin til að halda réttu hitastigi á
þeim. Búin þurfa að vera þurr og
það þurfa að vera þrjátíu og fjórar
gráður í þeim til að býflugurnar lifi.
Það er bara ákveðin uppskrift að
þessu og ef hún er röng þá drepast
þær,“ segir Eyvind Pedersen sem
miðlað hefur býflugnaþekkingu
sinni til þeirra er stunda slíka rækt
hér á landi.
Verður yngri með
hverju árinu
„Ég var eitt sinn býflugnabóndi
sjálfur en mér snerist hugur. Ég
ákvað að verða aðeins aðstoðar-
maður, leyfa býflugunum að sjá um
sig sjálfar. Engin afskipti þýða eng-
in mistök. Þær vita það sjálfar hvað
er þeim fyrir bestu,“ segir Eyvind.
„Föðuramma mín var býflugna-
bóndi skömmu eftir stríð og ég
hjálpaði henni með býflugurnar frá
sjö ára aldri. Ég settist svo að á
Nýja-Sjálandi – ég hefði varla getað
komist lengra að heiman – og þar
fór ég á eftirlaun. Eftir mörg von-
brigði í lífinu ákvað ég að ég myndi
ekki gera neitt nema það sem ég
hefði áhuga á. Ég hef aldrei verið
eins upptekinn og eftir að ég fór á
eftirlaun. Vinnuævi mín er lítilræði
samanborið við þá vinnu sem ég
tekst nú á við. Ég og eiginkonan
höfum verið að framleiða hunang og
selja á mörkuðum og það skilar
ágætis hagnaði. Ég ákvað einnig að
fara utan einu sinni á ári til að
kynna mér önnur lönd. Ég hef kom-
ið til Danmerkur, Þýskalands, Nor-
egs og hingað og búið til heimild-
armynd um hverja ferð. Ég er að
taka þátt í kerfi sem heitir „Enginn
vetur“ og það virkar ágætlega. Ég
er líka löngu hættur að borða hvítan
sykur, ég borða bara Manuka-
hunang í staðinn. Ef maður trúir
því, þá hefur það líklegast góð áhrif
á líkamann. Ef maður hefur ekki
trú á því virkar það ekki. Konan
mín hefur áhyggjur af mér því ég
borða svo mikið hunang. Ég er núna
að verða áttræður en mér finnst ég
yngjast með hverju árinu sem líður.
En ég er hamingjusamur. Þú ert að-
eins eins gamall og þér líður og mér
líður ekki eins og ég sé gamall,“
segir Eyvind sposkur á svip.
Möguleikar hér á landi
„Ég hef komið hingað hvert
einasta sumar frá því árið 2007. Ís-
lensku býflugnabændurnir kveðja
mig því aldrei þegar ég fer, þeir bú-
ast alltaf við mér aftur. Býflugna-
bændur í Danmörku halda margir
að ég sé hálfklikkaður því ég geri
margt sem þeir eru ekki vanir að
gera. Ég legg hins vegar mest upp
úr því að fræða bændur um það sem
virkar ekki og hvað það er sem fer
úrskeiðis. Ég hef upplifað þetta allt
sjálfur og fengið að súpa seyðið af
því. Það er gott að vita hvað þú átt
ekki að gera því þannig geturðu
sparað mikla peninga. Það skiptir til
Dularfullur dans
býflugnanna
Danski býflugnasérfræðingurinn Eyvind Pedersen hefur verið búsettur á
Nýja-Sjálandi í fimmtíu og tvö ár en kemur engu að síður til Íslands hvert
einasta sumar til að miðla þekkingu sinni af býflugnarækt til býflugnabænda
hér á landi. Hann segir býflugnaræktun göfuga iðn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öryggi Eyvind Pedersen klæðist iðulega hvítum hlífðarbúningi þegar hann
er að vasast í búunum því flugurnar ráðast frekar á dökkan klæðnað.
Þeim fjölgar stöðugt sem hjóla
allt árið um kring og það getur
verið dásamlegt að líða um á
reiðhjóli og njóta haustlitanna.
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
halda hjóladaginn í fyrsta skipti
og af því tilefni verður boðið
upp á viðhald á hjólunum og því
næst hjólað um Breiðholtið.
Stefnt er að því að hittast við
Breiðholtslaug um hádegi og er
ókeypis í laugina frá 10 til 12 í
dag. Eftir hjólatúrinn verður
boðið upp á hressingu og tónlist
leikin.
Endilega …
… hjólaðu með Betra Breiðholti
Morgunblaðið/Kristinn
Hjólaleið Hjóladagur í Breiðholti.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
Það er einfalt mál að gera eldsnjallar
tilraunir heima hjá sér. Foreldrar sem
vilja efla vísindavitund barna sinna
geta litið inn á þessa síðu og fengið
fjölmargar hugmyndir fyrir vísinda-
horn heimilisins. Á Sciencekids.co.nz
má til dæmis sjá hvernig hægt er að
búa til eldfjall úr ediki, natróni og
pappír. Einföld og áhrifarík tilraun
sem hægt er að gera inni í eldhúsi.
Það er að sama skapi lítið mál að búa
til hvirfilbyl í plastflösku, regnboga,
snjókorn og margt fleira sem virðist
töfrum líkast. Leiðbeiningarnar á síð-
unni eru aðgengilegar og oft þarf
ekki mikið tilstand til að skemmta
yngstu kynslóðinni. Einfaldar útskýr-
ingar á flóknum veðrabrigðum, upp-
byggingu atóma, alheiminum, dýra-
ríkinu og fleiru af svipaðri stærðar-
gráðu má finna á síðunni sem einnig
hvetur foreldra til að skoða heiminn
með börnum sínum.
Vefsíðan www.sciencekids.co.nz/
Morgunblaðið/RAX
Speglun Skýin speglast í vatninu, en af hverju og hvernig?
Af hverju er himinninn blár?
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Maraþon á Kínamúrnum
17. maí 2014
Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 10. september
kl. 17:30 í húsakynnum Bændaferða, Síðumúla 2.
Heilt maraþon, hálft maraþon og 8,5 km hlaup