Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 37
var í sumar í tilefni 95 ára af-
mælanna ykkar afa, var einstak-
lega vel heppnuð. Þið bæði svo
hress og nutuð ykkar út í ystu
æsar með stórfjölskyldunni.
Þessi helgi innrammar minning-
arnar okkar um ykkur og fjöl-
skylduna saman. Gott veður í
dalnum okkar, útivist, punktar
úr ævi ykkar afa rifjaðir upp í
ratleiknum, góður matur, gleði
og alltaf svo mikil samhygð og
vinátta.
Takk fyrir að vera mér góð
fyrirmynd og stuðningur í gegn-
um lífið. Takk fyrir að leyfa mér
að heimsækja þig í vinnuna og fá
að prófa að pakka fiski, takk fyr-
ir að leyfa mér að gista á Skóla-
veginum trilljón sinnum í æsku,
takk fyrir að vera skjólið mitt
þegar ég fór í fýlu við mömmu og
pabba, ætlaði að strjúka að heim-
an! Og hvert? Auðvitað heim til
ömmu og afa! Takk fyrir að leyfa
mér að ferðast með ykkur afa
sumar eftir sumar. Takk fyrir
spilastundirnar okkar, allan hlát-
urinn og skemmtunina sem við
áttum þar. Takk fyrir allar ynd-
islegu stundirnar með börnunum
mínum, knúsin og ástina sem þú
hefur sýnt þeim. Litla ömmugull-
ið mitt mun fá að heyra sögurnar
okkar af ömmu Jönu í Hnífsdal
þó hann hafi ekki náð að hitta
þig. Takk fyrir allt elsku amma!
Ég er svo rík að hafa átt þig og
mun skila því sem þú hefur
kennt mér áfram til minna af-
komenda.
Hvíl í friði elsku, besta amma
mín.
Ásgerður Gylfadóttir.
Elsku amma mín.
Ég bara trúi því ekki að þú
sért farin frá mér og á sama tíma
er ég svo þakklát fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum saman.
Þú varst full af ást og elskaðir að
vera með fjölskyldunni þinni og
við með þér. Ég vissi ekkert
betra en að koma vestur og eyða
með þér dögunum. Ég gat setið
allan daginn, hlustað á þig, horft
á þig hekla og prjóna fallegu
stykkin þín. Ég elskaði matinn
sem þú gerðir og allt sem þú
kenndir mér. Þú varst með svo
gott hjarta og það verður skrítið
að heyra ekki daglega í þér. Ég
er svo þakklát að fá að fylgja þér
og hafa fengið að vera með þér
síðustu stundirnar í þínu fallega
lífi. Það er svo margt sem mig
langar að segja en ég bara kem
ekki orðunum frá mér. Ég vil að
þú vitir að ég mun passa afa fyrir
þig og ég veit að þú munt fylgj-
ast með mér og börnunum mín-
um og vaka yfir okkur. Ég mun
kenna börnunum mínum allt sem
þú kenndir mér og leyfa þeim að
finna fyrir þeirri miklu ást og
kærleika eins og þú sýndir mér.
Elsku amma mín, takk fyrir
allt, þín verður sárt saknað.
Fósturlandsins Freyja,
fagra vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
(Matt. Joch.)
Ástarkveðja.
Þín
Hafdís Vera.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist endur-
gjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Elsku amma Jana, takk fyrir
allt, þú varst einstök amma, þín
verður sárt saknað.
Þórey, Kristjana, Brynja og
Hermann.
Elsku amma mín, mikið er
sárt að vita til þess að þú sért
farin af þessari jörð, mig langar
svo að leggjast í faðm þinn einu
sinni enn og segja þér hversu
þakklát ég er þér, hversu heitt
ég elska þig og hversu sárt ég
mun sakna þín.
Við barnabörnin eigum
ógrynni æskuminninga um afa
og ömmu, enda var heimilið
ykkar alltaf opið og þar var okk-
ar annað heimili. Á kveðjustund
renna margar minningar í gegn-
um hugann, þær eru allar góð-
ar, hlýjar og munu varðveitast
um ókomna tíð. Mér er minn-
isstætt hvað ég lærði mikið af
þér, amma, til dæmis þegar þú
varst að kenna mér að binda
slaufu, þá fékk ég það hlutverk
að binda svunturnar áður en við
fórum að baka. Þú kenndir mér
og leyfðir mér að hjálpa til við
heimilisstörfin, vökva blómin,
vaska upp en eftir að ég skúraði
fórstu aftur yfir gólfið í laumi.
Við sátum oft saman í stofunni
meðan afi horfði á íþróttir og
prjónuðum, þú gafst þér allan
þinn tíma til að kenna mér og
hjálpa.
Ég er svo þakklát fyrir að þú
náðir að kynnast dóttur minni.
Ég man þegar hún Guðrún
Marta var að koma í heiminn þá
vildi ég að þið væruð látin vita að
hún væri væntanleg, það var
snemma um morguninn. Um há-
degi, þegar þið afi áttuð að fara í
mat, vildir þú ekki fara frá sím-
anum því þú hafðir á tilfinning-
unni að síminn myndi hringja þá
og slepptir því matnum. Hálf-
tíma síðar var Guðrún Marta
mætt. Fallegasta minning mín er
þegar þú komst og hélst á dóttur
minni í fyrsta skiptið, hún var
svo vær og góð enda hefur hún
fundið fyrir hlýja faðminum þín-
um.
Allir sem þekktu þig, amma,
vita hversu góð manneskja þú
varst. Þú sýndir mér hvernig á
að elska fólkið sem er manni
kærast og hvernig eigi að koma
fram við náungann. Síðasta dag-
inn á sjúkrahúsinu, þegar við
vorum að kveðjast, spjallaði ég í
einrúmi við hjúkrunarfræðing-
inn, hún sagði við mig að hún sæi
einstaka fjölskylduást í kringum
þig. Henni þótti svo fallegt að sjá
umhyggjuna og ástina sem við
bárum öll til þín. Ég sagði við
hana að þú hefðir gefið okkur öll-
um skilyrðislausa ást og um-
hyggju, að þú hefðir verið okkar
engill í mannsmynd og það væri
ekkert annað hægt en að elska
þig endalaust.
Síðast þegar við spjölluðum
saman í síma sagðirðu við mig að
ég mundi spjara mig vel, þú viss-
ir það. Núna eftir að þú kvaddir
okkur veit ég að allt mun ganga
vel, því ég veit að þú fylgist með
og verður hjá mér.
Elsku amma, fallegi engillinn
minn og besta vinkona, ég elska
þig og takk fyrir allt sem þú hef-
ur gefið mér. Minning þín mun
varðveitast í hjarta mínu.
Þitt barnabarn og nafna,
Kristjana Pálsdóttir.
Elsku besta amma mín, ég
trúi því ekki að þú sért farin, ég
get ekki ímyndað mér lífið án
þín. Þegar ég ákvað að flytja
suður kveið ég mest fyrir að fara
frá þér, það var svo gott að koma
til þín og kúra, fá sér kókómjólk
og köku. Þegar ég hugsa til baka
þá eru svo margar góðar minn-
ingar, ég man þegar ég gisti hjá
þér og við sátum á kvöldin
frammi að horfa á sjónvarpið. Ég
var alltaf að spyrja: hvað eru þau
að segja? því ég skildi ekki ensk-
una og þú svaraðir mér svo þol-
inmóð. Svo þegar mamma og
pabbi fóru í frí og skildu okkur
eftir gat ég hvergi verið nema
hjá þér, ef ég reyndi að gista hjá
vinkonu var ég fljót að koma til
þín. Að alast upp í Hnífsdal með
ömmu og afa í næstu götu er það
besta sem nokkur getur óskað
sér og vorum við systkinin það
heppin að geta komið til ykkar
afa á hverjum degi, fengið suðu-
súkkulaði, skúffuköku og ást og
umhyggju. Þú varst alltaf til
staðar og alltaf að baka. Þú gerð-
ir allt fyrir okkur og alla þína
fjölskyldu, við vorum þér allt og
við fundum alveg skilyrðislausa
ást frá þér.
Elsku amma, ég veit að allir
deyja en ég hélt að þú færir aldr-
ei eða allavega ekki strax. Til-
hugsunin um að fá ekki að spjalla
við þig og knúsa þig er óbærileg
en ég hugga mig við það að þú
ert komin á góðan stað þar sem
margir elska þig eins mikið og
við.
Elsku amma, ég sakna þín al-
veg óendanlega mikið og veit þú
verður hjá mér þótt þú sért far-
in. Ég elska þig alltaf.
Þín
Marta.
Margt hefur leitað á hugann
undanfarna daga, ekki síst hve
Jana hefur verið stór hluti af
fjölskyldu okkar og við af henn-
ar. Munum enda ekki annað en
að þau hjónin væru nefnd í sömu
andrá, Jana og Kalli eða Kalli og
Jana. Minningar um heimsóknir
út í Dal ná langt aftur í frum-
bernsku, reyndar eru Nonni og
Diddý, þau elstu okkar systkin-
anna, fædd í Hnífsdal.
Foreldrar okkar fluttu frá
Súðavík með hópinn sinn í
Grænadal haustið 1952 og voru
þeir þá samferða bræðurnir á
Mími ÍS 30 og þar bjuggum við
saman þar til að þau fluttu í hús-
ið sitt við Skólaveg, og þegar við
fórum úr Grænadal fluttum við í
næsta hús fyrir ofan þau, Bakka-
veg 10.
Í minningunni eru þeir bræð-
urnir á sjónum og þær Jana og
mamma með barnahópinn og all-
ir í sátt og samlyndi, hlaupið
milli hæða og börnin öll sem einn
systkinahópur. Þegar flest var í
Grænadal vorum við sextán í
húsinu, því afi og amma, foreldr-
ar bræðranna, bjuggu með okk-
ur um skeið. Slík forréttindi
þekkjast varla í dag að fá þannig
að alast upp saman, tengslin
urðu enn sterkari og metum við
það mikils. Við þökkum Jönu og
Kalla tryggðina og elsku við okk-
ur systkinin og foreldra, og alltaf
voru þau nærri þegar áföll urðu í
okkar hópi. Og saman tókumst
við á við áfallið þegar Svanurinn
fórst.
Alltaf var gott að koma á
Skólaveginn, ekki síður eftir að
við fórum úr Dalnum. Einhverju
sinni þegar stórfjölskyldan var
fyrir vestan voru allir kallaðir í
kaffi og með því í garðinn þeirra
og það var notaleg stund, veit-
ingarnar handlangaðar út um
gluggann á svefnherberginu. Og
ekki voru móttökurnar síðri þeg-
ar þau Kalli voru flutt á Hlíf,
mikið erum við búin að tala um
þær dýrmætu stundir, síðast í
júní í fyrra og í vetur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.́
(Vald. Briem.)
Elsku frændi og hópurinn
ykkar allur, Guð gefi ykkur
styrk og kraft til að takast á við
þennan mikla missi. Minningin
um Jönu lifir með okkur öllum
sem kynntust henni á langri ævi.
Sigfríð (Diddý), Ingi og
Bára.
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013
✝ Sigrún ErlaVilhjálmsdóttir
fæddist á Hvamms-
tanga 12. septem-
ber 1950. Hún lést í
Reykjavík 26. ágúst
2013.
Foreldrar henn-
ar voru Ásta Að-
alheiður Kristjáns-
dóttir, f. 14.10.
1929 og Halldór
Vilhjálmur Jóns-
son, f. 29.2. 1916, d. 26.8. 1985.
Þau skildu. Seinni maður Ástu
er Hákon Guðmundur Torfason,
f. 1.3. 1929. Alsystir Sigrúnar
Erlu er Anna Sigurbjörg, f. 12.
7. 1953, d. 11.2. 2012. Hákon
gekk þeim systrum í föður stað
og ættleiddi þær síðar. Hálf-
systkini af föður, Björn Marinó,
f. 26.8. 1963, Jónína og Þórhild-
ur, báðar, f. 9.6. 1965. Sigrún
Erla ólst upp hjá Ástu og Há-
koni í Reykjavík og á Sauðár-
króki, þar sem hún bjó síðar
ferðalögum, hún fór sem skipti-
nemi til Bretlands þegar hún
var 16 ára og vitnaði oft til
þeirrar reynslu. Hún var alla tíð
mjög áhugsöm um ferðalög er-
lendis og átti um tíma marga
pennavini um allan heim. Hún
var alla tíð að leggja drög að
ferðum með fjölskylduna og
kom hún allmörgum slíkum í
kring, einnig ferðuðust þau
hjónin mikið. Hestamennska átti
hug hennar um langt skeið, allt
frá því hún var í sveit hjá ömmu
sinni og afa í Vatnahverfi. Sig-
rún Erla var vinur vina sinna og
þegar vinabönd höfðu myndast
voru þau traust. Hún stóð mjög
þéttan vörð um hag og hags-
muni barna sinna og fjölskyldu.
Hún hóf starfsferil sinn ung,
starfaði lengst af við skrif-
stofustörf og í rekstri, fyrst hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga, Stein-
ullarversmiðjunni, aðalbókari á
bæjarskrifstofum Sauðárkróks,
fjármálastjóri hjá Drífu ehf. í
Garðabæ, Vinnumálastofnun
Norðurlands vestra, átti og rak
Ceres ehf. frá 2002 fram að and-
láti.
Útför Sigrúnar Erlu fer fram
frá Sauðárkrókskirkju í dag, 7.
september 2013, kl. 14.
ásamt eiginmanni
sínum og börnum.
Sigrún Erla gift-
ist hinn 27.4. 1969,
Hallgrími Þór Ing-
ólfssyni, f. 23.9.
1946, frá Suð-
árkróki. Börn
þeirra eru: 1) Há-
kon Hallgrímsson,
f. 18.11. 1969, eig-
inkona hans er
Hrefna Guðmunds-
dóttir, f. 6.3. 1970. Börn þeirra
eru Hafþór, f. 27.4. 1992, Haf-
rún, f. 11.7. 1998, og Hafsteinn,
f. 8.3. 2000. 2) Unnur Hallgríms-
dóttir, f. 13.11. 1971. Dóttir
hennar er Berghildur Ýr Axels-
dóttir, f. 11.6. 2001. 3) Þór Hall-
grímsson, f. 20.9. 1980, eig-
inkona hans er Sandra Heimis-
dóttir, f. 10.12. 1982. Börn
þeirra eru Vikar Máni, f. 10.11.
2002, Vignir Kári, f. 21.2. 2009
og Elvar Þór, f. 3.1. 2013.
Sigrún Erla hafði gaman af
Elsku Sigrún mín.
Ég trúi ekki að þú sért farin frá
okkur. Lífið virðist svo óraun-
verulegt og tilhugsunin um að fá
aldrei að sjá þig aftur er mér um
megn. Orð fá ekki lýst hversu
yndisleg manneskja þú varst. Það
var alltaf svo notalegt að vera ná-
lægt þér, þú varst alltaf svo hlý og
góð. Fjölskyldan var þér allt og
þú varst alltaf til staðar, bæði í
sorg og gleði. Ég finn enn fyrir
þéttu faðmlagi þínu, sé fyrir mér
fallegt bros þitt og hláturinn þinn
ómar í höfði mér.
Ég væri ekki sú manneskja
sem ég er í dag ef ég hefði ekki
kynnst þér, þú kenndir mér svo
margt og við upplifðum svo margt
saman. Minningarnar um þig eru
óteljandi og hjálpa þær til við að
takast á við þá miklu sorg sem
tekið hefur yfir um stund. Ég er
svo þakklát fyrir allt sem þú hefur
gefið mér í lífinu, öll símtölin, allar
samverustundirnar sem við átt-
um saman og öll þau ráð sem þú
gafst mér, allt er þetta mér ómet-
anlegt.
Ég á eftir að sakna þín svo sárt.
Þú varst frábær mamma og
amma sem fórnaðir öllu öðru til að
vera til staðar fyrir okkur öll. Það
er sárt að vita til þess að fá ekki
lengri tíma með þér en raun er.
Ég hefði ekki getað fengið betri
tengdaforeldra en ykkur, þig og
Hallgrím, og fyrir það er ég æv-
inlega þakklát. Elska ykkur alltaf
Þín tengdadóttir,
Sandra.
Elsku Sigrún.
Mig langar að þakka þér fyrir
hlýhug og góðvild í garð systur
minnar öll þau ár sem þið áttuð
saman. Hún var svo sannarlega
heppin að eiga þig að sem og
guðsynir mínir og fjölskyldan öll.
Þú lifir áfram í fallegum minn-
ingum fjölskyldunnar sem ann
þér svo heitt.
Elsku Hallgrímur, Hákon,
Unnur, Þór og fjölskyldur, ég
sendi ykkur styrk á hverjum degi
og vona að tíminn sefi sárustu
sorgina.
Kærleikskveðja
Rakel Heimisdóttir.
Ljóshærð og litfríð
og létt undir brún,
handsmá og hýreyg
og heitir Sigrún.
Hendingar úr ljóði Jóns Thor-
oddsen áttu vel við Sigrúnu Erlu
Vilhjálmsdóttur sem hefur kvatt
okkur svo óvænt og skyndilega.
Það er erfitt að hugsa til þess að
hún sé horfin á braut langt fyrir
aldur fram. Á kveðjustund lítum
við í vinahópnum til baka yfir far-
inn veg og minnumst margra
ánægjustunda sem við höfum átt í
áratugi, bæði hér á landi og í ferð-
um til annarra landa.
Fregnin sára af andláti Sigrún-
ar barst okkur, nokkrum úr vina-
hópnum, þar sem við vorum sam-
an á ferðalagi á Englandi.
Hópurinn okkar góði hefur haldið
saman lengi og má rekja upphaf
hans til skólavistar eiginmann-
anna í Tækniskóla Íslands.
Ein kvennanna var svo fram-
sýn að boða okkur konurnar til
stofnunar „kvenfélags“ vorið 1973
skömmu áður en eiginmenn okk-
ar luku prófum. Seinna bættust
fleiri í hópinn og má með sanni
segja að vinátta okkar hafi orðið
sterkari með hverju ári. Sigrún
Erla er sú fjórða úr hópnum sem
fellur frá á réttum tveimur árum
og er því skarð fyrir skildi. Fljótt
kom í ljós hvað Sigrún Erla var
mikil atorkukona, dugleg til allra
verka, iðin, stefnuföst, glaðlynd
og snögg í tilsvörum. Hún var
kornung þegar þau Hallgrímur
gengu í hjónaband og stofnuðu
heimili, fyrst í Reykjavík en
seinna á Sauðárkróki og mörg hin
síðustu ár hafa þau átt sitt annað
heimili hér syðra. Það var sama
hvenær við komum til Hallgríms
og Sigrúnar Erlu, þau tóku alltaf
á móti okkur af miklum höfðings-
skap. Ógleymanleg er ferðin sem
saumaklúbburinn fór haustið
1995 norður í land, fyrst á Sauð-
árkrók og síðan til Akureyrar. Á
Sauðárkróki biðu okkar allra
uppbúin rúm og veislumatur og
við brottför vorum við leystar út
með fallegum náttkjólum sem
Sigrún Erla hafði valið í litum og
stærðum sem hæfðu hverri og
einni og eigum við margar þá enn.
Náttkjólarnir voru saumaðir hjá
saumastofunni Ceres, sem Ásta
móðir Sigrúnar Erlu rak um ára-
bil. Síðar tók Sigrún Erla við
rekstrinum og rak líka um tíma
tvær kvenfataverslanir, í Kópa-
vogi og á Akureyri. Hún lagði
hart að sér á erfiðum tímum en
svo fór að hún hætti rekstri versl-
ananna en þær rak hún af mikilli
lipurð og þjónustulund.
Þau Sigrún Erla og Hallgrímur
voru samhent og samrýnd hjón
svo að eftir var tekið og því er að
honum og fjölskyldunni allri mik-
ill harmur kveðinn aðeins hálfu
öðru ári eftir að systir hennar
lést. Við erum þakklát fyrir löng
og ánægjuleg kynni og vináttu
sem aldrei bar á skugga. Elsku
Hallgrímur, við sendum þér og
fjölskyldu þinni okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Sofðu, mín Sigrún,
og sofðu nú rótt.
Guð faðir gefi
góða þér nótt.
Fyrir hönd TÍ-kvenna 1973,
Guðbjörg Jónsdóttir og Hall-
gerður Gunnarsdóttir.
Sigrún Erla
Vilhjálmsdóttir
Allar minningar á einum stað.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
O
R
48
70
7
01
/1
0
–– Meira fyrir lesendur
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar
Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá
árinu 2000 og til dagsins í dag.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
FurukisturÍslenskar
Netfang: kvisl15@internet.is
Íslensk hönnun
Útfararþjónustan ehf.
Rúnar Geirmundsson
Sími: 567 9110
Kista & ker