Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Á ráðstefnunni gafst ráð- stefnugestum kostur á að bera saman bækur sínar um rann- sókn mála og lagaumhverfið. Alda segir al- gengt að þótt rannsókn hefjist vegna gruns um mansal ljúki málum oft frekar með sakfellingu fyrir líkamsmeið- ingar, kynferðisofbeldi, vændi, fjármunabrot eða skjalabrot. Oft geti nefnilega reynst erfitt að færa sönnur á mansalið enda séu sönnunarkröfur stífar. Lagaum- hverfi á Íslandi standist fyllilega samanburð við lög sem gilda ann- ars staðar á Norðurlöndunum, m.a. vegna þess hvernig brugðist var við þegar mansalsmálið kom upp á Íslandi árið 2009 en þá voru fimm litháskir karlmenn dæmdir í 4-5 ára fangelsi. „Með því að deila þekkingunni eru meiri líkur á að okkur takist að koma í veg fyrir mansal,“ segir Alda. Stífar kröfur um sönnun BERA SAMAN BÆKURBAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Gæsla á landamærum Eistlands og Rússlands við ána Narva í Eistlandi er ófullnægjandi og brýnt er að bæta þar úr. Landamærin eru hluti af ytri landamærum Schengen- svæðisins. Alda Hrönn Jóhanns- dóttir, yfirmaður lögræðissviðs lög- reglustjórans á Suðurnesjum segir að eistnesk stjórnvöld séu meðvituð um vandann, en það hafi komið henni á óvart hversu lítil fyrirstaða sé á landamærunum. Viðbúnaður á landamærastöðinni við Narva miðist við að þar fari tvær milljónir manna í gegn á ári. Raunin sé hins vegar sú að 3,2 milljónir fari þar um árlega. Stöðin sé því mjög undirmönnuð. Ganga fram og til baka Í maí sl. sótti Alda ráðstefnu um mansal sem haldin var í Eistlandi af samtökum lögreglukvenna við Eystrasalt. Hún skoðaði landa- mærastöðina við Narva ásamt þremur norrænum lögreglumönn- um og segir að þeim hafi öllum komið á óvart hversu slæm staðan var. Yfir ána Narva liggur mikilvæg þjóðleið milli Rússlands og Eist- lands. Bílaumferð er mikil en einnig er hægt að fara gangandi yfir landamærin. Alda segir algengt að fólk noti Narva-brúna til að fara yf- ir landamærin tvisvar á dag, m.a. til að kaupa ódýrari sígarettur í Rúss- landi. Þarna sé mikil fátækt og at- vinnuleysi og laun þeirra sem þó hafa vinnu séu yfirleitt mjög lág. Glæpatíðni sé á hinn bóginn afar há. Í ljós hafi komið að landamæra- verðir hafi fengið litla fræðslu um mansal og einkenni þess. Slæleg gæsla á landamærunum þýði m.a. að auðveldara sé fyrir austurevr- ópsk glæpasamtök að athafna sig þar, m.a. til að stunda mansal. Mik- ið sé um að konur frá lýðveldum fyrrverandi Sovétríkjana, frá Moldóvíu og víðar séu seldar man- sali til Vestur-Evrópu. Þá geti leiðin legið um Rússland og Eistland. Hluta ráðstefnugesta gafst kost- ur á að fylgjast með störfum eist- nesku lögreglunnar og viðfangsefn- um hennar. Alda heimsótti athvarf fyrir vændiskonur í Tallinn, höf- uðborg Eistlands. Í athvarfinu geta vændiskonur m.a. fengið sprautur, en margar eru fíklar, en einnig getnaðarvarnir og heilbrigðisþjón- ustu. Þær sem þess óska fá aðstoð við að losna úr vændinu. Í heim- sókninni hafi komið fram að algengt væri að eistneskar og lettneskar konur væru neyddar í hjónabönd. Gjarnan væru þær fluttar til Ír- lands þar sem þær væru giftar Pak- istönum sem gerðu þær út í vændi. Ljósmynd/Tõnis Lepp Barátta Yfirvöld í Eistlandi þurfa að glíma við sterka glæpahópa. Myndin er frá Tallinn, höfuðborg Eistlands. Greið leið frá Rúss- landi inn á Schengen  Ófullnægjandi landamæragæsla við Narva í Eistlandi María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Um 132 þúsund erlendir ferða- menn fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðastliðinn ágúst eða 16.500 fleiri ferðamenn en í ágúst í fyrra. Aukningin nem- ur 14,4% milli ára og er þetta met- fjöldi ferðamanna í einum mánuði. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Ferðamálastofu. Ef litið er til fjölda ferðamanna í ágúst á því tólf ára tímabili (2002- 2013) sem Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum má sjá fjölgun ferðamanna. Ferðamönnum hefur fjölgað um 81 þúsund á tímabilinu og farið úr 50 þúsundum árið 2002 í 132 þúsund árið 2013. Aukningin hefur verið að jafnaði 9,3% milli ára en sveiflur hafa hins vegar ver- ið miklar. Flestir frá Bandaríkjunum Bandaríkjamenn, Þjóðverjar, Frakkar og Bretar eru tæplega helmingur ferðamanna. Af ein- staka þjóðernum voru flestir ferða- menn í ágúst frá Bandaríkjunum (14,7%), Þýskalandi (14,0%), Frakklandi (9,8%) og Bretlandi (7,7%). Þar á eftir komu Ítalir (4,8%), Norðmenn (4,6%), Spán- verjar (4,6%), Danir (4,2%) og Sví- ar (3,8%). Af einstaka þjóðum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Bret- um og Þjóðverjum mest milli ára í ágúst. Frá áramótum hafa 566.762 er- lendir ferðamenn farið frá landinu eða um 94 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 20,0% milli ára. Um 36 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst eða 250 færri en í ágúst í fyrra. Frá áramótum hafa um 240 þúsund Íslendingar farið utan, um 2.500 færri en á sama tímabili árið 2012. Fækkunin nem- ur 1% milli ára. Ferðamenn aldrei verið fleiri í ágúst  132 þúsund erlendir ferðamenn  Færri Íslendingar fóru til útlanda Morgunblaðið/Sigurgeir S. Flug Frá áramótum hafa 566.762 erlendir ferðamenn farið frá landi. Samkvæmt verð- könnun ASÍ hef- ur verð á vöru- körfu hækkað mest um 3% á rúmum mánuði eða frá því í ann- arri viku í júlí þar til í lok ágúst. Hækkunin var mest hjá Kaupfélagi Skagfirðinga eða um 3,2% en einnig hjá Víði (2,5%), Nóatúni (2,1%), Ice- land (2%), Bónus (0,8%), Kaupfélagi Húnvetninga (0,7%), Nettó (0,6%) og hjá Samkaupum-Strax og Kaskó (0,4%). Vörukarfan lækkaði mest hjá Tíu-ellefu (-1,2%), Krónunni (-0,9%), Hagkaupum (-0,6%), Kjarval (-0,4%) og hjá Kaupfélagi Steingríms- fjarðar (-0,1%). Engar verðbreyt- ingar voru á verði vörukörfunnar hjá Samkaupum-Úrvali. Bónus og Nóatún voru einu versl- anirnar sem hækkuðu verð í öllum vöruflokkum. Vörukarfan hækkar um 3% á mánuði Verðbreytingar í öllum flokkum. www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu Sænsku glæpa- sagnaverðlaunin 2012 „… einn helsti sumarsmellur ársins. Frábær krimmi.“ Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið „Óvenjuvel skrifaður krimmi.“ Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is Erum með allar gerðir af heyrnartækjum Fáðu heyrnartæki til reynslu og stjórnaðu þeim með ReSound Appinu Komdu í greiningu hjá faglærðum heyrnarfræðingi Heyrðu umskiptin og stilltu heyrnartækin í Appinu Finndu okkur á facebook Veglegur kaupaukifylgir öllum seldumheyrnartækjumí september Alda Hrönn Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.