Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.09.2013, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2013 Enn einu sinni er uppi á borði hjá Reykjavíkurborg að flytja flugvöllinn og byggja íbúðir í Vatns- mýrinni. Þessi um- ræða kemur reglulega upp með nokkurra ára millibili og er gjarnan vitnað til atkvæða- greiðslu sem fram fór fyrir nokkrum árum í Reykjavík þar sem örfáir tóku þátt, eða aðeins lítill hluti borgarbúa. Ég trúi því að flestir borgarbúar sjái ekkert að því að hafa flugvöllinn, það sýnir fjöldinn sem hefur skrifað undir á lending.is, en alltaf koma ein- hverjir sérhagsmunir upp á yfir- borðið og þar eru arkitektar og verktakar fremstir í flokki. Það er nú svo að landið undir flugvellinum er að hluta í eigu ríkisins og ekki hef ég trú á því að það sé for- gangsverkefni hjá nýrri ríkisstjórn að byggja nýjan flugvöll. Það er áreiðanlega nóg annað við fjár- muni ríkisins að gera. Reykjavíkurflugvöllur gegnir margþættu hlutverki: Þar er miðstöð innan- landsflugs, miðstöð þjónustuflugs, s.s. sjúkraflugs Landhelg- isgæslu, Flugmála- stjórnar og Land- græðslu. Þar er aðsetur flugskóla og einkaflugvéla. Þar er miðstöð áætlunarflugs til Færeyja og Græn- lands. Þar er vara- flugvöllur fyrir milli- landaflug og önnur flugstarfsemi. Mikil atvinnustarfsemi Það eru margar röksemdir fyrir því að hafa flugvöllinn þar sem hann er: Fyrir Reykjavíkurborg skipta máli öll þau störf sem þar eru, eða vilja menn auka atvinnu- leysið í Reykjavík? Á árinu 1998 vann Hagfræðistofnun Háskóla ís- lands skýrslu um atvinnuáhrif Reykjavíkurflugvallar. Þá voru bein, óbein og afleidd áhrif af starfsemi flugvallarins talin vera 1.156 ársverk og efnahagsleg áhrif um 11 milljarðar króna. Sjálfsagt hefur þetta aukist síðan enda 15 ár liðin. Til viðbótar er svo eyðsla ferðamanna sem fara um flugvöll- inn, en það er ekki inni í þessum tölum. Núverandi meirihluti segist vera mjög umhverfisvænn og er t.d. að fjölga hjólreiðastígum, en með flutningi vallarins lengra í burtu er verið að auka mengun í umferðinni. Skiptir það ekki máli? Stjórnsýslan sem margir þurfa að sækja utan af landi er öll í Reykja- vík. Á að flytja hana í Reykja- nesbæ? Og aðalsjúkrastofnun landsins er í Reykjavík, eða á kannski að byggja nýjan landspít- ala utan Reykjavíkur? Þetta eru aðeins örfá dæmi um það sem þessi skipulagsbreyting gæti haft í för með sér fyrir Reykjavík. Mínútur geta skilið milli lífs og dauða. Fyrir landsmenn alla, sem vilja að höfuðborgin sinni skyldum sín- um, skiptir það máli, ekki síst fyrir sjúklinga, að flugvöllurinn er svo nálægt Landspítalanum. Þar geta mínútur skilið á milli lífs og dauða. Það skiptir líka máli fyrir sveitarstjórnarmenn og for- ystumenn aðra sem þurfa að sinna margvíslegum erindum í Reykjavík að flugvöllurinn er þar. Þá er það þjóðhagslega hagkvæmt að flug- völlurinn sé þar sem hann er, enda ekki mörg ár síðan allar flug- brautir Reykjavíkurflugvallar voru endurnýjaðar með sérstöku leyfi þáverandi borgarstjórnar. Það er því fáránlegt að ætla sér að fara að byggja nýjan flugvöll fyrir okk- ar litlu þjóð, við höfum engin efni á því. Og það er jafnfáránlegt að loka annarri flugbrautinni, eða 07/ 25, því hún skapar það öryggi sem krafist er að sé fyrir hendi á við- urkenndum flugvöllum. Þá er það skilyrði fyrir alþjóðaflugvellinum í Keflavík að varaflugvöllur sé til staðar og því hlutverki þjónar Reykjavíkurflugvöllur. Ég hvet því landsmenn til að setja nafn sitt á lending.is og standa saman um óbreytta stöðu Reykjavík- urflugvallar. Flugvöllurinn okkar allra Eftir Jónu Valgerði Kristjánsdóttur » Það er skilyrði fyrir alþjóðaflugvelli í Keflavík að varaflug- völlur sé til staðar og því hlutverki þjónar Reykjavíkurflugvöllur. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Höfundur er fv. alþingismaður og sat í Flugráði. Mig hefur dreymt fyrir þessu: Innan tíu ára verður vinsælda- músík (rokk, popp) að mestu liðin undir lok en í staðinn verður komið nýtt fyrirbæri; „HólóVisjón“. Þá verður kominn á markaðinn sérstakur spilari sem er eins og lágt borð (svona 1 x 2 metra flötur) en þar verður hægt að sýna nýjustu af- urðirnar á vinsældalistunum. Þeg- ar til þess gerðum renningi (eða öðruvísi smáhlut) er smellt í tækið birtist manneskja (t.d. söngvari) upp úr borðplötunni og fer með efnið sitt. Skemmtikrafturinn er jafnraunverulegur og venjuleg manneskja og hægt er að skoða hann frá öllum hliðum. Það er líka hægt að stilla stærð hans frá því að vera um eitt fet á hæð og upp í rúma þrjá metra. En – þar sem ekki er hægt að skoða HólóVisjón í símum, tölvum eða sjónvarpi verður maður að kaupa efnið fyrir spilarann til að njóta þess sem best (þótt kannski verði hægt að heyra lögin í útvarpi eða síma). Músíkfyr- irbærið sjálft verður ólíkt öllu sem við þekkjum í dag og eins konar æði fer af stað – þótt þetta verði, að vísu, aldrei eins vin- sælt og Rock’n’Roll varð upp úr 1955 eða The Beatles upp úr 1963. Kannski verða svona tæki komin í fín veitingahús um 2020. Þá sér mað- ur einhvern heimsfrægan skemmtikraft spretta upp úr gólf- inu og taka lagið. Hann verður kannski um þrír metrar á hæð og fólk getur labbað allt í kring um hann. Einu eða tveimur misserum seinna getur efnað fólk keypt sér svona tæki og þá fara menn að safnast saman í fínum húsum til að sjá herlegheitin – en líklega verða HólóVisjón-tækin ekki komin inn á annað hvert heimili fyrr en 2023- 2024, vegna þess að afspilunar- tækin verða nokkuð dýr til að byrja með. Hugsið ykkur bara – árið 2023 kemur fólk saman til að eiga nota- lega stund í heimahúsi með kunn- ingjum sínum. Skyndilega birtist rúmlega tveggja metra há maga- dansmey upp úr gólfinu og fer að kyrja vinsælt lag. Einhver í hópn- um er ekki nógu ánægður með hana og vill fá eitthvað hefðbundn- ara, svo gestgjafinn slekkur á kon- unni, en skömmu síðar birtist flyg- ill á staðnum sem stúlkan var á. Ungur maður situr við hljóðfærið og fer að spila. Einhverjum finnst hann óþarflega stór, svo hann er minnkaður þar til hann er ekki nema um hálfur metri á hæð. Kannski birtist fiðluleikari við hliðina á honum fyrr en varir og þannig líður kvöldið. Kannski verður eitthvað þessu líkt að veru- leika innan áratugar eða svo – kannski ekki. Mig bara dreymdi fyrir þessu um daginn. Tónlistaræði framtíðarinnar Eftir Þorstein Eggertsson »Kannski verða svona tæki komin í fín veitingahús um 2020. Þorsteinn Eggertsson Höfundur er rithöfundur og söngvaskáld. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ fi p y j g p Carpaccio með valhnetu-vinaigrette og klettasalati Grafið lam Villibráðar-paté með paprik Bruchetta með tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparrótars Bruchetta með hráskinku, balsam og grill uðu Miðjarðarhafsgrænm - salat fersku k r y d d j u r t u m í brauðbo með Miðjarða Risa-rækj með peppadew Silu með japönsku majón si sinnepsrjóma- osti á bruchet Hörpuskeljar, 3 smá Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og fersku Vanillufylltar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarb Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R sahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er alltaf það sama, glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð. Persónuleg og góð þjónusta. Fyrir þá sem elska hönnun Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.